Morgunblaðið - 28.11.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999 23
LISTIR
Tónleikar á djass-
viku Múlans
Krókódrll
í matarleit
Söngsveitin
Fílharmón-
ía á Selfossi
SÖNGSVEITIN Fflharmónía held-
ur aðventutðnleika í Selfosskirkju
á þriðjudagskvöld kl. 20.30. Á efn-
isskrá eru hátíðarverk og jólalög.
Stjórnandi Söngsveitarinnar er
Bernharður Wilkinson flautuleik-
ari og aðstoðarhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveitarinnar. Undir-
leikari kórsins er Guðríður St.
Sigurðardóttir píanóleikari og
raddþjálfari Elísabet Erlingsdótt-
ir söngkona. Á tónleikunum flytja
Bernharður og Guðríður einnig
verk fyrir þverflautu og píanó.
Um þessar mundir er væntan-
legur á markaðinn nýr geisladisk-
ur Söngsveitarinnar sem ber heit-
ið Heill þér himneska orð og eru
tónleikamir liður í því að kynna
efni sem á diskinum er. Á honum
eru margs konar hátíðarverk og í
sumum þeirrra leikur Douglas A.
Brotchie á orgel með kórnum.
Einsöngvari í þremur verkum er
Sigrún Hjálmtýsdóttir.
VIKUNA 29. nóvember til 5. desem-
ber verður djassvika á vegum djass-
klúbbsins Múlans og ríður Tríó Haf-
dísar Kjamma á vaðið með
tónleikum annað kvöld, mánudag-
skvöld. Tríóið er skipað, auk Hafdís-
ar Bjarnadóttur gítarleikara, Þórði
Högnasyni bassaleikara og Birgi
Baldurssyni trommuleikara. Þau
leika djass í anda Miles Davis og
Wayne Shorter svo einhverjir séu
nefndir.
Þriðjudagskvöld 30. nóvember
leika Sæmundur Harðarson og Dav-
íð Gunnarsson á tvo feita djassgít-
ara, Gunnai’ Hrafnsson á bassa, Al-
freð Alfreðsson á trommur og
Friðrik Theodórsson á básúnu.
Andrés Gunnlaugsson, Sigurður
Flosason, Birgir Baldursson og Þór-
ir Baldursson koma fram á miðviku-
dagskvöld.
Fimmtudaginn 2. desember koma
fram þeir Omar Einarsson gítarleik-
ari, Kjai-tan Valdemarsson píanó-
leikari, Jóhann Asmundsson bassa-
leikaii og Jóhann Hjörleifsson
trommuleikari.
Föstudaginn 12. desember leikur
hljómsveit frá Eistlandi, skipuð
djasssöngkonunni Margot Kiis
ásamt básúnuleikaranum Kaldo Kiis
og píanistanum Jan Alavera.
Laugardaginn 4. desember leikur
Bjöm Thoroddsen lög eftir Wes
Montgomery ásamt bassaleikaran-
um Gunnari Hrafnssyni og trommu-
leikaranum Pétri Grétarssyni.
Sunnudaginnl2. desember syng-
ur Ragnai- Bjamason við undirleik
Ástvaldar Ti-austasonar píanóleik-
ara, Gunnars Hrafnssonar bassa-
leikara og Péturs Grétarssonar
trommuleikara.
Allir tónleikai-nir hefjast kl 21:00
og er miðaverð 1.000 kr., en eldri
borgarar og námsmenn greiða 500
kr.
BOKMENNTIR
Barnabók
ÓGNARLANGUR
KRÓKÓDÍLL
Eftir Roald Dahl. Myndskreytingar
eftir Quentin Blake. Þýðing:
Hjörleifur Hjartarson. Mál og
menning, 1999 - 60 s.
ROALD Dahl er vel þekktur
meðal íslenskra barna og nokkrar
af sögum hans hafa orðið afar vin-
sælt lestrarefni hér á landi. Má
þar til dæmis nefna söguna um
Danna heimsmeistara, um Matt-
hildi, um Risaferskjuna og um
Kalla og sælgætisgerðina, allt ýkt-
ar ærslasögur þótt ólíkar séu.
Sagt er í formála að þessari bók
að nú sé verið að minnast þess að
20 ár eru liðin síðan hún kom
fyrst út, en þetta er í fyrsta sinn
sem hún kemur út hér á landi.
