Morgunblaðið - 28.11.1999, Blaðsíða 50
* ;i) SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA í DAG
Einn fóstu-
dagur í viku
Jólafasta og langafasta eru hluti af
s _
Islands sögu. Stefán Friðbjarnarson
staldrar við föstuhald, saltfísk,
hagsæld og hungur.
í DAG, 28. nóvember, hefst
aðventan eða jólafastan. Hún
spannar fjórar síðustu vikurnar
fyrir jól, fæðingarhátíð Krists.
Óg skrifandi um föstuhald verð-
ur að staldra við lönguföstu,
föstutímann milli öskudags og
pálmasunnudags. Loks ber að
nefna okkar
vikulega föstu-
dag, sem er
„leif af eld-
fomri, viku-
legri hollustu-
föstu“, segir í
bók Árna
Björnssonar,
Hræranlegar
hátíðir.
Elzta föstu-
hald er rakið
til hollustu-
hátta. Það
þótti hyggilegt
af heilsufarsá-
stæðum að
setja sér regl-
ur um matar-
æði, eins og
fólk gerir
raunar enn í
dag, hver með
sínum hætti.
Hagræn sjónarmið landsfeðra
réðu og stundum ferð. Gæta
þurfti þess að vissar matarteg-
undir gengju ekki of skjótt til
þurrðar. Fleira kom til. Hebrear
bönnuðu allt kjötát í 40 daga
fyrir páska, síðustu vikurnar
fyrir sauðburð, en í fyrndinni
vóm páskar uppskeruhátíð hirð-
ingja. Þeir urðu síðar minning-
arhátíð Gyðinga um flóttann frá
Egyptalandi. Með kristnum
þjóðum era þeir höfuðhátíð til
minningar um upprisu Jesú
Krists.
Föstur vóm og viðhafðar í
kristnum sið. Páskafasta krist-
inna manna, þ.e. 40 daga fasta,
var komin í fastar skorður á 3.
eða 4. öld e.kr. Hún sótti fyrir-
mynd til frásagna um 40 daga
föstu Jesú í eyðimörkinni og
jafnlangrar föstu Móses enn
lengra aftur í tíma á Sínaifjalli.
Fastan var misströng eftir þjóð-
um og tímaskeiðum. Föstubann-
ið náði þó alltaf til kjöts. Helztu
ákvæði um langaföstu og föstu-
hald almennt hér á landi er að
fínna í Kristinna laga þætti, sem
lögtekinn var 1120 til 1130 og
síðar Kristnirétti Áma biskups
Þorlákssonar frá 1275, sem gilti
um land allt fram yfir miðja 14.
öld. „Hefðbundið bann við
neyzlu kjötmetis á langaföstu
virðist hafa verið í gildi sem
óskráð lög lengi eftir siðbreyt-
ingu,“ segir í bókinni Hræran-
legum hátíðum
Meginþorri íslendinga hefur
löngu lagt af föstuhald. Það
kemur þó mjög við sögu okkar,
afkomu og efnahag, fyrr á tíð -
og um okkar daga. Föstuhald
rómversk-kaþólskra þjóða, eink-
um við Miðjarðarhafið, hefur
Barn í hörðum heimi.
„markaðssett" íslenzkan saltfisk
með miklum ágætum, ef svo má
orðum haga. Saltfiskur (bacalao)
héðan þykir bera af annarri
sambærilegri vöru þar um slóð-
ir. Það heyrir og til sögu okkar
að snemma á þriðja áratug ald-
arinnar neituðu Spánverjar,
langstærstu
saltfiskkaup-
endur okkar,
að endurnýja
viðskipta-
samning við
okkur, nema
leyfður yrði
innflutningur
á borðvínum
hingað.
Flestra mat er
að sá gjörn-
ingur hafi öðr-
um fremur
brotið á bak
aftur áfengis-
bann, sem hér
ríkti á árunum
1915 til 1935.
