Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 22
22 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-
VIÐSKIPTI
Starfsmönnum Búnaðarbankans var veitt undanþága frá verklagsreglum
um kaup óskráðra hlutabréfa
NOKKUR hópur starfsmanna Bún-
aðarbanka íslands keypti á síðasta
ári bréf í DeCODE, móðurfélagi ís-
lenskrar erfðagreiningar, þrátt fyrir
ákvæði í verklagsreglum bankans
um að kaup á óskráðum bréfum væru
óheimil. Að sögn Stefáns Pálssonar,
bankastjóra Búnaðarbankans, voru
undanþágur veittar frá reglunum, og
samþykkis ríkisins, sem meirihluta-
eiganda í bankanum, var ekki leitað.
Samkvæmt 7. gr. verklagsreglna
bankans er starfsmönnum óheimilt
að eiga viðskipti með önnur verðbréf
en þau sem skráð eru á opinberum
verðbréfamarkaði eða ganga kaup-
um og sölum á öðrum skipulegum
markaði sem starfar reglulega og er
opinn almenningi. í júní á síðasta ári
keyptu Búnaðarbankinn, Lands-
bankinn, FBA og eignarhaldsfélagið
Hof nálægt 17% hlut í DeCODE, og
var kaupverðið rúmir sex milljarðar
króna.
Stefán telur verklagsreglurnar
ekki hafa verið brotnar, þar sem rík-
ið hafi áður samþykkt að starfsmenn
Búnaðarbankans keyptu óskráð bréf
í bankanum. Er Stefán með því að
vísa til þess að í lok árs 1998 gaf ríkið
starfsmönnum Landsbanka og Bún-
aðarbanka kost á að eignast hluti í
bönkunum í lokuðu útboði, nokkrum
vikum áður en almennt útboð fór
fram á hlut ríkisins í bönkunum. Bréf
í hvorugum bankanna höfðu þá verið
skráð á Verðbréfaþingi. „Eftir á að
hyggja má hins vegar vel vera að við
hefðum átt að standa öðruvísi að
hlutunum, en við mátum þetta heim-
ilt þegar verklagsreglurnar tóku
gildi,“ segir Stefán.
Stjórnendur bank-
ans telja undan-
þágurnar eðlilegar
Að hans sögn keyptu starfsmenn
jafnt á verðbréfasviði sem öðrum
sviðum bankans bréfin. „Hins vegar
bauð bankinn ekki starfsmönnum
sérstaklega að kaupa þau, heldur var
undanþága veitt í hvert og eitt skipti
þegar starfsmaður leitaði eftir
henni,“ segir Stefán. Kveðst hann
ekki hafa upplýsingar um hvaða önn-
ur óskráð bréf starfsmönnum hefur
verið heimilað að eiga viðskipti með
fyrir eigin reikning. Hins vegar legg-
ur hann áherslu á að þar séu einungis
á ferðinni bréf í félögum sem eru á
leið á markað.
Stjórnendm- bankans telja undan-
þágumar eðlilegar, að sögn Stefáns.
„Við setjum þau skilyi'ði að mikil við-
skipti séu með viðkomandi bréf sem
starfsmaður kaupir, eins og reyndin
hefur verið með bréf DeCODE, og að
ekki sé um bréf að ræða sem starfs-
menn geti haft áhrif á verðið á,“ segir
hann og bætir því við að bankinn
hvetji starfsmenn til að gæta hófs í
viðskiptum með óskráð bréf.
Aðspurður segir hann að ákveðið
hámark sé sett á upphæð hverra við-
skipta, án þess að það sé nánar skil-
greint. Búnaðarbankinn hafi hins
vegar engin tilmæli eða reglur sett
um að starfsmenn þyrftu að eiga
bréfin í tiltekinn lágmarkstíma. Að
sögn Stefáns er þó í skoðun að taka
upp slík ákvæði í verklagsreglumar.
Verklagsreglur þær sem í gildi era
innan Búnaðarbankans taka til
starfsmanna á verðbréfasviði bank-
ans og annarra sem aðgang hafa að
trúnaðampplýsingum sem snúa að
verðbréfamarkaðinum, þ.á m. helstu
yfirmenn bankans. I heildina falla því
um 70-80 starfsmenn undir ákvæði
þeirra.
