Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Kristinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri tekur við lyklum að Hafnarhúsinu úr höndum Guðrúnar Jónsdóttur, formanns byggingamefndar hússins. Listasafn Reykjavflmr opnað í Hafnarhúsinu Pakkhús breyt- ist í listhús Morgunblaðið/Kristinn Dyr Hafnarhússins voru opnaðar upp á gátt í gær. Nýtt húsnæði Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu var formlega opnað í gær að viðstöddu fjölmenni og þar voru jafnframt opn- aðar tvær sýningar sem báðar hafa verið valdar á dagskrá Reykjavíkur menningarborgar Evrópu árið 2000. UM LEIÐ og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri færði Eiríki Por- lákssyni, forstöðumanni Listasafns Reykjavíkur, veglega lyklakippu og þar með lyklavöld í Hafnarhúsinu. Kvaðst hún vona að húsið hefði svo margar vistarverur að þar fengju allir straumar og stefnur þrifist. Plássið ætti að vera nóg, en safnið er á þrem- ur hæðum og gólfflöturinn alls um 3.365 fermetrar, auk 306 fermetra lagnakjallara og 349 fermetra hús- næðis sem Islensk grafík hefur til umráða á fyrstu hæð. Hafnarhúsið var byggt í áföngum á árunum 1933-1939 sem vörugeymslu- og skrifstofuhús hafnarinnar en aðal- hönnuðir þess voru þeir Sigurður Guðmundsson arkitekt og Pórarinn Kristjánsson hafnarstjóri. Arkitektar breytinganna sem nú hafa litið dags- ins Ijós eru þau Margrét Harðardótt- ir og Steve Christer, Studio Granda. Áætlaður kostnaður við hönnun, hús og búnað var 665 milljónir króna mið- að við verðlag í nóvember 1999. Bryggja gegnum húsið Hið nýja listasafn er á 1., 2. og 3. hæð í miðhluta hússins þar sem áður voru vörugeymslur. Gerður hefur verið gangur, eða einskonar bryggja, gegnum húsið, sem tengir saman sýn- ingarsali í álmunum beggja vegna portsins. A hliðum hins nýja gangs eru stórar og miklar hurðir sem opn- ast annars vegar inn í nýjan fjölnota- sal og hins vegar út í portið. Guðrún Jónsdóttir, formaður byggingarnefndar Hafnarhússins og menningarmálanefndar Reykjavík- urborgar, sagði portið í miðju hússins eiga sér fáar hliðstæður í íslenskri byggingarsögu. Hún sagði Hafnar- húsið ennfremur eitt af merkustu dæmum sem varðveitt væri um ís- lenskan iðnaðararkitektúr í anda funksjónalisma kreppuáranna. Listamaðurinn verður bókhaldar- anum yfirsterkari Borgarstjóri sagði í opnun- arávarpi sínu að í menningar- legum efnum, sem og öðrum, væri sjaldan ein báran stök og það væri eins og langþráð- ir landvinningar í menningar- málum hefðu gjarnan í för með sér fleiri slíka. „Fyrir 50 árum, þegar þjóðleg og menningarleg vakning varð meðal þjóðarinnar, eignuðust íslendingar Ríkisútvarp, Þjóðleikhús og Sinfóníu- hjjómsveit, svo nokkuð sé nefnt. Nú á sér líka stað viss vakning meðal þjóðarinnar sem að þessu sinni er fremur af alþjóðlegum toga en tengist líka vitund um mikilvægi öfl- ugrar menningar fyrir þjóðir og sam- félög sem ætla sér stöðu og hlutverk í þeirri alþjóðavæðingu sem nú gengur yfir. Fátt skiptir meira máli fyrir sjálfsmjmd og baráttuþrek fólks og þjóða en þekking á fortíðinni, og þar með sameiginleg vitund um sögu og rætur þess fólks sem í landinu býr, og svo öflugt menningarstarf sem býr að fortíðinni, lætur að sér kveða í sam- tíðinni og ætlar sér hlutverk í fram- tíðinni. Fátt er líklegra til að efla þrek, trú og bjartsýni manna þannig að þeir setji markið hærra en þeir hefðu ella gert. í þannig samfélagi verður listamaðurinn bókhaldaranum yfirsterkari og sköpunarkrafturinn fær aukið svigrúm,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Sögulegir tímar fyrir menningarlífið í landinu Rétt eins og það voru sögulegir tímar fyrir 50 árum, kvaðst borgar- stjóri halda að nú væru einnig sögu- legir tímar fyrir menningarlífið í Morgunblaðið/Kristinn Verk Hreins Friðfinnssonar, Tjörn, frá árinu 1991. landinu. „Sjaldan, ef nokkum tíma, hefur jafnmikil áhersla verið lögð á að renna styrkari stoðum undir hvers kyns menningarstarfsemi. Reykja- víkurborg og ríki standa nú þegar fyrir umfangsmiklum framkvæmdum í menningarmálum - nægir að nefna Listasafn Reykjavíkur sem við opn- um hér í dag í Hafnarhúsi, aðalstöðv- ar Borgarbókasafns við Tryggva- götu, endurbyggingu Þjóðminjasafns og Safnahúss við Hverfisgötu og við- byggingu við Borgarleikhús sem nú er unnið að. Öll þessi verkefni tengj- ast því beint eða óbeint að Reykjavík er menningarborg Evrópu á þessu ári og mjög gott samstarf hefur tekist milli borgar og ríkis um það verk- efni,“ sagði borgarstjóri. Eiríkur Þorláksson rifjaði upp þann stóra áfanga í listalífi Reykja- víkur þegar Kjarvalsstaðir voru opn- aðir árið 1973 og þá miklu gerjun sem síðan hefur átt sér stað í allri mynd- list á Islandi. Um síðir hefðu Kjar- valsstaðir verið orðnir of litlir til að sýna með verðugum hætti listaverka- eign borgarinnar. Nú væri að verða bragarbót á, með tilkomu Hafnar- hússins. Eiríkur sagðist vona að sýn- ingar í Hafnarhúsinu ættu eftir að auðga líf sem flestra og kvaðst stoltur af að geta nú loks sagt: „Verið vel- komin í Listasafn íslands í Hafnar- húsinu.“ Hið ytra og innra Áður en fyrstu tvær sýningamar í hinu nýja húsnæði voru formlega opnaðar léku félagar úr Caput-hópn- um verk eftir Þorkel Sigurbjömsson írá árinu 1998. Verkið nefnist Halar og er skrifað fyrir Caput og segul- band. Sýningin „Myndir á sýningu“ er á tveimur hæðum í þremur sölum. Efri salimir era hvítmálaðir og fágaðir en hinn neðri er öllu hrárri - og grárri. I sýningarskrá er því þannig lýst að verkin í neðri salnum skírskoti til raunveraleikans - hins ytri heims, en í efri sölunum tveimur til hugar- heima, hins innra lífs, minninga, drauma og ímyndana. Sýningin stendur út menningarborgarárið 2000. Hin sýningin ber yfirskriftina ,Á eigin ábyrgð" og er innsetning franska listamannsins Fabrice Hyberts, en hann hlaut gullljónið á Feneyjatvíæringnum árið 1997. Við- fangsefni innsetningar Hyberts er hvemig íslendingar tilbiðja tré og er efniviðurinn tré og plöntur af ýmsum stærðum og gerðum og myndbönd. Sýningin stendur til 14. maí nk. „ber“ til Litháen DANSLEIKHUSI með Ekka hef- ur verið boðið á alþjóðlegu nútíma- danshátíðina New Baltic Dance 2000 í Vilnius, Litháen, nú um páskana. Það var dansleikhúsverkið „ber“ sem vakti áhuga forsvarsmanna hátíðarinnar og mun það verða sýnt á laugardaginn kemur í Viln- ius. Kolbrún Anna Bjömsdóttir leik- ari segir boð þetta mikinn heiður fyrir Dansleikhúsið en um stóra hátíð er að ræða. Koma gestir víða að úr Evrópu, meðal annars frá Norðurlöndunum, Rússlandi, Frakklandi og Belgíu, auk Eystra- saltslandanna. Islenska dans- flokknum hefur í tvígang verið boðið á hátíðina. Þetta verður í fyrsta sinn sem Dansleikhús með Ekka sýnir á er- lendri grand og segir Kolbrún mik- inn hug í fólki. Gaman verði að sýna fyrir nýja áhorfendur, auk þess sem ómetanlegt sé að fá tæki- færi til að kynna sér hvað dans/ leikhópar frá öðrum löndum séu að fást við. Hún segir ómögulegt að meta á þessari stundu hvaða þýðingu þetta komi til með að hafa fyrir Dansleikhúsið - hvort einhverjar dyr komi til með að opnast í kjölfarið. „Það verður bara að koma í ijós. Við rennum alveg blint í sjóinn." Það er skammt stórra högga á milli hjá Dansleikhúsinu því það mun sýna á menningardegi íslend- inga á EXPO 2000 heimssýning- unni í Hannover, Þýskalandi, í ágúst, í boði menntamálaráðuneyt- isins. Segir Kolbrún þá ferð jafn- framt leggjast vel í hópinn. Þá framsýnir Dansleikhúsið nýtt verk, Tilvist, á leiklistarhátíðinni Á mörkunum í haust. Dans, leiklist og tónlist hafa jafnt vægi í sýningum Dansleik- húss með Ekka og er „ber“ fimmta sýning Dansleikhússins en verkið var framsýnt í Tjarnarbíói í októ- ber sl. Ellefu manna hópur mun fara til Litháen, en það era: Aino Freyja Járvelá (leikari), Ema Ómarsdótt- ir (dansari), Friðrik Friðriksson (leikari), Guðmundur Elías Knud- sen (dansari), Hrefna Hallgríms- dóttir (leikari), Karen María Jóns- dóttir (dansari), Kolbrún Anna Björnsdóttir (leikari), Richard Kolnby (leikari), Frank P. (tónlist- armaður), Sigurður Kaiser (ljósa- hönnuður) og Guðrún Ösp Péturs- dóttir (framkvæmdastjóri). Listrænn stjórnandi sýningarinn- ar er Árni Pétur Guðjónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.