Morgunblaðið - 25.02.2000, Page 50
5f) FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sig’urför
Islendinga
Ungir íslenskir dansarar hafa náð góðum
árangri á dansmótum erlendis á síðustu ár-
um. Aðalheiður Karlsdóttir og Sigrún
^Cjartansdóttir voru á meðal áhorfenda á al-
þjóðlegu móti í Kaupmannahöfn um síðustu
helgi sem var engin undantekning.
ÍSLENSKIR dansarar stóðu sig ein-
staklega vel í mikilli alþjóðlegri dans-
keppni sem haldin var í Kaupmanna-
höfn um síðustu helgi. Keppni þessi
var nú haldin í 22. skiptið og voru
keppendur á aldrinum átta ára til
sextugs.
Styrkleiki keppenda hefur farið
mjög vaxandi á síðustu 10 árum með
aukinni þátttöku Austur-Evrópuþjóð-
anna. Þrátt íyrir það náðu þátttak-
■>
endur frá íslandi glæsilegum árangri
og náði sigurförin hámarki á laugar-
dagskvöldið þegar ísak Nguyen Hall-
dórsson og Helga Dögg Helgadóttir
stigu upp á verðlaunapallinn og tóku
við fyrstu verðlaunum fyrir suður-
ameríska dansa í flokki ungmenna.
Keppnin hófst með keppni bama
8-9 ára. í þeim aldursflokki kepptu 16
pör í sígildu dönsunum á föstudegin-
um og 14 pör í þeim suður-amerísku á
Morgunblaðið/Sigrún Kjartansdóttir
Yngstu keppendurnir stóðu sig vel. Öll pörin voru glæsilegir fulltrúar yngstu danskynsldðarinnar á íslandi.
laugardeginum. Keppendur voru frá
6 löndum, þar af 4 íslensk pör. Það
voru Aðalsteinn Kjartansson og Lilja
Rut Jónsdóttir, Kvistum, Haukur
Freyr Hafsteinsson og Hanna Rún
Óladóttir, Hvönn, Jón Trausti Guð-
Leynist
blaðburðarpoki heima
hjá þér? #
Þeir blaðberar, fyrrverandi og núverandi, sem eru með
blaðburðarpoka en þurfa ekki á þeim að halda við
blaðburð, vinsamlegast komi þeim til áskriftardeildar
Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Móttakan
er opin virka daga milli klukkan 9 og 17.
Ef þið hafið ekki tök á að skila þeim, hafið þá samband
við áskriftardeild í síma 569 1122 og við sækjum þá.
ÁSKRIFTARDEILD
Sími 569 1122/800 6122 • Bréfasími 569 1115« Netfang askrift@mbl.is
mundsson og Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, Hvönn, og Karl Bemburg og
Helga Soffía Guðjónsdóttir, Kvist-
um.
Öll pörin vora glæsilegir fulltrúar
yngstu danskynslóðarinnar á Isl-
andi og bára sig vel á gólfinu. Karl
og Helga Soffía komust í und-
anúrslit í báðum greinum,
náðu 9. sæti í sígildu
dönsunum og 8.-9.
sæti í þeim suður-
amerísku, Aðal-
steinn og Lilja Rut
komust í undanúrslit í
suður-amerískum döns-
um þar sem þau höfn-
uðu í 10.—11. sæti. Þau
Haukur Freyr og Hanna
Rún komust í úrslit í báðum
greinum þar sem þau náðu 2. sæti í
sígildum dönsum og 3. sæti í suður-
amerískum dönsum. Haukur Freyr
og Hanna Rún hafa verið sigur-
sæl í gegnum tíðina. Þau komu
vel undirbúin fyrir keppnina og
dönsuðu af miklu öryggi þó
ung séu að áram.
Dansað af innlifun
Böm II, 10-11 ára, hófu keppni á
laugardeginum í sígildum dönsum. 36
pör vora skráð til keppni, þar af 6 ís-
lensk. Það vora: Amar Georgsson og
Tinna Rut Pétursdóttir, Gulltoppi,
Bjöm Ingi Pálsson og Ásta Björg
Magnúsdóttir, Kvistum, Eyþór Smári
Þorbjömsson og Erla Björg Krist-
jánsdóttir, Kvistum, Jónatan Amar
Örlygsson og Hólmfríður Bjömsdótt-
ir, Gulltoppi, Stefán Claessen og Ma-
ría Carrasco, Gulltoppi, og Þorleifur
Einarsson og Ásta Bjamadóttir, Gull-
toppi.
