Morgunblaðið - 25.02.2000, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Raforkuvinnsla j ókst
um 14,5% milli ára
RAFORKUVINNSLA á landinu
jókst um 14,5% árið 1999 miðað við
árið á undan og er meginástæðan til-
koma Norðuráls á Grundartanga og
aukin notkun Járnblendiverksmiðj-
unnar.
Frá árinu 1996 hefur raforku-
vinnsla aukist um 2.072 GWh sem er
um þrír fjórðu af allri raforkuvinnslu
vegna almennrar notkunar á því ári.
Stómotkun nam 4.283 GWh á árinu
1999 og hafði aukist um 23% frá árinu
á undan en almenn notkun jókst um
4,5%. Tap á flutningi orkunnar til not-
enda minnkaði um 6,9% milli 1998 og
1999 með tilkomu nýrra flutnings-
mannvirkja.
Mikil notkun
stóriðjufyrirtækja
Raforkunotkun á íbúa er mikil hér
á landi aðallega vegna hlutfallslega
mikillar notkunar stóriðjufyrirtækja
og allt bendir til þess að íslendingar
verði með mestu raforkunotkun á
íbúa á heimsvísu árið 2000, segir enn
fremur í frétt írá orkuspánefnd. Á ár-
inu 1999 var notkun hér á landi
25,9MWh/íbúa en í Noregi var sam-
svarandi tala 27MWh/íbúa en Norð-
menn hafa verið með mestu notkun í
heimi undanfama áratugi.
Notkunin er oft greind í forgangs-
orku og ótryggða orku og jókst for-
gangsorka um 20,9% árið 1999 frá
fyrra ári, stómotkun jókst um 34,4%
en almenn notkun jókst um 3,6%.
Fram kemur að aukning almennrar
orku hefur verið nálægt 2,5% sl. fimm
ár og er meginástæðan uppsveifla
sem nú er í atvinnulífinu en lands-
framleiðslan hefur aukist yfir 5% á ári
síðustu fjögur ár. Á árunum 1989 til
1994 þegar landsframleiðslan stóð að
mestu í stað, var aukning í notkun al-
mennrar forgangsorku mun minni
eða nálægt 1% á ári.
Bent er á að á höfuðborgarsvæðinu
hafi notkun almennrar forgangsorku
aukist um 13% frá árinu 1996 eða um
4,2% að meðaltali á ári. Til saman-
burðar má nefna að notkun á for-
gangsorku á Vesturlandi, Vestfjörð-
um, Norðurlandi og Austfjörðum
hefur aukist um 2,4% á tímabilinu,
sem jafngildir um 0,8% aukningu á ári
að meðaltali. Byggðaþróun komi því
fram í almennu raforkunotkuninni en
aðrii' þættir hafi einnig áhrif, svo sem
f jölgun og stækkun hitaveitna.
Notkun ótryggðrar orku árið 1999
minnkaði um 19,4% miðað við árið á
undan. Aukning í almennu notkuninni
var 12,3% en árið á undan hafði notk-
unin minnkað um 24%. Gert hafði ver-
ið ráð fyrir að ótryggð orka til stór-
iðju myndi minnka vegna breyttra
samninga og nam minnkunin 35%.
Notkun minni en spáð var
Bent er á að í spá frá 1997 var mið-
að við að almennur markaður fyrir
ótryggða orku yrði 381GWh árið
1999, en raunnotkun varð 299. Skýr-
ingin er sú að árið 1998 var sala á ótr-
yggðri orku skert í fyrsta sinn í um
einn og hálfan áratug vegna hættu á
vatnsskorti við orkuver og þó skerð-
ing hafi einnig verið á síðasta ári var
hún mun minni.
Að auki notuðu loðnubræðslur
minni orku en ráð var fyrir gert. Jafn-
framt segir að þar sem rennsli til
virkjana sé breytilegt verði framboð á
ótryggðri orku mismunandi milli ára
og verða kaupendur að vera viðbúnir
því að til skerðingar geti komið.
Á móti kemur að verð á þessari
orku er mun lægra en á forgangsork-
unni.
Morgunblaðið/Golli
Starfsmenn hreinsunardeildar Reykjavíkurborgar hreinsuðu kjallaraíbúðina að beiðni heilbrigðiseftirlitsins.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kynningarfundur undirbúinn. Sitjandi f.v.: Hrefna Ásgeirsdóttir, Árný
Júlíusdóttir með dótturina Æsgerði Elmu, Hildur Björk Hilmarsdóttir
og Ágústa Erna Hilmarsdóttir. Standandi, f.v.: Jón Bergur Hilmarsson,
Björgvin Ragnarsson, Guðrún Helga Arnardóttir og Þórður Njálsson.
