Morgunblaðið - 28.11.1999, Page 6
6 SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðabankinn eða Al-
• ^
eftir Rudi Dornbusch
The Project Syndicate
ÞÓ AÐ leit alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins að næsta forstjóra eigi
eftir að vekja mésta athygli næstu '
vikur og mánuði «r það stefna
sjóðsins sem skiptir mestu máli.
Slagurinn um það hvor stofnunin
hafi haft rétt fyrir sér á undan-
förnum árum er hafinri; Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn, með sína
stífu stefnu eða Alþjóðabankinn
með óhefðbundnari aðferðir.
Þessi umræða hefur kraumað-
undir niðri allt frá hruninu í
Mexíkó árið 1995. Er stefna Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins of stíf eða
jafnvel öfugsnúin og þrýstir hún í
raun efnahagskerfum út í gjald-
þrot? Eru hinar hönnulegu fé-
lagslegu afleiðingar sem fylgt
hafa kreppum síðustu ára AI-
þjóðagjaldeyrissjóðnum að
kenna? Hinu síðarnefnda var
haldið fram af ýmsum í Asíu, þar
sem ríkisstjómir, þar á meðal
Japansstjóm, hvatti til stofnun
sérstaks gjaldeyrissjóðs fyrir As-
íu sem hefði aðra og mýkri stefnu.
Þessi sjónarmið fengu mikinn
hljómgrunn og óvæntan liðsmann
þegar Joseph Stiglitz, helsti hag-
fræðingur og aðstoðarbankastjóri
Alþjóðabankans, lagði nýverið til
að Kínverjar ættu að lækka geng-
ið til að ná betri samkeppnisstöðu
gagnvart nágrannaríkjunum.
Fyrir ríkisstjórnir sem sótt hef-
ur verið að úr ýmsum áttum, líkt-
ust lækningar þær sem Stiglitz
ráðlagði, rósailmi við kerti og ljúfa
tóna. Hægt var að komast hjá
miklum niðurskurði og himinhá-
um vöxtum. Ummæli Stiglitz vom
gífurlega mikil stuðningsyfirlýs-
ing við þá sem eru á móti hinni
stífu stefnu Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, rugluðu þær bæði al-
menning og þá sem móta stefnuna
í ríminu. En þetta hljómaði vel í
eyrum Japana sem vom að afla
sinni stefnu stuðnings í Asíu og
einnig hljómaði þetta vel í eyrum
Dr. Mahatir í Malasíu sem sl^era
vill upp herör gegn stofnanawpð-
ingu.
I orrahríðinni var hreintr
stefna Alþjóðagjaldeyrissjóðsij
varin af æðsta presti hans, St
ley Fischer, aðstoðarforstjóra'
hagfræðingi með ekki síður glæsi-
legan akademískan feril og Stigl-
itz. Þessi umræða hélt áfram allt
fram að nýafstaðinni ráðstefnu
sem haldin var í Singapore þai-
sem Mahatir/Stilitz fylkingin vann
glæsilegan sigur, sem var kórón-
aður með því að hópur asískra við-
skiptajöfra stóð fagnandi úr sæt-
um. Enn og aftur töluðu Japanir
U ^PRO
fora daqui SHC
“ö
Associated Press
Aðferðum brasilísku stjórnarinnar og IMF mótmælt í Brasilíu. Greinarhöfundur er þó þeirrar
skoðunar að fátt hafí reynst betur í kreppum undanfarinna ára en að fara að ráðum IMF.
Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn hefur litla hæfileika
til að sjá kreppurnar fyr-
ir, en hann grípur til
réttra ráða með áhrifa-
ríkum hætti þegar kemur
að því að leysa úr krepp-
unum eftir að þær hafa
skollið á.
fyrir því að stofnaður yrði alþjóða-
gjaldeyrissjóður í Asíu, þar sem
möguleiki væri á annarri stefnu
sem væri ekki eins sársaukafull og
stefna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Hver hefur rétt fyrir sér? Er
óeðlilegt að spyrja að leikslokum?
