Morgunblaðið - 05.12.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.12.1999, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sjöfn Egilsdóttir fæddist í Reykjavík 31. júlí 1937. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 24. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Egill H. Jónsson, bakarameistari, f. 8.11. 1912, d. 30.12. 1972 og Soffía Bjarnadóttir, f. , 18.2. 1907, d. 27.1. 1987. Systkini Sjafnar eru: Guðjón Agnar Egilsson, f. 3.12. 1932, Sigurbjörn Egilsson, f. 1.12. 1941, Egill Egilsson, f. 8.12. 1944 og Bjarni Egilsson, f. 7.2. 1946. Eftirlifandi eiginmaður Sjafn- ar er Gunnar Már Hauksson, bankamaður, f. 2.8. 1937. Þau giftust 8.11. 1958. Þeirra börn eru: a) Brynja Gunnarsdóttir, f. 9.12. 1958, maki Eirik Liland. Börn þcirra: Gunnar, f. 2.12. 1984, Óðinn, f. 16.11. 1988 og Eva, f. 8.5. 1993. b) Haukur Gunnarsson, f. 6.8. 1960, maki Auður Lilja Arnþórsdóttir. Börn þeirra: Sólveig, f. 19.3. 1983, Gunnar Már, f. 16.9. 1989 og Hvað getum við sagt? Hvað getum við gert? Hvemig reiðir okkur af? Þessar spumingar bijótast um í hug- um okkar. Við fyllumst reiði og sorg, við eigum svo erfitt með að sætta okkur við að hún Sjöfn sé horfin frá okkur. Hvernig verður vinahópurinn, badmintonhópurinn okkar, þegar fcsvona stórt skarð er höggvið í hann. Hún var einstök kona með stóra sál og stórt hjarta. Alltaf var nóg pláss í Urðartúni hjá Sjöfn og Gunn- ari, hvort sem komu þar ungir eða al- draðir. Það var henni mikils virði að vera í húsinu sínu svo börnin og bamabömin gætu átt þar athvarf þegar þurfti með. Fyrir allmörgum ámm stofnuðum við badmintonhóp sem samanstóð af fjórum ungum mönnum og eiginkon- um þeirra. Þeir spiluðu saman af eld- móði áram saman. Lífið var ljúft og við ferðuðumst mikið saman og kenndum bömunum okkar hvað gaman var að búa í tjöld- um á sumrin. Þegar ungu mennimir -jfjórir bættu á sig áram dró úr hlaup- unum með badmintonspaðana, samt var hópurinn síungur og bundumst við enn sterkari böndum. Fóram við nú að halda aðalfundi badmintonfé- lagsins eina helgi á sumri þegar nótt- in var björtust og var það mikið til- hlökkunar-efni að gista saman í sumarhúsum. Ur þessum ferðum eigum við góðar, ógleymanlegar minningar, sem enginn tekur frá okkur. Við gætum sagt svo ótal margt en það látum við ógert því það gæti fyllt heila bók, enda era slíkar minningar bara milli vina. Við verðum að halda áfram göngu lífsins sem okkur var ætluð. Við verð- um að sætta okkur við lífið í sínum .breytileika. Við skulum reyna að r gráta ekki, því hún Sjöfn hefði ekki viljað það. Nú er hún farin fyrst af okkur til nýrra heima sem við ekki þekkjum. Hún var aldrei hrædd við að kanna eitthvað nýtt og leiðbeina okkur hin- um. Slíkt æðraleysi sem hún sýndi þegar augljóst var að hverju stefndi var einstakt. Hún tók einn dag í einu og gerði það besta sem hægt var hveiju sinni. Elsku Gunnar Már, Hörður, Egill, Soffía, Haukur og Brynja, við vonum að góður Guð styrki ykkur og fjöl- ^skyldurnar ykkar og huggi í þessari miklu sorg. Við skulum muna að ekkert él er svo dimmt að ekki birti upp um síðir. Badmintonhópurinn. Fallin er lrá mannkostakona í blóma lífsins. Ótrúlegt hvað skammt áer milli lífs og dauða. Ekki hvarflaði Vala, f. 13.2. 1992. c) Soffía Gunnars- dóttir, f. 3.9. 1964, maki Filippo de Esteban. Þeirra synir: Vincent Már, f. 2.10. 1988 og Marcel Þór, f. 27.8. 1990. d) Egill Gunn- arsson, f. 9.2. 1966, maki Gígja Svavar- sdóttir. Þeirra börn: Þóra Björg Gígjudóttir, f. 9.5. 1987, Sjöfn, f. 22.5. 