Föstuhald,
hvort heldar af
hagrænum,
heilsufarsleg-
um eða trúar-
legum ástæðum, er verðugt
íhugunarefni. Það kallaði á stað-
festu og ögun, bæði þjóða og
einstaklinga, sem meira mætti
vera af í dag en raun ber vitni
um. Föstuhald getur að vísu far-
ið út í öfgar, eins og svo margt
annað, en það þjónar áreiðan-
lega jákvæðum tilgangi þegar
hagsýni og hyggindi ráða ferð.
Ofát og offita er stórt heilsu-
farslegt vandamál hjá flestum
velmegunarþjóðum um okkar
daga. Lyf og leiðir til megrunar
virðast vera góð söluvara og
gróðavegur í velferðarríkjum,
ekkert síður en „bacalao" á
Pýreníuskaga. Það er sjálfsagt
ekki við hæfi að flokka megran-
armeðferðir undir nútíma föstu-
hald, þótt heilsufarslegt mark-
mið sé af sama toga. En utan
hagsældarlandamæra betur
settra þjóða býr „hungraður
heimur". Þar deyr fólk unnvörp-
um úr næringarskorti á öld
menntunar, fjölmiðlunar og
tækni. Það er raunar ekki ýkja
langur tími síðan að hungUr-
veruleikinn var og íslenzkur
veruleiki.
Af þessum sökum er ekki úr
vegi að hagsældarfólk fasti hálf-
an föstudag - jafnvel heilan -
fjórar Jólaföstuvikur - og láti
andvirði einnar máltíðar - jafn-
vel tveggja - ganga til „hins
hungraða heims“ fyrir milli-
göngu Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Það væri í anda hans
sem aðventan og jólin eru
helguð; hans, sem sagði, að hver
greiði þeim gerður sem hjálpar
þarfnast - væri sér gerður.
Einn föstudagur í hverri jóla-
föstuviku. Það væri hóflegur en
góður ásetningur.
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til
Morgunblaðsins
og Flugleiða
DAGANA 17.-21. nóvem-
ber stóð Morgunblaðið, í
samstarfi við Flugleiðir,
fyrir fjórðu áskrifenda-
ferðinni til útlanda; að
þessu sinni til Washington
DC. Undirritaðan, sem
ásamt konu sinni var þátt-
takandi, langar að bera
fram bestu þakkir til
þeirra sem að þessari fróð-
legu og skemmtilegu ferð
stóðu og tala þá vonandi
fyrir hönd annarra ferða-
félaga.
Allt lagðist á eitt til að
gera þessa ferð ánægju-
lega; þægilegt flug með
ágætri umönnun áhafnar;
sól og blíðviðri alla dagana;
elskuleg fararstjórn Karls
Blöndals, blaðamanns
Morgunblaðsins, auk ann-
arra aðstoðarfararstjóra,
sem gerðu sér far um að
koma til móts við margvís-
legar óskir og þarfir ferða-
hópsins.
Séð eftir á má með sanni
segja að dagskrá ferðar-
innar hafi fullkomlega
staðist og held ég að al-
menn ánægja hafi ríkt
meðal þátttakenda. M.a.
var farið í skoðunarferð
um borgina, Hvíta húsið,
Capitol og söfn heimsótt,
leikhúsferð, körfuknatt-
leikur, farið í Arlington-
kirkjugarðinn, veitinga-
staðir sóttir og farið í
verslanir.
Ekki má gleyma frá-
bærri móttöku sendiherr-
ans okkar, Jóns Baldvins,
og starfsfólks hans. Þáði
hópurinn þar ágætar veit-
ingar í hinum nýju húsa-
kynnum sendiráðsins og
hlustaði á fróðlegt erindi
um tilurð og sögu Was-
hingtonborgar, sem sendi-
herrann hélt.
Síðasta daginn, til kl. 5,
höfðu menn frjálsan tíma.
Við hjónin, ásamt nokkr-
um úr hópnum, ákváðum
að sækja messu í elstu
blökkumannakirkju Wash-
ington, St. Augustine, sem
auk þess telst vera móður-
kirkja svartra kaþólikka í
Bandaríkjunum. Kirkja
þessi er þó líka sótt af
hvítu fólki vegna gospel-
söngs á sunnudögum.
