Morgunblaðið - 05.12.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.12.1999, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Bankastjóri og yfirlæknir Blóðbankans segir starfsemina gefa þjóðfélaginu og almenningi gífurlegan arð, mælt með lífsgæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Og fé sem varið sé til uppbyggingar þjónustunnar og aukinnar kynningar og fræðslu til almennings gefi mikla ávöxtun Besta jólagjöfin í ár væri BLOÐGJOF Hví ekki að strengja þess heit við árþúsunda- mót að leggja reglulega inn í Blóðbankann? Skapti Hallgnmsson velti þessu fyrir sér og ræddi við Svein Guðmundsson bankastjóra. Má ég gefa blóð? FÓLK gefur ekki blóð við fyrstu komu í Blóðbankann. Þá er farið yfir heilsufarssögu viðkomandi, blóðþrýstingur og púls mældur og blóðprufur teknar. Fjórtán dögum síðar má svo gefa blóð, ef allt hef- ur reynst með felldu við rannsókn blóðsins. Sveinn Guðmundsson leggur áherslu á að langflestir sem komi og vilji gefa blóð séu mjög frískir og ekkert sé því til fyrirstöðu að þeir gefi en alltaf sé eitthvað um að fólki sé vísað frá. „Við búum á svæði þar sem lifrarbólga er ekki algeng, en erlendis er það algeng ástæða frávísunar blóðgjafa, að þeir reynist vera með lifrarbólgu B eða C. HlV-veiran er án efa af svipaðri tíðni hér og á Norður- löndunum,“ segir Sveinn. Ymsar ástæður „Því er ekki að neita að við þurfum að vísa allmörgum frá á ári hverju, líklega einhverjum hundruðum manna - sumum tíma- bundið, oft vegna smávægilegra kvilla. Suma teljum við ekki þola það, heilsu sinnar vegna, að gefa blóð og mörgum þurfum við að vísa frá vegna lyfjagjafa, hás blóð- þrýstings, lungnasjúkdóms eða nýlegra aðgerða. Við þurfum oft að vísa fólki frá vegna tilfallandi lyfjagjafar, notkun á geðlyfjum hefur til dæmis aukist mjög en þeir sem taka þau mega ekki gefa blóð. Þá geta blóðfitulækkandi lyf haft þau áhrif að viðkomandi megi ekki gefa. Þá krefjumst við þess að eitt ár líði frá því að fólk fær sér húðflúr áður en það gefur blóð, vegna ákveðinnar hættu á lifrar- bólgu, en jafnvel verður hægt að minnka það niður í hálft ár með auknu öryggi í þeim málum.“ Karlar mega gefa blóð með þriggja mánaða millibili en fjórir mánuðir verða að líða á milli hjá konum. Átta í „fullri vinnu" við að gefa ÁÆTLAÐ er að hver blóðgjafi eyði klukkustund í það að gefa í hvert skipti; að klukkutími líði þar til hann leggur af stað til þess arna og þar til hann er kominn til baka aftur. „Ég hef gantast með það að segja megi að átta séu í fullu starfi við það að gefa blóð á Islandi á degi hverjum! Og þá er enginn dauður tími. Sumir koma í frítíma sínum, til dæmis eftir vinnu, sumir koma með góðu leyfi vinnuveit- anda síns í vinnutíma og enn aðrir nota matartíma. En undir öllum kringumstæðum er þetta verulegt framlag og afar mikilvægt. Bresk rannsókn vakti athygli á því að þetta framlag blóðgjafa og fyrir- tækja væri eitt hið dýrmætasta til heilbrigðisþjónustunnar," segir Sveinn. „Þetta er algjörlega- end- urgjaldslaust; við gefum fólki að vísu gott kaffi, brauð og súpu í há- deginu. Svo erum við með rjóma- tertu á afmælinu okkar og bjóðum upp á kakó á Þorláksmessu! Sé miðað við tímann sem fer í þetta og meðaltekjur er ljóst að framlag blóðgjafa og atvinnurekenda er að minnsta kosti nokkurra milljóna- tuga virði.“ ARÐUR af rekstri Blóð- bankans er gríðarlegur, segir Sveinn yfirlæknir og bankastjóri. Þessi arður verður þó ekki mældur samkvæmt hefðbundnum lögmálum hagfræð- innar, en Sveinn segir viðhorfsbreyt- ingu nauðsynlega til að heilbrigðisyf- irvöld og almenningur geri sér grein fyrir þeim verðmætum sem hér um ræðir og hve mikið fyrirbyggjandi starf sé unnið innan veggja stofnun- ainnnar í þágu almennings. Afskaplega mikilvægt er að ávallt sé næg innistæða á „reikningum" þessarar merkilegu bankastofnunar. Sveinn segir slíkt ekki sjálfgefið, þó margir virðist halda það, alltaf sé brýn þörf á fleiri blóðgjöfum. Viðhorf Virkir blóðgjafar hérlendis eru 10-12 þúsund, sem hver um sig gef- ur að meðaltali í eitt og