Morgunblaðið - 22.01.2000, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000_________
KIRKJUSTARF
Safnadarstarf
Kvöldvaka í
* Fríkirkjunni
í Hafnarfírði
KVÖLDVAKA verður í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði sunnudagskvöldið
23. janúar og hefst hún kl. 20. Tón-
listarfólkið Öm Arnarson, Kirstín
Ema Blöndal, Guðmundur Pálsson
og Inga Dóra Hrólfsdóttir leiða söng
og tónlist við undirleik þverflautu,
bassa og gítars og kynna nýja trúar-
lega söngva.
í Yfirskrift kvöldvökunnar að þessu
sinni er vináttan. Það er Rósa Krist-
jánsdóttir, djákni á Ríkisspítölum,
sem flytur hugleiðingu um það efni.
Og eins og á öllum almennilegum
kvöldvökum verður lesin saga, að
þessu sinni um vináttuna. Þá mun
Sigríður Valdimarsdóttir, djákni
Fríkirkjunnar, leiða bænastund í lok
kvöldvökunnar. Slíkar kvöldvökur
hafa verið haldnar einu sinni í mán-
uði í kirkjunni í vetur og verður svo
áfram fram á vormánuði í tilefni af
kristnitökuafmælinu. Allir em hjart-
anlega velkomnir.
Einar Eyjólfsson.
v Nýjarkirkju-
hurðir og kóra-
mót á bænadegi
NÝJAR kirkjuhurðir verða vígðar
til notkunar í Landakirkju við guðs-
þjónustu kl. 11, sunnudaginn 23. jan-
úar. Hurðimar era gjöf frá Kvenfé-
lagi Landakirkju og koma í stað
þeirra gömlu sem löskuðust iyrir
nokkra. Sigurður Sigurðarson hefur
skorið út myndir í hurðirnar og gef-
^ur þær til minningar um afa sinn og
ömmu, sr. Oddgeir og Önnu Guð-
mundssen. Hann hefur þegar skorið
út flestar myndirnar og mun á næst--
unni skera út tvær tii viðbótar. Þær
myndir sem enn era óskomar munu
síðar verða settar í hurðirnar, þann-
ig að þetta er mikið verk og fallegt.
Við guðsþjónustuna verður gjöfun-
um veitt viðtaka og era allir unnend-
ur sögu og listar hvattir til að mæta.
Sönglistin verður einnig í háveg-
um höfð í þessari guðsþjónustu. Kór-
fólk úr kirkjukóram víða að úr Kjal-
amessprófastsdæmi mun syngja á
loftinu og verður það um hundrað
manna kór. Söngfólkið dvelur hér í
Eyjum á kóramóti um helgina og
heldur opna tónleika í Safnaðar-
heimilinu kl. 17:30, laugardaginn 22.
janúar.
Lofsöngur og þakkargjörð verða
því áberandi þennan dag, þegar liðin
verða 27 ár frá því jarðeldamir brat-
ust út á Heimaey. Eftir guðsþjónust-
una bjóða kvenfélagskonurnar öllum
kirkjugestum að snæða hurðatertu
og aðalsafnaðarfundur hefst svo kl.
13. Bamaguðsþjónusta hefst á sama
tíma og guðsþjónustan, kl. 11 árdeg-
is á þessum bænadegi á vetri.
Sr. Kristján Bjömsson.
/
Utvarpsguðs-
þjónusta í
Grindavíkur-
kirkju
í TILEFNI kristnitökuhátíðar
hefur Kjalarnesprófastsdæmi látið
prenta á skildi sjóferðabæn eftir sr.
Odd V. Gíslason. Skildirnir verða
gefnir í öll skip í prófastsdæminu.
