Morgunblaðið - 20.04.2000, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
\X\\ WH+H^///
Þrír Svíar úr tveim leiðöngrum
verða sóttir á norðurpólinn í dag
Búnaður Haralds að ge fa sig og nestið uppurið
Fær nýjan búnað
og 30 daga nesti í dag
HARALDUR Öm Ólafsson pólfari
náigast 87. breiddargráðu óðfluga
eftir góða spretti síðustu daga. Und-
anfama viku hefur hann gengið
rúmlega 18 km á dag að meðaltali
og með sama áframhaldi ætti hann
að ná pólnum í kringum 10. maí eins
og stefnt var að.
Haraldur gekk á þriðjudag 22,1
km sem er besti árangur hans frá
upphafí leiðangursins sem hófst fyr-
ir 40 dögum á Ward Hunt-eyju.
Hann hefur lagt að baki 427 km og á
eftir 347 km á pólinn. Hann ienti á
góðri frosinni vök sem lá í norður og
gekk 14 km á henni á þremur og
hálfri klukkustund.
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég
fékk svona gott rennsli beint í norð-
ur,“ sagði Haraldur í gær við bak-
varðasveitina. „Alla norðurpólsfara
dreymir um að Ienda á svona vök,“
bætti hann við. „Þessi vök var kíló-
metri á breidd og lá í norður og ætl-
aði aldrei að enda. Síðar fór færið að
þyngjast og mér miðaði hægar
áfram.“
Gangan ho
10. mars
Haraldur hefur nú lagt að baki
427 km af rúmlega 770 km göngu
á pólinn eftir 40 daga göngu
Morgunblaðið/Kristinn
Gamli lestrarsalurinn í Þjóðmenningarhúsinu nefnist nú Bókastofan og
verður þar sýning um islenska bókmenningu frá upphafi prentaldar.
Þjóðmenningar-
húsið opnað í dag
I dag, skfrdag, flýgur Ingþór
Bjarnason út á ísinn til Haralds og
færir félaga sinum nýjar birgðir,
m.a. sleða Ólafs Amar, föður Har-
alds, sem notaður var í suðurpóls-
leiðangri þeirra feðga ásamt Ing-
þóri fyrir fáeinum árum. Sá sleði er
grynnri en sá sem Haraldur er nú
með og er hentugri við þær aðstæð-
ur sem nú er við að etja. Honum er
síður hætt við að brotna en hefði þó
ekki gagnast á fyrri hluta Ieiðang-
ursins.
Fær 30 daga birgðir
af mat og bensrni
Haraldur fær í dag 30 daga birgð-
ir af mat og bensíni. Upphaflega var
gert ráð fyrir 40 daga birgðum en
Ijóst er að ekki er nauðsyn á því. Að
viðbættum sleðanum fær hann ný
skíði og ýmislegt smálegt sem hefur
gefið sig á langri og strangri ferð. I
samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Ingþór, sem staddur var í Res-
olute, að Haraldur fengi einnig nýja
skó í stað þeirra sem hann er á nú.
Skór Haralds eru orðnir hrörlegir
eftir mikla notkun og nú si'ðast í
fyrradag datt táin af öðrum skónum.
Ingþór hefur dvalið í Resolute
undanfama viku vegna umsýslu við
búnað Haralds. Þá var áætlað að
fljúga til Eureka í gær og gista þar í
nótt sem leið. Þaðan átti að fljúga út
á ísinn snemma í morgun. „Ég
hlakka mikið til að hitta Harald,“
sagði Ingþór. „Ég geri ráð fyrir
u.þ.b. 30 minútna áningu hjá honum,
en hann þarf að skipta um skó og
vera viðbúinn því að láta mig taka
myndir af sér. Hann er sjálfsagt orð-
inn æði vígalegur eftir alla útiver-
una. Farangur hans mun þyngjast
um 35 kg eftir birgðasendinguna og
líklega mun það draga eitthvað úr
hraðanum á næstunni."
Tveir Bretar gáfust upp
Enn berast fregnir af afföllum í
norðurpólsleiðöngrum. Margoft hef-
ur verið minnst á tvo Svía, hvom úr
sínum leiðangrinum, og danska
konu sem öll þurftu að snúa við
vegna skakkafalla, auk eins Breta
að Ingþóri sjálfum ógleymdum. Ný-
lega þurftu tveir breskir leiðangurs-
menn til viðbótar úr fjögurra manna
hópi að snúa við. Að sögn Ingþórs
kól annan þeirra á fingri en hinn
veiktist. Hinir tveir sem eftir em
munu vera um 100 km á eftir Har-
aldi og hafa kvartað talsvert undan
slæmum vökum og íshryggjum.
