Morgunblaðið - 22.01.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Daimler-
Chrysler leggur
aukinn metnað í
vetnisverkefnið
Miinchen. Morgunblaðið.
ÁFORM Daimler-Chrysler um að
taka þátt í tilraunaverkefni um að
vetnisstrætisvagnar verði látnir aka
til reynslu á leiðum Strætisvagna
Reykjavíkur hafa styrkst við heim-
sókn íslenskra aðila, sem vilja taka
þátt í verkefninu, til Þýskalands.
Sagði Páll Kr. Pálsson, stjómarfor-
maður fyrirtækisins Islenskrar
nýorku, sem stofnað var utan um
verkefnið, í gær að það mætti meðal
annars þakka því að Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, skyldi vera með í för.
Páll sagði að tilgangur ferðarinnar
til Þýskalands hefði verið tvíþættur:
,Annars vegar var ætlunin að kynna
verkefnið fyrir þeim aðilum, sem við
stefnum að því að taki þátt í fjár-
mögnun þess, og ég tel að það hafi
tekist vel. Allir væntanlegir fjár-
mögnunaraðilar voru með í för og ég
sé ekki betur en þeir séu ánægðir.
Hins vegar var tilgangurinn að veita
þessum áformum aukið vægi í augum
stjómenda Daimler-Chrysler, sem er
í fararbroddi í þessu verkefni og sér
um veigamestu þætti þess, og það að
hafa Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar-
og viðskiptaráðherra með í för skóp
greinilega traust og virðingu fyrh-
verkefninu hjá þeim.“
Bílaframleiðandinn Daimler-
Chrysler, Shell Hydrogen, dótturfyr-
irtæki olíufélagsins Royal Dutch/
Shell Group, orkufyrirtækið Norsk
Hydro og Vistorka, sem er eignar-
haldsféjag íslenskra fjárfesta og á
51% í íslenskri nýorku, undirrituðu
samning í febrúar á Hðnu ári um að
rannsaka möguleikana á að láta vetni
koma í stað olíu á íslandi og skapa
þar með fyrsta vetnissamfélagið á
jörðinni.
Klaus-Dieter Vöhringer, sem
starfað hefur hjá Daimler í 32 ár og
situr nú í 14 manna stjórn Daimler-
Chrysler, ræddi á fimmtudag við ís-
lenska hópinn, sem í em, auk fulltrúa
rfldsstjómar íslands, aðilar frá
Reykjavíkurborg, Landsvirkjun,
Skeljungi, Alþingi, Vistorku og Is-
lenskri nýorku og sagði eftir það að
hann hefði fulla trú á að takast mætti
að gera ísland að fyrsta vetnissamfé-
laginu. Páll kvaðst telja að þessi ferð
myndi tryggja metnaðarfulla þátt-
töku Daimler-Chrysler í vetnisverk-
efninu og hann hefði þegar í þessari
ferð orðið var við það.
Ætla að gefa sig
óskipta í verkefnið
„Við emm reyndar ekki eini aðil-
inn, sem þeir stefna að því að vinna að
svona verkefni með, en við emm hins
vegar fyrst,“ sagði hann. „Það er allt-
af þannig að sá sem er fyrstur nýtur
forskotsins, en um leið em aðilar á
borð við Daimler-Chrysler svolítið
varkárir og vilja kannski ekki leggja
allt undir. A síðasta stjómarfundi Is-
lenskrar nýorku vom þeir þess vegna
frekar varkárir um það hvað þeir
myndu setja í verkefnið. Nú hins veg-
ar liggur það fyrir eftir þessa ferð að
þeir ætla sér að setja í verkefnið allt,
sem lýtur að þeirra hlut í verkefninu,
vagnana, alla tækni, sem þeim fylgir
og allt viðhald og þjónustu og búnað í
kringum það. Þeir ætla að gefa sig
óskipta í þetta verkefni og leggja um
leið mfidð upp úr þessari félagslegu
og efnahagslegu rannsókn á áhrifum
vetnissamfélagsins, sem þeir ætla að
dreifa víðar. Ymsir utanáliggjandi
verkþættir koma því sterkar inn eftir
þessa ferð.“
Jón Björn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri íslenskrar nýorku,
kvaðst telja að þessi kynnisferð hefði
nýst vel og bætti við að hann vonaði
að þær upplýsingar, sem komið hefðu
fram í kynnisferðinni, auðvelduðu
þátttakendunum að taka ákvörðun.
