Morgunblaðið - 25.02.2000, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Afkoma Búnaðarbankans 1999 sú besta í sögu bankans
Hagnaðurinn 1,7
milljarðar króna
fyrir skatta
METHAGNAÐUR varð af rekstri
Búnaðarbankans á árinu 1999 og
nam hagnaður fyrir skatta 1.704
milljónum króna, en að teknu tilliti
til reiknaðra skatta var hagnaður
1.221 m.kr. Reiknaðir skattar voru
483 m.kr. en fullir skattar eru
reiknaðir á bankann þar sem ávallt
hefur verið hagnaður af rekstri
hans. Árið 1998 var hagnaður af
reglulegri starfsemi fyrir skatta
876 mkr., en 649 mkr. eftir skatta.
Aukning hagnaðar fyrir skatta
milli ára var því 95%.
í tilkynningu frá Búnaðarbank-
anum kemur fram að raunarðsemi
eigin fjár bankans var 28%, en 20%
að teknu tilliti til reiknaðs tekju-
og eignarskatts og hefur hún aldrei
verið hærri í sögu bankans. „Þessi
rekstrarniðurstaða endurspeglar
traustan rekstur bankans. Góða af-
komu ársins má fyrst og fremst
rekja til aukinna umsvifa og hag-
stæðra ytri skilyrða. Einkum hefur
umfang fyrirtækjaviðskipta og
verðbréfaþjónustu við stærri aðila
aukist verulega og hafa mörg sterk
fyrirtæki bæst í viðskiptamanna-
hóp bankans á árinu,“ segir í til-
kynningunni.
Munar mest um auknar tekjur
af verðbrófaviðskiptum
Hreinar vaxtatekjur, þ.e. vaxta-
tekjur að frádregnum vaxtagjöld-
um, námu 3.469 m.kr. og hækkuðu
um 19% milli ára. Vaxtamunur, þ.e.
hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af
meðalstöðu heildarfjármagns,
lækkaði og var 3,37% til saman-
burðar við 3,73% á árinu 1998.
Vaxtamunur hefur þá lækkað um
1,28 prósentustig á 3 árum, en
vaxtamunur var 4,65% á árinu
1996. Á sama tíma hafa hreinar
vaxtatekjur hins vegar aukist um
46%, vegna mikillar umsvifaaukn-
ingar bankans og aukinnar fram-
leiðni, en heildarfjármagn á stöðu-
gildi hefur hækkað frá því að vera
105 milljónir króna 1996 í 191
milljón 1999.
Aðrar rekstrartekjur bankans
námu 3.146 milljónum króna og
hækkuðu um 1.116 milljónir milli
ára, eða 55%. Hækkun rekstrar-
tekna skiptist nokkurn veginn
jafnt milli aukinna þóknunartekna
og meiri gengishagnaðar. Þóknun-
artekjur hækkuðu um 504 m.kr og
gengishagnaður um 612 m.kr.
Aukning varð á öllum helstu tekju-
stofnum, en mest munaði um aukn-
ar tekjur af verðbréfasviðskiptum.
Hreinar rekstrartekjur Búnað-
arbankans voru 6.615 milljónir
króna og jukust um 1.676 milljónir
króna, eða 34%. Rekstrargjöld
hækkuðu hlutfailslega minna eða
um 20% og námú alls 4.065milljón-
um króna, til samanburðar við
3.385milljónir árið áður.
„Rekstrarkostnaður sem hlutfall
af tekjum lækkaði því talsvert milli
ára og var 61,4% af tekjum, til
samanburðar við 68,5% af tekjum
1997. Þetta mun vera lægsta hlut-
fall kostnaðar af tekjum sem inn-
lendur viðskiptabanki hefur náð og
endurspeglar aukna hagkvæmni í
rekstri bankans. Stöðugildi við
bankastörf voru 617 í árslok," segir
í tilkynningu bankans.
Heildareignir bankans
117,7 milljarðar
Alls voru færðar 846 milljónir
króna á afskriftareikning útlána,
þar af 205 milljónir sem almennt
varúðarframlag vegna mikillar
stækkunar bankans. Sem hlutfall
af meðalstöðu efnahagsreiknings
var framlagið 0,82%. Búnaðar-
bankinn á nú í sjóði 1.825 milljónir
króna til að mæta mögulegum út-
lánatöpum á næstu árum.