1995 og Svavar, f. 21.2. 1997. e) Hörð- ur Gunnarsson, f. 7.8. 1968, maki Doris Juchli. Að loknu gagnfræðaprófi hóf Sjöfn störf hjá Verzlun Gunn- þórunnar Halldórsdóttur. Árið 1956 var hún við enskunám í London. Hún var heimavinnandi húsmóðir í 25 ár. Eftir að hafa komið börnunum 5 á Iegg hóf hún störf á endurhæfingardeild Landspítalans þar sem hún starfaði til dauðadags. Jarðarför Sjafnar verður gerð frá Langholtskirkju mánudag- inn 6. desember og hefst athöfn- in klukkan 13.30. að mér, þegar ég hitti Sjöfn síðast, að svostuttværieftir. Hún bar sig alltaf vel og kvartaði aldrei þótt þjáð væri. Við Jón höfum notið þeirrar gæfu að eiga Gunnar og Sjöfn í hópi okkar nánustu vina í 40 ár. Vinahópurinn, sem kallar sig gjarnan „Ungmenna- félagið“, hefur átt saman óteljandi yndislegar samverastundir. Ég minnist sumardaga, þegar börnin okkar vora lítil, og „Ungmennafélag- ið“ heimsótti okkur í Laufás. Allir hjálpuðust að við heimilisstörf og heyskap í veðurblíðunni. Þá var líka rennt fyrir lax eða siiung í Fnjóská. HvflDdr dýrðardagar. Eftir að við fluttum suður var farið í útilegur og útiverannar notið. I þrjá áratugi hefur hópuninn okk- ar sótt leiksýningar saman og farið síðan heim til einhvers okkar á eftir, spjallað um leikverkið eða hvað ann- að yfir kaffibolla og krásum. Síðustu árin höfum við að auki far- ið á tónleika saman okkur öllum til mikillar ánægju. Margra stunda minnumst við úr Urðartúni með gleði og þakklæti. Matarboðin þar vora í sérflokki, þar réð frumleiki, gleði og einstök matar- gerðarlist. Þau hjónin vora einstak- lega samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og samlíf þeirra kær- leiksríkt. Það er mannbætandi að umgangast slíkt fólk og eiga vináttu þess. Fátt er meira virði í lífinu en sönn vinátta. Vinátta Sjafnar var heil og sönn. Hún var óvenju vel gerð kona á alla lund, gáfuð, hugmyndarík, heil- steypt, réttsýn, glaðlynd og bjartsýn. Ég bið góðan Guð að styrkja Gunnar, bömin þeirra og alla ástvini. Þau hafa misst mikið. Hanna Pálsdóttir. Augnfró, umfeðmingsgras, engja- rós, lækjardepla og dúnurt era dæmi um falleg nöfn á jurtum, sem við get- um fundið á sumardegi, ef við leitum á réttum stöðum utan við alfaraleið. Þar lifa þær lífi sínu sumarlangt, bera blóm sín og fræ og lúta síðan í gras að hausti, seint eða snemma eft- ir því hvemig vetur sest að. Er það ekki við hæfi, að þessi ynd- islegu blóm með þeirra fögra nöfnum skuli læðast djúpt að úr minni mínu, þegar ég vil minnast Sjafnar Egils- dóttur, vinkonu okkar hjóna til ára- tuga? Hún var þess konar blóm. En Sjöfn var einnig merk myndar- kona, sem skilaði miklu ævistarfi, þótt ævi hennar yrði ekki lengri. Fimm uppkomin börn þeirra Gunn- ars Más og fjölskyldan öll era til marks um það. En við vinirnir, sem fylgdumst með þessari frjóu og gefandi fjöl- skyldu, bæði álengdar og nær, eign- uðumst hlutdeild í skemmtilegri ver- öld. Ætíð var hlutur Sjafnar lagður til mála með slíku hæglæti en jafn- framt alúð og hlýju, að öllum leið vel. Nú hafa hörð og ótímabær haust- hret fellt þetta blóm okkar. Við, sem eftir eram getum ekkert gert nema strengt þess heit að leita uppi falleg blóm í haga næsta sumar, ef við þá eigum þess kost, og láta í þeim lifa minninguna um þessa elskulegu konu, sem við höfum verið svojgæfu- söm að eiga vegferð með. Eg og Bergljót kona mín deilum söknuðin- um með öllum þeim, sem Sjöfn Egils- dóttur hafa kynnst og sendum Gunn- ari Má og fjölskyldunni allri okkar einlægustu samúðarkveðjur. Megi þeim gefast