■ Verður vetni/6
Belta- og ljósa-
notkun könnuð
ÞEIR létu það ekki á sig fá þótt á
móti blési í veðri, lögreglumennimir
Ágúst Birgisson og Aðalsteinn Aðal-
steinsson, sem vora við umferðareft-
irlit í Þverholti í Mosfellsbæ fyrir
hádegi í gær.
Snjóa hefur að mestu leyst í hlý-
indunum að undanförnu og þeir fé-
lagar era því aftur komnir á bifhjól-
in sín góðu. „Það er afar óvenjulegt
að hægd. sé að nota hjólin við um-
ferðarlöggæslu áþessum árstíma,"
segir Ágúst. Hjólin voru tekin inn í
hús þegar fennti sem mest í haust og
undir jólin, en Ágúst viðurkennir að
það sé reglulega gott að geta feykst
um á þeim í höfuðborginni svo langt
á undan áætlun.
Lögreglan í Reykjavík hefúr stað-
ið fyrir átaki og sinnt eftirliti við
fjölmargar götur undanfaraa daga.
Sérstaklega hefur Ijósabúnaður bif-
reiða verið kannaður, en einnig bíl-
beltanotkun og hvort ástandsskoðun
hafí verið sinnt með lögbundnum
hætti.
„Við vorum í býtið á Hofsvallagöt-
unni í Reykjavík og þar urðum við
fyrir miklum vonbrigðum með bíl-
beltanotkun ökumanna. Um 40%
vora óspennt í bflum sfnum og það
er allt of mikið. Fólk kemur með af-
sakanir af ýmsu tagi, en staðreyndin
er sú að beltanotkun er lögbundin
og nú er ökumaður einnig ábyrgur
fyrir notkun allra farþega í bifreið
sinni, yngri en 15 ára. Við brotum á
slíku liggja talsverðar fjársektir,"
segir Agúst. Hann nefnir ýmsar út-
gáfúr af skýringum ökumanna á
beltaleysinu, en minnisstæðast hafi
verið þegar maður einn bar því við
að hann væri bara með bflinn í láni!
Um 130 ökumenn hafa verið tekn-
ir fyrir of hraðan akstur í umdæmi
Reykjavíkurlögieglunnar frá ára-
mótum og þá hefur borið á því að
undanförau að ökumenn stærri bfla
beiti aukaljósabúnaði við akstur.
Þeir félagar sögðu í gær að slíkt
væri með öllu ólöglegt; engin ljós
megi loga með aðalljósunum þótt
látið sé hjá líða að gera athugasemd-
ir við hefðbundinn dagljósabúnað
bifreiða. „Okumenn eru fullkæru-
lausir varðandi Ijósabúnaðinn og allt
of algengt er að sjá „eineygða" bfla
á götunum. Það er eins og fólk átti
sig ekki fyllilega á mikilvægi þess að
hafa öll öryggisatriði í lagi - alltaf.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Með öku-
skírteini
sem
rann út
1983
LÖGREGLAN í Kópavogi
stöðvaði þrjá ökumenn í fyrra-
kvöld sem reyndust ökurétt-
indalausir.
í tveimur tilvikum var um
það að ræða að bráðabirgða:
ökuskírteini var útrunnið. I
þriðja tilvikinu reyndist öku-
skirteinið hafa runnið út fyrir
sautján árum.