Fyrsti skjöldurinn verður afhentur
við guðsþjónustuna og mun áhöfn
björgunarbátsins Odds V. Gíslason-
ar taka við honum. Félagar úr björg-
unarsveitinni Þorbirni og sjómenn
lesa ritningartexta og bænir. Próf-
astur dr. Gunnar Kristjánsson þjón-
ar fyrir altari ásamt sóknarpresti
Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur. Þátt-
takendur í tónlistarflutningi era:
Kór Grindavíkurkirkju syngur, org-
anisti og kórstjóri dr. Guðmundur
Emilss. Stúlknakór kirkjunnar
syngur undir stjórn Vilborgar Sigur-
jónsdóttur. Einleikur á lágfiðlu,
Kjartan Már Kjartansson leikur
Maríukvæði eftir Atla Heimi Sveins-
son. Einsöngvari Signý Sæmunds-
dóttir sem syngur ásamt Árnesinga-
kómum Ave María, texti Valdimar
Lárasson, lag Sigurðar Bragasonar.
Höfundur stjómar. Bjöllukór Tón-
menntaskóla Reykjavíkur og Tón-
stofu Valgerðar, stjómandi Valgerð-
ur Jónsdóttir. Hvetjum söfnuðinn tíl
að fjölmenna. Sóknamefndin.
Kvennakirkjan
í Seltjarnar-
neskirkju
FYRSTA guðsþjónusta Kvenna-
kirkjunnar á nýju ári verður í Sel-
tjarnameskirkju sunnudag kl. 20.30.
„Send mér eld í anda ...“ era hvatn-
ingarorð og yfirskrift messunnar og
um leið upphafsorð sálms sem sung-
inn verður. Þessi orð undirstrika líka
einkunnarorð ársins í Kvennakirkj-
unni sem era: Gleði og máttur. Þóra
Bjömsdóttir úr stýrihópi Kvenna-
kirkjunnar og séra Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir fjalla um mikilvægi
þess að konur finni styrk og gleði í
daglegu lífi sínu með hjálp trúarinn-
ar.
Þórann Guðmundsdóttir syngur
einsöng. Kór Kvennakirkjunnar leið-
ir almennan söng við undirleik Aðal-
heiðar Þorsteinsdóttur.
Mánudaginn 24. janúar kl. 17.30
verður síðdegisboð í stofu Kvenna-
kirkjunnar, Þingholtsstræti 17.
Rætt verður um hvað brennur heit-
ast á konum um þessar mundir og
um næstu verkefni innan Kvenna-
kirkjunnar. Konur sem hafa áhuga á
að taka þátt í starfinu era sérstak-
lega boðnar velkomnar.
Alfanám-
skeið á
Akranesi
AKRANESKIRKJA og KFUM
og K standa nú í þriðja sinn að hinu
vinsæla Alfa-námskeiði. Þar er fjall-
að um grundvallaratriði kristinnar
trúar á mjög áhugaverðan og auð-
skilinn hátt. Ahersla er lögð á að efla
kynni og skapa gott samfélag á með-
al þátttakenda.
Námskeiðið verður haldið á
þriðjudagskvöldum frá 25. janúar til
28. mars nk. Samverarnar hefjast
með léttum kvöldverði kl. 19.15 - en
þeim lýkur kl. 22. Námskeiðsgjald er
aðeins kr. 3.500 (matur og námsgögn
innifalin). Innritun í símanúmeram
431 1745 og 431 1690.
Missið ekki af góðu og uppbyggi-
legu námskeiði!
Sóknarprestur.
Þjóðlagamessa
í Hafnar-
fjarðarkirkju
ÞJÓÐLAGAMESSA verður hald-
in sunnudaginn 23. janúar í Hafnar-
fjarðarkirkju. Hefst messan kl.17.
Fyrir nokkram áram samdi sænska
tónskáldið og presturinn Per Harl-
ing messu er fékk nafnið „mássa i
viston“ á sænsku eða „þjóðlaga-
messa“ á íslensku. Þjóðlagamessan
er byggð á samnorrænni þjóðlaga-
hefð. Vísan er eitt aðaleinkenni nor-
rænnar alþýðusönghefðar. Um öll
Norðurlönd era sungnar vísur oft við
undirleik harmonikku eða fiðlu. Vís-
urnar segja sögur af venjulegu fólki
og hetjum og tónlistin á sér fornar
rætur í dölum og skógum Svíþjóðar,
Noregs og Finnlands. I Þjóðlaga-
messunni er vísan og vísnatónlistin
gerð að undirstöðu helgihaldsins.