hálft skipti á ári. „Þetta eru um fjögur prósent þjóðarinnar, sem er svipað hlutfall og í nágrannalöndunum,“ segir Sveinn og upplýsir aðspurður að þeir sem þurfa blóð árlega séu líklega þrjú til fjögur þúsund. Allir sem eru frískir á aldursbilinu 18-65 ára mega gefa blóð og því blasir við að fjöldamargir gera það ekki, sem gætu. „Oft er það vegna þess að fólk hefur ekki heyrt af Blóð- bankanum eða þekkir ekki nauðsyn þessa - veit ekki að við þurfum 50-70 blóðgjafa á hverjum degi. Mjög öflugt kynningarstarf þarf til að ná til fólks, kynning kostai' pen- inga og þess vegna á það að vera jafn sjálfsagt að við birtum opnuauglýs- ingar í Morgunblaðinu og förum í stórar sjónvarpsherferðir viku eftir viku eins og FBA. Það á að vera jafn sjálfsagt að Blóðbanki auglýsi til að laða að viðskiptavini og að ríkisrek- inn banki - eins og FBA var þá - geri það, til að skapa sér ímynd. En sjáum við það í því ljósi? Hvað þykir yfirvöldum heilbrigðismála?" Heilbrigðiskerfið og fjármál virð- ast sjaldan nefnd í sömu andránni nema á neikvæðum nótum; hversu oft er ekki rætt um hallarekstur á þessum vettvangi? Niðurskurð, lok- un deilda og þar fram eftir götunum. Þarna er komið að viðhorfsbreyting- unni sem bankastjórinn nefndi: „Við skulum líta blóðbankaþjónustu og aðra heilbrigðisþjónustu þeim aug- um að peningum varið til markvissr- ar uppbyggingar sé varið til þess að kaupa ákveðin lífsgæði fyrir almenn- ing, fullvissu um öryggi og góða heil- brigðisþjónustu í takt við væntingar almennings." Sveinn heldur áfram: „Af hverju er húsnæði Blóðbankans tötraleg- asta bankahúsnæði landsins? Segir það eitthvað um viðhorf okkar og forgangsröðum í þjóðfélaginu? Slík- um spumingum þurfa heilbrigðisyf- irvöld að svara, ekki bara mér, held- ur almenningi og íslenskum blóð- gjöfum, sem þolinmóðir og fullir hjálparvilja koma og hjálpa sjúkum með því að gefa blóð. Það verður að búa vel að þessari starfsemi.“ Hann segir nauðsynlegt að kanna nýjar leiðir í fjármögnun heilbrigðis- kerfisins og mikil nýsköpun hafi raunar átt sér stað síðustu misseri, eftir að Magnús Pétursson tók við sem forstjóri ríkisspítalanna. „Ein þeirra leiða sem hann hefur vakið máls á er að Blóðbankinn verði sjálf- stæðari í rekstri en hingað til; að við verðum sérstök rekstrareining í heil- brigðiskerfinu í stað þess að vera lítil deild á spítalanum. Við erum með víðtæka þjónustu út um allt land og þessi hugmynd er í raun viðurkenn- ing á því lykilhlutverki sem Blóð- bankinn gegnir og að hún verði að vera í lagi. Almenningsviðhorfið hér er svipað og erlendis, fólk reiknar með því að blóðbankaþjónustan sé í lagi. Hér þarf að verða samskonar viðhorfsbreyting hjá heilbrigðisyfir- völdum og hefur orðið á liðnum ára- tug í mörgum nágrannalöndum okk- ar. Tökum Kanada sem dæmi; í kjöl- far margskonar áfalla og málaferla á níunda áratugnum vegna HIV og lifrarbólgu C þá öxluðu heilbrigðisyf- irvöld ábyrgð sína og hafa sett blóð- bankaþjónustuna í forgangshóp við uppbyggingu heilbrigðisþjónustunn- ar. Hér á landi þarf blóðbankaþjón- ustan að fá sambærilegan sess og forgang og í nágrannalöndunum, sem við viljum bera okkur saman við. Starfsfólk Blóðbankans hefur ekki setið auðum höndum, metnaðarfull uppbygging á gæðakerfi á grunni ISO 9002-staðalsins með uppstokkun aðferða og vinnuferla hefur átt sér stað. Magnús Pétursson hefur á fyrsta starfsári sínu stutt þetta starf og fyrrverandi og núverandi land- læknir sömuleiðis, en heilbrigðisyfir- völd að öðru leyti telja sig með ein- hverjum hætti vera stikklrí. En svo er ekki, þetta er á ábyrgð æðstu yfir- valda heilbrigðismála eins og hlið- stæður nágrannalandanna sýna. Heilbrigðisráðuneytið hefur sýnt á liðnum árum að metnaðurinn er fyrir hendi, og ráðherra hefur margoft sýnt velvild sína í garð starfseminn- ar. En það er eins og eitthvað sé fólki þar mislagðar hendur í for- gangsröðun og verkstjórn. Við von- um að ráðherra muni beita sér í því að leiðrétta það og koma blóðbanka- þjónustunni á blað í forgangsröðun heilbrigðismála til næstu ára og ára- tuga. Væntingar almennings um ör- ugga og góða blóðbankaþjónustu kalla á skjótar aðgerðir ráðuneytis- ins.