Morgunblaðið - 05.12.1999, Síða 38
4
38 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999
>■. ..........-
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SKÚLI GRÉTAR SIGURÐSSON
bóndi,
Stórutjörnum,
varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn
3. desember.
Guðríður Sigurgeirsdóttir,
Sigurður Skúlason, Sigríður Karlsdóttir,
Laufey Skúladóttir, Ásvaldur Ævar Þormóðsson,
Kristjana Skúladóttir, Kári Arnór Kárason,
Halldóra Bjarney Skúladóttir, Halldór Halldórsson
og barnabörn.
+
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HÓLMFRÍÐAR ÞÓRHALLSDÓTTUR,
Furugrund 70,
Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju á morgun, mánu-
daginn 6. desember, kl. 13.30.
Steinþór Ólafsson,
Þórhallur Ólafsson,
Einar Jón Ólafsson,
Þorgeir Ólafsson,
Sigrún Ólafsdóttir,
Arnar Már Ólafsson,
Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn
Guðrún Hreinsdóttir,
Gróa Gunnarsdóttir,
Aðalbjörg Lúthersdóttir,
Anna Margrét Guðjónsdóttir,
Helga Lárusdóttir,
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
BJÖRG ERIKSEN,
Framnesvegi 6,
lést mánudaginn 22. nóvember síðastliðinn.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar iátnu.
Þökkum sýnda samúð.
Lára I. Ágústsdóttir, Haukur Júlíusson,
Pétur Ágústsson, Birte Jansen,
Ragnheiður Ágústsdóttir, Ágúst Guðjónsson,
barnabörn og langömmubörn.
+
Okkar ástkæri,
ARNGRÍMUR JÓNASSON
vélfræðingur,
írafossi,
Grímsnesi,
sem andaðist á Ríkissjúkrahúsinu í Kaup-
mannahöfn laugardaginn 27. nóvember sl.,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðju-
daginn 7. desember næstkomandi kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Einstök börn, stuðningsfélag
barna með alvarlega sjúkdóma, sími 699 2661.
Elín Steinunn Árnadóttir,
Tómas Hermannsson,
Stefán Jóhann Arngrímsson, Svanhildur Eva Stefánsdóttir,
Árni Hrannar Arngrímsson, Bettý Grímsdóttir,
Margrét Arngrímsdóttir,
Jónas Haukur Arngrímsson,
Magnús Jónasson,
Guðrún Björk Jónasdóttir,
Halldór Jónasson,
Hallfríður Jónasdóttir,
Árdís Jónasdóttir,
Ragnar Þórðarson,
Vala Hrönn Bjarkadóttir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Sólrún Ó. Siguroddsdóttir,
Þórður Björnsson,
Hjörtur Sandholt,
barnabörn hins látna
og aðrir aðstandendur.
+
Elskuleg eiginkona mín,
KRISTÍN ERLA STEFÁNSDÓTTIR,
Sléttuvegi 7,
Reykjavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn
26. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 6. desember kl. 13.30.
Hilmar Hafsteinn Ingjaldsson,
börn og barnabörn.
ÁRNIG.
MARKÚSSON
+ Árni G. Markús-
son fæddist á
Sjónarhól í Súðavík
30.janúar 1929. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ,
27. nóvember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Guðjón
Markús Kristjánsson,
f. 14.9.1889, d.
9.5.1947, sjómaður
og verkamaður í
Súðavík, og kona
hans Halldóra Jóns-
dóttir, f. 29.9.1893, d.
4.9.1976. Systkini Ár-
na eru: Laufey, f.3.8.1915,
jan.1984; Kristján Marinó, f.
2.9.1916, d. í maí 1926; Guðríður,
f. 11.5.1920; Jens Guðbjörn, f.
14.6.1924; Kristjana, f. 27.7.1926;
Svava Jóna, f. 28.6.1933.
Hinn 7. júní 1952 kvæntist Árni
Sigríði Ingu Jónasdóttir, f.
10.1.1930. Hún er dóttir hjónanna
Jónasar Ólafssonar, útvegsbónda
í Grundarfírði og Þorkötlu
Bjarnadóttir, húsmóðir, en þau
eru bæði látinn. Börn Árna og Sig-
ríðar eru: 1) Jónas Þorkell, f.
