Morgunblaðið - 25.02.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000 4$
UMRÆÐAN
Þegar glans-
myndin hrynur
HVERNIG má það
vera að mannréttindi
eru brotin á íslensku
þjóðinni aftur og aftur
án þess að þjóðin rísi
upp til að andmæla og
jafnvel snýst gegn
þeim sem vilja stöðva
ófögnuðinn? Engu
lýðræðisríki hefur
dottið til hugar að
koma á gjafakvóta-
kerfi að íslenskri fyr-
irmynd þrátt fyrir frá-
leitar fullyrðingar
kvótagreifanna og
spilltra stjórnvalda
um hagvæmni kerfis-
ins. Þrátt fyrir að öll-
um sé ljós stórkostlegur þjófnaður
á eigum almennings sem fólginn er
í gjafakvótakerfinu eru þeir stjórn-
málamenn sem ábyrgðina bera
kosnir aftur og aftur.
Ekkert vestrænt ríki hefur held-
ur samþykkt lög um gagnagrunn á
heilbrigðissviði með þeim hætti
sem hér hefur verið gert. Hvað þá
að gefa einu fyrirtæki einokun á
honum til 12 ára. Ég fullyrði að
ekkert lýðfrjálst ríki muni fram-
kvæma slíka firru. Við erum fræg
að endemum fyrir þessa hrákasmíð
meðal siðmenntaðra fagmanna.
Það er ótrúlega barnalegt að
ímynda sér að engum hafi komið til
hugar í útlandinu að gera eitthvað í
þessa veru. Munurinn er aðeins sá
að slíkt getur ekki gerst þar sem
lýðræði ríkir og réttur einstakl-
ingsins er virtur. Lýðræðisríkin
hafa fyrir löngu uppgötvað að
þannig vegnar samfélaginu best.
Kommúnisminn og fasisminn voru
tilraunir til að fá fram ímyndaða
hagsmuni með því að fórna rétti
einstaklingsins. Stjórnarmeirihlut-
inn íslenski virðist ekki telja slíka
tilraun fullreynda. Hann ætti að
rifja upp orð Jeffersons:
„Sá sem fórnar frelsinu fyrir
þægindi á hvorugt skilið, þægindin
eða frelsið.“
Ég fullyrði að gagnagrunnurinn
mun ekki standast þau málaferli
sem í vændum eru, hvort sem end-
anlegur dómur mun falla í Hæsta-
rétti íslands eða fyrir mannrétt-
indadómstólum erlendis. Þá verður
fróðlegt fyrir almenning þessa
lands en jafnframt óskemmtilegt
fyrir okkar sameiginlega sjóð að
uppgötva að fyrirvari íslenskra
stjórnvalda í starfssamningi við Is-
lenska erfðagreiningu heldur ekki.
Þessi fyrirvari er sá að íslenska
ríkið beri ekki ábyrgð á því ef lög
um miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði standast ekki! - Eins-
dæmi hlýtur að vera að ríkisstjórn
neiti að bera ábyrgð á lögum, sem
hún hefur sjálf beitt sér fyrir. En
hvað þýðir þetta?
Þetta þýðir einfaldlega að þegar
fjárfestar úti um allan heim upp-
götva að þeir hafa verið ginntir
með glansmynd sem stenst ekki
munu þeir krefjast skaðabóta.
Þessar kröfur munu snúa að ís-
lenska ríkinu sem ábyrgð ber á
þessum fráleitu lögum sem ís-
lenska vísindasiðanefndin hafnaði
af því að þau standast engar sið-
ferðilegar viðmiðanir, né Evrópu-
lögin sem við höfum
skuldbundið okkur til
að hlíta.
Við blasir að þeir
sem voru ginntir til að
fjárfesta í glansmynd-
inni geta sennilega
sótt skaðabætur fyrir
tugi milljarða króna í
vasa íslenskra skatt-
borgara þrátt fyrir
grátbroslegan fyrir-
vara stjórnvalda þeg-
ar gagnagrunnurinn
hefur verið dæmdur af
í núverandi mynd. Þá
verður fólk að muna
að ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar og meiri-
hluti Alþingis ber ábyrgð á ólögun-
um.