Nýtt stuðningsfé-
lag fyrir ungt fólk
með krabbamein
KRAFTUR heitir nýtt stuðningsfé-
lag fyrir ungt fólk sem greinst hefur
með krabbamein og aðstandendur
þess. „Megintilgangurinn er að veita
ungu fólki með krabbamein og
aðstandendum andlegan og félags-
legan stuðning," segir Hildur Björk
Hilmardsóttir, formaður félagsins, í
samtali við Morgunblaðið. Kynning-
arfundur verður haldinn á morgun,
laugardag, 26. febrúar, kl. 15 í húsi
Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð
í Reykjavík.
Hildm- segir löngu tímabært að
stofna félag eins og Kraft. „Okkur
hefur fundist vanta mikið uppá að
ungu fólká, sem greinist með krabba-
mein, og aðstandendum sé sinnt sem
skyldi og það á einkum við um félags-
legu og andlegu hliðina," segir Hildur
jafnframt. „Það er nauðsynlegt að
efla það ferli sem fer í gang þegar ein-
staklingur greinist með krabbamein
því það hefur í raun hvorki upphaf né
endi, aðeins miðju, sem er meðferðin
sjálf. Hérlendis hefur undirbúningur
og meðferð fyrir krabbameinssjúkl-
inginn og fjölskyldu hans verið nán-
ast óþekkt og andlega hliðin hefur al-
gerlega verið vanrækt."
Andleg og líkamleg
endurhæfíng nauðsynleg
Hildur bendir á að framfarir í
læknavísindum hafi leitt til þess að
fleiri lifi nú lengur með sjúkdóminn
og þessum hópi þurfi að sinna bæði
með líkamlegri og andlegri endur-
hæfingu. „Endurhæfing krabba-
meinssjúklinga er afar mikilvæg.
Hún stuðlar að betri almennri heilsu,
eflir líkamann og ónæmiskerfið og
leiðir til þess að fleiri komast út í at-
vinnulífið á ný eða hefja nám. Ein-
staklingurinn nær fyrr góðri heilsu
og endurhæfingin hjálpar honum til
að komast aftur út í eðlilegt líf sem
við jjráum öll.
Eg vona að Kraftur geti stuðlað að
því að kenna fólki og meta það sem
það hefur og vera sátt við sjálft sig.
Lífsgæðakapphlaupið og allt áreitið
og streitan sem við lifum við í dag er
ekki af hinu góða. En allir ættu að
vera meðvitaðir um heilsu sína og
hvemig hana má bæta og betra er
seint en aldrei," segir Hildur sem hef-
ur að undanfómu unnið að undirbún-
ingi kynningaifundarins ásamt með-
limum Krafts.
Auk þess að veita ungu fólki and-
legan stuðning er markmið Krafts að
koma á framfæri til þeirra upplýsing-
um um ýmis málefni er tengjast
krabbameini og um rétt sjúklinga.
„Það fylgir því gífurlegt líkamlegt
og andlegt álag að greinast með ill-
kynja sjúkdóm," segir Hildur og
kveðst tala af eigin reynslu. „Sjúkl-
ingar og aðstandendur eiga við ýmis
félagsleg vandamál að etja svo ekki sé
talað um þá erfiðleika sem meðferðin
getur haft í för með sér. Það veit eng-
inn nema sá sem reynt hefur að and-
legu kvalirnai' eru ekkert skárri en
þær líkamlegu og stöðug ógn við líf
þitt og limi er hvorki mælanleg né
sýnileg. En lífið heldur áfram og með
stofnun Krafts viljum við gera okkai'
besta til að greiða götu þeirra sem á
eftir okkur koma,“ segir Hildur Björk
Hilmarsdóttir að lokum.
Hreinsað
út úr íbúð
STARFSMENN hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar hreinsuðu út úr
kjallaraibúð við Hverfisgötu í fyrra-
dag að beiðni Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur. Nágrannar höfðu ít-
rekað kvartað undan óþef sem lagði
frá íbúðinni en íbúinn þar hafi safn-
að saman miklu rusli. Að sögn Láru
Björnsdóttur, fólagsmálastjóra
Reykjavíkurborgar, hefur verið séð
fyrir konunni sem þarna bjó.
„Almennt þegar svona mál koma
upp, og ég tek fram að þetta er ekki
einstakt tilfelli því það er fólk úti
um allan heim og líka hér sem vill
búa svona, þá er vinnureglan hjá
okkur að reyna að bregðast við með
tilboðum um aðstoð við fólkið og ég
tel sem yfirmaður félagsþjónust-
unnar að það sé hluti af okkar
skyldu að komaþama að,“ sagði
hún. „Við setjum okkur í samband
við fólkið en það er ekki alltaf sem
það vill aðstoð og við reynum að
finna úrræði sem geta dugað.“
Lára benti á að í þessu tilviki ætti
konan íbúðina. „Þetta er mjög við-
kvæmt og vandmeðfarið því það má
ekki fara offari gagnvart sjálfráða
fólki og taka af því öll ráð, beita of-
beldi eða þvingunum og við reynum
að komast hjá því,“ sagði Lára.