Niðurstöðutala efnahagsreikn-
ings var 117,7 milljarðar, en var
88,5 milljarðar í árslok 1998. Þetta
er 33% stækkun og hefur heildar-
fjármagn bankans þá aukist um
117% á síðustu þremur árum, eða
um 63,5 milljarða. I tilkynningu
bankans segir að þessi mikla
stækkun endurspegli verulega
aukin umsvif á öllum sviðum og
aukna markaðshlutdeild bankans.
Útlán í árslok 1999 voru 81
milljarður og hækkuðu um 16,6
milljarða á árinu. Hlutfallslega
varð mesta aukningin í erlendum
endurlánum til fyrirtækja. Segir í
tilkynningunni að mikil aukning er-
lendra endurlána endurspegli þann
mikla mun sem er á milli innlendra
og erlendra vaxta. Hlutdeild Bún-
aðarbankans í útlánum banka og
sparisjóða var 21% í árslok 1999.
Innlán í árslok 1999 voru 61
milljarður og hækkuðu um rúm
33% á árinu, eða 15,2 milljarða.
Hlutdeild Búnaðarbankans í inn-
lánum banka og sparisjóða, skv.
bráðabirgðatölum, var um 23% í
árslok 1999.
Eigið fé í árslok nam 7.072 m.kr.
og útgáfa víkjandi lána 2.119 m.kr.
Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-
reglum var 9,1% í árslok.
Áhersla á verðbrófaviðskipti og
þjónustu í gegnum Netið
í tilkynningu Búnaðarbankans
segir að með aukinni tæknivæð-
ingu, framþróun á fjármálamarkaði
og í íslensku atvinnulífí almennt, sé
starfsemi bankans að breytast. Al-
menn bankaviðskipti séu að færast
yfir á Netið og hvers konar sjálf-
virkni og sjálfsafgreiðsla hafi auk-
Búnaðarbanki Islands
Úr reikningum 1999
Úrrekstrí T999 1998 Breyting
Vaxtatekjur Milljónir króna 9.345 6.578 +42%
Vaxtagjöld 5.876 3.669 +60%
Hreinar vaxtatekjur 3.469 2.909 +19%
Aðrar rekstrartekjur 3.146 2.030 +55%
Hreinar rekstrartekjur 6.615 | 4.939 +34%
Önnur rekstrargjöld 4.065 3.385 +20%
Framlög í afskriftareikning 846 678 +25%
~ Hagnaður fyrir skatta 1.704 876 +95%
Skattar 483 227 +113%
Hagnaður tfmabilsins 1.221 649 +00%
Efnahagsreikn. 1999 1998 Breyting
| Eignir: | Milljónir króna 31. des. 31. des.
Eignir ails 117.659 88.537 +33%
| Skuldir og eigið fé: |
Skuldir og skuldbindingar 110.587 82.399 +34%
Eigið fá 7.072 6.138 +15%
Skuldir og eigið fá samtals 117.659 88.537 +33% —
ist hröðum skrefum. Samhliða
þessu er áherslan í starfsemi úti-
búa að færast yfir í alhliða fjár-
málaráðgjöf.
„Vægi verðbréfaviðskipta og yf-
irgripsmikilla lánasamninga við
fyrirtæki vex og breytingar á starf-
semi Búnaðarbankans hafa ein-
kennst af þessu. Megináherslan
hefur verið lögð á að byggja upp
sterk verðbréfa- og fyrirtækjasvið
innan bankans, jafnframt því að
laga starfsemi útibúa og einstakl-
ingsþjónustu að þessum breyting-
um,“ segir í tilkynningunni.
Áðalfundur Búnaðarbankans
verður haldinn laugardaginn 11.
mars nk. á Hótel Sögu og hefst kl.
14:00. Þar mun bankaráð Búnaðar-
bankans gera tillögu um að greidd-
ur verði 410 milljóna króna arður,
eða sem nemur 10% af nafnverði
hlutafjár. Hluthafar í bankanum
eru nú 33.300.