Starfsmönnum Landsbréfa
veitt undanþága
Stjórnendur FBA og Landsbank-
ans segja að undanþágur hafi al-
mennt ekki verið veittar innan bank-
anna frá ákvæðum verklagsreglna
um viðskipti starfsmanna með
óskráð bréf íyrir eigin reikning.
„Við höfum skýr ákvæði um þetta í
okkar verklagsreglum, en bann við
viðskiptum með bréf nær þó ekki til
erlendra félaga, svo lengi sem við-
komandi félag er ekki í viðskipta-
tengslum við bankann," segir Hall-
dór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans. Astæðuna fyrir
þeirri reglu segir hann vera þá að
starfsmenn hafi ekki sérstakar upp-
lýsingar um slík félög og geti al-
mennt ekki haft áhrif á verðþróun
þeirra. Hins vegar hafi stjórnendui-
bankans túlkað reglurnar á þann
hátt að starfsmönnum séu óheimil
viðskipti með bréf DeCODE, þótt
það sé erlent félag, vegna innlendra
umsvifa félagsins. Starfsmönnum
hafi þar af leiðandi engar undanþág-
ur verið veittar til kaupa á bréfum í
félaginu.
Halldór segir aðeins eitt dæmi
vera um að starfsmönnum innan
Landsbankasamstæðunnar hafi ver-
ið veitt undanþága vegna viðskipta
með óskráð félög. Hafi þar verið um
að ræða tilvik sem upp kom í byijun
síðasta árs, þegar starfsmönnum
Landsbréfa, sjóðafyrirtækis Lands-
bankans, hafi verið veitt afmörkuð
undanþága gegn mjög stífum skil-
yrðum um langtímaeignarhald á við-
komandi bréfum.
Bjarni Armannsson, forstjóri
FBA, segir að þai- á bæ hafi undan-
þágui- ekki verið veittar starfsmönn-
um, að undanskildum örfáum tilvik-
um þar sem leyfð vora kaup á hlutum
í íþróttafélögum fyrir smáar fjár-
hæðir. „Við teljum okkrn- hreinlega
ekki í stakk búin til þess þar sem
verklagsreglumar era staðfestar af
Fjármálaeftirlitinu og sú stofnun
hefur ekki staðfest neinar undan-
þáguheimildir frá þeim,“ segir
Bjami.
Hann telur eðlilegt að reglur um
viðskipti starfsmanna með óskráð
bréf verði endurskoðaðar, þar sem
þær séu famar að valda nokkrum
óþægindum. Samt megi alls ekki
gleymast í umræðunni að nú þegar
séu í gildi innan hvers verðbréfafyi'-
irtækis verklagsreglur sem Fjár-
málaeftirlitið samþykki, og þeim beri
að fylgja. Reglunum sé ætlað að
tryggja hagsmuni viðskiptavina
bankans. Leitast verði við að hafa þá
hagsmuni áfram í öndvegi þegar
hugað verður að breytingum.
Halldór J. Kristjánsson segist
vera fylgjandi því að rýmka heimildir
starfsmanna tH að eiga viðskipti með
óskráð bréf með þeim skilyrðum að
eignarhald sé til lengri tíma og fyrir-
framsamþykkis viðkomandi yfir-
manns sé leitað í hvert og eitt skipti.
Velta Kögunar hf.
jókst um 59%
milli ára
VELTA Kögunar hf. á síðasta ári
var tæplega 440 milljónir króna og
hagnaður fyrir fjármagnsliði var
75,3 milljónir króna. Fjármagns-
tekjur voru 6,3 milljónir króna,
hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrir skatta var 81,5 milljónir og
hagnaður af reglulegri starfsemi
eftir skatta 54,6 milljónir króna.
Gengi bréfa í Kögun hefur hækkað
úr 20 í byrjun desember í 35, eða
um 75%.
Eigið fé Kögunar hf. er 232 þús-
und krónur og eigið fé og skuldir
era samtals 380,6 milljónir króna.
