Morgunblaðið - 28.11.1999, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Menning
sem at-
vinnugrein
✓
Byggðastofnun og Listaháskóli Islands
gengust fyrir námskeiði í liðinni viku undir
yfírskriftinni Menning sem atvinnugrein.
Hávar Sigurjónsson fylgdist með.
Morgunblaðið/Kristinn
Þátttakendur og fyrirlesarar í Reykjavík á fjarnámskeiði Listaháskólans og Byggðastofnunar. Ása
Richardsdóttir, Ragnheiður Þórarinsdóttir, Hanna Bachmann og Svanbjörg Einarsdóttir.
AMSKEIÐIÐ er fyrsta
samstarfsverkefni
stofnananna tveggja eft-
ir að þær gerðu með sér
samning í haust um samstarf á sviði
menningar- og listafræðslu á lands-
vísu. Umsjón með námskeiðinu fyr-
ir hönd Byggðastofnunar hafði
Guðrún Helgadóttir menningarfull-
trúi en skipuleggjandi og stjórnandi
námskeiðsins var Ása Richar-
dsdóttir.
50 manns á 18 stöðum
Við námskeiðið var beitt nýjustu
fjarskiptatækni og sátu þátttakend-
ur - menningarfulltrúar og stjórn-
endur menningar- og listastofnana í
18 sveitarfélögum - hver í sínum
heimabæ og fylgdust með fyrir-
lestrum og tóku þátt í umræðum
gegnum myndsendibúnað Lands-
símans. Með þessum hætti gátu um
50 manns um allt land tekið þátt í
námskeiðinu sem fram fór fjóra
morgna, frá 10-12 hvern dag. Fyr-
irlesarar á námskeiðinu voru Ing-
ólfur Ármannsson, menningarfull-
trúi Akureyrarbæjar, og Karítas
Gunnarsdóttir, deildarstjóri lista-
og safnadeildar menntamálaráðu-
neytisins. Fjölluðu þau um stjórn-
kerfi menningarinnar í landinu ann-
ars vegar sveitarfélaga og hins
vegar ríkisins. Annan daginn fluttu
erindi þær Ásta Bryndís Schram
frá Óperustúdíói Austurlands og
Sigríður Sigurðardóttir safnsyóri
Byggðasafns Skagafjarðar. Ásta
Bryndis sagði frá reynslu sinni af
einkaframtaki á listasviði á lands-
byggðinni og Sigríður fjallaði um
rekstur menningarstofnunar á
landsbyggðinni í opinberri eigu.
Blaðamaður hafði tækifæri til að
fylgjast með námskeiðinu tvo seinni
dagana og varð margs vísari og sér-
staklega var áberandi hversu mikill
hugur er í þeim sem sinna listum og
menningarstarfi á landsbyggðinni;
LJÓMAR nú jata lausnarans, er
yfirskrift jólatónleika Kvennakórs
Reykjavíkur, sem haldnir verða í
Hallgrímskirkju í kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 20.30.
hugur til að auka við starfið, til að
snúa vörn í sókn, taka höndum sam-
an og skapa þær aðstæður hver í
sinni heimabyggð að menning og
listir séu metin sem sú arðbæra at-
vinnugrein sem hún getur verið ef
rétt er á haldið.
Norræna samstarfið
Sjóða- og styrkjakerfi til samn-
orrænna verkefna og samstarfs-
verkefna á milli landa innan
Evrópusambandsins er að margra
áliti óárennilegur frumskógur og
erfitt að brjótast þar í gegn með
nokkrum árangri. Þær Ragnheiður
Þórarinsdóttir og Svanbjörg Ein-
arsdóttir voru fyrirlesarar á þeim
fundi námskeiðsins þar sem fjallað
var um erlent samstarf.
Ragnheiður er sérfræðingur í
menningarmálum hjá Norrænu
ráðherranefndinni í Kaupmanna-
höfn og urh hennar hendur fara
flestar umsóknir og fyrirspurnir um
styrkjamöguleika til samstarfs milli
aðila á lista- og menningarsviðinu. í
máli Ragnheiðar kom fram að
fjölmargir möguleikar eru í boði
fyrir einstaklinga, stofnanir og fé-
lög til að fá stuðning vegna sam-
starfsverkefna. Hún benti á að lyk-
ilhugtak í stuðningi við samnorræn
verkefni væri „Nordisk nytta“ eða
hversu gagnleg hugmyndin væri í
samnorrænum skilningi. Þá upp-
lýsti hún hversu margir sjóðir og
nefndir væru á vegum Norrænu
ráðherranefndarinnar sem sinntu
stuðningi við menningar- og lista-
starf og hvert aðilar gætu sótt varð-
andi tiltekin verkefni. Hún útskýrði
jafnframt að Norrænu ráðherran-
efndina mætti skilgreina sem fram-
kvæmdaaðilann en Norðurlandaráð
væri löggjafinn. Hún fjallaði jafn-
framt um Vestnorræna samstarfið
sem er samtök þeirra landa og
þjóða sem byggja nyrstu jaðra hins
norræna svæðis. Þar eru ísland,
Flutt verða gömul íslensk jóla-
lög, Ave Maria eftir Gustav Holst í
átta röddum, franskt tónverk eftir
Gabriel Faure, auk erlendra jóla-
laga við íslenska texta.