“ Þegar blaðamaður spyr hvort pen- ingar séu fyrir hendi til að auglýsa eftir viðskiptavinum segist Sveinn telja bankann og blóðgjafana eiga það margfalt inni hjá þjóðfélaginu að myndarlega sé að því staðið að koma upp nægilega stórum hópi blóðgjafa sem hægt sé að grípa til, bæði í dag- legu starfi og eins við sérstakar að- stæður, sem kunna að koma upp. „Þess vegna er viðhorfsbreyting nauðsynleg: fólk þarf að skynja að hér er unnið mikið fyrirbyggjandi starf í þágu almennings. Blóðbanki er nokkuð sem við gætum aldrei ver- ið án og ef þessi viðhorfsbreyting verður - bæði meðal stjórnvalda og almennings - óttast ég ekki vand- ræði á næstu áratugum. Ef staðið er mynduglega að aðbúnaði blóðbanka- þjónustunnar, bæði hvað varðar hús- næði, starfsfólk og fjármögnun, þá höldum við sterkri ímynd og getum sinnt öryggi og gæðum." Framboð minnkar, eftirspurn eykst Því er spáð víða erlendis, til dæm- is í Englandi, á meginlandi Evrópu og í Bandaríkjunum, að blóðgjöfum eigi eftir að fækka samtímis því að öldruðum fjölgar og þar með blóð- þegum. Að þeir verði færri en nauð- syn krefur og Bandaríkjamenn reikna í-aunar með að strax á næsta ári muni línur um framboð og eftir- spurn skerast, að sögn Sveins. „Þeir árstímar koma reyndar að starfsfólk Blóðbankans er alveg upp fyrir haus að kalla inn okkar fínu blóðgjafa. Sumir geta þá verið í leyfum eða lasnir eða bundnir af einhverjum or- sökum og þá náum við við ekki nógu mörgum inn daglega. Þá fer geysileg vinna okkar starfsfólks í það að ná í fólk. En með því að vitneskja al- mennings verði meiri myndi þetta veitast okkur auðveldara." Gífurlegt verðgildí Rekstrarkostnaður Blóðbankans eru 350-400 milljónir króna á ári, að sögn Sveins. „Við fáum hráefnið ókeypis og verðgildi blóðsins er því ekki bara þessar 400 milljónir sem við höfum lagt í að framleiða öruggt og gott blóð fyrir þjóðina og að eiga nægilegan lager. Við höfum verið með fólk í því að hringja í blóðgjafa eða senda þeim bréf og það kostar milljónir á ári. Þegar við verðum sjálfstæðari mun- um við verja meiri peningum til kynningarstarfa; við vitum að verja þarf meira en tíu milljónum í það á ári að ná til fólks. Við erum ekkert frábrugðnir öðrum markaðsfyrir- tækjum hvað það snertir. Efniviður og tæki til okkar starfa eru kostnað- arsöm. Kostnaður við pokana sem við töppum blóði á og ýmislegt í tengslum við það er 30 milljónir, tækjabúnaðurinn sem við notum er háþróaður og þarf að endurnýjast á þriggja til fimm ára fresti, hið minnsta. Kostnaður við búnaðinn skiptir milljónatugum. Vehuskimun- in kostar 12 milljónir á ári, það að hvítkornasía blóðhluta kostar í dag tíu til tólf milljónir á ári og við sjáum að þróunin erlendis er sú að það verði aukning á því þannig að á næstu einu til tveimur árum má bú- ast við að þessi kostnaður aukist verulega; jafnvel um 20-40 milljónir, ef við ætlum að halda í við það sem er að gerast í nágrannalöndunum. Gæðaeftirlitið, sem við höfum byggt upp mjög ötullega á síðustu tveimur árum, kostar ekki undir tíu milljón- um; við erum með starfsfólk sem metur gæði blóðhlutanna og sér til þess að leggja til hliðar blóðhluta sem uppfylla ekki öll gæðaskilyrði með tilliti til öryggis. I þessum tölum er ekki meðtalinn kostnaður vegna vinnu starfsmanna, sem eru vel menntaðir og sérþjálfaðir. Það er mikill auður fólginn í góðu starfs- fólki, og verja þarf miklum fjármun- um í þjálfun og símenntun þess, ella fara mikil verðmæti forgörðum. Við verðum að temja okkar þá hugsun varðandi blóðbankaþjónustu og ann- að í heilbrigðisþjónustunni að við sé- um raunverulega ekki að eyða pen- ingum heldur að kaupa verðmæti. Gæðastarf í heilbrigðisþjónustu miðar að því að gera hlutina rétt frá upphafi og koma í veg fyrir mistök. Mistök eða óvænt óhöpp eða uppá- komur í blóðbankaþjónustunni geta haft afdrifaríkar aíleiðingar, kostað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.