Allir hinir hefðbundnu messuliðir
era á sínum stað, en þeir hafa verið
endursamdir að hætti vísunnar. Auk
þessa tengjast nýir sálmar mess-
unni, sálmar sem byggja á vísna-
hefðinni og hafa ekki verið fluttir áð-
ur við helgihald hér á landi.
Þjóðlagamessan hefur verið flutt
reglulega í Hafnarfjarðarkirkju frá
árinu 1996. Að þessu sinni mun
vísnasönghópur undir stjórn Arnars
Arnarssonar flytja messuna. Prest-
ur er sr. Þórhallur Heimisson en
hann þýddi messuna og staðfærði.
Hefðbundin guðsþjónusta fer fram í
kirkjunni kl. 11. Prestur þá er sr.
Þórhildur Ólafs.
Samferða
inní nýja öld
SAMFERÐA inn í nýja öld er yf-
irskrift samkomu KFUM og KFUK
í Reykjavík sem haldin verður í aðal-
stöðvum félaganna við Holtaveg á
sunnudagkl. 17.
Ræðumaður verður sr. Sigurður
Pálsson, fyrrverandi formaður
KFUM í Reykjavík. Hildur Hall-
björnsdóttir, varaformaður KFUK í
Reykjavík, mun segja nokkur orð og
flytja upphafsbæn. Heiðrún Kjart-
ansdóttir, tónlistarfulltrúi félag-
anna, og Abbý Snook munu flytja
tvíleik á fiðlu og píanó. Auk þess
gefst samkomugestum kostur á því
að taka undir almennan söng. Tekið
verður á móti gjöfum til æskulýðs-
starfs KFUM og KFUK.
Hluta samkomutímans verður
boðið upp á sérstakar samverar fyrir
þau börn sem vilja. Skipt verður í
hópa eftir aldri. Að lokinni samkom-
unni verður hægt að fá ljúffenga
máltíð keypta á sérlega fjölskyldu-
vænu verði.
Allir era velkomnir í aðalstöðvar
KFUM og KFUK á sunnudaginn kl.
17 og vonast er eftir sem flestum.
Sigurbjörn Þorkelsson,
framkvæmdastjóri.
Kirkja
frjálshyggju-
manna 5 ára
HINN 7. ágúst 1993 stofnaði Egg-
ert Laxdal Kristniboðsfélag Suður-
lands og Hveragerðis á fundi í Hótel
Ljósbrá, Hveragerði. Tólf menn
gerðust stofnfélagar.
Hlutverk félagsins var að biðja
fyrir Hveragerði og nágrenni og
boða orð guðs á Suðurlandi og af því
tilefni var farið á nokkur heimili í Ar-
nessýslu, meðal annars Sólheima,
Kumbaravog, Gunnarsholt og fleiri
staði.
Fyrst vora fundir félagsins haldn-
ir í Hótel Ljósbrá, en síðar bauð séra
Tómas Guðmundsson, sóknarprest-
ur í Hveragerði og síðar prófastur í
Arnessýslu, félaginu að hafa aðsetur
í Hveragerðiskirkju og var því boði
þakksamlega tekið. Samkomur vora
haldnar einu sinni í viku, lesið úr
biblíunni, lesið úr guðsorðabókum,
sungið og flutt hugvekja. Síðar, þeg-
ar félaginu var vaxinn fiskur um
hrygg og félagar farnir að nálgast
40, stofnaði Eggert nýtt kristilegt
samfélag, sem hann nefndi Kirkju
frjálshyggjumanna. Það gerðist 7.
janúar 1995.
Starfið fór fram með sama hætti
og áður og fleiri meðlimir bættust í
hópinn og era nú á fimmta tug.
Kirkja frjálshyggjumanna verður
því 5 ára nú í janúar 2000.
Öllum sem hug hafa á er heimil
þátttaka í þessu starfi og samkomur
safnaðarins era hvern miðvikudag
kl. 16 eftir hádegi í Hveragerðis-
kirkju.
Eggert Laxdal.