Þetta er heillandi og
áhrifamikið sambland af
kaþólskri litúrgíu og
svartri hefð. Athöfnin var
hrífandi með skírn, ein-
söng, ræðu og kórsöng,
sem náði hámarki í lok
messunnar, er kórinn
söng faðirvorið af miklum
innileik. Enginn okkar
held ég að hafi farið
ósnortinn út úr þessu fal-
lega guðshúsi. Þarna
fannst mér trúin verða að
félagslegri upplifun á
áhrifaríkan hátt.
Þökk sé Morgunblaðinu
og Flugleiðum fyrir
ógleymanlega daga!
Með kveðju til farar-
stjóra og ferðafélaga.
Geir R. Tómasson.
RÚV - sjónvarp
HJÁ þessu merka sam-
eignarsetri okkar lands-
manna hófst fyrir nokkru
sú siðbót að Ieiða aftur til
öndvegis orðið góða
„þökk“ og hætta notkun
hinnar óþörfu slettu
„takk“. Nú að liðnum degi
Jónasar og ísl. tungu hefur
aftur slaknað á í þessu
efni. Því er hér farið fram
á að heimamenn RUV
haldi vöku sinni og siðbót-
inni áfram. RUV á að efla
ísl. menningu og „menning
er að gera hlutina vel“.
HVÞ
SKAK
Umsjiín Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opnu
móti í Bad Wiessee í Þýska-
landi í nóvember. Alexand-
er Shabalov (2.565), Banda-
ríkjunum, var með
hvítt, en Rússinn
Sergei Smagin
(2.580), hafði svart
og átti Ieik.
16. - Rxg3! (Nú ætti
hvíta staðan að
hrynja, því 17. Bxg3
er svarað með 17. -
Hxfl+! og síðan fell-
ur hvíti riddarinn á
d3) 17.Db3 - d5?
(Rétt var 17. -
Bxd4+! 18. cxd4 -
Rxd4 19. Rce5+ -
Rxb3 20. Rxg6 -
Rxal og svartur vinnur) 18.
Bxg3 - Bxd3 19. Rd2 -
Bxfl 20. Dxd5+ - Kh8 21.
Hxfl - Dd3 22. Hg2 -
Hxfl+ 23. Rxfl Þrátt fyrir
mistökin í 17. leik stendur
svartur ennþá til vinnings,
en hann missti hér af rétta
leiknum og tapaði skákinni
um síðir. A þriðjudaginn
sjáum við lok skákarinnar.
Með morgunkaffinu
Ast er...
...að fylgjast með
h vernig gengur.
TM Reg U.S. Pat. Off. — all rights reserved
(c) 1909 Los Angetes Times Syndcate
Mér finnst að maður eigi
alltaf að byggja upp svolitla
spennu og eftirvæntingu á
fyrsta stefnumóti.
Yíkverji skrifar...
(Laus við
56
Laus við 30 ára húðvandamál - Nýtt Iíf!!
-1-
D
VINKONA Víkverja segist ný-
lega hafa verið á ferð um
klukkan átta að morgni í nágrenni
Laugamesskóla. Þar liggur gang-
braut yfir Reykjaveg, milli sund-
lauganna og horasins á Kirkjuteig
og Reykjavegi. Hún ók til norðurs
eftir Reykjaveginum, í myrkri og
rigningu. Gatan var kolsvört og það
glampaði á hana. Hún tók eftir því
að bílamir, sem ekið var til suðurs,
höfðu verið stöðvaðir við gangstétt-
ina en í fljótu bragði segist hún ekki
hafa séð að neinn væri að fara yfir á
gangbrautinni. Hún kveðst alltaf
dálítið smeyk í umferðinni þegar
akstursskilyrði eru eins og þarna
var og stöðvaði því bílinn og rýndi
út um rúðuna, beint í sterk ljós bíl-
anna sem voru á móti. Þá sá hún
hreyfingu og af henni mátti ráða að
tvö reiðhjól skutust yfir götuna. Og
i þann mund sem þau voru að verða
komin yfir skaust það þriðja út á
götuna. Ekkert bai-nanna hafði end-
urskinsmerki hangandi í fötunum
sínum, hjólin voru ljóslaus og á
þeim voru ekki heldur endurskins-
merki. Hún segist ekki geta annað
en þakkað Guði fyrir að ekki fór illa
í þetta skiptið en hefur af því þung-
ar áhyggjur að á þessum stað og
öðrum í borg og bæ þar sem börn
eiga leið um sé mörg slysagildran.