Handbært fé frá rekstri er 77
milljónir króna, veltufjárhlutfall er
2,01, eiginfjárhlutfall er 61%, innra
virði er 3,09 og arðsemi eiginfjár er
32%.
Gunnlaugur Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Kögunar hf., sagði í
samtali við Morgunblaðið að síð-
asta ár hefði verið besta ár félags-
ins frá upphafi.
„Veltuaukningin skiptist þannig
að velta móðurfélagsins jókst um
45%, en velta Navision Financial-
hluta félagsins jókst um 109%.
Þetta gekk því vel á síðasta ári og
ég vona að bjart sé framundan. Við
eram að reyna að spreyta okkur í
útflutningi og það gaf okkur svolít-
ið á síðasta ári, en spurning er með
framhaldið á því. Helstu vandamál-
in eru fólgin í því að fá fólk til
starfa, en vegna þess hve þjóðfé-
lagið er hátt gírað núna er erfitt að
finna fólk. Það er kannski helsti
hemillinn á aukningu fyrirtækja í
þessari grein,“ sagði Gunnlaugur.
Stefnt á skráningu
í febrúar
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu hefur Kögun keypt
90% hlut í Verk- og kerfisfræði-
stofunni og er stefnt að því að skrá
Kögun á Verðbréfaþingi íslands.
Að sögn Gunnlaugs er stefnt að því
að ná skráningu á þinginu í febrúar
og er skráningarlýsing tilbúin. í
hana á þó eftir að taka tillit til
kaupanna á VKS samþykki aðal-
fundur kaupin, en hann verður
haldinn næstkomandi fimmtudag.
Samherji í viðræðum
um kaup á hlut í Hrað-
frystihúsi Þórshafnar
VERÐBREFAÞINGI Islands
hefur borist tilkynning um að
Samherji hf. eigi í viðræðum við
Landsbanka Islands og fleiri aðila
um hugsanleg kaup á talsverðum
hlut í Hraðfrystistöð Þórshafnar
hf., með samvinnu fyrirtækjanna
í veiðum og vinnslu að markmiði.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að tilkynn-
ingin hefði verið send Verðbréfa-
þingi vegna þess að spurst hefði
út að viðræður um kaup á hlut í
hraðfrystihúsi Þórshafnar stæðu
yfir.
„Við höfum verið að þreifa á
þessu máli en það er ekki komið á
neinn leiðarenda. Ég reikna hins
vegar með því að það fáist niður-
staða nú um helgina. Á meðan
þetta er ekki komið á leiðarenda
ætla ég ekki að tjá mig nánar um
rnálið," sagði Þorsteinn Már.
Spá Landsbréfa um
hagnað ársins 1999
hjá fyrirtækjunum sem
mynda Úrvalsvísitölu VÞÍ
Upphæðir í milljónum króna
Fyrirtækin sem mynda Úrvalsvísitölu VÞÍ: Spá um hagnað ársins 1999
Baugur 705
Búnaðarbanki fslands 1.220
FBA 1.255
Flugleiðir 2.025
Grandi 615
Eimskipafélag fslands 1.320
fslandsbanki 1.680
Landsbanki fslands -
Marel 500
Olíufélagið 500
Samherji 400
SÍF 225
Tryggingamiðstöðin 285
ÚA 70
Þormóður rammi ■ Sæberg 430
Afkomuspá Landsbréfa
Misjafn árangur í
sjávarútvegi
HRAFN Amason og Helgi Þór
Logason, hjá eignastýringarsviði
Landsbréfa hafa tekið saman spá
Landsbréfa um afkomu fyrirtækja
sem mynda Úrvalsvísitölu Verð-
bréfaþings íslands fyrir árið 1999.
, jUmennt má segja að afkomuhorf-
ur, hjá þeim fyrirtækjum í Úrvals-
vísitölunni sem Landsbréf spá fyrir
um hagnað hjá, séu nokkuð góðar og
útlit fyrir nokkra bætingu frá því í
fyrra. Reikna má með að bankarnir
haldi áfram að bæta afkomu sína og
að hagnaður þeirra verði í takt við 9
mánaða afkomutölur þeirra.
