Morgunblaðið - 22.01.2000, Síða 68
58 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
llinsjón Arnór G.
Ragnarsson
fslandsmót í parasveitakeppni
ÍSLANDSMÓT í parasveita-
'^ceppni verður spilað helgina 29.-30.
janúar. Fyrirkomulagið verður með
sama sniði og undanfarin ár. Spilað-
ar eru 7 umferðir með 16 spila leikj-
um og raðað eftir Monrad-fyrir-
komulagi. Spilamennska hefst kl.
11.00 báða dagana.
Keppnisgjald er kr. 10.000 á sveit.
Skráning í s. 587 9360 eða brid-
ge@bridge.is
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Föstudaginn 14. janúar spiluðu 22
pör í Gjábakkanum og voru spiluð 27
spil. Lokastaðan í N/S:
Eysteinn Einarsson - Þórður Jörundss. 258
Sigurður Pálss. - Elín Jónsdóttir 251
Halla Ólafsd. - Magnús Halldórss. 250
Hæsta skor í A/V:
Anton Sigurðsson - Hannes Ingibergss. 272
Stefán Ólafsson - Sigurjón Sigurjóns. 259
Fróði Pálsson - Þorleifur Þórarinss. 245
Þriðjudaginn 18. janúar var mjög
góð þátttaka en þá spiluðu 28 pör
Michell tvímenning. Lokastaðan í
N/S:
Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Ámason 417
AlbertÞorsteinss.BjörnÁmason 367
Ólafur Ingimundarson - Jón Pálmason 365
Hæsta skor í A/V:
Halla Ólafsd. - Magnús Halldórss. 395
Hörður Davíðsson - Einar Einarsson 347
" Láras Hermannss. - Þorleifur Þórarins. 344
Meðalskor á föstudag var 216 en
312 á þriðjudag.
Bridsfélag HafnarQarðar
Miðvikudaginn 19. janúar voru
spilaðar 4 umferðir í A.-Hansen-
mótinu, sem að þessu sinni er spilað
með Barometer-sniði og Butler-út-
reikningi.
Úrslit þetta kvöld urðu þannig:
Erla Sigurj ónsdóttir - Guðni Ingvarsson „44
Guðm. Magnúss. - Ólafur Þ. Jóhannss.38
Atli Hjartarson - Þórður Þórðarson.21
Sverrir Jónsson - Ólafur Ingimundarson ...7
Jón N. Gíslason - Snjólfur Olafsson.7
Staðan að loknum 8 iimferðum er þannig:
Guðm. Magnúss. - Ólafur Þ. Jóhannss. 73
Erla Sigurjónsdóttir - Guðni Ingvarsson „70
Jón N. Gíslason - Snjólfur Ólafsson.60
Valdimar Sveinss. -Eðvarð Hallgrímss. ...40
Sverrir Jónsson - Ólafur Ingimundarson .27
Hulda Hjálmarsd. - Halldór Þórólfsson ...27
Butlernum lýkur næsta miðviku-
dagskvöld.
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenniskeppni spiluð í Ásgarði,
Glæsibæ.
Mánudaginn 10. janúar, 19 pör.
Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánsson .243
Halldór Kristinsson - Hjálmar Gíslason .241
Ragnar Bjömsson - Haukur Guðm.ss.... 230
Arangur A-V:
Sigurður Pálsson - Elín Jónsdóttir.251
Kristinn Gíslason - Margrét Jakobsd. ... 239
Ólafur Ingvarss. - Þórólfur Meyvantss.. 227
Fimmtudaginn 13. janúar. 21 pör.
Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Hilmar Valdimarss. - Magnús Jósefss... 249
Sigurl. Guðjónss. - Olíver Kristófers.239
Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörandss. 233
ÁrangurA-V:.
Magnús Halldórss. - Baldur Ásgeirss.269
Alda Hansen - Margrét Margeirsd..252
Sæmundur Bjömsson - Jón Stefánsson 237
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
Tvímenningur var spilaður
fimmtudaginn 20.
janúar. Tuttugu pör mættu til
leiks. Efstvoru:
NS:
Sigrún Sigurðardóttir-Guðmundur..192
Kristján Guðmundsson - Sigurður..181
Viðar Jónsson - Sigurþór Halldórsson.... 178
AV:
Einar Markússon - Emst Bachmann.....221
Guðm. Á Guðmundss. - Jón Andrésson „186
Þormóður Stefánss. - Þóhallur Amason .177
Bridsdeildin í Gullsmára 13 spilar
mánudaga og fimmtudaga.
TIL SÖLU SUBARU F0RESTER TURB0
árgerí 1998
Stórglæsilegt eintak. Sjálf-
skiptur, rafdr. toppl., leður-
innrétting, 16" álfelgur, loft-
kæling, vindskeið o.fl., ek.
21 þ. km. Verð 2.790 þús.
Ath. sk. á ód.
