Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 38
38 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Börn
Arásarhneigð ungra
drengja tengd hormóni.
Ný lyf
Sagt frá Relenza og flens-
unni sem geisar.
Reykingar
Hver sígaretta sögð stytta
lífið um 11 mínútur.
Tilraunir
Reynt að koma lyfjum
til heilans um plóginn.
Relenza við
inflúensu
NÝLEGA kom á mark-
að hér á landi lyf gegn
inflúensu. Lyfið heitið
Relenza og er frá lyfja-
fyrirtækinu Glaxo-
Wellcome. Lyfið er ætl-
að til vamar gegn in-
flúensu hjá fullorðnum
og bömum eldri en 12
ára. Relenza virkar
bæði gegn inflúensu-
veirum af A- og B-stofni
og er lyfinu andað að
sér með sérstöku tæki.
Þannig dreifist lyfið til
lungnanna og síðan út í
blóðið. Lyfið inniheldur
efnið zanamivír sem
hamlar verkun ákveðins
ensíms sem er nauðsyn-
legt fyrir vöxt og viðgang inflúensu-
veirunnar.
Bestur árangur næst ef lyfið er
gefið sem fyrst eftir greiningu sjúk-
dómsins, helst innan tveggja sólar-
hringa frá því að veikindi byrja.
Einnig má nota lyfið sem fyrirbyggj-
andi meðferð ef smithætta er fyrir
hendi. Sjúklingar sem
fengið hafa síðbúna
bólusetningu gegn in-
flúensu geta einnig
notað Relenza þar til
bóluefnið sjálft fer að
virka. Þrátt fyrir til-
komu þessa lyfs er
bólusetning áfram
besta vömin gegn in-
flúensunni. A ári
hverju lætur tiltölu-
lega hátt hlutfall fs-
lendinga bólusetja sig
gegn inflúensu og því
hefur útbreiðsla veik-
innar verið minni hér á
landi en í flestum öðr-
um löndum.
Lyfið er lyfseðils-
skylt og nauðsynlegt er að læknir
eða lyfjaíræðingur leiðbeini viðkom-
andi vel um hvemig nota á lyfið.
Innan skamms munu ítarlegar
upplýsingar birtast á vefsíðu Net-
Doktor.is um lyfið Relenza.
Vigfús Guðmundsson, lyfjafræð-
ingur NetDoktor.is
Nýja flensulyfið er
tekið inn í úðaformi.
Einkenni flensunnar
FLENSAN sem nú heijar á landsmenn er bráðsmitandi.
Frá því að smitun hefur átt sér stað þar til einkenni
koma í ljós 1/ða yfirleitt 1-3 dagar.
Infiúensa er fyrst og fremst öndunarfærasjúkdómur
og henni fylgir oft mikill hiti.
Önnur einkenni eru beinverkir, augnverkir, hósti og
hálssærindi hæsi, nefrennsli og slappleiki.
Hiti varir oftast í 3-5 daga en hósti og almennur
slappleiki getur þjakað menn í ailt að tvær vikur.
Inflúensa getur haft alvarlegar afieiðingar þar sem
henni geta fylgt lungnakvef og lungnabólga. Þá getur
flensan lagst þungt á þá sem haldnir eru langvarandi
sjúkdómum.
Lengi býr að fyrstu gerð.
Arásarhneigð
tengd streituhormóni
Medical PressCorps News Servicc.
TENGSL era á milli snemmbærr-
ar og sterkrar árásarhneigðar í
drengjum á aldrinum sjö til tólf ára
og lítils magns af streituhormóninu
kortisól í munnvatni, samkvæmt
niðurstöðum nýrrar rannsóknar
sem geðlæknar við Háskólann í
Chicago hafa gert.
Rannsóknin stóð í fjögur ár og
var fylgst með drengjum sem
höfðu átt við hegðunarvanda að
etja. í ljós kom, að þeir drengir
sem höfðu stöðugt minna af kortis-
óli byrjuðu fyrr andfélagslega
hegðun. Þeir sýndu ennfremur
þrisvar sinnum fleiri einkenni ár-
ásarhneigðar en hinir, sem höfðu
meira magn eða misjafnlega mikið
magn kortisóls í munnvatni og
þrefalt líklegra var að bekkjarfé-
lagar þeirra bentu á þá sem ill-
skeytta eða slagsmálagjarna.
Niðurstöðurnar benda til sterks
líffræðilegs þáttar í andfélagslegri
hegðun, og að hana sé ekki ein-
vörðungu hægt að rekja til upp-
eldis og umhverfisþátta, að sögn
Keiths McBurnett, sem stjórnaði
rannsókninni. „Börn sem sífellt
eiga við hegðunarvanda að etja
kunna að hafa gen sem gera þau
líkleg til að framleiða tiltekin hor-
món á annan hátt, eða að hormóna-
framleiðsla þeirra hefur breyst
skömmu fyrir eða eftir fæðingu."