Samkoma
í Fíladelfíu-
kirkjunni
SAMKIRKJULEGU bænavik-
unni, sem staðið hefur yfir þessa
viku, lýkur í kvöld með samkomu í
Fíladelfíukirkjunni, og hefst hún kl.
20.30.
Prédikun kvöldsins verður flutt af
sr. Erni Bárði Jónssyni, presti í
Neskirkju. Tónlistarfólk Fíladelfíu
mun sjá um góðan tónlistarflutning
að vanda. Allir era hjartanlega vel-
komnir.
Námskeið í
Daníelsbók
Á MORGUN, sunnudag, kl. 17 hefst
námskeið í Daníelsbók. Námskeiðið
verður í Boðunarkirkjunni í Hlíðar-
smára 9. Öll gögn eru þátttakendum að
kostnaðarlausu. Steinþór Þórðarson
sér um fræðsluna, en Daníelsbók er
spádómsbók gamla testamentisins. All-
ir eru hjartanlega velkomnir.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
kl. 13. Hinn árlegi þorrafagnaður
Neskirkju. Fram verður borinn
hefðbundinn þorramatur á hlað-
borði, síldarréttir og heitt saltkjöt.
Margt verður til gamans gert. Nokk-
ur pör frá samtökunum „Komið og
dansið" sýna dansa. Reynir Jónas-
son marserar með nikkuna og leikur
undir fjöldasöng. Verði stillt í hóf.
Allir velkomnir. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
Fríkirkjan Vegurinn. Samkoma
kl. 20. Lofgjörð, prédikun og fyrir-
bæn. Allir hjartanlega velkomnir.
Kefas Dalvegi 24.
Laugardagur: Samkoma kl 14
Sigrún Einarsdóttir. Þriðjudagur:
Bænastund kl. 20:30. Miðvikudag-
ur:
Samverastund unga fólksins kl.
20:30. Föstudagur: Bænastund unga
fólksins kl. 19:30. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 13 laugar-
dagaskóli fyrir krakka.
Hvammstangakirkja. Sunnu-
dagaskóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Stjórn-
andi Elín Jóhannsdóttir.
Stórveldi framtíðarinnar?
SKAK
K ín a
BU XIANGZHI
Yngsti stórmeistari heims.
Á RÚMUM 20 áram hafa orðið mikl-
ar framfarir hjá Kínverjum á
skáksviðinu. Ástæður þess eru
margar, en hins vegar liggur í aug-
um uppi, að þegar fjölmennasta þjóð
heims fer að einbeita sér að ein-
hverju, þá hlýtur árangur að nást. Þó
að deila megi um hversu mannúðlega
þeir nálgast markmið sín verður þvi
ekki á móti mælt að með sama
áframhaldi verður þéss ekki langt að
’ /bíða að fremstu skákmenn heims
komi frá alþýðuveldinu í austri. Nú
þegar hefur þeim tekist að komast á
toppinn í kvennaskákinni þar sem
skáklandslið þeirra er núverandi Ól-
ympíumeistari og heimsmeistari
kvenna er þaðan. Karlpeningurinn
hefur ekki náð jafn stórbrotnum ár-
angri og hitt kynið, en eigi að síður
^ítaðið fyrir sínu, sérstaklega í liða-
keppni. Nú lítur út fyrir að úr þessu
verði bætt þar sem yngsti stórmeist-
ari heims ku vera kínverskur, rétt 14
ára gamall. Þetta nýstirni ber nafnið
Bu Xiangzhi, sem síðan frá heims-
meistaratign sinni í flokki 14 ára og
yngri 1998 hefur tekið þátt í mörgum
sterkum alþjóðlegum mótum, bæði í
Evrópu og heimalandi sínu. Þar hef-
ur honum tekist að verða sér úti um
3 stórmeistaraáfanga og hefur nú
2.565 alþjóðleg stig, sem gerir hann
að áttunda stigahæsta skákmanni
heims 20 ára og yngri. Það er ekki úr
vegi að skoða handbragð unga
mannsins er hann ryður úr vegi
löndu sinni og fjórðu stigahæstu
konu heims.