Dahl lést árið 1990 eftir mjög ár-
angursríkan rithöfundarferil.
I miðdepli sögunnar er krókó-
díll sem er staðráðinn í að ná sér í
krakka til hádegisverðar. Hann er
nokkurs konar afrísk Grýla, en
krakkamir i þessari sögu þurfa þó
ekki að hafa neitt til saka unnið til
að lenda í kjafti krókódílsins.
Ognarlangur er kjöftugur og segir
öllum sem heyra vilja um íyrirætl-
un sína. Öll dýrin hneykslast á
þessari grimmu áætlun en hann
lætur sér fátt um finnast. Oft
skellur hurð nærri hælum þegar
krókódíllinn er komin skelfilega
nálægt litlum krökkum sem
skemmta sér og átta sig ekki á
þeim dulargervum sem krókódíll-
inn getur sett sig í. Eins og í
sönnum ævintýrum fær krókódíll-
inn makleg málagjöld, en eftir for-
múlu höfundar er það engin
venjuleg refsing, heldur klessist
hann á sólina og grillast þar eins
og pylsa.
Myndirnar eru eftir frægan
myndskreytingarmann, Quentin
Blake, sem hefur skapað sér al-
þjóðlegan orðstír fyrir hugmynda-
ríkan stíl. Myndir hans túlka helst
það sem er fyndið og skoplegt og
allar skepnurnar sýna viðbrögð
sín svo ekki verður um villst. I öll-
um tilvikum fylgja myndirnar
textanum og styrkja hann.
Þýðingin er í sama stíl og
myndirnar, oft dálítið kostuleg og
orðaval dýranna er stundum há-
tíðlegt þegar þau eru að láta í Ijósi
algera þneykslun sína á fyrirætl-
unum Ógnarlangs. Málfarið fellur
vel að sögunni og íslensku heitin á
skepnunum eru frumleg og vel til
fundin. I sögunni hittum við fílinn
Rana, apann Eikarskoppa, Búttu-
bollufuglinn og Klump-Rump flóð-
hest. í textanum er talsvert um
endurtekningar sem hæfa vel litl-
um lesendum og sagan er skráð í
samtalsstíl svo nærvera krókódíls-
ins er ennþá meiri fyrir vikið.
Þetta er saga sem getur kitlað
spennutaugarnar, því það er ekki
fyrr en á síðustu stundu sem mál-
um er bjargað.
Sigrún Klara Hannesdóttir
Byrjaðu nýtt árþúsund með
gneistandi sólarleyfi í Florida!
■
■■i
' ‘3 r Í S 3I
I
s
i '■■■■:■'; P .
S
S
'W"
X
I
f *
Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða eða
Fjarsöludeild Flugleiða í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 8-20, laugard. kl. 9-17
og á sunnudögum kl. 10 - 16.)
Handhafár Gullkorts VISA og Flugleiða:
Florida2000
í jólapakkann
á sólbjörtu og freistandi
tilboðsverði fyrir handhafa
Gullkorts VISA og Flugleiða
Orlando
Sólskinsverð
á Claríon Florídian Hotel
2.jan-4.feb.
aðeins
46.990 kr.*
á mann í tvíbýli í 8 nætur.
Í2.feb. - 30. mars
aðeins
51.390 kr*
á mann í tvíbýli í 8 nætur.
St. Petersburg Beach
Sólskinsverð
á Sirata Beach Resort
6. - 24.jan.
aðeins
54.690 kr.*
á mann í tvíbýli í 8 nætur.
28.jan. -30. mars
aðeins
70.990 kr*
á mann í tvíbýli í 8 nætur.
Bjóðum einnig geislandi hagstætt verð á gististöðum Flugleiða annars staðar í
Florida, í Bradenton/Sarasota, Fort Mayers, Naples, Fort Lauderdale og South Beach.
Ferðatímabil er frá 6. jan. (fýrsta brottför) til 30. mars (síðasta brottför). Síðasta
heimkoma 15. apríl. Hámarksdvöl er einn mánuður.
Athugið! Þetta Floridatilboð gildir einvörðungu fyrir handhafa
Gullkorts VISA og Flugleiða. Takmarkað sætaframboð.
Innifalið í verði: flug, gisting og flugvallarskattar.
■'isr.
ICELANDAIR
www.icelnndnir.is