Elizabeth Kandel Englander, að-
stoðarprófessor í sálfræði við
Bridgewater-háskóla í Bandaríkj-
unum, sagði að frekari rannsókna
væri þörf áður en ályktanir væru
dregnar um samband kortisól-
magns og árásargirni drengja.
Hvað er æðaslit?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Fjölmargar konur á
miðjum aldri eiga við háræðaslit á
fótum að glíma. Hvernig lýsir
þetta sér? Hvað veldur þessu? Er
til einhver lausn og þá hver?
Svar: Háræðaslit eða æðaslit er
rangnefni vegna þess að ekki er
um slitnar æðar að ræða heldur
einungis víkkaðar. Þessi orð era
samt almennt notuð og erfitt að
breyta því. Til eru einnig orðin
háræðastjarna, háræðaflétta og
köngulflétta til að lýsa þessum
fyrirbæram.
Um er að ræða útvíkkaðar æðar
í húðinni, venjulega háræðar sem
era minnstu æðarnar. Við eðlileg-
ar aðstæður eru þessar æðar svo
smáar að þær sjást alls ekki en ef
þær víkka út verða þær sýnilegar.
Æðaslit er algengt hjá fólki sem
komið er um eða yfir miðjan aldur
og er oft mest áberandi á fótum
og í andliti. Þetta fyrirbæri er al-
gerlega meinlaust og er venjulega
án óþæginda en það getur verið til
lýta.
A fótum má ekki rugla þessu
saman við æðahnúta sem eru stór-
ir og bláir (víkkaðar bláæðar) en
æðaslit er fíngert og oft blóðrautt
eða bláleitt á lit.
Ekki er vitað um orsakir æða-
slits annað en að það fylgir aldr-
inum og það getur einnig fylgt
vissum sjúkdómum. Ekki er
ástæða til að meðhöndla æðaslit
nema þegar af því er verulegt lýti.
Stundum er reynt að sprauta í
æðarnar efnum sem loka þeim en
það er vandasamt og ber misjafn-
an árangur.
Sumir húðsjúkdómalæknar
hafa yfir að ráða tæki sem getur
eytt æðasliti. Þetta tæki sendir
örstutt leiftur af sterku ljósi inn í
Meinlaust
húðina sem skemmir æðarnar
þannig að þær minnka eða lokast,
en það er það sem sóst er eftir og
alveg meinlaust. Þetta veldur litl-
um sem engum sársauka og auka-
verkanir era oftast mildar. Stund-
um kemur smávegis roði eða
bólga og jafnvel blöðrar en það
lagast á fáeinum dögum. Stundum
nægir ein slík meðferð en það get-
ur þurft að meðhöndla svæðið
nokkram sinnum til að ná besta
mögulega árangri.
Með þessari nýju tækni hafa
möguleikarnir á að bæta útlit
fólks með æðaslit gjörbreyst. En
þar með er sagan ekki öll sögð því
að þessa ljóstækni má nota við
meðferð á ýmsum öðram húðkvill-
um svo sem valbrá, elliblettum,
húðflúri, fæðingarblettum, frekn-
um og óæskilegu hári. Valbrá er,
eins og æðaslit, útvíkkaðar æðar í
húðinni og með ljóstækni hafa
möguleikarnir á meðferð gjör-
breyst. Elliblettir, fæðingarblettir
og freknur eru stundum þannig
að ástæða er til að eyða þeim og
má í flestum tilfellum gera það
með ljóstækni.
Suma þessara bletta verður þó
að fjarlægja með því að skera þá
burt, m.a. þá sem era illkynja.
Húðlæknar og lýtalæknar hafa
mikið að gera við að fjarlægja
húðflúr sem fólk hefur látið setja
á sig án þess að hugsa dæmið til
enda. Sumt húðflúr er best að
fjarlægja með skurðaðgerð en
stundum er einfalt pg áhrifaríkt
að nota ljóstækni. Óæskileg hár í
andliti kvenna era algengt vanda-
mál sem ýmiss konar ráðum hefur
verið beitt við. Með þessari ljós-
tækni má stilla ljósið þannig að
það skemmi hársekkina og við það
detta hárin af og koma ekki aftur,
a.m.k. ekki í langan tíma.
Þessi ljóstæki eru sem sagt hin
gagnlegustu tól og má nota þau
við meðferð ýmiss konar kvilla.
• Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt lækninn um það sem þeim
liggur á hjarta. Tekið er á móti
spurningum á virkum dögum milli
klukkan lOog 171' si'raa 5691100 og
bréfum eða símbréfum merkt:
Vikulok. Fax 5691222.
Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir stnar með tölvupósti á net-
fang Magnúsar Jóbannssonar: el-
mag(S>hotmail.com