Nú um stundir er Asía á góðum
batavegi, þau lönd sem fóru verst
út úr kreppunni eru nú þegar
komin í eða nálægt því að komast í
sömu þjóðarframleiðslu og fyrir
kreppuna. Gjaldmiðlar sem
hryndu nánast 97/98 hafa styrkst
veriilega, markaðir sem hrundu
há|a byggst upp aftur. Fjárfestai-
ertf .að streyma tO baka. Kórea
sem hrundi síðast stendur núna
best með tveggja stafa hagvexti
og vaxtastig sem er ekki langt yfir
vaxtastiginu í Ameríku.
Jú, kreppan var raunveruleg og
enn liggur brakið á víð og dreif.
Stöðugleikinn hefur hins vegar
verið ótrúlega fljótur að ná fót-
festu. Hin snörpu umskipti sem
áttu sér stað í Mexíkó voru hrað-
ari og meiri en vænst hafði verið.
Sama mynstur átti sér stað í
Brasilíu, þar sem kreppunni lauk
stuttu eftir að hún skall á.
Hvers vegna? Stefna Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins hreif. Asía,
Mexíkó og Brasilía tóku upp
stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins;
þau hækkuðu vextina mikið til að
reyna að gera gjaldmiðilinn stöð-
ugri; og þegar stöðugleikanum
var náð og traust fjárfesta endur-
heimt var hægt að lækka vextina.
Hagkerfin í Asíu fylgdust líka
grannt með ríkisfjármálunum
þegar stórkostlegar hjálparað-
gerðir neyddu þau til aukins að-
halds. Peningar byrjuðu að
streyma tO baka sem þrýstu gjald-
eyrinum upp í næstum því sama
og fyrir kreppu. Það sem virtist í
fyrstu hafa verið yfirvofandi hrun,
reyndist með tímanum aðeins
vera óáran og fljótlega óvenju
slæm staða.
En af hverju á að hlaða aðferð-
um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
lofi? Öll lönd fylgdu svo að segja
sömu stefnu, þar með talin Mal-
asía þrátt fyrir mælskulist dr. Ma-
hathir. Eina undantekningin var
Indónesía. í hvert skipti sem rík-
isstjórnin gaf eftir þá féll gjald-
miðillinn, í hvert skipti sem Indón-
esía snéri aftur til stefnu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þá
styrktist gjaldmiðillinn.
Að sjálfsögðu hefðu allir átt að
gera sér grein fyrir því að Asía var
að fara í gegnum sama ferli og
Mexíkó hafði gert stuttu áður. Því
miður láðist Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum að benda á árangur þann
sem náðst hafði í Mexíkó. Því mið-
ur leyfðist Asíu að halda því fram
að reynsla álfunnar hefði verið
einstök, jafnt hvað efnahagshrun-
ið varðar sem hinn skjóta bata, en
í raun var þetta aðeins endurtekn-
ing á mexíkósku ferli.
Þegar röðin var komin að Bras-
ilíu í lok 1998 og aftur á fyrri hluta
þessa árs, könnuðust allir við leik-
inn; Kosið var að nýju, naumlega
var komist hjá gengishruni, tekin
var upp stefna Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, og skjótur bati sá dags-
ins ljós. Hvaða lærdóm má svo
draga af þessu? Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn hefur litla hæfileika til
að sjá kreppurnar fyrir, hann er
hörmulegur þegar kemur að eftir-
liti, en hann grípur til réttra ráða
með áhrifaríkum hætti þegar
kemur að því að leysa úr kreppun-
um eftir að þær hafa skollið á.
Leiðir sem Alþjóðabankinn hef-
ur sett fram og hugmyndir Japana
um alþjóðagjaldeyrissjóð fyrir As-
íu hafa átt litlu fylgi að fagna þrátt
fyrir stuðning í orði kveðnu. Þau
lönd sem lent hafa í kreppum vita
betur. Þegar hagkerfi hi-ynja á
þann hátt sem enginn sér fyrir þá
leita löndin að festu og öruggum
lausnum. Þau lifa ekki í þeirri
blekkingu að í miðri fjármála-
kreppu og gjaldeyrisflótta vegna
spákaupmennsku geti mikiO fjár-
lagahalli og auðfengið fjármagn
verið lausn mála. Slík stefna geng-
ur einfaldlega gegn heilbrigðri
skynsemi. Við skulum því hrópa
húrra fyrir Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum og húrra fyrir skilvirkum
aðferðum hans. Enginn ætti að
vera án þeirra.
Höfundurinn er prófessur íhag-
fræði við MIT-háskólann og var
áður aðalráðgjafi bæði hjá Al-
þjóðabankanum og Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum.
