Morgunblaðið - 22.01.2000, Side 80
Netþjónar
og tölvur
COMPAO.
nrgmttMuMlí
Eru upplýsingar
lengi á leiðinni
í þínu fyrirtæki?
Það er dýrt að láta starfsfólkið bíða!
Tölvukerfi sem virkar
MORGUNBLAÐW, KRINGLANl, 103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF 3010,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBLIS, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 22. JANUAR 2000
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK.
Rekstrar-
leyfí gagna-
grunns
kynnt
INGIBJÖRG Pálmadóttir,
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra, hefur boðað til blaða-
mannafundar klukkan 11 í dag
þar sem stefnt er að því að
kynna rekstrarleyfi vegna
gagnagrunns á heilbrigðissviði.
Eins og fram kom á sínum tíma
ákvað ráðuneytið á síðastliðnu
sumri að ganga til viðræðna við
Islenska erfðagreiningu um
rekstur gagnagrunnsins og
hafa þær viðræður síðan staðið
yfir.
Fimmtán
teknir á óskoð-
uðum bilum
FIMMTÁN ökumenn voru stöðvaðir
í Hafnarfirði í fyrrinótt en þeir höfðu
vanrækt að færa ökutæki sín til aðal-
skoðunar á síðasta ári. Þeir mega
vænta þess að verða sektaðir um átta
þúsund krónur fyrir að hafa látið hjá
líða að láta skoða bifreiðamar.
Tólf ökumenn voru stöðvaðir í
fyrrakvöld og fjórir til viðbótar í
fyrrinótt fyrir of hraðan akstur í
Hafnarfirði. Sá sem hraðast ók mæld-
ist á 127 km/klst. á vegi þar sem leyfi-
legur hámarkshraði er 70 km/klst.
Morgunblaðið/Ómar
I róluleik á
bóndadegi
EKKI er ljdst hvort verkamenn við
Hafnarfjarðarhöfn voru að bjóða
þorrann velkominn á bóndadegi
með uppátæki sínu við saltlestun í
höfninni í gær með því að koma sér
þægilega fyrir í fiskikassa og róla
*;ér um stund við hífingu. Víst er þó
að atferli þeirra hefur fangað at-
hygli þeirra sem áttu leið hjá og
ekki laust við að þeir hafi sjálfir
haft, gaman af róluleiknum.
Salthaugur í reiðileysi
Morgunblaðið/RAX.
ÞESSUM salthaugi var lestað upp úr skipi í Hafnar-
fjarðarhöfn í gær og undir venjulegum kringumstæð-
um kæmi hann víst í góðar þarfir á þessum árstíma. Nú
ber hins vegar svo við að einmuna hlýindi undanfarna
daga og vikur valda því að ekki er mikil þörf á því að
salta götur borgar og bæja. Sat haugurinn því eins og í
reiðileysi við hafnarbakkann í gær, þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar þar að garði.
Hópur starfsmanna Búnaðarbankans keyptl bréf í
móðurfélagi Islenskrar erfðagreiningar
Fengu undanþágu
frá verklagsreglum
HÓPUR starfsmanna Búnaðarbanka
Islands fékk á síðasta ári undanþágu
frá ákvæði í verklagsreglum bankans
til kaupa á hlutabréfum í DeCODE,
móðmfélagi íslenskrar erfðagrein-
ingar. Samkvæmt verklagsreglunum
eru starfsmönnum bankans óheimil
kaup á óskráðum bréfum, og var sam-
þykíds ríkisins, sem meirihlutaeig-
anda í bankanum, ekki leitað. Stefán
Pálsson, bankastjóri Búnaðarbank-
ans, sagði í samtaíi við Morgunblaðið
að hann teldi ekki að verklagsregl-
urnar hafi verið brotnar þar sem ríkið
hafi áður samþykkt að starfsmenn
Búnaðarbankans keyptu óskráð bréf
í bankanum.
„Eftir á að hyggja má hins vegar
vel vera að við hefðum átt að standa
öðruvísi að hlutunum, en við mátum
þetta heimilt þegar verklagsreglurn-
ar tóku gildi,“ sagði Stefán.
Stjómendur FBA og Landsbank-
ans segja að undanþágur hafi al-
mennt ekld verið veittar innan bank-
anna frá ákvæðum verklagsreglna
um viðskipti starfsmanna með óskráð
bréf fyrir eigin reikning.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans segir bann við
viðskiptum með bréf þó ekki ná til er-
lendra félaga, svo lengi sem viðkom-
andi félag sé ekki í viðskiptatengslum
við bankann. Stjórnendur
Landsbankans hafi þó túlkað regl-
umar þannig að starfsmönnum bank-
ans séu óheimil viðskipti með bréf
DeCODE vegna innlendra umsvifa
félagsins. Hann segir að aðeins einu
sinni hafi starfsmönnum innan
Landsbankasamstæðunnar verið
veitt undanþága vegna viðskipta með
óskráð bréf, en það var þegar starfs-
mönnum Landsbréfa var veitt af-
mörkuð undanþága gegn mjög stifum
skilyrðum um langtíma eignarhald á
viðkomandi bréfum.
