Morgunblaðið - 25.02.2000, Side 1
47. TBL. 88. ARG.
FOSTUDAGUR 25. FEBRUAR 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
AP
Jóhannes Páll páfi kyssir egypska mold sem flögur börn færðu honum
við komuna til Kaíró í gær. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sem
fyigist hér með páfa, tók á móti honum ásamt trúarleiðtogum múslima
og kristinna manna f Miðausturlöndum.
Glíma við
Kimbra-
gátu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FYRIR rúmum tvö þúsund árum
æddu Kimbrar, taldir ættaðir frá
Himmerlandi á Norður-Jótlandi, um
Evrópu og herjuðu þar til þeir voru
sigraðir af rómverskum herjum. Nú
kanna ítalskir vísindamenn frá há-
skólanum í Ferrara hvort Cimbri-
fólkið á Norður-Italíu sé afkomend-
ur Kimbranna með því að taka
blóðsýni úr völdum hópi Himmer-
lendinga og bera saman erfðaefni
þeirra og Cimbri-fólksins.
í vikunni komu 43 Himmerlend-
ingar saman á Rold Gammel Kro í
Himmerland og létu taka sér blóð.
Allt voru þetta karlar, sem geta rak-
ið ættir sínar nokkrar aldir aftur í
tímann með stuðningi kirkjubóka.
Lengi hefur verið talið að Kimbrar
hafi komið frá Himmerlandi. I kring-
um 120 fyrir Krist tóku stórir hópar
þeirra sig upp og héldu suður á bóg-
inn, þar sem rómverskir herir áttu
eftir að verða fyrir barðinu á víga-
mönnunum norrænu. Unnu þeir
marga sigra á rómverska hemum en
29. júlí 101 fyrir Krist tókst honum
að sigra Kimbrana endanlega í orr-
ustu í nágrenni Verónu á Italíu. Síð-
an hefur lítið til þeirra spurst.
Páfi for-
dæmir „of-
beldi í nafni
trúar“
Kaíró. AFP, AP.
JÓHANNES Páll II páfí fordæmdi
„ofbeldi í nafni trúar“ og hvatti til
friðar í Miðausturlöndum þegar
hann kom til Kaíró í gær.
Þetta er fyrsta ferð páfa til
Egyptalands og hann sagði að
henni myndi ljúka á morgun með
„andheitri bænastund fyrir friði og
sátt milli trúarbragða" á Sínaífjalli
þar sem Móse tók við lögmáli Drott-
ins samkvæmt Gamla testamentinu.
„Það að stuðla að ofbeldi og átök-
um í nafni trúar er hræðileg mót-
sögn og mikil móðgun við Guð,“
sagði páfi meðal annars við mót-
tökuathöfn á flugvellinum í Kaíró.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, tók á móti páfa og hvatti til
samstöðu gegn ofstæki og hatri til
að vonir um frið gætu ræst.
Páfii lofaði þátt Mubaraks í frið-
arumleitunum í Miðausturlöndum.
Málgagn egypsku stjórnarinnar,
Al-Akhbar, fagnaði komu páfa og
nýlegu samkomulagi Páfagarðs og
Palestínumanna um stöðu Jerúsal-
em, lýsti því sem snuprum í garð
ísraela og „martröð fyrir rabbín-
ana“.
Afturkippur í sámningaviðræður um aðild Kína að WTO
Viðræðurnar við ESB
fara út um þúfur
Peking. AFP.
SNURÐA hljóp á þráðinn í 14 ára
tilraunum Kínverja til að fá aðild að
Heimsviðskiptastofnuninni (WTO)
þegar viðræður þeirra við Evrópu-
sambandið fóru út um þúfur í gær.
Hans-Friedrich Beseler, aðal-
samningamaður Evrópusambands-
ins, sagði að nokkur árangur hefði
náðst í viðræðunum en hann hefði
samt ekki nægt.
Samningamenn beggja aðila
höfðu látið í ljós bjartsýni á að sam-
komulag næðist og Pascal Lamy,
sem fer með viðskiptamál í fram-
kvæmdastjórn ESB, hafði sagt að
hann væri tilbúinn að fara til Pek-
ing til að undirrita nýjan viðskipta-
samning við Kína.
Embættismenn ESB sögðu fyrir
viðræðurnar að erfiðast yrði að
semja um aðgang fjarskipta-,
trygginga- og fjármálafyrirtækja
að kínverska markaðnum og tolla-
mál. Lamy sagði í viðtali við dag-
blað í Hong Kong á miðvikudag að
Kínverjar hefðu ekki enn komið
nægilega til móts við þá kröfu ESB
að innflutningsgjöldin yrðu um 7%
að jafnaði.
Kyndir undir deilunum á
Bandaríkjaþingi
Sagði hann ESB hafa sérstakra
hagsmuna að gæta og ekki láta sér
nægja að gera sams konar samning
við Kínverja og Bandaríkjastjórn
gerði við þá í nóvember til að greiða
fyrir aðild þeirra að WTO. Sá
samningur mætir nú vaxandi and-
stöðu á Bandaríkjaþingi.
Líklegt er að þessir erfiðleikar í
samningaviðræðunum við ESB
kyndi undir andstöðunni á Banda-
ríkjaþingi við viðskiptasamninginn
og deilunni um hvort veita eigi Kín-
verjum sömu viðskiptakjör og öðr-
um viðskiptaþjóðum til frambúðar.