23.3.1952, járniðnaðarmaður bú-
settur í Svíðjóð, börn hans og
fyrrv. eiginkonu Onnu Maríu
Óttósdóttir eru: Inga Britta, Linda
María, Jónas Markús og Eva Mar-
ina. 2) Guðjón Markús, f. 28.1.1954
jámsmiður og bflstjóri, kvæntur
Rannveigu H. Gunnlaugsdóttir,
börn þeirra eru: Jóhann Þórir,
Kristján Arnar, Guðbjörg, Árný
Inga og Ragnar Aðalsteinn. 3)
Halldóra Guðríður, f. 20.4. 1955,
lyQatæknir, gift Jónasi Á. Ágústs-
syni, dætur þeirra em: Sigríður
Elín og Svava Björk. 4) Ragnheið-
ur Þorbjörg, f. 10.4.1958, starfs-
maður við Landsspítalann, gift
Sigurði Á. Sigurðsyni, börn þeirra
eru: Guðmundur Árni, Sigurður
Ragnar og Sigþrúður. 5) Kristján
Marinó, f. 10.9.1959 trésmiður,
kvæntur Sigurlínu
Rósu Kristmun-
dsdóttur, börn
þeirra eru: Krisljana
Marín, Bryndís
Erna, Eyjólfur,
Markús og Róbert. 6)
María, f. 16.9.1960
leiðbeinandi á leik-
skóla, í sambúð með
Karli A, Karlsyni,
sonur þeirra er:
Kristmann. Synir
Maríu og fyrrv.
maka eru: Sigurjón
og Árni Markús. 7)
Bryndís f. 7.7.1962,
u. Fyrir átti Ami einn
son: Stein Inga, f. 14.11.1949, d.
18.11.1980, kvæntur Kolbrúnu S.
Þorvaldsdóttur, synir þeirra em:
Ámi Ingi, Halldór Ingi og Þor-
björn Ingi. Afabörn Árna eru tutt-
ugu og fimm og langafabörn hans
era fimm.
Ungur byrjaði Árni sjómennsku
í Súðavík. Hann tók vélstjórapróf
á Þingeyri 1948 og var vélsljóri á
ýmsum bátum til 1952. Árni lærði
plötu- og ketilsmíði, lauk meist-
ara-prófi íþeirri iðngrein 1966 og
síðar meistaraprófi í stálsmíði
1984. Árni vann við stálskipasmíði
frá 1961. Hann stofnaði ásamt
öðrum fyrirtækið Katlar og stál-
verk hf. í Reykjavík. Árni starfaði
í skipasmíðastöðinni Stálvík hf. í
Garðabæ frá 1965 og var þar yfir-
verkstjóri í íjölmörg ár. Síðustu
tíu árin starfaði hann á lager véla-
deildar Vegagerðarinnar í
Reykjavík.
Árni starfaði í ýmsum félaga-
samtökum. Hann sat í sljórn Att-
hagafélags Súðvíkinga og
Foreldra- og vinafélags Kópa-
vogsliælis í allmörg ár.
Útför Árna verður gerð frá
Breiðholtskirkju í Mjóddinni á
morgun, mánudaginn 6. desem-
ber, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
d. í
Við söknum hans afa okkar sárt.
Hann var yndislegur maður og í
sorginni eru allar góðu minningarnar
svo dýrmætar. Við munum alltaf
geyma þær með okkur. Afi var alltaf
svo skemmtilegur og stutt í húmor-
inn hjá honum. Þegar við hugsum til
baka sjáum við hann ljóslifandi fyrir
Erlisdrykkjur
ö
Vdtbigahú/lð
GAPi-mn
Dalshraun 13
S. 555 4477* 555 4424
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
okkur heima á Skriðustekknum,
gömul íslensk sjómannalög óma um
húsið og afi raular með og leggur
kapal á stofuborðið.
Það var líka fastur liður hjá honum
að vakna snemma á sunnudags-
morgnum, stinga lambalæri í ofninn
og hlusta svo á messuna á gufunni.
Lambalærin þeirra ömmu eru líka
það besta sem maður fær.
Einn af dýrmætustu eiginleikum
hans afa var hlýtt hjarta. Hann sýndi
öllum mikinn kærleika og umhyggju.
Þau amma ólu saman upp átta böm
og eignuðust fullt af barnabömum og
barnabarnabörnum og afi var sér-
lega stoltur af að eiga svona marga
afkomendur. Hann átti allltaf til
nóga ást handa öllu fólkinu sínu og
fylgdist vel með því að öllum liði vel.
Enda heilluðust allir sem honum
kynntust af persónuleika hans og var
hann mjög vinsæll hvar sem hann
kom við á lífsleiðinni.
Afi upplifði miklar sorgir í lífinu,
meira en margur annar, og þurfti að
ganga í gegnum mikil og langvarandi
veikindi. En hann lét ekkert buga sig
og var ákveðinn í að sigrast á öllum
erfiðleikum.
Afi var alla tíð hetjan okkar, var
svo duglegur og atorkusamur. Við
emm mjög stoltar af því að eiga hann
sem afa og hann kenndi okkur
margt. Eins og að kunna að meta það
sem við eigum, hugsa vel um það og
gera það besta úr lífinu.