styrkur til að takast á við þann harm, sem að þeim er kveðinn. Jón Sigurðsson. Þau era orðin yfir fjöratíu árin síð- an við kynntumst Sjöfn Egilsdóttur, bakaradóttur af Öldugötunni. Hún var þá orðin kærastan hans Gunna Más og upp frá því hófust löng og góð kynni. Við hittumst oft, fóram í bíó saman og létum okkur dreyma um framtíðina. Það var svo á haustdög- um ársins 1958 að við fréttum að þau Sjöfn og Gunni hygðust ganga í hjónaband hinn 8. nóvember sama haust. Þetta gladdi okkur mjög því við höfðum einnig tekið ákvörðun um giftingu á þeim sama degi. Þetta gekk síðan eftir og þar með varð 8. nóvember dagurinn okkar allra sem við síðar á lífsleiðinni héldum ævin- lega hátíðlegan. Við hittumst jafnan til skiptist heima hvort hjá öðra á þessum degi og þegar vora stóraf- mæli var haldið til Parísar og London en frá þeim góðu stundum era til myndir af okkur öllum saman, teknar með sjálfvirkri myndavél á þrífæti. Hversdagslífið sneristum að Sjöfn og Gunni ólu upp sín fimm börn en við okkar þrjú. Þegar við bjuggum í New York þá komu Sjöfn og Gunni með yngra settið, Egil og Soffíu, og vora nærri okkur í nokkra mánuði. Eftirminnilegustu samverustundirn- ar vora samt í Sveðjukoti við Langá í gamla daga og Hólaskjóli á síðari ár- um. Svona hefur þetta alltaf verið og nú er einn stofninn úr þessum hópi fallinn langt fyrir aldur fram. Við héldum í vonina um að Sjöfn myndi sigra sjúkdóminn á sinn hljóða og hógværa hátt, eins og hún hafði áður gert fyrir allmörgum ár- um. Hún var prúð og hæversk í fasi og hin mesta hófsmanneskja til orðs og æðis en hún hafði ríka kímnigáfu og hafði gaman að græskulausu gríni. Hún var húsmóðir á stóra heimili þar sem alla tíð var mikill gestagangur. Við minnumst af hlýhug hversu gaman var að koma í kvöldkaffi á Stýrimannastíginn í gamla daga og seinna í Urðartúnið. Þá var oft þröng á þingi við kaffiborð- ið og víst að margir eiga margar góð- ar minningar frá þessum dögum. Við vottum Gunna og fjölskyld- unni okkar innilegustu samúð. Bless- uð sé minning Sjafnar Egilsdóttur. Lára og Þorgeir. Það mun hafa verið vorið 1958 sem Sjöfn Egilsdóttir kom inn í líf okkar, fjölskyldunnar í Urðartúni við Laug- arásveg. Sjöfn og Gunnar bróðir okk- ar vora nákvæmlega jafngömul og við yngri systkin hans voram hug- fangin af þessari verðandi mágkonu okkar. Hún var falleg stúlka, grann- vaxin, skolhærð og bláeyg, hlédræg og svolítið seintekin, en glettin, hlý og umhyggjusöm þegar komið var inn úr skelinni. Við höfðum eignast hjartfólgna stóra systur. Áður en varði vora Gunnar og Sjöfn búin að leigja sér íbúð vestur á Stýrimannastíg, stofnuðu þar heimili og eignuðust hvert barnið á fætur öðra. Það var mikið ævintýri að fylgj- ast með þessum litlu, myndarlegu frændsystkinum okkar þegar þau vora að vaxa úr grasi og unun að sjá hvemig Sjöfn sinnti þeim á sinn kyrrláta hátt. Það var eins og hún hefði aldrei gert annað en að annast ungbörn. Þegar þau fluttust síðan í Urðar- tún vora börnin orðin fimm að tölu og mikið líf og fjör í bænum. Geta má nærri að í svo stóram systkinahópi yrðu árekstrar og þyrfti bæði að stilla til friðar og um leið leyfa hverju að njóta sín á sinn hátt. Rólegt og ákveðið var þessum fimm grislingum kennt að taka tillit hver til annars. Það var til dæmis í minnum haft hvernig stríðni elsta sonarins var haldið í skeíjum. Þar sem hann gat alls ekki stillt sig um að stríða litlu systkinum sínum var þeirri reglu komið á að hann mætti bara stríða þeim á fimmtudögum! Þetta var eitt dæmi um þá