Bjami Armannsson, forstjóri FBA,
segir að undanþágur hafi ekki verið
veittar til starfsmanna nema í örfáum
tilvikum þar sem leyfð vom kaup á
hlutum í íþróttafélögum. Hann segist
telja eðlilegt að reglur um viðskipti
starfsmanna með óskráð bréf verði
endurskoðaðar þar sem þær séu fam-
ar að valda nokkrum óþægindum.
■ Stjórnendur/22
Samræmd
stúdents-
próf haldin
2003-2004
SAMRÆMD stúdentspróf verða
haldin í fyrsta skipti skólaárið 2003-
2004 og unnið verður að stefnumót-
un og gerð framkvæmdaáætlunar
um að stytta nám á bók-
námsbrautum til stúdentsprófs úr
fjómm ámm í þrjú að því er fram
kemur í nýrri verkefnaáætlun
menntamálaráðuneytisins vegna
áranna 1999-2003.
Samræmd próf í gmnnskóla era
orðin valfrjáls eftir lagabreytingu
Alþingis fyrir jól og verða í fyrsta
skipti haldin vorið 2001 og ári síðar
verður prófgreinum fjölgað úr fjór-
um í sex.
Bjöm Bjarnason, menntamála-
ráðherra, segir að tilgangurinn með
breytingunni á samræmdu prófun-
um sé að auka frelsi nemenda til að
velja sér námsleiðir og gera þeim
kleift að gera það fyrr en ella.
„Sumir hafa sagt að krafan um
það að allir taki sömu samræmdu
prófin mótaði gmnnskólann um of og
setti hann í fastar skorður. Við lítum
þannig á að með þessu séum við að
auka frelsi nemendanna jafnframt
því að breikka kennsluna í gmnn-
skólanum. En frelsi fylgir ábyrgð og
þessi breyting kallar á að bæði for-
eldrar og nemendur átti sig betur á
því að nauðsynlegt er að setja sér
ákveðin markmið með náminu," seg-
ir Bjöm.
■ Erum að beina/40-41
----------------
Hagnaður
Kögunar 55
milljónir
VELTA Kögunar hf. á síðasta ári var
tæplega 440 milljónir króna og var
hagnaður af reglulegri starfsemi eft-
ir skatta 54,6 miHjónir króna. Gengi
bréfa í Kögun hefur hækkað úr 20 í
byrjun desember í 35, eða um 75%.
Stefnt er að því að skrá Kögun á
Verðbréfaþingi íslands og að sögn
Gunnlaugs Sigmundssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins, er stefnt að
því að ná skráningu á þinginu í febr-
úar.
■ Velta/22
Stór-
sýnirng
um helgina!
Opin laugardag frá kl. 12 til 17
og sunnudag fra kl. 13 til 17
Kjaraviðræður VR og Samtaka verslunarinnar
Drög að markaðslauna
samningi liggja fyrir
HEKLA
- í foryslu á nýni öldl
VIÐRÆÐUR um gerð nýs kjara-
samnings milli Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur og Samtaka
verslunarinnar eru langt komnar
og segir Magnús L. Sveinsson, for-
maður VR, ekki útilokað að gengið
verði frá samningum í dag. Fyrir-
liggjandi samningsdrög byggjast á
markaðslaunum, en VR hefur lagt
fram tillögur um slíka samninga.
VR fer með samningsumboð fyr-
ir um 1.500 félagsmenn sem starfa
í fyrirtækjum sem aðild eiga að
Samtökum verslunarinnar, sem áð-
ur hétu Félag íslenskra stórkaup-
manna. Þau eiga ekki aðild að
heildarsamtökum atvinnurekenda,
Samtökum atvinnulífsins.
Magnús segir að á samninga-
fundi í gær hafi þokast verulega í
samkomulagsátt. Viðsemjendur
VR hafi í framhaldi af því ákveðið
að boða til fundar í hádeginu í dag
og að honum loknum verði boðað
til nýs samningafundar. A fundin-
um ráðist hvort samningar takist
um helgina.
Magnús segir að fyrirliggjandi
samningsdrög byggist á hugmynd-
um VR um markaðslaun. Verið sé
að fara út á algerlega nýja braut í
samningsgerð og því leggi menn
áherslu á að vanda sig vel við
samningavinnuna. Hann segir að
samningsaðilar séu sammála um að
nauðsynlegt sé að gefa þessari til-
raun þrjú ár til að sanna sig. Samn-
ingurinn geri hins vegar ráð fyrir
því að samið verði um prósentu-
hækkun á fyrsta ári samningstíma-
bilsins, en síðan byggist launa-
greiðslur á þeim launum sem
greidd verði á markaðnum. Hann
segir að enn hafi ekki náðst sam-
komulag um upphafshækkanir og
framhald málsins ráðist ekki síst af
því hvort sátt náist um það atriði.