Morgunblaðið - 22.01.2000, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Eigendur Verði Ljós, Egill Vignisson, Logi Huldar Gunnlaugsson, Páll Garðarsson
og Óiafur Ágúst Haraldsson.
Upp fyrir haus
í verkefnum
Það færist í vöxt að tónlistardiskum fylgi
ýmislegt margmiðlunarefni og með einum
af söluhæstu diskum síðasta árs, Xeneizes,
var til að mynda margmiðlunarpakki
sem nenn gátu skemmt sér við að skoða
og/eða hlusta á.
Athyglisverð o g
erfíð verkefni
LEIKIR
MARGMIÐLUNAREFNIÐ á
Xeneizes var úr smiðju fyrirtækis
sem kallast Verði ljós, þriggja ára
margmiðlunar- og grafíkvinnslu-
fyrirtækis í Nóatúninu. Fyrir
svörum hjá fyrirtækinu verður
Egill Vignisson framkvæmda-
stjóri og segir hann að fyrir um
þremur árum hafí hann starfað
við vefsíðugerð og lent nánast
óvart inni í sama verkefni og Olaf-
ur Ágúst Haraldsson, travelnet.is.
„Við hófum að vinna saman þegar
tími gafst til, um kvöld og helgar,
og smátt og smátt varð hugmynd-
in að Verði ljós meira á borði en í
orði. Við ákveðum svo, með Loga
Huldari Gunnlaugssyni, félaga
okkar, að henda okkur út til Flór-
ída og nema þar margmiðlunar-
fræði. Þar kynnumst við svo Páli
Garðarssyni, sem slóst í hópinn.“
Eins og fram kemur í máli Eg-
ils voru þeir félagar að nema
margmiðlunafræði og útskrifuð-
ust með gráðu í stafrænni miðlun,
sem Egill segir að þýði í stuttu
máli þeir séu jafnvígir á hina
ýmsu þætti, hvort sem heiti þrí-
vídd, margmiðlun, vefsíðugerð eða
aðrar stafrænar lausnir. „Við fór-
um því af stað með opnum huga
og hugðumst lenda þar sem eftir-
spurnin er mest. Það er aftur á
móti er mikil vöntun á allri þjón-
ustu sem heyrir undir stafræna
miðlun svo við nýtum okkar þekk-
ingu til hins ýtrasta,“ segir Egill,
en hann segir að þeir félagar séu
upp fyrir haus í verkefnum eins
og er, og hafí verið frá því þeir
komu að utan fyrir um fjórum
mánuðum.
Egill segir að þeir félagar séu
prýðilega tækjum búnir, séu með
fímmtán tölvur af ýmsum gerðum
og stærðum, allt frá Pentium 90
með 32 MB innra minni upp úr.
„Við erum t.d. að fá til okkar tvær
Dual Pentium III 733 með 1 GB
minni. Jaðartækin eru nokkuð
hefðbundin, prentarar, skannar,
myndavélar o.fl. Þá erum við
einnig með gríðarlega öflugan
geisladiskafjölfaldara. Við notum
svo fjöldann allan af hugbúnaði,
það er ekki óalgengt að hér séu
um 20 ólík forrit í gangi í einu.“
Egill segir að Quarashi-verk-
efnið sé þannig til komið að Páll,
sem sé vel tengdur inn í tónlistar-
heiminn, hitti Qurashi-menn að
máli „og einhverjar hugmyndir
kviknuðu í kjölfarið á því. Hann
var þá kominn heim frá námi en
við þrír vorum á endasprettinum.
Þegar endanlegt lagaval á plötu
strákanna hafði verið ákveðið kom
í ljós að um 100 MB var óráðstaf-
að og þar komum við til sögunnar.
Páll var tengiliður okkar hér
heima og sá um öll samskipti við
viðskiptavininn. Við svitnuðum
svo, þrír úti í sólinni á Flórída, við
samsetningu verkefnisins. Sölvi
Blöndal fékk líka aðeins að kenna
á tímamismuninum en við vöktum
hann um hánótt til að fara yfír hin
ýmsu atriði. Þetta var unnið í
einni samfelldri lotu á rúmum
tveimur sólarhringum, en þegar
við svo loksins sáum glitta í smá-
svefn fór FEDEX-hraðsendingar-
þjónustan íbúðavillt með nauðsyn-
legan hugbúnað þegar aðeins
tvær klukkustundir voru þar til
diskurinn átti að fara í gerð frum-
eintaks. Við náðum honum hins
vegar til okkar á endanum en með
herkjum þó.“
Egill segir að skammt sé síðan
þeir luku við gerð margmiðlunar-
disks sem Landsbankinn hyggst
dreifa til allra þeirra sem skrá sig
fyrir ókeypis netaðgangi á li.is.