glettni og það rólyndi sem einkenndi barnauppeldið. Þegar við sjálf stofnuðum heimili var ekki ónýtt að eiga Sjöfn að. Það var sama hvert vandamálið var, ef bömin vora að gera manni lífið leitt, ef stórveisla var í uppsiglingu eða ef eitthvað hafði farið úrskeiðis við mat- seldina eða kökubaksturinn, var æv- inlega hringt í Sjöfn og hún gaf góð ráð. Og fyrir kom að hún tók systur- böm Gunnars í fóstur þegar á þurfti að halda, t.d. vegna utanfara og nutu krakkarnir þess út í æsar. Öllu tók hún af þeirri ró og jafnaðargeði sem einkenndi hana. Ef henni hins vegar þótti við ganga of langt lét hún okkur ekki vaða yfir sig. Gunnar og Sjöfn voru þrítug búin að eignast öll sín börn og 15 árum seinna voru ungamir famir að fljúga úr hreiðrinu. Þá hófst nýr kapítuli í lífi þeirra þegar þau gátu farið að sinna sínum eigin áhugamálum. Þau voru mjög samrýnd og einstaklega góðir félagar alla tíð og áttu samleið í öllu sem þau gerðu. Sjöfn var sérlega rausnarleg og ræktarsöm. Hugul- semi hennar kom vel fram í því hve vel hún sinnti ævinlega tengdamóður sinni, bæði á sorgar- og gleðistund- um. Sjöfn var frábitin allri væmni og tilfinningasemi og lýsti það sér vel í veikindum hennar allt til hinstu stundar. Hún sýndi fullkomið æðra- leysi og reyndi frekar að styrkja og styðja sína nánustu. Andlát hennar er okkur öllum í fjölskyldunni óbæt- anlegur persónulegur missir. Hún er skyndilega hrifin burt, löngu íyrr en nokkurn gat granað. En saman við sorgina fléttast glaðar og góðar minningar frá 40 ára samfylgd. Nanna, Halla, og Þorleifur. Það vora miklar sorgarfréttir sem bárast okkur miðvikudaginn 24. nóv- ember. Ekki vora það samt óvæntar fréttir eins og veikindi Sjafnar höfðu þróast síðustu vikur. Alltaf er samt reynt að halda í vonina, það er svo erfitt að sætta sig við vondu tíðindin. Kynni okkar fjölskyldnanna era orð- in löng. Þegar Stefán hóf störf í Bún- aðarbanka Islands haustið 1958 var þar fyrir frændi hans Gunnar Már. Báðir ungu mennirnir að hefja lífs- starfið og höfðu þá þegar fundið lífs- föranauta sína. Þeir tóku lífinu tveim höndum með ábyrgð og bjartsýni á framtíðina. Sjöfn, hans Gunnars, sá- um við fyrst þetta haust. Við hitt- umst á málverkasýningu Jóns Þor- leifssonar, frænda þeirra Gunnars og Stefáns. Frá fyrstu stundu hófst vin- átta okkar sem staðið hefur óslitið og án nokkurs skugga öll þessi ár. Samverastundirnar hafa verið margbreytilegar og breyst í áranna rás. Fyrstu árin, þegar barnahópur- inn var í kringum okkur var farið, ásamt fleiri vinum, í nokkrar útileg- ur. Á þeim áram vora það líka banka- ferðirnar og bankaskemmtanirnar sem voru vinsælar. Alltaf voru þau Sjöfn og Gunnar ómissandi félagar. Á seinni áram höfum við, ásamt fleira góðu fólki, notið þess að fara saman í leikhús og á tónleika. Öll þessi sam- skipti hafa gefið okkur Stefáni mikið. Hún Sjöfn okkar hafði svo marga góða kosti sem prýddu hana. Hún hafði til að bera þá alúð og hlýju sem laðaði að henni alla sem henni kynnt- ust. Þeirra kosta nutum við vinir henn- ar í ríkum mæli og þá ekki síður hann Gunnar Már, börnin þeirra fimm og öll stórfjölskyldan. Nú þegar söknuð- ur og tregi er okkur vinunum þeirra efst í huga kemur einnig í hugann þakklæti fyrir allar góðu stundimar og árin sem við höfum átt saman. Arnþrúður Arnórsdóttir. SJÖFN EGILSDÓTTIR Kveðja frá samstarfsfólki á Endurhæfingardeild Landspitalans. Sjöfn Egilsdóttir hóf störf sem að- stoðarmaður sjúkraþjálfara á endur- hæfingardeild Landspítalans sum- arið 1983. Hún starfaði