Mjög traust
og góð afkoma
Jafet Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfastofunnar hf., segir
afkomu Búnaðarbankans yfirhöfuð
mjög trausta og góða og upp úr
standi mjög góð arðsemi af eiginfé
bankans, eða 20%. Þá sé það líka
ánægjulegt að tekist hafi að lækka
kostnaðarhlutfall bankans.
„Það varð nokkurt uppistand hjá
bankanum vegna þess að hann kom
seint og um síðir með hagnaðar-
viðvörun og aðalbankastjórinn
sagði að hagnaðurinn yrði umfram
10%. Þeir áætluðu hagnaðinn einn
milljarð í útboðslýsingu bankans,
en hann er 22% hærri, og því er
þarna viss skekkja,“ sagði Jafet.
„Kostnaðarhlutfall íslenskra banka
hefur verið allt of hátt í saman-
burði við erlenda banka þar sem
við erum að sjá kostnaðarhlutfall í
kringum 40%, en hér hafa bank-
arnir legið á bilinu 65-70%. Búnað-
arbankinn nær kostnaðarhlutfall-
inu niður í 61,4% og það er mjög
gott því það er ekki einungis nóg
að auka tekjurnar. Þær koma þeg-
ar vel gengur og á móti þurfa menn
að vera á kostnaðarbremsunni og
mér sýnist Búnaðarbankinn hafa
verið það.“
AÐALFUNDARBOÐ
Aðalfundur Hans Petersen hf. verður haldinn föstudaginn 10. mars
2000 í Þingsal I, Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 16:00
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 3.6 grein samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á aðalfundi, skulu vera komnar
í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyriraðalfund.
Stjórn Hans Petersen hf.
HANsFtitRm
Suðurlandsbraut 4 ■ Sími 570 7500 ■ Fax 570 7510 ■ www.hanspetersen.is
Olíufélagið hlaut
EDI-bikarinn
OLÍUFÉLAGIÐ hf. Essó hlaut í
gær EDI-bikarinn, sem veittur er
því fyrirtæki sem þykir hafa skarað
fram úr á sviði rafrænna viðskipta á
liðnu ári. Heimir Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri upplýsinga- og mark-
aðssviðs þjónustustöðva hjá Essó,
tók við bikarnum úr hendi Krist-
mundar Halldórssonar, deildar-
stjóra hjá viðskiptaráðuneytinu,
sem sá um afhendingu bikarsins í
fjarveru Valgerðar Sverrisdóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
I ávarpi ráðherra sagði meðal
annars að „enginn vafi er á að raf-
ræn viðskipti eru á góðri leið með
að bylta hefðbundnum viðskipta-
háttum. Viðteknar viðskiptavenjur
breytast, milliliðum fækkar, við-
skiptakostnaður minnkar, nánara
samband ríkir milli fyrírtækja og
neytenda, og nýir markaðir og vör-
ur spretta upp“. Þar sagði einnig að
rafræn viðskipti væru talin öflug-
asta uppspretta hagvaxtar í heimin-
um á næstu árum.
Metnaðarfull stefna í
rafrænum viðskiptum
Um verðlaunahafann, Olíufélagið
hf., og forsendur verðlaunaveiting-
arinnar sagði í ávarpi ráðherra að
fyrirtækið hlyti EDI-bikarinn fyrir
„markvissa og árangursríka stefnu
á sviði staðlaðra rafrænna við-
skipta. Er það álit dómnefndarinn-
Morgunblaðið/Þorkell
ar að Olíufélagið hf. sýni metnaðar-
fulla stefnu í rafrænum viðskiptum
og frumkvæði til að hagnýta sér
lausnir sem falla innan ramma
staðlaðra rafrænna viðskipta."
Heimir Sigurðsson frá Olíufélag-
inu hf. sagði meðal annars þegar
hann tók við EDI-bikarnum fyrir
hönd fyrirtækisins að á tveimur síð-
ustu árum hefði Olíufélagið gert
stórt átak í því að koma umboðs-
mönnum og eigin bensínstöðvum í
beint tölvusamband við höfuðstöðv-
ar fiélagsins. Hann sagði einnig að
færslum þar sem beitt er rafrænum
viðskiptum hafi fjölgað mjög á sein-
ustu tveimur árum, sem hefði leitt
af sér mikið hagræði. „Rafrænar
færslur eru stór þáttur í hagræð-
ingu fyrirtækja," sagði Heimir.