„Einnig höfum við unnið verkefni
fyrir aðila eins og Islenskra aðal-
verktaka, Tal og Walter-Storyk
Design Group sem er einn fremsti
hljóðstúdíóhönnuður í heimi.
Áframhald verður af þeirri sam-
vinnu en einnig hafa nokkur af
stærstu fyrirtækjum landsins haft
samband og ekki hægt að segja
annað en að framtíðin sé björt,“
segir Egill að lokum.
Medal of Honor, leikur fyrir
PlayStation frá Electronic Arts.
Dreamworks Interactive hannaði
leikinn, sem gerist í seinni
heimsstyijöldinni.
ALLT FRÁ því að Goldeneye
var gefinn út fyrir Nintendo 64
hafa skotleikjaaðdáendur beðið
svipaðs leiks fyrir PlayStation. Sá
leikur hefur nú loks verið gefínn
út. Spilendur taka sér hlutverk
Jimmys Pattersons, ungs manns
sem sýnt hefur ótrúlega hæfileika
í að drepa Þjóðverja. Jimmy er
nýkominn úr herskólanum svo
spilandi verður að vinna sig upp
frá því að vera óbreyttur
hermaður til þess að vera dulbúinn
sem þýskur herforingi sem
spígsporar um einhverjar stærstu
herstöðvar þeirra.
Vopn leiksins eru afar fjölbreytt
og í nær fullkomnu samræmi við
heimsstyrjöldina sjálfa. Spilendur
þurfa þó ekki aðeins að drepa því
yflr 1.500 setningar eru til í
leiknum og oft er betra að tala
áður en skotið er. Spilendur ráða
því þó sjálfír.
Fjölbreytni borðanna er frábær
og oft þurfa spilendur að takast á
við afar athyglisverð og erfið
verkefni. Til dæmis þarf Jimmy í
einu borðinu að hlaupa í gegnum
risastóran þýskan kafbát til þess
að reyna að stöðva vélina í honum
með einhverjum ráðum. Oft er
aðeins viss tími í slíkum borðum
svo þau verða meira en lítið
spennandi.
Net-
stöðin
kynnt
Vestur á Granda starfar svo-
nefnd Netstöð, þar sem ung-
mennum er kennst að setja
saman tölvur og á Linux
stýrikerfíð. Hún hóf starfsemi
síðastliðið haust og fer nú af
stað aftur með kynningu á
starfseminni enda hefur hús-
næði stöðvarinnar hefur verið
aukið. Við þá stækkun bætist
meðal annars aðstaða til að að
stunda sjálfstætt grúsk og
vera í samfloti með öðrum
Linux-áhugamönnum, til að
mynda til að setja saman
Bjólfsklasa eða önnur afbrigði
Linux-uppsetninga. Einnig
eru fyrirhugaðir vikulegir fyr-
irlestrar um Linux..
Kynning á starfsemi Net-
stöðvarinnar verður á laugar-
dag frá 13 til 17, en nánari
upplýsingar er að fá í síma
697 6942.
Gervigreind þýsku hermannana
er góð. Ef spilandinn kastar til
dæmis handsprengju of nálægt
einhverjum þeirra eru talsverðar
líkur á því að þeir annaðhvort
sparki henni eða hendi til baka.
Þýsku varðhundarnir eru einnig
afar gáfaðir og ef þeir sjá
handprengju fórna þeir lífi sínu
með því að hlaupa með hana í
kjaftinum til þess sem kastaði.
Áður en hvert verkefni byrjar
segir gamall herforingi spilendum
nákvæmlega hvað þeir eiga að
gera. Best er að hlusta vel því
hvert borð getur verið risastórt
með fjölmörgum verkefnum. Eftir
að borðið er búið fær spilandinn að
sjá hversu oft hann skaut í haus,
hægri eða vinstri löpp eða fót eða
jafnvel klof á þýskum hermanni.
Stjórn leiksins getur verið afar
pirrandi á tímum en oftast er hún í
góðu lagi. Aðalvandamálið er að
stundum þegar spilendur rekast á
veggi eða runna virðist leikurinn
allur hökta og stoppa. 85% af
tímanum er allt í fínu lagi en þessi
15% prósent sem eftir eru láta
spilandann óska þess að leikurinn
hefði aldrei verið búinn til.