Öll íslensku pörin dönsuðu mjög vel
og komust þau öll áfram í 24 para úr-
slit og tvö af þeim alla leið í úrslit. Það
vora þau Jónatan Amar og Hólmfríð-
ur sem náðu 2. sætinu og Þorleifur og
Ásta sem höfnuðu í því þriðja. Bæði
pörin dönsuðu mjög vel enda era þau
meðal sterkustu dansara landsins i
sínum aldursflokki. Islensku pörin
hafa tekið miklum framföram í sígildu
dönsunum en sú grein hefur verið
veikari hjá íslensku pöranum undan-
farin ár.
Á sunnudeginum keppti hópurinn
svo í suður-amerískum dönsum. Þrjú
af pörunum komust áfram í 24. para
úrslit og tvö síðan áfram í undanúr-
slit. Jónatan Amar og Hólmfríður
höfnuðu í 7. sæti og Þorleifur og Ásta,
sem dönsuðu af miklum krafti og inn-
lifún, komust alla leið í úrslit og náðu
4. sætinu.
Frábær árangur það!
Unglingar I, 12-13 ára, hófu
keppni á föstudeginum með sígildum
dönsum. Til keppni voru skráð 45 pör,
þar af 5 frá Islandi. Það vora þau
Agnar Sigurðsson og Elín Dröfn
Einarsdóttir, Gulltoppi, Bjöm Vignir
Magnússon og Hjördís Ósp Ottós-
dóttir, Kvistum, Friðrik Ámason og
Sandra Júlía Bemburg, Gulltoppi,
Hrafn Hjartarson og Helga Bjöms-
dóttir, Kvistum, og Sigurður R. Am-
arson og Sandra Espersen, Hvönn
Tvö þeirra, þau Ágnar og Elín og
Hrafn og Helga, komust áfram inn í
24 para úrslit og þau síðamefndu alla
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Haukur Freyr Hafsteinsson og
Hanna Rún Oladóttir dönsuðu af
miklu öryggi.
leið i undanúrslit, þar sem þau höfn-
uðu í 11. sæti. í suður-amerísku döns-
unum vora það einungis Hrafn og
Helga sem komust áfram í aðra um-
ferð og áfram í undanúrslit þar sem
þau deildu 8.-10. sætinu með tveimur
öðram pöram. Helga og Hrafn era
ákaflega glæsilegt par á gólfinu og
vekja athygli hvar sem þau dansa.
Hart barist
í flokki unglinga II
Flokkur ungmenna II var mjög
sterkur að þessu sinni bæði í suður-
amerískum dönsum og sígildum sam-
kvæmdisdönsum. Á föstudeginum
var keppt í suður-amerískum dönsum
og vora 46_pör skráð til keppni, þar af
Qögur frá Islandi, þau Hilmir Jensson
og Ragnheiður Eiríksdóttir, Gull-
toppi, Davíð Gill Jónsson og Halldóra
Sif Halldórsdóttir, Gulltoppi, Grétar
Bragi Bragason og Harpa Örlygs-
dóttir, Gulltoppi, og Grétar Ali Khan
og Jóhanna Berta Bemburg, Kvist-
um. Hilmir og Ragnheiður, Davíð Gill
og Halldóra Sif og Grétar Ali og Jó-
hanna Berta náðu öll að dansa sig inn
í 26 para úrslit en þar við sat. Sigur-
vegaramir vora heimsmeistaramir
frá Rússlandi, þau Dmitri Matveev og
Anna Bokareva.
Keppt var í sígildum samkvæmis-
dönsum á laugardeginum og voru þá
43 pör skráð til keppni, þar af þijú frá
íslandi, þau Hilmir og Ragnheiður,
Davíð Gill og Halldóra og Grétar Ali
og Jóhanna Berta. Það er skemmst
frá því að segja að Grétar Ali og Jó-
hanna Berta náðu að dansa sig inn í
undanúrslit þar sem þau enduðu í 9.
sæti. Þau voru glæsileg á gólfinu og
hefur farið mikið fram að undanfömu.
Hilmir og Ragnheiður komust áfram í
úrslitin og náðu þar 3. sæti. Þau era
greinilega orðnir mjög reyndir dans-
arar og dönsuðu af miklu öryggi og