Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Rannsókn Bandaríska loftferðaeftirlitsins á stýrisbúnaði Boeing 737-þotna
Leggja til breytingar
á hliðarstvri vélanna
The Washington Post.
SÉRFRÆÐINGANEFND á vegum
Bandaríska loftferðaeftirlitsins
(FAA) hyggst leggja til að breyting-
ar verði gerðar á stýrisbúnaði
Boeing 737-farþegaþotna, eftir að ít-
arlegar prófanir hafa gefið til kynna-
hættu á alvarlegum bilunum í búnað-
inum. Starfsmenn FAA hafa þó lagt
áherslu á að ekki sé ástæða til að fyr-
irskipa tafarlausar breytingar á
stýrisbúnaði Boeing 737-þotna og því
síður að banna notkun þeirra. Þeir
undirstrika að mjög litlar líkur séu á
því að umræddar bilanir komi upp.
Framleiðsla Boeing 737 hófst árið
1965 og eru fleiri farþegaþotur af
þessari tegund í notkun í heiminum
en af nokkurri annarri um þessar
mundir. Meira en 3.600 slíkar þotur
hafa verið framleiddar frá upphafi og
nemur samanlagður flug-
tími þeirra nú meira en 100
milljón klukkustundum.
Boeing 737 er talin vera ein
öruggasta farþegaþota sem
flogið er og er öryggissaga
tegundarinnar sögð með því
besta sem þekkist. Á undan-
fömum ámm hafa þó komið
upp margvíslegar bilanir í
stýrisbúnaði 737-þotna og
hafa þær leitt til ítarlegra
rannsókna á honum.
Komið hefur í ljós að bil-
anahætta er sérstaklega
tengd hliðarstýri á stéli.
Hliðarstýri liggur lóðrétt
aftan á stéli og hefur m.a.
það hlutverk að auðvelda
beygjur og að halda stefnu
vélarinnar stöðugri. Ef ann-
ar af tveimur þotuhreyfium
Boeing 737 bilar af ein-
hverjum ástæðum í flugi
gerir hliðarstýri flugmanni
kleift að fljúga þotunni og
lenda henni klakklaust.
OIli óþekkt bilun flugslysum?
Nýlega skipaði Bandaríska loft-
ferðaeftirlitið sérstaka rannsóknar-
nefnd til að gera enn viðameiri rann-
sóknir á hliðarstýrisbúnaði Boeing
737-farþegaþotna en gerðar hafa
verið fram til þessa. Ástæðan íyrir
skipun nefndarinnar er að enn eru
nokkur tilvik óútskýrð þar sem grun-
ur leikur á að bilun hafi orðið í hliðar-
stýrisbúnaði. Ýmislegt þykir benda
til þess að slík bilun hafi valdið
tveimur mannskæðum flugslysum í
Bandaríkjunum árið 1991 og 1994. í
fyrra tilvikinu létust 25 manns þegar
Boeing 737-þota fórst nálægt Col-
orado Springs en í síðara tilvikinu
hrapaði önnur slík þota með 137
manns innanborðs í grennd við Pitts-
burg.
Engar skýringar hafa fundist á
þessum flugslysum en atvik sem átti
sér stað í febrúar á síðasta ári studdi
grunsemdir um að bilun í hliðarstýri
hefði grandað þotunum. Þá varð
flugmaður Boeing 737-þotu að nauð-
lenda eftir að hliðarstýri hætti að
láta að stjórn í háloftunum. Litið var
Boeing 737-farþegaþotur eru taldar með
öruggustu farþegaþotum sem í notkun eru í
heiminum. En í nýlegum prófunum hefur
komið fram áður óþekkt bilun í hliðarstýri
sem talið er hugsanlegt að hafí valdið tveim-
ur mannskæðum flugslysum í Bandaríkjun-
um. Einnig hefur komið í ljós að flugmenn
eru almennt lítt eða illa þjálfaðir til að
bregðast við vandamálum tengdum stýris-
búnaði slíkra þotna.
á atvikið sem alvarlegt vegna þess að
í flugtaki eða lendingu getur bilun í
hliðarstýri valdið því að þotan verði
stjómlaus, hniti hringi í loftinu eða
jafnvel „skrúfi" sjálfa sig niður til
jarðar. Það kom hins vegar á óvart
þegar prófanir voru gerðar á stýris-
búnaði þotunnar að ekkert grunsam-
legt kom í Ijós og engin ummerki sá-
ust um bilun.
fsing kom í veg fyrir
eðlilega virkni
Rannsóknamefnd FAA er skipuð
færustu vísindamönnum Bandaríkj-
anna á sviði flugtækni og flugvéla-
verkfræði. Til að tryggja að niður-
stöður rannsóknarinnar yrðu eins
áreiðanlegar og kostur er, var stél af
Boeing 737-þotu sett upp með öllum
tilheyrandi stýrisbúnaði í sérstökum
rannsóknarklefa þar sem hægt varað
líkja eftir aðstæðum í háloftunum.