Reikna má með að afkoma sjávar-
útvegsfyrirtækja verði ansi misjöfn
og fari að mestu eftir því hvemig
aflaheimildir þeirra era samsettar
eftir tegundum. Þau fyrirtæki sem
era með stóran hluta sinna aflaheim-
ilda í bolfiski ættu að verða með
nokkuð góð uppgjör á meðan upp-
sjávarfisksfyrirtækin hafa þurft að
þola verðfall á afurðum og dræma
veiði. Töluvert er um óreglulegar
tekjm’ hjá Eimskipafélaginu og Flug-
leiðum, en þó reiknum við með að
bæði þessi fyrirtæki bæti afkomu
sína af reglulegri starfsemi frá fyrra
ári. í heildina séð eram við því nokk-
uð bjartsýnir á uppgjör þessara fyrir-
tækja og teljum að þeim röddum sem
hafa talað um ofmat á hlutabréfa-
markaði eigi eftir að fækka,“ að því er
fram kemur í spá Landsbréfa.
Rekstrarleyfíshafar frísvæða
Oheimilt að stunda heildsölu
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTINU
hefur ekki borist beiðni frá Mat-
kaupum um rekstur frísvæðis en
fjármálaráðherra veitir leyfi til
reksturs frísvæðis m.a. með því
skilyrði að samþykki viðkomandi
sveitarstjórnar liggi fyrir.
Nýlega greindi Morgunblaðið frá
því að Matkaup ehf., dótturfélag
Daníels Ólafssonar hf., hefði sótt
um leyfi til rekstrar frísvæðis í
Skútuvogi 3 og vildi með því freista
þess að fá slíka þjónustu á betri
kjörum en fyrirtækið fær nú hjá
TVG-Zimsen.
Erindi Matkaupa fékkst sam-
þykkt hjá borgarráði og mun nú
vera til umfjöllunar hjá hafnar-
stjórn. Fjármálaráðuneytinu hefur
ekki, samkvæmt upplýsingum það-
an, borist umsókn varðandi málið
og munu slíkar umsóknir vera fá-
tíðar. Að öðru leyti vildi ráðuneytið
ekki tjá sig um málið.
í 73. og 74. grein tollalaganna,
nr. 55/1987, er kveðið á um að fjár-
málaráðherra geti heimilað sveit-
arfélögum, félögum eða einstak-
lingum að setja á fót og reka
almenna tollvörugeymslu. Leyfið
er hins vegar bundið því skilyrði að
innflytjendur almennt eigi þess
kost á að fá leigð afnot af geymsl-
unum. Jafnframt kemur fram í
reglugerð um frísvæði, nr. 527/
1991, að leyfi til reksturs frísvæðis,
þ.e. afmarkaðs svæðis þar sem
heimilt er að geyma ótollafgreidd-
ar vörur, megi aðeins veita þeim
aðilum sem starfa í þeim tilgangi
að veita öðrum þá þjónustu sem
felst í slíkum rekstri. Leyfishöfum
er sjálfum óheimilt að stunda iðn-
aðarframleiðslu, verslun, umboðs-
sölu, heildsölu eða smásölu.
Tvö fyrirtæki reka frísvæði af
þessu tagi í dag. Það eru BM-flutn-
ingar, sem er í eigu Samskipa og
TVG-Zimsen, sem er í eigu Eim-
skipafélagsins.
Bankarnir
hækka
vexti
BANKAR og sparisjóðir til-
kynntu Seðlabankanum í gær
um 0,8% hækkun útlánsvaxta í
samræmi við nýlega hækkun
Seðlabankans á stýrivöxtum.
Innlánsvextir hækka einnig,
en minna, eða um 0,2-0,5%.
Kjörvextir almennra skulda-
bréfalána era nú 12,3% að með-
altali, yfirdráttarlán einstak-
linga 18,6% og meðalfoi’vextir
víxla 16,1%.
Vextir á almennum spari-
sjóðsbókum era nú frá 1% til
1,5%. Á sértékkareikningum
era vextir 1-1,9%.