Sími 587 7777
v/ / Funahöfða 1 • Fax 587 3433
www.litla.is
Verið velkomin
að hringja
og fá nánari
upplýsingar
í síma 8978599
/AOTTdSðúfv
KOLAPORTIÐ
KOLAPORTIÐ - OPIÐ FÖSTUDAGA KL. 12:00-18:00 OG ALLAR HELGAR KL. 11:00-l 7:00
30-50%
afsláttur
Úrvalaf handofnum
ÚRVAL AF HANDOFNUM BOHARA, HAMADAN OG ULLARMOTTUM FRÁ KÍNA, ÍRAN OG PAKISTAN
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Frábær
þjónusta
BÖRKUR hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri þökkum
til verslunarinnar Mon-
soon. Hann fór þangað rétt
fyrir jólin og keypti kjól
handa konunni sinni í jóla-
gjöf. Hann keypti vitlaust
númer og þurfti því að skila
kjólnum. Honum var boðið
að fá kjólinn endurgreidd-
an, þar sem númerið sem
hann ætlaði að fá í staðinn
var ekki til, eða að fá sér-
pantaðan nýjan kjól að ut-
an. Hann valdi seinni kost-
inn og sagði að stúlkurnar í
versluninni hefðu verið al-
veg frábærar og þjónustan
til fyrirmyndar í alia staði.
Einnig vildi hann koma því
á framfæri, að það að kaupa
vöru og skiia henni aftur og
taka út útsöluvöru, væru
ekki algengir viðskipta-
hættir.
Ráð varðandi
snyrtivörur
ÁSTA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
gefa gott ráð varðandi
snyrtivörur. Fyrir mögum
árum keypti hún alltaf dýr-
ustu snyrtivörumar og
lenti svo í því, að steypast
öll út í ofnæmi. Hún fór til
húðsjúkdómalæknis, sem
sagði henni að hún þyldi
ekki ilmefnin í vöranum. Þá
fór hún að kaupa snyrtivör-
ur, sem búnar era til í apó-
tekum. Þær era ilmefna-
lausar, mjög góðar og ekki
skemmir verðið, því þær
era miklu ódýrari. Einnig
segist hún nota hreint tal-
kúm í stað svitalyktareyðis
og segir að það sé afar gott.
Kjarasamningar
NÚ FARA kjarasamningar
að losna hjá hinum ýmsu
stéttarfélögum og launa-
baráttan að hefjast. Stein-
unn hafði samband við Vel-
vakanda og langaði að vita,
af hverju það væri alltaf
samið í % en ekki í krónum.
Henni finnst vera mikill
munur á launþegum og
konur verði sérstaklega illa
úti.
Góðir pistlar,
en dálítið um villur
SIGFÚS hafði samband við
Velvakanda og vildi þakka
fyrir frábæra pistla um
brids eftir Guðmund Pál
Arnarson í Morgunblaðinu.
Eina sem hann getur ekki
sætt sig við, er það, að oft
vilja slæðast villur inn í
pistlana. Honum finnst það
vera algjör synd, því oft er
ekki hægt að sjá hvaða spili
er verið að spila út.
Morgunblaðið og 24-7
MIG langar til að lýsa
óánægju minni með dreif-
ingu Morgunblaðsins á
blaðinu 24-7 á fimmtudög-
um. Eg hafði samband við
áskriftardeild Morgun-
blaðsins til þess að láta
taka þetta blað út úr blað-
inu mínu, en það reyndist
ekki hægt. Mér fmnst þetta
blað vera hálfgert sóðablað,
sem ég vil ekki fá inn á mitt
heimili. Eg er með ung
börn og vil ekki láta þau
lesa þetta blað. Mér finnst,
að ef fólk vill lesa blaðið, þá
geti það keypt það úti í búð.
Mér finnst einnig, að blaðið
höfði til ákaflega þröngs
hóps lesenda.
Guðrún
Tapað/fundid
Barnatrefill týndist
LJÓSBRÚNN barnatrefill
með bangsahaus á endan-
um týndist 30. desember sl.
á Klapparstíg eða neðar-
lega á Laugavegi. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 553-1486.
Módelhringur
týndist
MÓDEL-gullhringur týnd-
ist við Grafarvogssundlaug,
Prentsmiðjuna Odda, Póst-
húsið í Mjódd eða Náttúra-
lækningabúðina í Kópa-
vogi. Finnandi vinsamleg-
ast hafi samband við Áróru
í síma 586-1199.
Tvö strákahjól
hurfu úr Grafarvogi
TVÖ GT-strákahjói hurfu
frá Reyrengi í Grafarvogi
rétt fyrir jólin. Annað hjólið
er bláyrjótt og hitt er
gráyrjótt. Ef einhver hefur
orðið var við hjólin, er sá
hinn sami vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
Björk í síma 567-5343.
Dýrahald
Óskar er týndur
ÓSKAR er mjög stór,
svartur norskur skógar-
köttur, með mikið loðið
skott. Óskar hvarf frá Þing-
hólsbraut í Kópavogi. Þeir
sem hafa orðið hans varir
vinsamlega hafi samband í
síma 554-7004.
