Morgunblaðið - 20.04.2000, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
o ismti.
Hvað ber að hafa í huga þegar fest eru kaup á íbúð?
Aðgæsluskylda
kaupanda mikilvæg
Hraði einkennir fasteignamarkaðinn um
þessar mundir en framboð íbúða er töluvert
minna en fyrir 3 til 4 árum. Hrönn Ind-
riðadóttir kannaði málin og komst meðal
annars að því að kaupendur þurfa að gæta
vel að aðgæsluskyldu sinni.
„FASTEIGNAKAUP eru stór fjár-
festing og því ærin ástæða að vanda
valið vel,“ segir Telma Halldórsdóttir,
lögfræðingur Neytendasamtakanna.
„Það er alltof algengt að fólk skoði
íbúðimar ekki nógu vel. Afar mikil-
vægt er að skoða allt vandlega, til
dæmis athuga með krana og ofna.
Kanna verður hvort það séu einhver
ummerki um raka bæði að utan og
innan en séu slík ummerki til staðar
ber kaupendum að skoða málið nánar
annars geta þeir verið að firra sig
rétti. Kaupendur verða að vera dug-
legir að spyrja um þessa hluti, hvort
upprunalegar skolpleiðslur séu ef um
gömul hús er að ræða, hvemig raf-
magnið er og svo framvegis. Það er
þessi aðgæsluskylda sem er svo mik-
ilvæg og hún verður ríkari eftir því
sem húsið er eldra.
Ef seljendur em að lofa hlutum
eins og að nýlega hafi verið gert við
þak þá er upplagt að setja það í kaup-
samninginn þannig að ef þetta reynist
ekki rétt er hægt að vitna í hann. Eg
hef heyrt sögur þess efnis að fullyrt
hafi verið að íbúðir leki ekki en svo
hafi allt farið á flot við fyrstu rigning-
ar.
Kaupendur koma stundum með
iðnaðarmann með sér til að leggja
mat á íbúðir en sé það gert er mikíl-
vægt að þeir skoði íbúðimar sérstak-
lega vel þar sem að ef málin fara fyrir
Morgunblaðio/Golli
Ef seljendur lofa hlutum eins og að nýlega hafi verið gert við þak er
upplagt að setja það í kaupsamninginn.
dóm er lögð á þá rík skylda að athuga
með slíka hluti,“ segir Telma.
Kaupendur leita til sérfræðinga
Eyjólfur Bjamason, bygginga-
tæknifræðingur hjá Samtökum iðn-
aðarins, segir að fólk leiti ekki til sam-
takanna vegna ráðlegginga þegar
kemur að mati á fasteign. Hins vegar
viti hann dæmi þess að fólk leiti tii
sérfræðinga innan sinnar fjölskyldu
þegar kemur að þessu.
„Fasteignasali hefur engar skyldur
hvað varðar ástand eignarinnar aðrar
en að skoða hana og semja lýsingu,"
segir Guðrún Arnadóttir, formaður
Félags fasteignasala. „Það þurfa
ávallt að liggja fyrir ákveðin gögn
eins ogveðbókarvottorð, eignaskipta-
samningar, teikningar og yfirlýsingar
húsfélags þegar það á við. Margir
fasteignasalar em einnig famir að
taka myndir af eignum án þess að það
sé lögbundið en þær segja oft mikið.
Verk fasteignasalans er að leiðbeina
kaupanda í gegnum íbúðai'kaupaferl-
ið.
Guðrún segir að það séu fimm til
tíu atriði sem fasteignasalar hafi í
huga þegar kemur að verðlagningu.
„Það er fyrst og fremst markaðs-
ástand, það er að segja framboð og
eftirspum. Það er staðsetning og ald-
ur húseignar, ástand eignar að utan
og innan, áhvílandi lán skipta ein-
hverju máli og svo era oft þættir eins
og t.d. ef við tökum íbúð í blokk þá
getur skipt máli hvort það eru suður-
svalir eða engar svalir eða hvort
þvottahús er sameiginlegt eða í íbúð.
Fasteignasalar meta sjálfir mark-
aðsverð eignarinnar út frá skoðuninni
og verðleggja eftir því,“ segir Guð-
rún.
Markaðurinn hraður
Guðrún segir að oft sé einhver sér-
fræðingur, eins og iðnaðarmaður, úr
fjölskyldunni í för með kaupendum.
„Það hafa fallið dómar um að kaup-
andi geti ekki borið fyrir sig galla sem
sérfróðir menn eiga að geta séð. Því
verður kaupandi að hugsa sem svo að
ef hann ætlar að taka einhvern með
sér þá verður það að vera einhver sem
hægt er að treysta fullkomlega.
Það heyrir til undantekninga að
einhver sé að kaupa köttinn í sekkn-
um. Auðvitað era einhverjir sem van-
rækja viðhald á eignum sínum en
flestir hugsa vel um þær og vilja ekki
láta frá sér gallaða vöra,“ segir Guð-
rún.
Guðrún segir kaupendur í dag ekki
hafa mikið val, það séu ekki svo marg-
ar eignir á markaðnum og kaupendur
verði því að drífa sig og kaupa þegar
þeim líst vel á eitthvað sem býðst.
„Þegar farið er 3 til 4 ár aftur í tímann
þá gátu kaupendur skoðað í rólegheit-
unum tugi íbúða á nokkram mánuð-
um. Þetta er önnur saga í dag, mark-
aðurinn er mjög hraður. Kaupendur
era þó oft búnir að undirbúa sig mjög
vel, búnir að fara í greiðslumat, og era
því með allt tilbúið," segir Guðrún.
Þess má að lokum geta fyrir fólk
sem er að leita sér að íbúð um þessar
mundir að á fasteignavef Morgun-
blaðsins, www.mbl.is, er að finna gát-
lista og fleira sem gott er að hafa í
huga þegar farið er út í íbúðarleit.
ís í kaupbæti
.v>
ÉK
Abotinn a Pizza Hut
Isbarinn okkar heitir Abotinn og þar
bjóðum við ekta rjómaís [rá
Emmess ís úr ísvél.
Það fylgir ís með
hverri þizzU sem
~ þú borðar í veitinga-
salnum og þú færð ábót
m
messis
Við bíðum með óþreyju eftir sumrinu á Pizza Hut og til að koma þér L ■■fysA.'j.-
/ sumarskaþið bjóðum við þér eins mikinn ís með þizzunni þinni og þú
getur í þig látið. (Tilboðið gildir til 25. aþríl og aðeins í veitingasal).
Komdu og gerðu þér glaðan dag.
SPRENGISANDI & HÓTEL ESJU • SÍMI 533 2000