A
Arborg seldi hlutabréf aflagðs ungmennafélags í Eimskip
Ungmennafélag Selfoss
gerir tilkall til bréfanna
UNGMENNAFÉLAG Selfoss hefur
hefur gert athugasemdir við sölu
sveitarfélagsins Árborgar á hluta-
bréfum í Eimsldpafélagi Islands sem
forveri ungmennafélagsins, Ung-
mennafélag Sandvíkurhrepps, keypti
árið 1917, og voru í vörslu Sandvíkur-
hrepps og síðan Árborgar eftir sam-
einingu sveitarfélaganna.
Frá þessu máli var sagt í Sunn-
lenska fréttablaðinu fyrr í mánuðin-
um. Fram kemur að Ungmennafélag
Sandvíkurhrepps keypti árið 1917
hlutabréf í „óskabami þjóðarinnar",
hf. Eimskipafélagi íslands. Starfsemi
Ungmennafélags Sandvíkurhrepps
lognaðist síðan út af. Það hélt sinn
síðasta fund í lok árs 1928 og í lok ár-
sins 1931 var gerð árangurslaus til-
raun til að endurvekja það. Félagið
átti húseignina Haga og hlutabréfin í
Eimskip. Húseignin var seld og þeir
fjármunir sem til voru eftir greiðslu
skulda lagðir á sparisjóðsbók á nafni
námssjóðs félagsins. Ekki kemur
fram í bókum félagsins hvað varð um
hlutabréfin en þau komust þá eða síð-
ar í vörslu oddvita Sandvíkurhrepps
og naut hreppurinn arðs af þeim. Við
sameiningu sveitarfélaganna sem nú
mynda Árborg komust bréfin í vörslu
bæjarstjóra Árborgar sem seldi þau
fyrir áramót ásamt hlutabréfum í
Eimskip sem Sandvíkurhreppur og
Stokkseyrarhreppur höfðu átt.
Ungmennafélag Selfoss gerir til-
kall til söluandvirðis bréfanna vegna
þess að það sé arftaki Ungmennafé-
lags Sandvíkurhrepps. Sigurður
Jónsson, formaður Ungmennafélags
Selfoss, segir í samtali við Morgun-
blaðið að Ungmennafélagið Tíbrá
hafi verið stofnað skömmu eftir að
Ungmennafélag Sandvíkurhrepps
lognaðist út af, af sama fólki og var að
huga að endurreisn þess, en nafni fé-
lagsins var síðar breytt í Ungmenna-
félag Selfoss. Sigurður segir að for-
svarsmenn Ungmennafélags Selfoss
hafi ekki vitað um bréfin fyrr en fyrir
um það bil ári að bréf með tilkynn-
ingu um arðgreiðslu frá Eimskip til
Ungmennafélags Sandvíkurhrepps
var lagt í póstkassa félagsins. Gjald-
kerinn fór með bréfið til oddvita
Sandvíkurhrepps en nefndi það jafn-
framt hvort ungmennafélagið ætti
ekki frekar að fá arðinn.
Málið var aftur tekið upp á dögun-
um eftir að bæjarstjóri skýrði for-
ystumönnum ungmennafélagsins frá
því að hann væri búinn að selja hluta-
bréfin. Bréf var sent til bæjarstjórn-
ar þar sem sjónarmiðum félagsins
var komið á framfæri og spurst fyrir
um verðgildi bréfanna, greiddan arð
og söluverð. Jafnframt var spurt um
heimild til sölunnar. Bæjarstjórn
hefur falið bæjarstjóra að svara er-
indinu í samráði við lögmann.
Sigurður Jónsson segist ekki vita
um neinar heimildir um ráðstöfun
þessara hlutabréfa frá Ungmennafé-
lagi Sandvíkurhrepps og telur rétt að
söluverð þeirra gangi til að efla það
starf á félagssvæðinu sem félagið var
upphaflega stofnað til að veita. Ung-
mennafélag Selfoss sinni nú því hlut-
verki. Ekki geti talist eðlilegt að and-
virði bréfanna sé ráðstafað til allt
annarra málefna en félagið vann að.
Ekki hefur verið upplýst hvert
verðmæti umræddra hlutabréfa var
við sölu þeirra en heildarsöluverð all-
ra hlutabréfanna var liðlega 3,5 mil-
Ijónir kr. Sigurður segir að ef sölu-
verð hlutabréfanna nemi
umtalsverðri fjárhæð hyggist forysta
félagsins leggja til að fjármununum
verði varið til að stofna sjóð til að
styrkja sérstök verkefni á sviði ung-
mennafélagsstarfs á svæðinu.