Morgunblaðið/Ómar
Víkverji skrifar...
SKUDÝRKUN er fyrirbrigði
sem talsvert hefur borið á í
vestrænum samfélögum á undan-
förnum árum og birtist í ýmsum
myndum. Þetta orð kom upp í kunn-
ingjahópi Víkverja hér á dögunum
þar sem rætt var um nýjan umræðu-
þátt í ríkissjónvarpinu, en sumum
viðmælenda Víkverja fannst stjórn-
endur þáttarins helst til „bernskir“ í
framgöngu og reynslulitlir. Víkverji
verður þó að segja að honum finnst
ómaklega vegið að þessu unga og
efnilega fólki úr ýmsum áttum, þótt
raddblærinn hljómi kannski ungæð-
islega og glaðbeitt svipmótið ef til
vill ekki alltaf í samræmi við alvöru
málsins sem um er rætt.
Hitt er svo annað mál, að það má
sjálfsagt deila um þá tilhneigingu
stjórnenda íslenskra sjónvarps-
stöðva að vera sífellt að „yngja upp“
í starfsliði stöðvanna og þessa ár-
áttu að allt þurfi að vera svo ferskt,
opið og skemmtilegt í anda „Vertu
hress, ekkert stress, bless“
sjónvarpsmannsins sællar minning-
ar. Þessi yfirþyrmandi hressleiki
tröllríður einnig flestum útvarps-
stöðvum þannig að maður er í sí-
auknum mæli farinn að „flýja“ yfir á
gömlu „gufuna“, bara til að hvíla sig
á þessum ósköpum. En það eru
kannski bara ellimörk?
Víkverji veit ekki hvort gerð hef-
ur verið könnun á því hvaða aldurs-
hópar hlusta mest á útvarp eða
horfa á sjónvarp, en af þessari
æskudýrkun má ráða að það sé nær
eingöngu fólk undir þrítugu. I sjón-
varpi má nú velja á milli fjölda
sjónvarpsstöðva, sem eingöngu
flytja létta tónlist og flestar út-
varpsstöðvar byggja á slíkri tónlist,
í bland við aulafyndni og hressleika-
kjaftæði. Nú hefur meira að segja
verið sett á stofn sérstök sjónvarps-
stöð, sem bersýnilega er ætlað að
höfða eingöngu til ungmenna á mis-
jöfnu þroskastigi og í sjálfu sér ekk-
ert við það að athuga ef tilgangur
rekstursins er að ná til þessa mark-
hóps.
XXX
ASAMA tíma og unga fólkið er
að leggja undir sig íslenska
Ijósvakafjölmiðla má sjá hjá rót-
grónum erlendum sjónvarpsstöðv-
um gamalkunnug „andlit“, sem birst
hafa á skjánum áratugum saman, og
virðast vaxa að virðingu og hæfni
með árunum og má þar nefna
stjórnendur fréttaskýringaþáttar-
ins „60 mínútur", fréttamenn CNN
og Sky sjónvarpsstöðvanna að
ógleymdum Larry King, sem að
öðrum ólöstuðum er líklega einhver
virtasti og hæfasti sjónvarpsmaður í
heiminum nú um stundir. Þó er
maðurinn kominn af léttasta skeiði
og æskuþrótturinn löngu þrotinn.
Larry King hefur hins vegar þá
reynslu sem nauðsynleg er til að
stjóma fréttatengdum umræðu-
þætti með trúverðugum hætti og
Víkverji sér ekki fyrir sér að yngri
og fríðari maður myndi þar bæta um
betur.
Hér á landi virðast menn hins
vegar ekki hafa úthald til að festa
sjónvarpsþætti í sessi, með örfáum
undantekningum, svo sem „Nýjasta
tækni og vísindi“, sem hefur staðið
af sér allar tískusveiflur, enda hefur
sami maður haldið þar um stjórnvöl-
inn árum saman við góðan orðstír.
Aðrir þættir hafa fjarað út, jafnvel
þótt þeir hafi mælst vel fyrir, og má
þar nefna „Dagsljós", sem fór vel af
stað á sínum tíma og spjallþáttinn
„Á elleftu stundu“ þar sem tveir
gamalgrónir og reyndir fjölmiðla-
menn sýndu skemmtileg tilþrif, þótt
komnir væru af léttasta skeiði.
Víkverji er kannski að taka full
djúpt í árinni með þessum staðhæf-
ingum og það má alls ekki skilja orð
hans svo að hann vantreysti ungu
fólki. „Ef æskan vill rétta þér örv-
andi hönd, þá ertu á framtíðarvegi,"
kvað skáldið forðum og eru það
vissulega orð að sönnu. En sjálfsagt
er þó að vara við þessum „hress-
leika“-tilhneigingum, sem í síaukn-
um mæli tröllríða ljósvakamiðlunum
og æskudýrkunin má ekki ganga svo
langt að reynslu og þroska sé alfarið
varpað fyrir róða. Jafnframt má
minna á að það er vissulega líf eftir
þrítugt.