Morgunblaðið - 25.02.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 25.02.2000, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Héraðsdómur sýknar ríkið af 27 milljdna skaðabótakröfu Kios Briggs Frelsissvipting Briggs talin fyllilega lögmæt HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði ríkið í gær af öllum kröfum Bretans Kios Briggs, sem krafðist 27 milljóna króna í skaðabætur fyrir frelsissviptingu í tæpt ár vegna rann- sóknar á e-töflusmygli, sem hann sætti ákæru fyrir. Akvörðun um hvort dóminum verður áfrýjað til Hæstarétar verður tekin af hálfu lögmanns Briggs í næstu viku. Krafa Briggs var byggð á því að fyrir lægi að hann hefði setið saklaus í gæsluvarðhaldi í 263 daga og í far- Þjófkennd- ur maður fær miska- bætur HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt fyrrverandi starfs- manni Flugafgreiðslunnar ehf. á Keflavíkurflugvelli 400 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn var þjófkenndur og honum sagt upp störfum í september 1994, ásamt tveim- ur öðrum. Lögreglurannsókn lauk hins vegar án þess að sannanir kæmu fram. I september 1994 var manninum sagt upp fyrir- varalaust, ásamt tveimur öðr- um starfsmönnum. Hann var borinn sökum um að hafa tek- ið varning úr farmi flugvéla ófrjálsri hendi. Lögreglurann- sókn lauk án þess að sannanir kæmu fram um misferli starfsmanna Flugafgreiðsl- unnar. Meðan á henni stóð höfðaði maðurinn mál til greiðslu bóta fyrir missi launa í uppsagnarfresti, en málið var fellt niður í apríl 1996, þegar Flugafgreiðslan féllst á að greiða þá kröfu. I nóvem- ber 1998 bar maðurinn svo fram kröfu um bætur vegna miska, sem hann hefði beðið vegna uppsagnarinnar og tengdra aðgerða, og höfðaði síðan mál til greiðslu þeirra bóta. Hæstiréttur taldi, að upp- sögn mannsins hefði ekki ver- ið reist á nægilegum efnis- legum forsendum, og hefði í henni falist ólögmæt mein- gerð gegn persónu hans og æru. Hæstiréttur sagði fram- kvæmdastjóra Flugafgreiðsl- unnar hafa gengið fram af stórkostlegu gáleysi, og dæmdi þá til að greiða mann- inum 400 þúsund krónur í miskabætur, með dráttarvöxt- um frá 30. desember 1998. banni í 56 daga á meðan mál hans var til rannsóknar. Þá var byggt á því að þrátt fyrir að breyting á 175. gr. laga um meðferð opinberra mála hefði ekki öðlast gildi fyrr en 1. maí sl. væri ljóst að mál Briggs hlyti að dæmast eftir núgildandi lagaákvæði, enda hefðu lögin með breytingunni verið löguð að þeim alþjóðasamningum sem Islandingar væru aðilar að, auk þess sem skýlaust ákvæði um bóta- skyldu í slíkum tilvikum væri að finna í stjómarskránni. I niðurstöðu dómsins segir m.a. að Hafnarfirði í gær og þar vinna starfsmenn Vélsmiðju Orms og Víglundar að viðgerð á skipinu. Veltiuggi skipsins skemmdist í ís við Grænland og að lokinni við- gerð fer það þangað aftur. Að sögn Eiríks Orms Víglundssonar er skipið það stærsta sem tekið hefur verið í slipp hér á landi, að minnsta kosti ef miðað er við þyngd. Þyrla af Lynx-gerð sem var á skipinu er nú geymd í flugskýli Landhelgisgæslunnar. Þaðan fóru flugmenn hennar í æfingaflug í gær. I flugskýlinu eru nú fjórar þyrlur ásamt Fokker-vél Land- helgisgæslunnar. framkoma Briggs við rannsókn og meðferð sakamálsins á hendur hon- um hafi verið með þeim hætti að óhjá- kvæmilegt hafi verið að beita hann þeirri frelsisskerðingu sem málið snerist um. Þar sem ekki hafi verið leitt annað í Ijós en að gæsluvarð- haldsúrskurðir og farbannsúrskurðir yfir Briggs hafi verið fyllilega lög- mætir og í samræmi við ákvæði laga um meðferð opinberra mála, stjóm- arskrá og mannréttindasáttmála Evrópu væru ekki lagaskilyrði til að taka bótakröfu Briggs til greina. MEÐ tilkomu Hvalfjarðarganga búa Kjalnesingar og Kjósverjar sem búa innan við Tíðaskarð við skerta þjónustu hvað varðar snjó- mokstur. Að sögn Hermanns Ing- ólfssonar, bónda á Hjalla í Kjós, sést Ríkissjónvarpið