óslitið við deildina þar til fyrir rúmum þrem vikum. Starf aðstoðarmanns sjúkra- þjálfara kiæfst þess, að sá er því sinn- ir sé leikinn í mannlegum samskipt- um. Hann þarf að geta sýnt þeim sem eiga um sárt að binda samúð og skiln- ing en jafnframt þarf hann að hvetja þá til að takast á við verkefni þrátt fyrir sársauka og erfiðleika. Sá vegur sem þarna þarf að feta getur verið þröngur og ekki alltaf auðrataður. Sjöfn fetaði þennan veg af fullkomnu öryggi. Hún var góður verkmaður en það sem skipti ekki minna máli bæði fyrir skjólstæðinga hennar og okkur, sem með henni störfuðum, var hlýja hennar og léttleiki sem við nutum allt til loka. Gilti þá einu hverjir hennar eigin erfiðleikar vora. Allt frá upp- hafi starfa hennar hér var hún einn af elstu starfsmönnum deildarinnar. Fyrir yngri starfsmenn var gott að leita til hennar og njóta góðs af lífs- reynslu hennar, sumum okkar var hún sem önnur móðir. Síðustu mánuðina gekk Sjöfn ekki heil til skógar, kraftar henn minnk- uðu jafnt og þétt en hún stóð meðan stætt var. Aldrei kvartaði hún þótt okkur, sem með henni voram, dyldist ekki að hún þurfti á öllu sínu að halda til að ljúka dagsverkinu. Hún var söm við sig og sýndi okkur öllum sömu alúð og elskulegheit og hún hafði alltaf gert. Þau hjón Sjöfn og Gunnar vora einstaklega samhent. Þau tóku fullan þátt í félagslífi deildarinnar og var þá ekkert kynslóðabil sýnilegt. Við þökkum Gunnari fyrir vináttu í gegn umárin. Að leiðarlokum þökkum við fyrir að hafa átt þess kost að starfa með Sjöfn, njóta þess að kynnast þessari konu sem með hógværð og ljúf- mennsku átti sinn þátt í að skapa ör- yggi og traust meðal starfsmanna á endurhæfingardeildinni. Hennar er sárt saknað. Við sendum Gunnari, Brynju, Herði, Soffiu, Hauki, Agli, tengda- bömum og bamabömum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Samstarfsfólk. Látin er, langt um aldur fram, kær samstarfskona okkar á Endurhæf- ingardeild Landspítalans, Sjöfn Eg- ilsdóttir. Lát hennar bar brátt að, hún gekk enn til fullra starfa fáeinum dögum fyiir andlát sitt. Alvarlegur sjúkdómur hafði fyrr á árinu tekið sig upp, en eftir erfiða meðferð var talið að komist hefði verið fyrir mein- ið. Við fögnuðum því endurkomu Sjafnar til fyrri starfa í sumar og töldum víst að hún yrði með okkur lengi enn. Hún er okkur mikill harm- dauði. Sjöfn var hæglát kona en hún hafði afar góða nærveru. Margii- sjúklinga okkar og raunar einnig samstarfsfólk naut lífsvisku hennar og mannkærleika á erfiðum stund- um. Þessu flíkaði Sjöfn ekki, við fregnuðum það eftir krókaleiðum. Við samstarfsfólkið sendum Gunn- ari, börnum þeirra og öðram ástvin- um Sjafnar okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Þau hafa misst mest en ríkidæmi vinnustaðar er að eiga slíka starfsmenn og við söknum Sjafnar mjög. Gísli Einarsson. Kalliðerkomið kommernústundin vinaskilnaðarviðkvæm stund (V. Briem.) Mér flugu þessar ljóðlínur í hug þegar ég settist niður til að skrifa þessi fátæklegu kveðjuorð til vin- konu okkar Sjafnar Egilsdóttur. Kynni okkar Jórannar og Gunnars Más og Sjafnar vora löng og náin og það er erfitt að sætta sig við Sjöfn sé horfin frá okkur í blóma lífsins. í hartnær þrjátíu ár höfum við fjórir spilafélagar hist, skemmt okk- ur og notið góðgjörða en upp úr þess- ari spilamennsku spratt náinn vin- skapur milli fjölskyldnanna. Við gerðum okkur oft glaðan dag saman og árlega hittumst við við veiðar og veisluhöld í Langá á Mýram Það var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.