Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 51
+ Einvarður Rúnar
Albertsson fædd-
ist á Akranesi 30.
október 1947. Hann
lést af slysförum 15.
janúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Útskála-
kirkju 21. janúar.
Langt um aldur
fram er nú vinur okkar
hann Einvarður fallinn
frá. Við félagamir, sem
áttum með honum
trilluhomið Jón for-
seta, sitjum eftir hljóð-
ir og sorgmæddir þegar við kveðjum
traustan félaga og góðan dreng.
Fyrir drengi á miðjum aldri tók
það ekki langan tíma að ákveða kaup
á lítilli trillu þegar það mál var fært í
tal. Það blundaði í okkur öllum að
geta farið á sjó þegar veður væri
gott og veitt í soðið. Eins og öll al-
vöra útgerðarfélög áttum við í basli
með bátinn og sátum uppi með úr-
brædda vél. Varði, sem var vélstjóri
útgerðarinnar, var ekki lengi að
bjarga þeim málum og útvegaði not-
aða vél þannig að aftur komumst við
félagarnir á sjó. Og í vertíðarlok
þegar birtu tók að halla og haustveð-
ur komu í veg fyrir að áfram væri ró-
ið héldum við félagamir í Sandgerði
og heimsóttum Varða, sem tók á
móti okkur af höfðingsskap. í það
sldptið sýndi úrræðagóði vélstjórinn
ótvíræða hæfileika meistarakokks-
ins og úr varð kvöld sem undirstrik-
aði að þótt trilluhomið væri gott
tómstundagaman væri vinátta okkar
og félagsskapur dýrmætasti aflinn
sem okkur hafði tekist að innbyrða.
Nú hafa örlögin gripið harkalega í
taumana en eftir standa góðar minn-
ingar sem áttu á kom-
andi áram að verða svo
miklu fleiri. Með djúp-
um trega kveðjum við
þig, vinur, og þökkum
samfylgd þína.
Fjölskyldu Einvarðs
Albertssonar vottum
við samúð okkar og
hluttekningu í sorg
hennar.
Gísli Gislason,
Gunnar Sigurðs-
son, Jón Sigurðs-
son, Karl Þórðar-
son og Kjartan
Bjömsson.
Okkur mannanna börnum er ekki
ætlað að vita hvað morgundagurinn
ber í skauti sér. Þrátt fyrir ná-
kvæma skipulagningu og miklar fyr-
irætlanir okkar, eram við sífellt
minnt á að það er Guð sem telur
daga vora.
Aform og metnaðarfullar áætlanir
mega sín lítils þegar sá sem öllu
ræður hefur tekið sínar ákvarðanir.
A þetta vorum við samstarfsmenn
og vinir Varða minntir laugardaginn
15. janúar þegar hann var burt kall-
aður fyrirvaralaust í blóma lífsins,
lífsglaður með óþrjótandi áhuga á
starfi sínu. Nýjar hugmyndir um það
hvernig hægt væri að leysa verkefni
morgundagsins einkenndu líf hans.
Þar sem Varði var, var líf og fjör því
ólatari maður var vandfundinn.
Já, það var hugur í Einvarði eins
og hann átti kyn til. Hann líktist föð-
ur sínum Aíberti á marga lund.
Þrek, kraftur, lífsorka og gleði vora
eiginleikar sem vora svo ríkir í fari
þeirra feðga. I návist þeirra var gott
að vera og með þeim urðu torieyst
verkefni auðveld viðureignar. Fátt
lýsir Einvarði betur en hvernig hann
nýtti fermingardaginn. Þann dag
vaknaði hann fyrir allar aldir og vitj-
aði grásleppuneta á litlum árabát
sem hann þá þegar hafði gert út um
nokkurn tíma við annan strák á svip-
uðu reki. Heima biðu foreldrarnir
milli vonar og ótta hvort ungi út-
gerðarmaðurinn skilaði sér áður en
kirkjuklukkunum yrði hringt. Þann-
ig var lífið á Skipaskaga. Hjá Ein-
varði var aldrei dauður tími, aldrei
verið að bíða, alltaf verið að fram-
kvæma. Hann var ekki hálfvolgur í
neinu, alltaf brennandi í andanum í
afstöðu sinni til þeirra verkefna sem
fyrir lágu.