Unnt var að prófa stýrisbúnaðinn við
mismunandi aðstæður í þessum
klefa, t.d. við margs konar hita- og
rakastig.
í prófunum rannsóknamefndar
FAA komu fram nokkrir gallar sem
vitað var að gætu valdið minniháttar
bilunum og fyrri prófanir höfðu þeg-
ar leitt í ljós. En þegar virkni stýris-
búnaðarins var könnuð eftir að vatni
hafði verið sprautað á stélið í mjög
miklu frosti, kom áður óþekkt bilun
frarn. í ljós kom að við þessar að-
stæður myndaðist ísing í búnaði sem
flytur skipanir frá stjórntækjum
flugstjóra í vökvadælur sem hreyfa
hliðarstýrið. Isingin gerði það að
verkum að hliðarstýrið hætti að láta
að stjórn og hrökk í borð, þ.e. eins
langt til hægri eða vinstri og hægt er.
Þar sat stýrið fast uns ísingin var
fjarlægð. Ef slík bilun yrði í háloftun-
um yrði ómögulegt að greina um-
merki um hana eftir að vélin væri
lent því þá væri ísingin að öllum lík-
indum bráðnuð.
Rannsóknarnefndin hefur lagt
áherslu á að fyrirbærið hafi ekki ver-
ið kannað í flugi og því ekki ömggt að
bilun sem þessi geti orðið við raun-
vemlegar aðstæður. Starfsmenn
FAA hafa einnig tekið skýrt fram að
rannsóknirnar hafi aðeins leitt í ljós
að bilun af þessu tagi sé möguleg en
segi ekkert til um hversu miklar lík-
ur séu á því að hún verði. Ekki sé til-
efni til að krefjast endurbóta á stýr-
isbúnaði Boeing 737-farþegaþotna
né heldur að kyrrsetja þær þotur
sem í notkun era nú. Hins vegar er
ljóst að vandræðin í tengslum við
hliðarstýri Boeing 737 valda for-
ráðamönnum Boeing-verksmiðjanna
þungum áhyggjum vegna þeirrar
hörðu samkeppni sem ríkir milli
flugvélaframleiðenda. Sérstaklega
hafa evrópsku Airbus 320-farþega-
þoturnar veitt Being 737 harða sam-
keppni síðustu ár.
Samstarf með Boeing
Starfsmenn Bandaríska loftferða-
eftirlitsins vinna nú náið með
Boeing-flugvélaverksmiðj-
unum að því að þróa nýjar
leiðir til að hafa eftirlit með
stýrisbúnaði 737-þotna og
þjálfa flugmenn til að bregð-
ast við bilunum sem upp
kunna að koma. Ef ákveðið
verður að íyrirskipa breyt-
ingar eða tæknilegar endur-
bætur á stýrisbúnaðinum
mun líða langur tími áður en
þær verða að fullu komnar
til framkvæmda. En ljóst er
að mögulegar breytingar
þyrfti að gera á öllum
Boeing 737-farþegaþotum
sem nú em í notkun.
Alls komu fram 30 aðskilj-
anlegar bilanir í próíúnum
nefndarinnar sem talið er að
gætu haft alvarlegar afleið-
ingar í för með sér í flugtaki
eða lendingu. Sú staðreynd
að þotur fljúga á miklum
hraða í háloftunum gerir það
að verkum að vandamál
tengd hliðarstýri em ekki
talin jafn alvarleg þar. Auk
þess geta flugmenn beitt stjórntækj-
um þegar flogið er í háloftunum sem
ekki er unnt að beita í flugtaki eða
lendingu.
Flugmenn illa undirbúnir
Samhliða því að gera prófanir á
sjálfum stýribúnaði Boeing 737-
þotnanna, notaði rannsóknarnefnd
FAA sérstakan flughermi til að
kanna viðbrögð flugmanna við hugs-
anlegum bilunum. I ljós kom að jafn-
vel flugmenn sem höfðu mikla
reynslu af því að fljúga Boeing 737-
þotum bragðust rangt við bilunum.
Rannsóknamefndin segir einnig að
þær leiðbeiningar sem Boeing-
verksmiðjurnar hafa hannað um
hvernig bregðast skuli við bilunum í
stýrisbúnaði séu gallaðar og að þær
aðferðir sem mælt sé með að beita
séu óljósar og tímafrekar. Nefndin
komst að því að flugmenn höfðu
ófúllnægjandi þjálfún í að bregðast
við vandamálum í tengslum við hlið-
arstýri og að þeir athuguðu ekki
ástand þess áður en þeir hæfu undir-
búning fyrir lendingu.
