Morgunblaðið - 28.11.1999, Page 56

Morgunblaðið - 28.11.1999, Page 56
36 SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Þroskasaga okkar Þuríðar Sara Dögg Asgeirsdóttir sem leikur Þuríði í Myrkrahöfðingjanum sagði Hildi Loftsdótt- ur að hún hefði sótt um hlutverkið af for- vitni og ævintýraþrá. SARA DÖGG er tæplega 23 ára yngismær, fersk og orkumikil eftír útíveruna í sveitinni þar sem er að byggja fjós með föðurbróður sínum og fleira fólki. Og ástæðan fyrir því að þessi dugnaðarforkur er kominn til borgarinnar er frumsýning kvik- myndarinnar Myrkrahöfðinginn eftir Hrafn Gunnlaugsson, þar sem Sara Dögg leikur Þui-íði, stærsta kvenhlutverk myndarinnai-. Efni Myrkrahöfðingjans er inn- islásið af Píslasögu Jóns Magnús- sonar og galdraárásunum sem hann varð fyrir. Þuríður var vinnukona á heimili síra Jóns og sóttu þá viðurs- tyggilegar holdlegar hugsanir á hann. En samkvæmt þeim fræðum sem Jón hafði numið, voru það norn- ir sem beittu holdlegri girnd til að leiða menn í freistni. Er Þuríður þá norn? „Við skulum láta það liggja á milli hluta fyrir þá sem ekki hafa séð myndina,“ segir leikkonan sposk á svip. Alltaf í sjálfskönnun „Haustið áður en ég fór að leika í myndinni var ég í sálfræði í Háskól- anum. En svo uppgötvaði ég að það var meiri sálfræði í því sem ég var að gera í myndinni en í skólanum, þannig að ég ákvað aðeinbeita mér alveg að leiknum, sem vai- ég stöð- ugt að hugsa um,“ segir Sara Dögg. Hún var alveg reynslulaus í leikl- istinni þegar hún sóttí um að fá að reyna sig í hlutverki Þuríðar. „Það tók smátíma fyrir Hrafn að ákveða hvort ég væri hæf í hlutverkið og á meðan byi'juðum við að æfa.“ Sara Dögg í hlutverki sínu sem Þuríður. - Var það gamall draumur að leika í bíómynd? „Leiklistin hefir alltaf heillað mig og þetta vakti strax upp áhuga og ævintýraþrá hjá mér. En ég hef allt- af verið mikið í sjálfskönnun, og ástæðan fyrir því að ég sótti um hlutverkið var að ég var forvitin um sjálfa mig og hvað ég myndi læra af þátttöku í myndinni." Inni í stórbrotnu ferli - Hvernig varð þér við þegarþú vissir að þú hefðir fengið hlutverk- ið? , „Ég bara stökk á Hrafn og kyssti hann fyrir. En á æfingatím- anum var ég viss um að fá hlutverkið, þegar ég sá fram á hvað ég myndi læra rosalega mikið af þessari reynslu." - Ertu örlagatrúar? „Já! Heyrirðu það?" spyr Sara Dögg og hlær. „Það er voðalega þægilegt og ég hefði notað þessa trú til að sætta mig við að fá ekki hlut- verkið, ef til þess hefði komið. En ég vissi frá upphafi að ég var að fara inn í stórbrotið ferii. Og ég vissi líka að þetta yrði alveg rosalega erfitt, og Hrafn hætti ekki að vara mig við þvi. En ég gerði mér engan veginn í hugarlund hversu erfitt eða á hvaða máta.,“ - Óaði þér aldrei við því að vinna með svo miklum listamönnnum sem Hilmi Snæ og Hrafni? „Nei, eiginlega tvíefldist ég bara við það, því áskorunin er meiri fyrir vikið. Þetta varð enn meira spenn- andi en óx mér aldrei í augum.“ Ekkert hringl í kringum Hrafn Tökumar hófust undir berum himni í janúar árið 1998, og það gekk á með óhöppum í tökunum, auk þess sem flestar fóru þær fram í illviðri. „Þetta er mjög íangt ferli sem var fyrst og fremst lærdóms- ríkt. I kíingum Hrafn var enginn hringlandaháttur og ekkert vesen. Hann vissi nákvæmlega hvemig hann vildi hafa hlutina. í erf- iðustu atriðunum veitti það mér ákveðið öryggi að leika á móti Hilmi Snæ því hann er svo mikill fagmaður. Það var mjög fínt að vinna með þeim.