Elsku afi, við trúum því að nú líði
þér vel á góðum stað. Við erum þakk-
látar fyrir þær stundir sem við áttum
með þér og þú munt alltaf verða hluti
af okkur.
Sá sem lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
íhjartaogminni
mannaerhanssakna.
Þeir eru himnamir
honumyfir.
(Hannes Péturss.)
Sigríður Elín og Svava Björk.
Kalliðerkomið,
kominernú stundin,
vinaskilnaðarviðkvæm stund.
Vinimirkveðja
fininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margseraðminnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Elsku afi, þá ertu farinn frá okkur
og allar þínar þjáningar eru á enda.
Þú sem að barðist eins og hetja fram
á síðustu mínútu, en núna þarftu ekki
að beijast lengur heldur ertu búinn
að fá hvíldina og færð nú að hitta
börnin þín tvö sem voru farin frá þér
og þú saknaðir alltaf sárt.
Við afi vorum alltaf mjög náin og
góðir vinir og veit ég að þú ert sáttur
við það að ég litla dúkkan þín eins og
þú kallaðir mig svo oft hafi verið hjá
þér þegar þú dróst andann í seinasta
sinn og kvaddir þennan heim.
Fyrsta orðið sem kemur upp í hug-
ann um persónuleika þinn er húmor-
isti og hafðir þú þann góða hæfileika
að geta slegið öllu upp í grín hvort
sem verið var að ræða alvarleg mál
eða ekki og hefur þessi hæfileiki þinn
eflaust hjálpað þér í gegnum lífið og
þá erfiðleika sem upp komu.
Ég vil þakka þér, elsku afi, fyrir
allar góðu stundirnar sem ég átti
með þér, þá ást og hlýju sem þú alltaf
sýndir mér, eins og á síðasta ári þeg-
ar ég var veik í svoh'tinn tíma, þá
hringdir þú í mig á hverjum einasta
degi úr vinnunni til að athuga hvem-
ig ég hefði það. Þetta segir margt um
þinn innri mann. Þér fannst gaman
að spjalla við okkur bamabörnin þín
um lífið og tilveruna og gefa okkur
ráð fyrir framtíðina því að þér var
mikið í mun að þitt fólk hefði það sem
allra best og það varst þú sem kennd-
ir mér það að erfiðleikar væm til að
takast á við þá.
Elsku afi, við ætlum að hugsa vel
um ömmu fyrir þig, hún sem var þér
allt og hefur hún staðið eins og klett-
ur við bakið á þér allt sl. ár sem þú
hefur verið svo veikur.
Takk fyrir allt, elsku afi minn.
Ástar- og saknaðarkveðja.
Þín
Árný Inga.
Elsku afi minn, nú ertu farinn á vit
betra lífs eftir löng veikindi, sem þú
hefur þurft að kljást vð síðastliðið ár.
Öðrum eins viija og þrjósku hef ég
aldrei orðið vitni að og hjá þér síðast-
liðnar vikur. Mörgum sinnum fórum
við í ofboði til þín þegar við héldum
að stundin væri komin til að vera hjá
þér þegar þú yfirgæfir þennan heim
en alltaf barðist þú áfram. Það var
eins og þú værir að stríða okkur enda
hefur þú alltaf verið stríðinn að eðlis-
fari. Én jafnframt ákveðinn allt frá
því ég leit þig fyrst augum, sem var
þegar þú keyrðir mömmu mína á
fæðingardeildina og ég fæddist
nærri því í bílnum þinum. Einnig
hefur þú alltaf verið mikill húmoristi,
alltaf gastu slegið öllu upp í grín og
ég man þá sérstaklega eftir því þeg-
ar við vorum á ættarmóti í Súðavík
og þú tókst nokkur villt dansspor
með uppblásinni dúkku í félagsheim-
ilinu og vaktir mikla kátínu meðal
ættingja okkar. Já þú hefur alla tíð
verið mikill hæfileikamaður hvor
sem er í járnsmíðinni eða við söng,
dans, glens og grín. Ég mun alltaf
minnast þín, hvort sem er í gleði eða
sorg, lífs eða liðinn þá muntu alltaf
verða afi minn í Breiðholtinu
Svefninn laðar, líður hjá mér
lífið sem ég lifað hef,
fólkogfurðuverur,
hugann baðar, andann hvílir,
lokbrám mínum læsi uns
vaknaendumærður.
Það er sumt sem maður saknar
vökumeginvið
leggst út af, á mér slökknar,
svíf um önnur svið.
ísvefnrofunumfinnég,
sofalengurvil,
því ég veit að ef ég vakna upp
fmnégafturtil.