Grænland og Færeyjar stærst. Á
þeim vettvangi bjóðast einnig
möguleikar til fjárhagslegs stuðn-
ings við samstarf og hvatti Ragn-
heiður þáttakendur til að kynna sér
þau mál til hlítar.
Evrópusamstarfið
Svanbjörg Einarsdóttir starfar
sem framkvæmdastjóri Upplýs-
ingaskrifstofu Menningaráætlana
Evrópusambandsins sem rekin er
hér á landi og eru slíkar skrifstofur
starfræktar í flestum Evrópulönd-
um. Nefnast þær CCP eða Cultural
Contact Point og eru mikilvægur
hlekkur i þeirri flóknu keðju sem
styrkjakerfi Evrópusambandsins
er, ekki síður á menningarsviðinu
en öðrum sviðum.
I máli Svanbjargar kom fram að
breytinga væri að vænta í menning-
aráætlunum EES á næsta ári; und-
anfarin ár hafa menningaráætlan-
imar verið þríþættar, Ariane,
Raphael og Kaleidoskope. Á þessu
ári var í síðasta sinn úthlutað til
lista- og menningarstarfsemi sam-
kvæmt þessum áætlunum og við
tekur ein áætlun sem nefnist Cult-
ure 2000. Sagði Svanbjörg að enn
væri ekki orðið fyllilega ljóst hvem-
ig þessi áætlun yrði starfrækt en
stjóm EES hefði boðað að umsókn-
argögn og upplýsingar myndu ber-
ast í mars næstkomandi.
Sú breyting verður á fyrirkomu-
lagi við umsóknir að í stað þess að
gerð verði krafa um samstarf
minnst þriggja landa við hvert
verkefni verður nú krafist sam-
starfs á milli fjögurra, þó lítil lönd á
borð við ísland njóti nokkuð sér-
stöðu sinnar og þurfi ekki í öllum
tilfellum að uppfylla þessi ströngu
skilyrði. Kom einmitt fram í fyrir-
spurnum þáttakenda hvernig leita
ætti upp mögulega samstarfsaðila í
öðmm löndum, hvort til væri ein-
hvers konar listi þar sem hægt væri
Einsöngvari með kórnum er
Egill Ólafsson. Undirleikari er
Þórhildur Bjömsdóttir. Stjórn-
andi Kvennakórs Reykjavíkur er
Sigrún Þorgeirsdóttir.
að skrá sig og óska eftir samstarfs-
aðilum í öðram Evrópulöndum.
Sagði Svanbjörg slíkt ekki vera til
staðar með formlegum hætti en
skrifstofa hennar svo og CCP skrif-
stofur annars staðar væru allar af
vilja gerðar til að aðstoða við slíkt.
Ása Richardsdóttir sem stundað
hefúr nám á vegum Evrópusam-
bandsins í stjómun menningar-
stofnana, benti á að í þessu gilti hið
sama og í öðra, að nauðsynlegt væri
að ná tengslum við aðila í Evrópu
sem störfuðu á svipuðu sviði, án
þess að þekkja til þeirra væri erfitt,
ef ekki útilokað að finna sér sam-
starfsaðila. Verið væri að koma upp
eins konar óformlegu samskipta-
neti þar sem stofnanir og félög
gætu náð sambandi hvert við annað.
Svanbjörg benti á þann grundvall-
armun sem væri á hinu norræna
styrkjakerfi og því evrópska að þar
gætu einungis lögaðilar sótt um,
einstaklingar gætu hins vegar tekið
sig saman og sótt til hinna norrænu
sjóða.