Kynlíf fyrir
leiki bætir
árangur
RANNSÓKNIR ítalskra vísinda-
manna þykja benda til þess að kyn-
líf fyrir kappleiki geti bætt frammi-
stöðu íþróttamanna, gagnstætt því
sem áður var talið, að því er fram
kemur í The Daily Telegraph.
Karlhormónið testósterón veldur
kynlöngun og árásargirni meðal
karlmanna og aukið magn þess í
blóði er talið bæta árangur í íþrótt-
um. Hingað til hefur verið talið að
með því að neita sér um kynlíf geti
menn valdið því að testósterón
safnist fyrir í likama þeirra og þar
með geti þeir átt von á betri
frammistöðu í íþróttum.
Talsmaður breskrar stofnunar á
sviði iþróttalækninga varaði þó
íþróttamenn við því að breyttar
venjur í undirbúningi fyrir leiki
gætu komið niður á árangri þeirra.
♦ ♦ ♦------ ■
Stjórn Ship-
ley fallin
Wellington. AP.
JENNY Shipley, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands og leiðtogi Þjóðar-
flokksins, játaði í gær ósigur eftir að
úrslit þingkosninga lágu fyrir.
Þar með er níu ára valdatímabili
íhaldsmanna á Nýja-Sjálandi lokið
og talið öruggt að ný miðjustjóm
taki við völdum innan skamms. „Það
virðist Ijóst að Nýsjálendingar hafa
kosið breytingar,“ sagði Shipley
klökk við fréttamenn í gær. Sigur-
vegari kosninganna er Helen Clark,
leiðtogi Verkamannaflokksins, en
flokkur hennar bætti við sig fimmtán
þingsætum. Lýsti Clark því yfir í
gær að hún myndi hefja undirbúning
nýrrar stjórnar strax um helgina.
Sambandssinn-
ar samþykkja
samkomulag
Belfast. AP.
FLOKKSRÁÐ UUP, stærsta flokks
sambandssinna á Norður-Irlandi,
samþykkti í gær að fallast á þá til-
lögu Davids Trimbles, leiðtoga
flokksins, að mynda héimastjóm
með Sinn Fein, stjórnmálaamii
írska lýðveldishersins, án þess að
IRA afvopnaðist fyrst.
Hart var deilt um tillögu Trimbles
á fundinum en að lokum samþykktu
480 fulltrúar tillöguna en 349 vom
henni andvígir.
Hefði verið felld var talin hætta á
að friðarumleitanir væru út um þúf-
ur.
Trimble beindi orðum sínum að
Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein,
eftir að úrslitin lágu fyrir. „Við höf-
um tekið stökkið, nú er komið að
þér,“ sagði Trimble.
SÖGQRI CJRVALI
Smásögur Þórarins Eldjáms hafa um árabil notið mikilla vin-
sælda. Nú hefur öllum bestu sögunum verið safnað saman í einn
belg - Sagnabelg.
Meðal sagnanna era Síðasta
rannsóknaræfingin, Klám-
hundurinn, Keflvíkingasaga
og fleiri. Hér nýtur sín
leiftrandi kímni Þórarins,
leikur hans að íslenskri
tungu og skörp sýn
á mannlífið.
Tvísýnar for-
setakosning-
ar í Urúgvæ
SÍÐARI umferð forsetakosning-
anna í Úrúgvæ fer fram í dag og
kosið verður þá á milli þeirra
tveggja frambjóðenda, sem fengu
flest atkvæði í fyrri umferðinni.
Skoðanakannanir benda til þess að
mjög lítill munur sé á fylgi fram-
bjóðendanna, Tabare Vazquez, 59
ára forsetaefnis bandalags sósíal-
ista og nokkurra klofningsflokka,
og Jorge Batlle, 72 ára miðjumanns
í Colorodo-flokknum. Kannanirnar
benda til þess að Batlle sé með 2-4
prósentustiga forskot og að 5-8%
kjósendanna hafí ekki gert upp hug
sinn.
Vazquez viðurkenndi í síðasta
sjónvarpsávarpi sínu fyrir kosning-
arnar á föstudag að brugðið gæti til
beggja vona í kosningunum. Stuðn-
ingsmenn hans selja hér fána og
barmmerki í miðborg Montevideo.