Morgunblaðið - 28.11.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.11.1999, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Ertu sanaur aödáaadi? -þú hefur þdð f Láttu GSM símann þinn tala máli uppáhalds íþróttafélagsins þíns og settu á hann framhlið í litum þess. Á næstu dögum færðu framhliðar á GSM síma* með litum og merkjum Morgunblaðið/Golli Frá sýningu Haraldar Jónssonar. Kortlagning til- fínningaflæðisins MYNDLIST Oneoone gallerí, Laugavegi 48b TEIKNINGAR OG MYNDBAND HARALDURJÓNSSON Til 7. desember. Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11-19 og laugar- daga frá kl. 11-17. Aðgangur ókeypis. HARALDUR Jónsson heldur áfram að kortleggja þann innri mann sem enginn sér í raun og veru en allir finna fyrir. Það er ein- ungis á allra seinustu árum sem menn eru farnir að geta numið áhrif hinna ýmsu boða á manns- hugann með því að skanna heilann og skoða hvernig ólíkar stöðvar lifna við mismunandi áreiti, gleði- leg, unaðsleg, óþægileg og sárs- aukafull. Þessi ósýnilega, en mikil- væga veröld sem bærist innra með okkur verður Haraldi að óþrjót- andi yrkisefni. I klæðaversluninni Laugavegi 48b hengir hann upp teikningar gerðar með rauðum filtpenna, sem taka mið af hinum ýmsu svæðum líkamans sem verða fyrir barðinu á tilfinningum. Reyndar er ekki að- eins um nótímalega nálgun að ræða því ’býsna langt er' síðan menn uppgötvuðu tengslin milli til- fínninga og líkamlegrar svörunar við þeim. Þannig er alþjóðlegt heiti þunglyndis, melankolía, dregið af grísku orðunum „svart gall“, sam- anber íslenska orðasambandið svartagallsraus. Eða hvaðan skyldi lundin okkar, létt eða þung, vera upp runnin? Á hún sér ef til vill rætur í vöðvunum eftir hryggnum innanverðum eins og ljúffengar lundirnar af skepnunum? Er það slíkt kjötmeti sem gerir suma meyrlyndari en aðra? Samhliða rauðum teikningunum lætur Haraldur prenta í sama rauða litnum stafróf tilfinning- anna, eða ýmis lýsingarorð í staf- rófsröð sem standa fyrir alla regn- bogans lyndiseinkunn. Á litlum skjá gegnt teikningunum blaktir lítil hrísla stöðugt eins og „lauf í vindi“. Þörf okkar fyrir ytri veru- leik til að endurspegla og túlka innri tilvist stafar af skorti á áþreifanlegum viðmiðum til að lýsa mannlegum tilfinningum. Enn og aftur sýnir Haraldur okkur hve undai-lega lítið við vitum um eðli okkar eigin vitundarlífs. Líkt og hríslan gagnvart síbreytilegu veðri; vindi, kulda og raka, sveifl- ast skap okkar í takt við þann fjörkipp sem færist í líkamsvess- ana í hvert sinn sem reynslan skekur okkur. Hingað til höfum við verið neydd til að lýsa þessu ástandi með myndhvörfum fengn- um úr hinni sýnilegu veröld. Því vill Haraldur vart una og gerir því hverja tilraunina af annarri til að lýsa tilfinningum beint og milliliða- laust með því að kafa undir sjálft skinnið. Halldór Björn Runólfsson íþróttafélaga í verslunum Símans. Hluti söluandvirðis rennur beint til viðkomandi íþróttafélags. * Framhliðarnar passa á Nokia 5110 og 3210 SÍMIN N *GSM www.gsm.is Sjáðu, hvað ég fegurst fann! BÆKUR T r ií I r æ ö i RÍKI GUÐS Sögur úr nýja testamentinu í end- ursögn Geraldine McCaughrean. Myndskreyting: Anna Cynthia Leplar. Þýðing: Vilborg Dagbjarts- dóttir. Prentun á Itaiíu. títgefandi: Mál og menning 1999. - 120 síður. HÉR rétta þroskaðar sálir fram gull, sem þær hafa fundið á jarð- lífsgöngu, til þeirra er þær unna, vafin í bænina um að framtíðar- sporin þeirra liggi um ylbraut sum- arskrúðsins. Bænin sú réð og vali efnis til endursagnar, myndski-eyt- ingar, þýðingar. Af þessu leiðir, að til gerðar bókar var vandað eins og hver kunni bezt, og slíku þeli fylgir ætíð gott verk. Leitazt er við að fylgja sögu opin- berunar guðs á jörðu, Krists, frá himni - um jörð - til himins. Álltaf má um mikilvægi deila, en mér seg- ir svo hugur, að val merkisteina við braut Krists hafi tekizt þannig, að hver sem les verði fróðari miklu um Nýja testamentið. Það var líka til- gangurinn, að eyra þitt heyrði hjarta guðs slá. Uppsetning minnir á ræðusafn: texti á spássíu og síðan útlegging, í orði og mynd, sem aðalmál. Geraldine sezt með barn í fangi og leitar með því að kjama textans og tekst vel. Ékki ber eg þar að minn málstokk, heldur anda þeirrar stefnu er kristin kirkja kýs að boð- un sín fylgi í dag. Bókinni hlýtur því að verða fagnað sem lesefni í kirkjum, skólum og við rúmstokk, - já, hvar sem kristinn ann barni, og því er trúað, að leiðsögn kenningar Krists bæti heim. Myndskreytingin dregur fólk að frásögn, varpar á hana ljósi, festir í minni. Mjög vel gert! Þýðing Vil- borgar er listagóð; - sumarylur málsins slíkur, að jafnvel stjörnur himins „Spretta" sem blóm á foldu, og draumsóleyjar „dansa“ um grund. Utgáfan hefir í gerð bókar í engu til sparað svo úr mætti verða frá- bær bók. Kærar þakkir. Sig. Haukur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.