Hið evrópska nálarauga
Ýmsum sögum hefur farið af því
hversu flókið og erfitt sé að sækja
um til Evrópusambandsins, um-
sóknum sé umsvifalaust hafnað ef á
þeim finnst minnsti tæknilegur
galli. Sagði Svanbjörg að þetta væri
að vissu leyti rétt, gríðarlegur fjöldi
umsókna bærist á hverju ári og
væri miskunnarlaust vinsað úr það
sem ekki stæðist kröfur um frágang
eða upplýsingar. Hún sagði að þetta
ætti samt ekki að fæla fólk frá að
sækja í þessa sjóði, aðeins þyrfti að
undirbúa umsóknir vandlega og
hiklaust skyldi leita aðstoðar við að
útfæra hugmyndir og fylla út um-
sóknir, því góð hugmynd og vel
unnin umsókn ætti alla möguleika á
að hljóta brautargengi. Hún sagðist
sjálf vera þess albúin að aðstoða við
slíkt og væri jafnvel tilbúin að koma
Tónleikarnir verða einnig flutt-
ir þriðjudaginn 30. nóvember kl.
20.30.
Miðasala er við innganginn.
á staðinn og vinna með heimamönn-
um við að undirbúa umsóknir. Var
greinilegt að þetta evrópska nálar-
auga varð mun rýmra og aðgengi-
legra í hugum þáttakenda við þess-
ar upplýsingar.
Signý Pálsdóttir hóf fjórða fund
námskeiðsins með erindi sem hún
nefndi Reynsla úr báðum áttum, en
hún er nú menningarmálastjóri
Reykjavíkurborgar en var áður
framkvæmdastjóri Listahátíðar í
Reykjavík og þar áður leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar. Hún kvað
augljósan mun á því að starfa sem
embættismaður innan svo flókins
stjómunarkerfis sem Reykjavíkur-
borg væri og hennar starf væri fólg-
ið í því að fylgja eftir og sjá um
framkvæmd á menningarpólitísk-
um ákvörðunum borgarstjórnar-
innar. í störfum sínum sem leikhús-
stjóri á Akureyri og við Listahátíð í
Reykjavík, sem hvoratveggja eru
sjálfseignarstofnanir væri yfir-
stjómin allt önnur og sjálfstæði fag-
legra stjómenda mun meira. Störf
hennar og búseta á Landsbyggðinni
hefðu hins vegar leitt af sér gjör-
breytt gildismat og dýpkað skilning
hennar á mikilvægi listsköpunar í
heimabyggðum. Hin svokalla
áhugamennska í listum og menn-
ingu væri undirrót þeirrar atvinnu-
mennsku sem þróast hefði í öllum
listgreinum í landinu undanfarna
áratugi. Áhugamennskan þyrfti
jafnframt að blómstra. Undir þetta
tóku þáttakendur heilshugar og var
það samdóma álit að nauðsynlegt
væri að efla möguleika atvinnulista-
manna til búsetu á landsbyggðinni
en slíkt hleypti undantekningar-
laust auknum krafti í listsköpun
heimamanna. Var sérstaklega bent
á tónlistarmenn í þessu sambandi,
en öflugt starf tónlistarskóla víða
um land hefur gert tónlistarmönn-
um kleift að setjast þar að og
stunda kennslu sér til framfærslu
og iðka eigin listsköpun að auki. Ofl-
ugt kórastarf, tónleikahaid og tón-
leikaferðir væra afrakstur þessa.
Var þetta m.a. inntak erindis Sig-
ríðar Ragnarsdóttur skólastjóra
Tónlistarskóla ísafjarðar, en hún
fjallaði um hvernig efla mætti
menningarstarf á landsbyggðinni
og hvatti hún til samstarfs á milli
sveitarfélaga, með heimsóknum og
sameiginlegum verkefnum.
Signý hafði einmitt bent á að
Reykjavík Menningarborg 2000
væri í samstarfi við fjölmörg sveit-
arfélög í landinu um ein 30 verkefni
á menningarárinu, þau hefðu nán-
ast öll verið að framkvæði heima-
manna og því væri svo sannarlega
ekki skortur á hugmyndum eða
hæfileikum vítt og breitt um landið.
í lokin lýstu allir þátttakendur
yfir ánægju sinni með vel heppnað
námskeið og kom fram eindreginn
vilji allra til að halda samstarfi og
skoðanaskiptum áfram með ein-
hverjum hætti. Ása Richardsdóttir
boðaði útgáfu ítarlegi-ar skýrslu um
námskeiðið og kjölfar útkomu
hennar yrði boðað til málfundar
með þátttakendum námskeiðsins.
Að svo mæltu slökktu þátttakendur
á hverjum stað á sjónvarpi sínu og
héldu til sinna daglegu starfa.
Kvennakór Reykjavíkur heldur tvenna jólatónleika í Hallgrímskirkju.
Jólatónleikar Kvennakórs Reykjavíkur