mjög illa á þessu svæði. Sagði hann að auk þess annaði símastrengurinn illa þörf Héraðsdómur Reykjavíkur taldi það einnig vekja sérstakar gi*un- semdir að Briggs kom til landsins klæðalítill og nánast félaus í septem- berbyrjun 1998 og við rannsókn málsins hafi hann gefið ófullnægjandi og óstöðuga frásögn um greiðslukort sem ýmist hann kvaðst vera skráður fyrir eða vinkona hans sem hann vildi ekki nafngreina. Auk þessa kvaðst hann í fyrstu ætla að dveljast hér á landi sem ferðamaður, en skýrði síð- ar svo frá að hann ætlaði að stunda sjómennsku. þeirra sem vildu komast á Netið án þess að teppa heimilissímann. Ekki þyrfti að fara langt vestur á firði til að finna sambærileg vandamál. „Við erum þjóðflokkur út af fyrir sig,“ sagði hann. „Eftir að göngin komu búum við orðið afskekkt..." ■ Gjöldum þess/16 Starfsmaður tollstjóra dæmdur HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt rúm- lega fimmtugan mann, fyrrverandi deildarstjóra tollstjórans í Reykja- vík, fyrir brot í opinberu starfi. Mað- urinn var fundinn sekur um að hafa afskrifað hærra hlutfall af verði bif- reiðar sem kona hans flutti til lands- ins en leyfilegt var og gefið upp rangt tollverð bifreiðarinnar. I mars 1995 flutti eiginkona deild- arstjórans pallbíl til landsins. Maður- inn útbjó aðflutningsskýrslu, ásamt mats- og skoðunargerð, en þar var matsverð bílsins miðað við 90% af- skrift af grunnverði í stað 64,5%, eins og rétt hefði verið. Með þessu móti sveik maðurinn undan 61.940 krónur í vörugjald og 65.760 krónur í virðis- aukaskatt, eða samtals 127.700 krón- ur í aðflutningsgjöld. Hæstiréttur segir að með háttsemi sinni hafi mað- urinn misnotað stöðu sína sem deild- arstjóri endurskoðunardeifdar emb- ættis tollstjórans í Reykjavík. Manninum var einnig gefið að sök að hafa skráð inn tilhæfulausar leið- réttingar á tollmeðferð bifreiðarinn- ar í tölvufært tollakerfi ríkistoll- stjóra þannig að inneign myndaðist hjá innflytjanda bifreiðarinnar að fjárhæð samtals 38.410 krónur í að- flutningsgjöld, sem tollstjóri endur- greiddi. Þá var hann ákærður fyrir að hafa lagt inn hjá tollstjóra falsaða reikninga. Hæstiréttur taldi skýr- ingar mannsins á þessum köflum ákærunnar um margt tortryggileg- ar, en engu að síður yrði að staðfesta þá niðurstöðu héraðsdómara að þessar sakargiftir væru ósannaðar. Niðurstaða Hæstaréttar varð sú að maðurinn vai- dæmdur í eins mán- aðar fangelsi en refsingin fellur niður að þremur árum liðnum haldi maður- inn almennt skilorð. Þá var honum gert að greiða 150 þúsund króna sekt. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði hins vegar frestað ákvörðun refsingar mannsins og skyldi hún falla niður að tveimur árum liðnum héldi hann almennt skilorð. -----f-4-4---- Bræðslumenn vísa deilu til sáttasemjara KJARADEILU vinnuveitenda og starfsfólks sem vinnur í loðnu- og síldarbræðslum hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Sigurður Ingvarsson, forseti Alþýðusam- bands Austurlands, segir að á síð- asta samningafundi um bræðslu- samninginn hafi verið tekist á um launalið samnings og í ljós hafi komið að mjög mikið bar á milli deiluaðila. Því hafi ekki verið um annað að ræða en að vísa deilunni til sáttasemjara. Sigurður sagðist ekki sjá fram á annað en að félögin yrðu að búa sig undir að boða verkfall í bræðsl- unum. Það væri vel hugsanlegt að það yrði boðað á sama tíma og verkfall Verkamannasambandsfé- laga á landsbyggðinni. I ársbyrjun 1997 urðu átök um gerð bræðslusamnings og boðuðu stéttarfélögin verkfall. Samningar tókust hins vegar áður en það kom til framkvæmda. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skert þjónusta í Kjós með göngum líf BÍÓBLAÐIÐ Á FÖSTUDÖGUM Sigurvin og Þórarinn fara til reynslu hjá Guðjóni / B1 Eyjamenn jöfnuðu á elleftu stundu á Akureyri / B3 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.