Grafík og hljóð leiksins eru
verulega svöl, leikurinn er allur
afar myrkur og drungalegur en oft
eiga verkefnin sér stað í gömlum
vöruhúsum eða jafnvel úti. Hljóðið
skapar frábæra stemmningu í
öllum borðum og tónlistin er ekki
léleg heldur. Frábær leikur sem
allir sem finnst gaman að skjóta af
byssum ættu að eiga.
Ingvi M. Árnason
Fyrsti
W2K-vír-
usinn
ÞÓ ENN sé mánuður í að Wind-
ows 2000 komi út er fyrsti vírus-
inn sem sérsniðinn er fyrir hug-
búnaðinn kominn af stað. Að visu
gerir vírusinn engan éskunda
enn sem komið er, en sýnir fram
á ýmsar glufur í stýrikerfinu.
Vírusasmiðir keppa gjarnan
sín á milli um að setja saman sem
öflugasta og ósýnilegasta vírusa
sem sannast í vírusnum nýja sem
er fyrir stýrikerfí sem ekki er
enn komið á markað. Vírusinn
nýi heitir Win2000.Install/
W2K.Installer, en hann kemur
sér fyrir í sérstökum skrám án
þess þó að spilla þeim. Svo virðist
sem tilgangurinn með smíði hans
hafí verið að sanna að hægt væri
að smita Windows 2000, en hann
hefur ekki áhrif á önnur stýri-
kerfí. Þó vírusinn virðist mein-
Iaus er hann sönnun þess að höf-
undar hans hafí fundið veikleika
í Windows 2000 sem aðrir ill-
kvittnari vírusasmiðir kunna að
nýta sér siðar.
!
Diskasafnið
á N etið
VINSÆLDIR MP3-gagnasniðsins komu
hljómplötuútgefendum í opna skjöldu og
enn hafa þeir ekki áttað sig á hvað skal
til bragðs taka. Á meðan þeir velta því
fyrir sér spretta upp fyrirtæki sem sjá
hagnaðarvon i miklum vinsældum sniðs-
ins og fyrir skemmstu hrinti MP3.com úr
vör nýrri þjónustu sem á eflaust eftir að
hleypa lífí í umræðuna.
MP3.com kom sér snemma upp vef-
setri þar sem hægt var að nálgast tónlist
á MP3-sniði, hugbúnað til að spila hana
og sitthvað fleira til. MP3.com var með
fyrstu vefsetrum sem buðu upp á að
kaupa tónlist yfír Netið á MP3-sniði, en
það hefur lfka bryddað upp á fleiri nýj-
ungum, meðal annars þeirri að nú geta
gestir á vefsetur MP3.com hlustað á eig-
in geisladiska yfír Netið hvar sem þeir
eru staddir f heiminum.
í vikunni kynnti MP3.com þá þjónustu
að gestir á setur fyrirtækisins geta
skráð sig inn með netfangi og að-
gangsorði að eigin vali, sótt sér hugbún-
að frá fyrirtækinu og geta síðan sett inn
diska úr eigin safni í einskonar lagasafn
á Netinu. Það fer þannig fram að við-
komandi setur geisladiskinn í geisladrif
tölvu sinnar og hugbúnaðurinn sem sótt-
ur var áður sendir upplýsingar um disk-
inn til MP3.com. Það þykir fyrirtækinu
næg staðfesting þess að viðkomandi eigi
diskinn og um leið getur hann farið að
hlusta á diskinn á MP3-sniði yfír Netið.
Þetta er þó þeim takmörkunum háð að
diskurinn sé til i gagnasafni MP3.com,
en að sögn eru þar skráðar 40.000 plöt-
ur.
Önnur þjónusta sem kynnt var við
sama tækifæri var að þeir sem kaupa
geisladiska hjá einhverri þeirra net-
verslana sem eru í samstarfí við
MP3.com geta hlustað á diskinn undir
eins yfir Netið. Þeir þurfa sem sé ekki
að bíða eftir því að fá diskinn í hendur,
heldur geta þeir snúið sér beint til vef-
seturs MP3.com og slegið inn sérstakt
aðgangsorð sem þeir fá hjá viðkomandi
söluaðila, en þá geta þeir um leið hlust-
að á diskinn af setri MP3.com.