Reuters
Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum
„ÞAÐ eina sem við viljum segja um
málið að svo stöddu er að Flugleiðir
bera fullt traust til Boeing 737-
farþegavélanna, ekki síst vegna
þess að öryggissaga þeirra er mjög
góð,“ sagði Einar Sigurðsson, fram-
kvæmdasljóri hjá Flugleiðum, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Hins vegar gildir það sama um
þessar vélar og aðrar sem Flugleið-
ir hafa í rekstri, að öll hugsanleg
tilmæli um breytingar, hvort sem
er á búnaði þeirra eða þjálfun flug-
manna, munum við taka til greina í
einu og öllu. Boeing-verksmiðjum-
ar hafa enn sem komið er ekki sent
Berum fullt
traust til vélanna
frá sér nein slík tilmæli og því er
ekki hægt að segja neitt um í hveiju
hugsanlegar breytingar muni felast
né hvaða áhrif þær muni hafa á
starfsemi Flugleiða."
Að sögn Einars er Flugleiðum
ekki kunnugt um að nein vandamál
hafi komið upp í tengslum við hlið-
arstýri í þeim þremur Boeing 737-
þotum sem félagið rekur. „Við
fylgjumst að sjálfsögðu mjög vel
með öllum þeim rannsóknum sem
gerðar eru á þeim tegundum flug-
véla sem við höfum í notkun. Ef
rannsóknir kunna að leiða í ljós að
gera þarf breytingar munum við
þegar bregðast við á viðeigandi
hátt.“
Hann segir einnig að flugmenn
Flugleiða gangist regiulega undir
próf í flughermi, þar sem viðbrögð
þeirra við hugsanlegum bilunum
eru könnuð.
„Við þjálfum okkar flugmenn í
samræmi við ströngustu staðla og
ef einhver tilmæli koma frá flug-
málayfirvöldum eða flugvélafram-
leiðanda um breytingar tökum við
þau tafarlaust inn í þjálfunarskemu
okkar.“
Þróun verðs á alifugla-
kjöti 1997 - 2000
Vísitölur, mars 1997 = 100
Kjúklingar
hafa lækk-
að mikið í
verði
KJÚKLINGAR hafa lækkað
mikið í verði á undanförnum
ámm samhliða aukinni neyslu.
Er lækkunin áberandi ef hún
er borin saman við þróun vísi-
tölu neysluverðs og launavísi-
tölu undanfarin þijú ár, skv.
útreikningum hagfræðings
Bændasamtakanna.
Bjarni Ásgeirsson, formaður
Félags kjúklingabænda, segir
að verð á alifuglakjöti hafi
raunar stöðugt verið að lækka í
verði síðast liðin tíu ár. Hann
segir að meðal skýringa á þess-
ari verðþróun sé aukin hagræð-
ing í rekstri kjúklingabúanna
samfara auknu magni sem
framleitt er.
Aðspurður segist Bjarni þó
ekki reikna með að verð muni
lækka mikið meira en þegar er
orðið. Gera megi ráð fyrir að
verð muni haldast lægst á
frosnum heilum kjúklingum, en
sala á ferskum kjúklingum hafi
aukist mikið.
Kristinn Gylfi Jónsson,
kjúklinga- og svínabóndi, tekur
undir með Bjaraa og segir ljóst
að verð á kjúklingum hafi vegið
á móti hækkunum sem orðið
hafi á öðrum matvöraliðum
neysluverðsvísitölunnar á und-
anförnum misserum. Hann tel-
ur að sú verðlækkun sem orðið
hefur á kjúklingum sé að hluta
til komin til að vera.
Fram kom í fyrirlestri Guð-
mundar Olafssonar hagfræð-
ings á dögunum að hollustuvör-
ur hefðu hækkað mikið hér á
landi á sl. 20 ámm en svokall-
aðar óhollustuvörur aftur á
móti lækkað í verði. Kristinn
og Bjarni benda á að verðlækk-
anir á kjúklingum, sem ótví-
rætt teljist til hollustuvara, hafi
verið á skjön við þessa þróun.
Árangursrík barátta gegn
camphylobakter
Að sögn Kristins er ljóst að
umræðan í fyira vegna camph-
ylobakter-mengunar í kjúkl-
ingum hefur skaðað ímynd
kjúklinga- og alifuglaframleið-
enda veralega, en nú sé komið
fram að mikill árangur hafi
náðst í baráttunni gegn þessu
vandamáli. Fram kom í sein-
ustu viku að engin champhylo-
bakter-mengun hefur greinst í
eldi og við slátran á kjúklingum
undanfarið, og að skv. upplýs-
ingum yfirdýralæknis virðist
sem tekist hafi með markviss-
um aðgerðum að koma í veg
fyrir að kjúklingar sem vora
lausir við smit í eldi mengist í
sláturhúsi.
„Neysla á kjúklingum hefur
tvöfaldast á síðustu þremur ár-
um og við sjáum fram á mikla
aukningu í sölu á kjúklingum á
næstu misseram. Ég tala nú
ekki um ef við eram lausir við
camphylobakter og neytendur
geta gengið að okkar vöru ör-
uggri og vísri. Þá sjáum við
fram á veraleg sóknarfæri,"
sagði Kristinn Gylfi.