xxx
VINUR Víkverja fékk á dögun-
um umslag í pósti, þar sem í
voru tveir fimm þúsund króna seðl-
ar og bréf. í bréfinu sagði meðal
annars að það hafi sennilega verið
sumarið 1995 eða 1996 að bréfritari
bakkaði lítillega á bíl þess sem hann
sendi bréfið, en bíllinn stóð þá kyrr-
stæður við fjölsótt hús í borginni.
„Mig minnir að þú hafir sagt að við-
gerðin hafi kostað um 7 þús. kr.
Hélt þú myndir senda mér gíróseðil
eða reikning, en það er nú engin af-
sökun. Hef munað eftir þessu annað
slagið, en ekki gert neitt í því. Fjár-
hagurinn kannski verið í þrengra
lagi lengstan part, lítil vinnan fram-
an af og síðan skilnaður. Þetta er
heldur engin afsökun. Hvað um það,
hér kemur loks greiðslan og biðst
ég afsökunar á þessum seinagangi,
sem er í rauninni fáránlegur.“
Vinur Víkverja kveðst eiginlega
fyrir löngu hafa verið búinn að
gleyma atvikinu, en sendingin hafi
komið sér skemmtilega á óvart.
Heiðarleikinn getur tekið á sig ýms-
ar myndir.
ARNI Finnsson sendi Víkverja
bréf vegna pistilsins fyrir viku,
þar sem furðu var lýst á því hvernig
14 framkvæmdastjórar náttúru-
verndarsamtakanna WWF, staddir
á fundi hinum megin á hnettinum,
gætu haft skoðun á skýrslu Lands-
virkjunar, vegna Fljótsdalsvirkjun-
ar, fáeinum dögum eftir að hún kom
út á íslensku. Víkverji fullyrti meðal
annars að skýrslan væri nokkur
þúsund blaðsíður, en það er rangt.
„Skýrslan sjálf er 143 blaðsíður að
lengd, auk fylgigagna, sem eru
u.þ.b. 180 blaðsíður í allt,“ segir
Árni. Síðan segir hann m.a.: „Hér
fellur Víkverji í sömu gryfju og
hann álítur framkvæmdastjóra
WWF hafa fallið í. Nefnilega, hann
hefur ekki lesið bréf það sem sent
var forsætisráðherrum íslands og
Noregs, auk umhverfisráðherrum
beggja landa, iðnaðarráðherra Nor-
egs, utanríkisráðherra Islands og
Norsk Hydro.“
Rétt er að Víkverji hafði ekki les-
ið bréfið en treysti heimildamanni
sínum, sem hann hefði betur ekki
gert. Eftir að hafa lesið hluta bréfs
framkvæmdastjóranna á ensku er
ljóst að Ámi hefur rétt fyrir sér.
Fjórtánmenningarnir taka skýrt
fram að þeir geti ekki myndað sér
skoðun á innihaldi skýrslunnar, en
telji hins vegar vitaskuld að ekki
verði hægt að líta á hana sem óhlut-
drægt mat á umhverfisáhrifum
virkjunarinnar.
FULL ástæða er til þess að vekja
athygli á því að í dag kl. 10 hefst
kantötuþáttaröð Halldórs Hauks-
sonar á útvarpsstöðinni Klassík FM
100,7. Þetta mun vera fjórða árið í
röð sem Halldór býður upp á slíka
þætti á aðventunni. I þáttunum
kynnir hann hinar yndislegu kan-
tötur snillingsins Johanns Sebasti-
ans Bachs, þættir síðustu ári voru
fyrsta flokks og engin ástæða til að
efast um að svo verði einnig nú.
Þættirnir verða alltaf endurfluttir
sama dag kl. 22.