Að sögn Ingþórs virðist sem Har-
aldur hafi verið mun heppnari með
færi en Bretamir og sömu sögu er
að segja um Svíana tvo sem era rétt
ókomnir á pólinn. Fyrir er Svnnn
Ola Skinnarmo sem komst á pólinn í
siðustu viku.
Páskaegg til pólfarans
Haraldur mun halda kyrra fyrir í
dag, skírdag, enda er hann orðinn
svo gott sem uppiskroppa með nesti
og þarf aukinheldur að bíða flugvél-
arinnar, sem reiðir sig á að vita stað-
arákvörðun hans með góðum fyrir-
vara.
I gær beið Haralds það verkeftii
að fínna flugbraut fyrir Twin Otter-
skíðaflugvélina á göngu sinni. „Ég
get ekkert gengið á morgun [í dag
Fjolbreytt urval
korta f kortadeild
Eymundsson
w Fvnumdsson
Kringtunni • sími: 533 1130 * fax: 533 1131
fimmtudag] því ég hef engan mat til
dagsins og auk þess er ekki ráðlegt
að færa sig til á meðan flugvélin er i'
loftinu því þá gæti orðið erfiðara að
finna mig en ella.“
Vélin lendfr klukkan 17 að ís-
Ienskum tíma hjá Haraldi og enda
þótt hún þurfi ekki nema 300 metra
langa flugbraut var Haraldur engu
að síður nokkuð efins um að hann
fyndi hentuga braut með lítilli fyrir-
höfn. „Ég hef mjög sjaldan fúndið al-
mennilegar flugbrautir á i'snum og
því veitir ekki af að finna eina góða í
dag [í gær miðvikudag]," sagði hann
og bætti við að hannhlakkaði mikið
til að fá birgðirnar. í þeim leynist
páskaegg og ýmisskonar annar
vamingur sem ætlað er að lífga upp
á tilveru Haralds.
Um páskahelgina verður dagleg
umljöllun um norðurpólsleiðangur-
inn á fréttavef Morgunblaðsins
mbl.is.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ verð-
ur formlega opnað í dag við hátíðlega
athöfn. Húsið verður opinbert sýn-
ingar- og fundarhús, vettvangur
kynningar á íslenskri sögu og menn-
ingararfi. í húsinu verða tíu fastar
sýningar sem tengjast sögu Islands
og menningu, til dæmis á íslenskri
bókmenningu frá upphafi prent-
aldar. Einnig verða tvær breytilegar
sýningar í húsinu. I dag verður sýn-
ingin Landafundir og ragnarök opn-
uð. Sýningin er samstarfsverkefni
við Landafundanefnd og fjallar um
landafundi og siglingar Islendinga á
miðöldum með áherslu á fund Græn-
lands og Vínlands.
Fundaraðstaða verður leigð út í
húsinu en þar er einnig veitingastofa
og verslun með bækur og listmuni.
Húsið hefur verið endurnýjað að
utan og innan en það var byggt að
tilstuðlan Hannesar Hafstein ráð-
herra á áranum 1906 til 1908. Áður
hýsti það Landsbókasafnið, Þjóð-
skjalasafnið, Þjóðminjasafnið og
Náttúrugripasafnið og gekk lengst
af undir nafninu Safnahúsið.
Ávörp og ræður við opnunina
flytja Salome Þorkelsdóttir, formað-
ur stjórnar hússins, Björn Bjama-
son menntamálaráðherra, Guð-
mundur Magnússon, forstöðumaður
hússins, og Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra sem lýsa mun opnun húss-
ins. Athöfnin fer fram í gamla hand-
ritasalnum á 1. hæð hússins. Að
henni lokinni mun forsætisráðherra
afhjúpa marmaraskjöld í anddyrinu.
Athöfnin hefst kl. 14 en Þjóð-
menningarhúsið verður opnað al-
menningi kl. 17 og verður opið til kl.
20 að þessu sinni. Síðan er opið á
milli kl. 11 og 17 laugardaginn 22.
apríl og mánudaginn 24. apríl og síð-
an alla daga á milli kl. 11 og 17.
Fylgst verður með opnun Þjóð-
menningarhússins á mbl.is í dag.
Millilandaflug ódýr-
ara en innanlandsflug
MEÐ tilkomu lágfargjaldaflugfé-
lagsins Go á íslenskan flugmarkað
milli landa er nú boðið upp á ódýrara
flug tO London en boðið er upp á til
helstu áfangastaða í innanlandsflugi
hérlendis. Go-flugfélagið mun bjóða
ferðir fram og til baka frá London á
10.000 krónur með sköttum, á meðan
almennt fargjald til EgOsstaða og
Homarfjarðar kostar rúmar 16.000
krónur og rúmar 14.000 krónur til
Isafjarðar.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands, segir að
ekki sé hægt að bera saman verð í
innanlandsflugi við tilboð flugfélags-
ins Go, og að innanlandsflug hérlend-
is sé mun ódýrara heldur en t.d. í
Noregi og í Bretlandi.
Að sögn Jóns Karls er það al-
menna fargjald sem mest er notað,
t.d. til ísafjarðar, í kringum tíu þús-
und krónur einnig og að meðalflug-
fargjald sem flestir greiði í innanlan-
dsflugi sé í kringum 10-11 þúsund kr.
„Menn verða síðan að athuga að
þegar flugfélagið Go býður nokkur
sæti á 10 þúsund krónur, þá eru þeir
að selja fargjöld frá 10 þúsund upp í
24 þúsund krónur, eftir því hvaða
skilmála þeir era með. Þannig að tíu
þúsund króna flugfargjaldið sem
þeir era með, er kannski sambæri-
legt við átta þúsund króna tilboð hjá
okkur í sérfargjöldum. Þeirra upp-
setning byggist síðan á því að fylla
vélina, vera með nógu mikla nýtingu,
og það er eitt af vandamálum innan-
landsflugsins, að nýtingin hjá okkur
er ekki nægilega mikil, og liggur ein-
hvers staðar í kringum 65%. Ef við
gætum verið með um 80% nýtingu að
meðaltali, þá væri afkoman hjá okk-
ur betri.“
Hann bendir á að það sé önnur
hugsun á bak við lágfargjaldafélögin,
sem hafa engar söluskrifstofur og
litla sem enga þjónustu. „Þannig að
bera þetta saman er svolítið eins og
að bera saman epli og appelsínu og fá
út banana, því þetta er önnur tegund
af ílugfélögum."
Stefnt að lækkun kostnaðar
með þjónustu á Netinu
Jón Karl segir jafnframt að miðað
við t.d. innanlandsflug í Noregi og í
Bretlandi séu flugfargjöld miklu
ódýrari hérlendis. I innanlandsflugi
hérlendis sé einnig erfiður vandi við
að glíma við, en það er veðurfarslegi
þátturinn. Að sögn Jóns Karls fylgir
því mikill kostnaður að fella niður
160-170 ferðir á ári og það sé erfitt að
ráða við. Markaðurinn sé því erfiður
og t.d. hafi þessi vetur verið sérstak-
lega þungur í skauti.
Hann segist sjá fyrir sér svipaða
þróun varðandi sölumál og þjónustu
hjá Flugfélagi íslands í framtíðinni
og lágfargjaldafélögin byggja á. Fé-
lagið hefur þá stefnu að fara meira
inn á Netið með þjónustuna og selja
þá meira beint og vera með svipað
kerfi og lágfargjaldaflugfélög.
„Og það mun nú vonandi lækka
kostnaðinn hjá okkur þegar til lengri
tíma er litið, þ.á m. dreifikostnað og
kostnað sem við höfum í dag í formi
skrifstofa og þessháttar."
Margir vinna að
rannsókn
LÖGREGLAN í Keflavík vinnur
stöðugt að rannsókn á morðinu á
19 ára stúlku aðfaranótt síðastlið-
ins laugardags. Ungur maður hef-
ur verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 15. júní vegna málsins.
Þórður Maronsson, yfirlögreglu-
þjónn í Keflavík, segir stöðugt unn-
ið að rannsókninni, allar manna-
í Keflavík
ferðir og samskipti þeirra sem
voru hugsanlega í íbúðinni um
nóttina könnuð rækilega og hvað-
eina annað sem skipta kunni máli
til að varpa megi ljósi á atburða-
rásina. Hann segir enn ekkert nýtt
hafa komið fram við rannsóknina
en hún sé margþætt og margir lög-
reglumenn vinni að henni.