Sjávarútvegur var hans vettvang-
ur, hann aflaði sér menntunar á því
sviði sem nýttist honum vel. Árið
1990 hóf hann störf hjá H.F. Miðnesi
í Sandgerði. Ólafur B. Ólafsson, for-
stjóri þess fyrirtækis, og bræður
hans Gunnar og Jón Ægir mátu
hann mikils. Ólafur lést nú rétt fyrir
jól. Það er erfitt að sjá á eftir þeim
báðum, Ólafi og Einvarði fyrir sam-
starfsmenn og vini.
Síðustu ár hefur Varði verið
rekstrarstjóri Haraldar Böðvar-
ssonar hf. í Sandgerði. Hann sýndi
vinnuveitendum sínum mikinn trún-
að og aflaði sér trausts og virðingar
hjá þeim jafnt sem öðrum samferða-
mönnum. Það fór ekki framhjá nein-
um sem umgengust hann, að ávallt
var fjölskyldan hans honum efst í
huga, hún var honum dýrmætari en
nokkuð annað. Þegar hann talaði um
börnin sín og barnabömin, kom sér-
stakt blik í augu hans.
Við samstarfsmenn hans sendum
okkar dýpstu samúðarkveðjur til
aldraðrar móður sem sér á eftir elsk-
uðum syni, til systkina hans, til Ingi-
bjargar, barna og barnabarna.
Með virðingu og þökk fyrir ómet-
anleg kynni.
Fh. samstarfsmanna í Sandgerði
og á Akranesi,
Haraldur Sturlaugsson.
EINVARÐUR RUNAR
ALBERTSSON
HERMUNDUR
ÞORSTEINSSON
+ Hermundur Þor-
steinsson frá Eg-
ilsstaðakoti í Vill-
ingaholtshreppi var
fæddur í Berjanesi í
Landeyjum í Rang-
árvailasýslu 8. októ-
ber 1913. Hann lést á
Sjúkrahúsi Suður-
nesja 31. desember
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Selfosskirkju 15. jan-
úar. Jarðsett var f
Villingaholtskirkju-
garði.
Mig langar til að minnast vinar
mins og húsbónda, Hermundar Þor-
steinssonar frá EgOsstaðakoti í Vill-
ingaholtshreppi. Eg átti því láni að
fagna að vera fjögur sumur í sveit
hjá Munda, eins og hann var ávallt
kallaður, og hans elskulegu konu,
Laufeyju. Þetta vora afar góð sumur
sem ég átti hjá þeim hjónum sem
skilja eftir sig ljúfar minningar,
ánægjuleg kynni og mikilvæga
reynslu sem allt of fá börn eiga nú
kost á. Gott og náið samband varð til
og hefur haldist alla tíð síðan. Mundi
var hógvær maður og bar ekki til-
finningar sínar á torg. Hann hafði
ákveðnar skoðanir á hlutunum en
var sanngjarn og virti viðhorf ann-
arra. Hann var heiðarlegur, trúr og
vinur vina sinna. Hann elskaði fjöl-
skyldu sína mikið og tók ekkert fram
yfir hana. Og þessarar elsku fengum
við Hlöðver líka að njóta og voram
við oftast höfð með
þegar eitthvað stóð til í
fjölskyldunni. Góður
var hann heim að
sælqa, oft var þá glatt á
hjalla, dregið í spil á
kvöldin og hlegið mikið.
Söngmaður var hann
ágætur og geislaði af
gleði og kæti þegar svo
bar við.
Efégmættiyrkja,
yrkja vildi ég jörð.
Sveit er sáðmanns tórkja,
sáningbænargjörð.
Vorsins söngvaseiður
sálmalögin hans.
Blómgarakurbreiður
blessun skaparans.
(BjamiÁsgeirsson.)
Mikinn áhuga hafði hann á landinu
sínu og hafði unun af því að skoða
það. Margar góðar minningar eigum
við úr ferðum með þeim hjónum.