Hvítt: Bu Xiangzhi
Svart: Zhu Chen
Shenyang 1999
Enskur leikur [A29]
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. g3 d5 4. cd
Rxd5 5. Bg2 Rb6 6. Rf3 Rc6 7. d3
Be7 8. 0-0 0-0 9. Be3 He8 10. Hcl
Bf8 ll.Ra4
Venjulega er líklegast til árangurs
gegn ungum skákmönnum að tefla
rólega og forðast flókin byrjunaraf-
brigði. Hinsvegar er veikasta hlið Bu
byrjanir, en taflmennska hans í mið-
og endatöflum einkennist af mikilli
seiglu og færni. Eftir rólega byrjun
saumar hann hægt og sígandi að
andstæðingi sínum.
11. ...Rd5?! 12. Bc5! Bxc5 13.
Hxc5!? Rf6 14. Rd2 Rd4 15. e3 Re6
16. Hxe5 Dxd3 17. Re4 Dxdl 18.
Hxdl Hb8 19. Rac3 Rd7 20. Hh5
Rb6 21. a4 h6 22. h3 a6 23. Kh2 Rf8
24. a5 Ra8 25. Rc5
Hvítur hefur stöðulegt fram-
kvæði, sem ungi maðurinn bætir
með markvissum hætti.
25. ...Re6 26.R3a4 c6?! 27. Hh4!
Rac7 28. Hb4 Rb5 29. Hb3 Rf8 30.
Hbd3 Be6 31. Rb6 f5?! 32. f4 Rc7 33.
Bf3 Bf7 34. Rcd7 Rxd7 35. Rxd7
Hbc8 36. Rb6 Hb8 37. Kg2 Rd5 38.
Rxd5 Bxd5 39. Bxd5+ cd 40. Kf2 b6
41. b4 ba 42. ba Kf7 43. Hxd5 Kf6
44. g4 g6 45. gf gf 46. Hcl Hb2+ 47.
Kf3 Hb3 48. Hc6+ Kg7 49. He5
Hxe5 50. fe Hb5 51. Kf4 Hxa5 52.
Kxf5 Ha3 53. Hc7+ Kg8 54. Kg6 Kf8
55. Kf6 Kg8 56. e6 Hxe3 57. Hc8+
Svartur gafst upp.
Corus mótið
í Wijk aan Zee
Fimm umferðum er nú lokið á
Coras skákmótinu í Wijk aan Zee.
Úrslit fimmtu umferðar urðu þessi:
Gary Kasparov - Alexander Mor-
ozevich 1-0
Vladimir Kramnik - Smbat Lputi-
an 1-0
Peter Leko - Jan Timman !4-!4
Predrag Nikolic - Jeroen Piket
1-0
Viktor Korchnoi - Nigel Short
V2-V2
Judit Polgar - Anand V2-V2
Loek Van Wely - Michael Adams
0-1
Staðan á mótinu er sem hér segir:
1. Gary Kasparov 4 v.
2. Vladimir Kramnik 4 v.
3. Viswanathan Anand 3 v.
4. Peter Leko 3 v.
5. Jeroen Piket 3 v.
6. Alexander Morozevich 2M> v.
7. Predrag Nikolic 214 v.
8. Nigel D. Short 214 v.
9. Michael Adams 214 v.
10. Viktor Korchnoi 2!4 v.
11. Jan H Timman 2!4 v.
12. Judit Polgar 1!4 v.
13. Loek Van Wely 1 v.
14. Smbat G. Lputian !4 v.
Skák aldarinnar
Skákáhugamenn era hvattir til að
taka þátt í vali á skák aldarinnar. All-
ir geta tekið þátt í valinu. Skákirnar
og leiðbeiningar um valið má finna á
heimasíðu Taflfélagsins Hellis:
simnet.is/hellir. Valið verður til-
kynnt og vinningsskákin skýrð á
skemmtikvöldi skákáhugamanna 11.
febrúar.
Skákmót á næstunni
20.1. SA Öldungamót (45+)
23.1. SA Skákþing Akureyrar
23.1. SÍ og Síminn-Internet Mát-
netið
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson