Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 49
JOHANNA PETRA
BJÖRGVINSDÓTTIR
+ Jóhanna Petra
fæddist á Hlíðar-
enda í Breiðdal 20.
janúar 1911. Hún lést
á hjúkrunarheimil-
inu Skjóli 12. apríl
síðastliðinn. Foreldr-
ar Petru voru bænda-
hjónin Björgvin Jón-
asson og Sigurbjörg
Erlendsdóttir sem
bjuggu á Hlíðarenda
í Breiðdal. Petra var
næstelst tíu systkina
en af þeim eru þrjú
enn lifandi.
Petra giftist Páli
Lárussyni og varð húsfreyja á
móðurleifð hans Gilsá í Breiðdal.
Þau eignuðust þrjá syni: Stefán
Lárus, f. 1940, kvæntur Elsu Sig-
í þessum fátæklegu kveðjuorðum
til Petru frænku mun ég einkum
minnast tímans sem Petra bjó í
sambýli og samkrulli við fjölskyldu
mína á Hlíðarenda. Fátt er mér
minnisstæðara úr bernsku minni en
atburðirnir í kringum flutning
Petru. Það mun hafa verið í kring-
um fardaga 1948 sem foreldrar mín-
ir og amma ræddu það við okkur
systkinin að við þyrftum að laga til í
gamla bænum, sem svo var kallað-
ur, því nú myndi Petra flytja til okk-
ar með syni sína fjóra og búa hjá
okkur, því hún og maður hennar
væru að skilja. Þetta var fyrsta
reynsla mín af hugtakinu skilnaður.
Petra kom og með henni synir
hennar, Björgvin Hlíðar sem var
elstur, Stefán Lárus, Sigurður
Pálmi og Sigþór. Fjölskyldan kom
sér fyrir í gamla bænum en þar
bjuggu þá einnig amma mín Sigur-
björg, og föðurbræður mínir, Gunn-
urðardóttur; Sigurð
Pálma, f. 1943,
kvæntur Hanni Hei-
ler; Sigþór, f. 1945,
kvæntur Þóreyju
Þórarinsdóttur.
Þessir þrír synir
Petru lærðu til stýri-
manns. Fyrir hjóna-
band átti Petra
Björgvin Hlíðar
Guðmundsson, f.
1933, d. 1962. Kona
hans var Valdís
Heiða Þorleifsdóttir.
Útför Petru fer
fram frá Heydala-
kirkju í Breiðdal laugardaginn 22.
apríl og hefst athöfnin klukkan
13.30.
ar, Herbjörn og Erlendur. Foreldr-
ar mínir og við systkinin, þá þrjú,
bjuggum í þeim hluta sem kallaður
var nýi bærinn. Á heimilinu var
einnig öldruð kona, Guðlaug Sig-
urðardóttir, okkur vandalaus, sem
oft var kölluð Lauga fingralausa, en
hún var fötluð á höndum. Hlíðar-
endabærinn var stór. Gamli bærinn
var líklega fyrsta steinhús sem reist
var í Breiðdal og við hann hafði síð-
an verið byggt, því var talað um
gamla og nýja bæinn þótt um eitt
hús væri að ræða. Þótt þarna væru í
reynd búandi þrjár fjölskyldur
finnst mér eftir á eins og um eina
fjölskyldu væri að ræða, því sam-
starf ríkti um heimilishaldið og bú-
reksturinn. Herbjörn frændi minn
var að vísu með sjálfstæðan bú-
rekstur en hann var alltaf inni á
heimilinu í mat og þjónustu. Eftir
að Petra kom að Hlíðarenda vorum
við systkinin og synir Petru sem
einn systkinahópur, ég leit á þá sem
uppeldisbræður mína og geri enn.
Síðar byggði faðir minn hús sem
fékk nafnið Þrastahlíð en Petra bjó
áfram á Hlíðarenda þar til hún flutti
1958 með Erlendi að Fellsási þar
sem hún var bústýra hans þangað
til hann kvæntist. í Fellsási var
Petra þangað til hún fór á hjúkrun-
arheimilið Skjólgarð á Höfn.
Til baka til minninganna frá
bernskunni. Barnahópurinn á Hlíð-
arenda var þannig nokkuð stór og
það var oft glatt á hjalla og ekki
skorti okkur fullorðnar fyrirmynd-
ir. Eftir að við byi-juðum í skóla,
sem þá var farskóli með löngum
heimanámshléum, vorum við saman
í skóla, sem oft var á heimilinu, en
þá var bætt við börnum frá fleiri
bæjum. Mamma og Petra sáu um
heimilishaldið, fyrst saman og síðar
sín í hvoru húsi, en samvinnan um
það og búskapinn var alltaf náin.
Þær voru líka miklir dugnaðarfork-
ar sem gengu til útiverka eftir þörf-
um. Á þessum tíma var vélvæðing í
landbúnaði ekki langt komin í
Breiðdalnum og því var heyskapur
stundaður upp á gamla lagið. Hlíð-
arendi var ekki ríkur af engjum og
því þurfti oft að sækja heyskap um
langan veg, fá lánaðar slægjur þar
sem slægjur var að fá. I engja-
heyskapnum stýrðu pabbi og Petra
mannskapnum, sem var barnahóp-
urinn og fleiri eftir því hvernig á
stóð. Þetta voru langir vinnudagar
og ég minnist þreytunnar í
skrokknum en samt held ég að
þessir dagar hafi verið ljúfustu dag-
ar bernsku minnar. Það var margt
spjallað og bæði Petra og pabbi
voru hafsjór af fróðleik sem þau
höfðu ekkert á móti að deila með
okkur. Það gafst einnig nægur tími
til að ræða mál sem við börnin fitj-
uðum upp á.
Nokkur sumur fengum við slægj-
ur á eyðibýlinu Kleifarstekk, ásamt
Petru, og þá bjuggum við í gamla
bænum og sváfum í flatsæng. Þetta
+ Jóhann Pétur
Konráðsson
fæddist á Hallbjarn-
areyri í Eyrarsveit 3.
apríl 1909. Hann lést
á St. Fransiskus-
sjúkrahúsinu í Stykk-
ishólmi 14. apríl síð-
astliðinn. Jóhann
Pétur var þriðji í röð
sex systkina. For-
eldrar hans voru
Konráð Jónsson og
Elísabet S. Hjaltalín.
Árið 1936 kvæntist
hann Jódfsi K.
Björnsdóttur frá
Látravík í Eyrarsveit. Foreldrar
hennar voru Björn Bergmann
Jónsson og Jósefína Ragnheiður
Jóhannesdóttir. Börn þeirra eru:
1) Bára B. Pétursdóttir, gift Elísi
Guðjónssyni, þau eiga fimm böm
og átta bamaböm. 2) Elsa F. Pét-
Nú er heillakarlinn Pétur Konn
eða afi Konn, eins og við kölluðum
hann, dáinn. Stór hópur stendur að
honum Pétri, og öll söknum við og
syrgjum hann sárt. Árið 1980 byrj-
uðum við okkar búskap í íbúð sem
Pétur átti, og hélt hann sínu her-
bergi, sem sagt við bjuggum saman
öll þrjú. Ekki var það erfið sambúð,
síður en svo; þægilegri sambýlis-
mann er örugglega erfitt að finna,
alltaf glettinn og gamansamur, og
ekki vantaði umhyggjuna fyrir okk-
ur á alla kanta. Þegar sonur okkar
Garðar fæddist 1981, þá líkaði hon-
um afa sko lífið, barngóður eins og
hann var alla tíð. Dekraði hann
strákinn og spilaði við hann fótbolta
heilu dagana á ganginum og út um
alla íbúð ef því var að skipta. Enda
varð Garðar svo hændur að afa sín-
um að ef hann var í pössun sem
smábarn og vaknaði upp grét hann
jafnt eftir afa Konn og mömmu og
pabba. Ómetanlegur var félagsskap-
urinn fyrir unga sjómannskonu með
lítið bam, mörg kvöldin stytti hann
ursdóttir, gift Aðal-
steini Friðfinnssyni,
þau eiga þrjú böm,
fimm barnabörn og
eitt barnabama-
bam. 3) Ólöf R. Pét-
ursdóttir, gift Garð-
ari Gunnarssyni, þau
eiga fimm börn og
þrettán barnaböm.
4) Bima R. Péturs-
dóttir, gift Tómasi
Sigurðssyni, þau
eiga tvö börn og tvö
bamabörn. 5) Pétur
G. Pétursson, kvænt-
ur Hjördísi Vil-
hjálmsdóttur, þau eiga íjögur
börn og eitt barnabarn.
titför Jóhanns Péturs fer fram
frá Grundarfjarðarkirkju laugar-
daginn 22. aprfl og hefst athöfnin
klukkan 14.
mér stundir með frásögnum af
mönnum og málefnum fyrri tíðar. Ef
mig langaði að skreppa út á kvöldin
var það lítið mál hjá honum Pétri að
hlusta eftir stráknum, hann sagðist
nú bara hafa gaman af því. Svona
létti hann okkur lífið á ýmsa lund.
Það var erfitt bæði fyrir okkur og
hann þegar við fluttum frá honum í
okkar eigið hús eftir fimm ára
ánægjulega sambúð. Margir Grund-
firðingar eiga góðar og skemmtileg-
ar minningar um þennan smáa en
knáa mann, sem á göngu sinni um
þorpið heilsaði öllum glaðlega sem á
vegi hans urðu, ekki síst börnin,
enda voru það ekki bara hans eigin
barnabörn sem kölluðu hann afa
heldur mörg önnur óskyld börn.
Finnast okkur orð læknis sem kom
að dánarbeði Péturs og þekkti hann
vel orð að sönnu, en þau voru á þessa
leið: „Það hefur verið vel vandað í
þennan mann og ekki hefur skapferl-
ið skemmt íyrir.“
Hér áttu blómsveig
bundinn af elsku,
blíðri þökk
ogblikanditárum.
Hannfólnarei
en fagur geymist
íhjörtumallra
ástvina þinna.
(H.L.)
Hvíl í friði elsku afi Konn.
Hafsteinn, Jenný, Garðar
Tryggvi.
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
me^ Þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
JOHANN PETUR
KONRÁÐSSON
voru miklir sæludagar og ekki síst
vegna dugnaðar og skörugleika
Petru.
Á þessum tíma var allur fatnaður
til heimilis enn unninn heima og
voru þær Petra og mamma bæði
duglegar og útsjónarsamar við að
koma upp og halda við fatnaði á
þessa stóru fjölskyldu. Það var
saumað, spunnið, litað, prjónað og
þæft. Ekki má gleyma þeim tíma
sem fór í þvotta og viðhald. Þrátt
fyrir þann mikla tíma sem verkin
tóku var mikið lesið, Petra hafði un-
un af ljóðum og söng og kunni mik-
ið. Ég hef oft velt því fyrir mér síðar
hvernig Petru leið á þessum árum.
Þótt þessi ár séu björt í minni minn-
ingu þykir mér líklegt að þau hafi
ekki alltaf verið Petru létt. Það
hlýtur að hafa verið erfitt fyrir unga
konu að standa allt í einu ein uppi
með fjögur börn og lítil efni. Petra
átti síðar eftir að verða fyrir ann-
arri stórri sorg en það var þegar
hún missti elsta son sinn Björgvin
Hlíðar í sjóinn í janúar 1962.
Björgvin dó frá konu og tveimur
ungum börnum. Sterkar manneskj-
ur vaxa með hverjum vanda og svo
var það með Petru. Jóhanna Petra
Björgvinsdóttir, sem var fædd 1957,
óx síðan upp í skjóli ömmu sinnar og
varð henni sem dóttir. Ég held að
Petra hafi í raun litið á sig sem
gæfumanneskju, enda ekki undar-
legt, því trúlega hefur hún komist
eins nærri því og unnt er að ná því
markmiði sem ég tel að hún hafi
sett sér í lífinu. En ég held að það
hafi verið að reynast vel sínu fólki
og láta gott af sér leiða.
Bergþóra Gísladóttir.
Mig langar í fáeinum orðum að
kveðja föðursystur mína, Petru.
Petra var dugnaðarforkur, nátt-
úrubarn sem þekkti landið og dýrin
vel. Hún var frammúrskarandi
myndarleg til allra verka, hvort serrti
var við sveitastörfin eða að prjóna
og sauma flíkur.
Petra var ávallt bein í baki, glað-
sinna og lét ekki mótblástur í lífinu
hafa áhrif á framkomu sína. Hún
var okkur systkinunum góð og það
var alltaf gott að vera nálægt henni
því henni fylgdi gleði og kraftur.
Einhvern veginn tókst henni að
seiða okkur krakkana til sín með því
að segja okkur spennandi sögur eða
syngja fyrir okkur. Hún átti alltaf
einhvern fjársjóð af fróðleik til að
miðla okkur, það var gaman að vera,
nálægt henni.
Petra las oft uppúr bókum íyrir
okkur en hún las einstaklega vel,
var það alltaf hin besta skemmtun.
Petra var mikill dýravinur og ein-
staklega lagin við dýr. Hún hafði
gaman af öllu sem sneri að útiveru,
t.d.smalamennsku, safna fallegum
steinum og að fara í berjamó.
Mig langar að enda þessa stuttu
kveðju með sálmi no. 402.
Drottinn vakir, Drottinn valdr
daga’ og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og bezta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
dagá og nætur yfir þér.
Kær kveðja.
Þín frænka,
Nína Midjord Erlendsdóttir.
t
Eigninkona mín,
JÓNA SIGRÚN SVEINSDÓTTIR,
Lindarsíðu 2,
Akureyri,
andaðist á heimili sínu sunnudaginn 16. apríl
síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Glerárkirkju miðvikudaginn
26. apríl kl. 10:30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gísli Bessason.
Sverrir Einarsson
útfararstjóri
Markmið Útfararstofu (slands er að veita trausta og persónulega þjónustu.
Aðstandendur geta leitað til útfararstjóra hvenær sólarhrings sem er.
Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla þá þætti er
hafa ber í huga er dauðsfall verður. Útfararstjórar Útfararstofu (slands
búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við útfararþjónustu um árabil.
Útfararstofa íslands sér um:
- Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar
í samráði við prest og aðstandendur.
- Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.
- Koma á sambandi við þann prest sem
aðstandendur óska eftir.
- Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
- Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef með þarf.
- Fara með tilkynningu í fjölmiðla.
Utfararstofa íslands útvegar:
- Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghóþa, einsöngvara,
einleikara og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Blóm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.
- Dánarvottorð og Ifkbrennsluheimild.
- Duftker ef líkbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju og gestabók ef óskað er.
- Kross og skilti á leiði.
- Legstein.
- Flutning á kistu út á land eða utan af landi.
- Flutning á kistu til landsins og frá landinu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir Olsen
útfararstjóri
Baldur Bóbo
Frederiksen
útfararstjóri
Útfararstofa (slands — Suðurhlíð 35 — Fossvogi.
Sími 581 3300 — Allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is