Hann var svo duglegur að ferðast,
alltaf svo kátur og aldrei var kvart-
að. Ef hann var spurður: „Ertu ekki
þreyttur Mundi minn?“ var svarið:
„Ég þreyttur, ekki aldeilis.“ Og það
var haldið áfram að ferðast, farinn
hringvegurinn eitt sumarið og á
hverju sumri eitthvað síðastliðin 20
ár. Betri ferðafélaga var ekki hægt
að hafa og ekki skemmdi það fyrir að
fá fallega vísu að loknum góðum degi
- þær vísur lifa í minningunni. Með
Munda er genginn maður af þeirri
kynslóð sem man tímana tvenna í bú-
skaparháttum og þjóðlífi. Mundi var
gæfumaður. Hann hélt andlegri
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Pað eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
reisn til hinstu stundar. Gott er að
eiga í huganum mynd af honum á
heimili sínu við síðustu samfundi í
Egilsstaðakoti í haust.
Hver minning er dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleym-
isteigi,
og gæfa var það öllum er fengu að kynnast
þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Ég þakka Munda samfylgdina þau
50 ár sem við höfum þekkst og þá
rausn og velvild sem hann ávallt
sýndi okkur Hlöðveri og fjölskyldu
okkar.
Elsku Laufey, Helga, Sigurbjörg,
Guðsteinn og Einar. Eg þakka ykkur
fyrir hvað þið vorað alla tíð yndisleg
við Munda og hvað þið hugsuðuð vel
um hann.
Guð blessi ykkur öll.
Erla og Hlöðver.
Persónuleg,
alhlíða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Svem'r Olsen,
útfararsfióri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Útfararstofa Islands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
t
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNLAUGUR JÓNSSON,
lést fimmtudaginn 20. janúar.
Anna Soffía Óskarsdóttir,
Jónína Hulda Gunnlaugsdóttir, Steinn Þórarinsson,
Jón Elías Gunnlaugsson, Þórhildur Rúnarsdóttir,
Guðrún Erla Gunnlaugsdóttir, Heiðar Reynisson,
Ósk Gunnlaugsdóttir,
Friðþjófur Helgi Gunnlaugsson,
Hrafnhildur Björg Gunnlaugsdóttir,
Berglind Sigurðardóttir
og barnabörn.
:T
t
Eiginkona mín, dóttir, móðir og amma,
HELGA JÓHANNA HELGADÓTTIR,
(Hanna, Helga Axels),
Jórufelli 6,
Reykjavík,
lést á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
sunnudaginn 16. janúar sl.
Útför verður frá Fella- og Hólakirkju þriðju-
daginn 25. janúar nk. kl. 15.00.
Örlygur Pétursson,
Sigurjóna Jóhannsdóttir,
Axel Pétur Örlygsson, Þórdls Wiencke,
Guðlaugur Bjarni Örlygsson,
Lára Sigríður Örlygsdóttir, Ágúst Helgason
og barnabörn.
Móðir okkar, t JÓNÍNA SIGMUNDSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
áður Eyrarvegi 35,
Akureyri,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, miðvikudaginn 19. janúar.
Vignir Einarsson, Kristín Sigurlaug Einarsdóttir, Þormóður Jón Einarsson,
Sigmundur Rafn Einarsson, Jóhann Árelíuz Einarsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, systur
og tengdadóttur,
HELGU FOSSBERG HELGADÓTTUR,
írabakka 6.
Sérstakar þakkir til séra Sigurðar Arnarsonar
og starfsfólks krabbameinsdeildar Landsþít-
alans og líknardeildar.
Guð blessi ykkur öll.
Þórður Njálsson,
Ágeirs H. Þórðarson,
Guðrún J. Þórðardóttir,
Þóra B. Þórðardóttir,
Ástríður E. Geirsdóttir,
Sigurður Geirsson,
Guðmundur N. Þórðarson, Guðrún E. Jónsdóttir,
Saga Helgadóttir,
Þuríður Ketilsdóttir,
Anna Ketilsdóttir,
Njáll Guðmundsson,
Ketill Jómundsson,
Árni Bragason,
Ásgeir Ásgeirsson,
Sigríður Júlíusdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför mágkonu minnar,
fósturmóður og frænku,
DAGBJARTAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Hrafnistu
Hafnarfirði.
Jóhanna Halldórsdóttir,
Stefanía Finnbogadóttir
og aðrir aðstandendur.
k
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/