Heilbrigðisráðherra verður þá
sennilega ekki jafn stoltur af því að
hafa rekið vísindasiðanefndina sem
skipuð var mætum fulltrúum ým-
issa þjóðfélagshópa, til þess að
mynda nýja „vísindasiðanefnd",
sem er aulalegur brandari enda að-
eins skipuð pólitískum jábræðrum
framsóknarmennskunnar (þar er
höfuðpaurinn Davíð Oddsson eins
og Hannes Hólmsteinn hefur rétti-
lega bent á).
Réttlát gjaldtaka vill hrista svo
upp í umræðunni að fólki skilji að
gagnagrunnslögin eru alvarlegt
mannréttindabrot. Þjóðin er nán-
ast tekin frillutaki og sett í gagna-
grunninn í trausti þess að hún uggi
ekki að sér. Við höfum ekkert á
móti gagnagrunni á heilbrigðissviði
ef það er gert með réttum hætti
t.d. samkvæmt Helsinki-sáttmála
alþjóðlegu læknasamtakanna. Þar
er gert ráð fyrir að fólk gefi sam-
þykki sitt fyrir þátttöku í vísinda-
rannsóknum eftir að því hefur ver-
Mannréttindi
Við hvetjum fólk til
að segja sig úr gagna-
grunninum, segir
Valdimar Jóhannesson,
en gefa jafnframt
Jóni Magnússyni hrl.
umboð til að semja fyrir
--------------7--------
þess hönd við Islenska
erfðagreiningu.
ið gerð grein fyrir áhættu sem því
er samfara. Það heitir upplýst sam-
þykki.
Við hvetjum fólk til að segja sig
úr gagnagrunninum en gefa jafn-
framt Jóni Magnússyni hrl. umboð
til að semja fyrir þess hönd við ís-
lenska erfðagreiningu um réttlátt
gjald fyrir að segja sig inn í gagna-
grunninn aftur. Jóni Magnússyni
er ekki veitt opið umboð heldur
tæki fólk endanlega afstöðu til
málsins þegar ljóst lægi fyi-ir til
hvers á að nota upplýsingarnar um
það og hvort hugsanleg greiðsla sé
áhættunnar virði. Samþykki á þeim
grundvelli væri upplýst samþykki.
Ég hvet alla hugsandi menn til að
láta ekki illmælgi og útúrsnúninga
hafa áhrif á afstöðu sína og skoða
heimasíður Réttlátrar gjaldtöku og
Mannverndar: www.rg.is og
www.mannvernd.is.
Höfundur er talsmaður Rcttlátrar
gjaldtöku.
Kynning í dag, fdstudag og laugardag.
Verðsprengja á miðjum vetri.
Polar Beauty tilboð: Taska, Power A 50 ml krem,
Glycolic lotion 15 ml, hreinsir 5 ml, varalitur,
Spect. fárði 10 ml og húðmjólk 30 ml.
Vara að verðmæti kr. 8.400,
tilboðsverð nú kr. 5.400.
Einnig tilboð á Night Sculptor 50 ml kremi
og Face Sculptor serumi og kremi.
<753iO
H Y G E A
an-yrtivöru verjlun
Laugavegi 23, sími 511 4533
Valdimar
Jóhannesson
Dagarnir verða bjartari með vor- og
sumarlitunum fró LANCÖME
Kynning í dag og á morgun, laugardag
Stórglæsiieg taska fyrir förðunarvörur
og snyrtibudda fylgja kaupum
(ivmv'D
H Y G E A
d ny rtivö ruverj iu n
Kringlunni, sími 533 4533
AÐALFUNDUR
JARÐBORANA HF.
Aðalfundur Jarðborana hf. verður haldinn
fimmtudaginn 9. mars 2000
í Þingsal A, á Radisson SAS Saga Hótel og hefst kl. 16.00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstöif skv. gr. 45 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa
hluti ífélaginu skv. 55. gr. hlutafjárlaga nr. 211995.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu _ ^
vera komnar skriflega í hendur stjómarinnar eigi síðar en 7
dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, 7
dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
skrifstofu félagsins að Skipholti 50 d, 4. hæð, frá og með
2. mars 2000, og á fundarstað við upphaf aðalfundar.
Stjóm Jarðborana hf.
-3
#//# I
JARÐBORANIR HF
SKIPHOLTI 50 d, SÍMI 511 3800, BRÉFSÍMI 51 1 3801