Umrætt ökuskírteini var gef-
ið út árið 1973 og gilti til ársins
1983. Samkvæmt lögum sem
tóku gildi 1988 bar viðkomandi
að endumýja skírteinið og fá
fullnaðarskírteini sem gildir
þar til ökumaður er sjötugur.
Þá voru tólf ökumenn kærðir
fyrir að nota ljóskastara sem
ekki er leyfilegt að nota í þétt-
býli.
Með Morgunblaðinu í dag er
dreift blaði frá Heklu, „Stór-
sýning í Heklu 22. og 23. jan-
úar“.
Hexa ehf. sækir á Bandaríkjamarkað í vor með íslenskar ullarvörur
Glittir í 100 millj-
óna samning
FYRIRTÆKIÐ Hexa ehf. í Kópa-
vogi undirbýr nú sókn á bandarískan
markað með ullarvörur og hyggst
skrifa undir sölusamninga við banda-
ríska og kanadíska aðila fyrir a.m.k.
100 milljónir króna í vor.
Að sögn Jóhanns Christianssen,
forstjóra Hexa, byggist markaðs-
sóknin ekki síst á viðskiptasambönd-
um Tómasar A. Holtons og Vestur-
íslendingsins Peggyar Olsen.
Jóhann kveður forsvarsmenn Hexa
bjartsýna á að ná samningum við
verslunarkeðju vestanhafs sem nefn-
ist Norströms, en í keðjunni eru 65
stórverslanir í dýrari kantmum víðs
vegar um Bandaríkin. „Við förum
beint inn í innsta kjama samnings-
aðila hjá Norströms fyrir tilstilli
Peggyar Olsen, og emm því bjartsýn-
ir á framhaldið," segir Jóhann.
„Markmið okkar er að loka sölusamn-
ingum um mánaðamótin mars-apríl
en tfl að þeir náist þarf að þróa vöra-
Knu fyrir aðila sem sýnt hafa áhuga á
innflutningi íslenskra vara. í febrúar
verður síðan send út sölunefnd með
framleiðsluprafur og er markmið
hennar að koma á samningum við
bandarísk og kanadísk fyrirtæki.“
Vestur-íslendingurinn Peggy 01-
sen var stödd hérlendis fyrir skömmu
m.a. til að kanna íslenskar vörur, af-
kastagetu fyrirtækja og fleira og hitti
þá m.a. iðnaðarráðherra og landbún-
aðarráðherra að máli. Hún hefur mik-
inn áhuga á málefnum íslands og hef-
ur þvi lagt sitt af mörkum til að greiða
götu Hexa vestanhafs. Hún hefur átt
gott samstarf við eigendur og inn-
kaupastjóra Norströms og hafa tals-
menn keðjunnar lýst yfir áhuga á að
kaupa íslenskar framleiðsluvörui- fyr-
ir haustlínu sína árið 2000.
Tómas Holton, sem selt hefur ís-
lenskar ullarvörur til Bandaríkjanna
um árabil, kom nýlega úr tveggja
mánaða ferð um Bandaríkin þar sem
hann kynnti sér markaðshorfurnar
vegna sóknar Hexa og hlaut hann
góðar viðtökur hjá fyrrum viðskipta-
vinum sínum.
Jóhann Christianssen segir mikla
vinnu framundan við lokaundirbún-
ing markaðssóknarinnar sem ljúka
þurfi á skömmum tíma en mikill hug-
ur sé í mönnum vegna hins góða með-
byrs sem endurspeglist í viðbrögðum
markaðarins og þeirri alvöra sem býr
að baki hjá kaupendum.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
lul mTOUi'iMLIfrafii
íslendingar leiknir sundur
og saman í Rijeka / B1
Vala Flosadóttir stökk 4,30m
í Þýskalandi / B6
Sérblöð í dag
mmMm
ALAUGARDO
LESBé
MORGUIVBLAÐSINS