“ - Voru útitökurnar erfíð- ar? „Já, en ég minnist þeirra ekki sem erfiðleika, því þetta var svo mikil áskoran. Það reyndi mikið á líkamlegu hliðamar, og það var mjög sniðugt að hafa þær fyrst því þá fékk maður á tilfinning- una hvemig lífi fólki lifði og við hvaða aðstæður það bjó á þessum tíma. Sem var auð- vitað nauðsynlegt. Og við voram alltaf að lenda í ein- hverju ævintýralegu. Þetta var frekar strembinn tími og mjög spennandi. Nú upplifi ég ekki vetur án þess að það rifjist upp eitthvað af þessu ævintýri." Þuríður er ofboðslega sterk - Hvernig er hlutvcrk Puríðar? „Þuríði náði furðulega fljótt tök- um á mér. Það var svo rosaleg orka sem fylgdi þessu öllu að ég datt al- veg inn í hlutverkið. Mig dreymdi í sífellu að Þuríður, sem var til á Vest- fjörðunum, birtist mér og fannst all- an tímann að ég þyrfti að vera trú Ung leikkona í Myrkrahöfðingjanum. einhverri konu; það var svolítið sér- stakt. Þuríður er alveg ofboðslega sterk, þannig verður henni best lýst. í upphafi er hún þessi gáskafulla barnslega einlæga stúlka, en síðan gerast atburðir í myndinni sem verða til þess að undir lokin er hún orðin harðsvíraður kvenmaður. Ég held að ég hafi aldrei þroskast jafn hratt á jafn skömmum tíma eins og við gerð þessarar myndar. Mér leið eins og lítílli stelpu í upphafi; allt var svo nýtt, framandi og skemmtilegt, og ég var með galópin augu að með- taka allt. Og í lokin þegar allt var búið fann ég hvað ég var í rauninni breytt. Ég þroskaðist með Þuríði. Þetta er þroskasaga okkar beggja, mín og Þuríðar.“ Snýst um mannlegar tilfinningar - Var erfítt að setja sig inn í hug- arheim fólks á þessum tíma? „Þetta snýst allt um mannlegar tilfinningai- og þær vora þær sömu á þessum tíma, og í dag. Ég þurfti að tjá tilfinningar sem ég hafði aldrei upplifað og varð að heimfæra þær upp eigin reynsluheim. I því felst þessi mikla sjálfskönnun. Maður þarf að kafa eins djúpt og maður getur, og finna hvað maðui- á til. Það var rosalega skemmtilegt að læra að þekkja sjálfa mig á þennan hátt. Maður býr yfir öllum þessum til- finningum og þetta er spuming um að finna þær og leyfa þeim að koma fram. Jafnvel tOfinningai- sem mað- ur er gjarn á að hemja dags dag- lega.“ - Hefíurþú eitthvað verið að leika eftirað tökum lauk? „Nei, ég var að vinna í Reykjavík og fór síðan í lok mars til Paiísar og var að koma heim. Ég og kærastinn minn, Atli Ragnar, freistuðum gæf- unnar, þar sem við vorum hvorki með íbúð né vinnu þegar við komum þangað. En ég fékk vinnu á mjög fínu hóteli sem móttökustúlka." - Langar þig að leika meira ? „Ég veit það ekki. Þessa dagana er ég er svo upptekin af því að skoða hvað lífið hefur upp á að bjóða. Ég veit að núna er kjörinn tími til að gera allt sem mig langar til og ég er að reyna að finna mína línu í lífinu. Ef ég fæ einhver áhugaverð leiktil- boð þá er ég alveg til í að athuga það. En ég held að það sé best að eyða ekki tímanum í dag að hugsa um daginn á morgun,“ segir Sai'a Dögg, aðalleikkonan í Myrkrahöfð- ingjanum, nýjustu stórmynd Hrafns Gunnlaugssonar. BMW í heilt ár, smóking frá Bíson Bee-Q og Ericsson TS28 með VITi frá Símanum GSM \...♦....."I ■ BisonBkkQí CATERPILLAR Freistaðu gæfunnar á mbl.is! vg'mbl.is ^ALLTAT £ITTH\TAT> /VÝTT~ Bíó .kmw*Mí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.