Bandaríska þingið hefur endur-
nýjað samninginn um viðskipta-
kjörin árlega og umræðan hefur
alltaf einkennst af harðri gagnrýni
á stöðu mannréttindamála í Kína.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
og kínversk stjórnvöld hafa hvatt til
þess að deilan um Taívan verði ekki
tengd viðskiptasamningnum og um-
sókn Kínverja um aðild að WTO.
Hörmungar í Mósambík
Reuters
Stórir hlutar Mósambíks eru nú undir vatni eftir gífur-
legt úrfelli í landinu í nokkrar vikur. Að minnsta kosti
300.000 manns hafa misst heimili sín, annar eins fjöldi
hefst við vistalaus á ásum og hæðum og óttast er að far-
sóttir taki að breiðast út. Uppskeran er að stórum hluta
ónýt og tugir þúsunda gripa hafa drukknað.
Brussel, Washington. AP, AFP, Reuters.
Bandarrkjamenn sakaðir um að stunda storfelldar iðnaðarnjdsnir í Evrópu
Evrópuþing-
menn hvetja til
rannsóknar
ÞINGMENN á Evrópuþinginu
kröfðust þess í gær að hafin yrði
rannsókn á ásökunum um að Banda-
ríkjamenn notuðu mjög háþróað
hlerunarkerfi til að stunda iðnaðar-
og viðskiptanjósnir í Evrópu.
Njósnakerfið, sem um ræðir,
Echelon, er einkum rekið af Banda-
ríkjamönnum en auk þess standa að
því aðrar fjórar enskumælandi þjóð-
ir, Bretar, Kanadamenn, Ástralar og
Nýsjálendingar. Fullyrt er að með
því sé unnt að fylgjast með milljörð-
um símtala, fax- og tölvupóstsend-
inga. Notast það við fjarskiptahnetti
og jarðstöðvar í fyrrnefndum i’íkjum
ogvíðar.
í skýrslu, sem lögð var fyrir
Evrópuþingið í fyrradag og var unn-
in af breska rannsóknarblaðamann-
inum Duncan Campbell, er því hald-
ið fram að ríkin sem standa að
Echelon noti það til að afla sér iðnað-
ar- og viðskiptaupplýsinga sem komi
sér vel fyrir fyrirtæki í viðkomandi
löndum og auðveldi þeim að hreppa
ýmsa stóra samninga. Christian von
Bötticher, sem situr á Evrópuþing-
inu fyrir kristilega demókrata í
Þýskalandi, sagði í gær að hugsan-
legt tjón evrópskra fyrirtækja vegna
njósnanna væri allt að 1.500 mill-
jarðar ísl. kr.
Bretar og Bandarflyamenn
neita
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, vísaði njósnaásökunun-
um á bug í gær og það gerði einnig
James Rubin, talsmaður bandaríska
utam-íkisráðuneytisins. Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefur heldur ekki viljað efna til rann-
sóknai- á þessu máli hingað til og ber
það fyrir sig að um sé að ræða orð-
róm en engar sannanir. Þrýstingur á
hana fer hins vegar mjög vaxandi.
í skýrslunni segir ennfremur að
flestar alþjóðlegar nettengingar fari
í gegnum Bandaríkin og í gegnum
eftirlitsstöðvar bandaríska þjóðarör-
yggisráðsins, NSA, en vitað er um
níu þeirra. Þar sé unnt að komast
inn í milljarða sendinga á klukku-
stund.
Nefnd eru nokkur dæmi um
njósnirnar, sum áður kunn. Sagt er
m.a. að NSA hafi fylgst með sam-
skiptum franska fyrirtækisins
Thomson-CSF og Brazilíustjómar
varðandi eftirlitskerfi fyrir Amazon-
regnskógana en á endanum hafi
bandaríska fyrirtækið Raytheon
fengið samninginn. Það vinnur mikið
fyrir Bandaríkjaher og annast við-
hald á búnaði Echelon. Þá hafi NSA
fylgst með öllum símtölum og
faxsendingum milli Airbus Indust-
ries og stjómvalda í Saudi-Arabíu
enda hafi Boeing og McDonnell
Douglas fengið samninginn, sem var
upp á næi-ri 440 milljarða ísl. kr.
Lengi hefur verið á kreiki orðróm-
ur um tilvist Echelons en hún var
ekki staðfest fyrr en í síðasta mánuði
er birt vom skjöl í krafti laga um
upplýsingaskyldu bandarískra
stjórnvalda.
Dow Jones
lækkar
Ncw York. AP, AFP.
DOW Jones-vísitalan lækkaði í gær
og fór niður fyrir 10.000 í fyrsta sinn
frá því í apríl á síðasta ári. Hefur hún
þá fallið um 15% frá því er hún var
hæstí janúar sl.
Fjárfestingarsérfræðingar segja
að fallið niður fyiir 10.000 geti haft
sálræn áhrif á fjárfesta, skotið þeim
skelk í bringu og leitt til enn meiri
sölu og þar með lækkunar. Er
ástæðan sögð ótti við vaxtahækkun
en bandaríski seðlabankinn hefur
gefið skýrt til kynna að á henni sé
von til að draga úr verðbólguþrýst-
ingi.
MORGUNBLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2000