Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 13
FRÉTTIR
Skólasamningar milli Kópavogsbæjar og grunnskólanna
Vegagerð ríkisins
Aukið fjárhags-
legl sjálfstæði
BÆJARYFIRVOLD í Kópavogi
hafa undirritað samning við sjö
grunnskóla bæjarins, Smáraskóla,
Lindaskóla, Digranesskóla, Hjalla-
skóla, Snælandsskóla, Kópavogs-
skóla og Þinghólsskóla, um aukið
fjárhagslegt sjálfstæði, sem skapar
svigrúm til hagræðingar og gefur
möguleika á breyttum faglegum
áherslum.
Samningurinn felur í sér breytt
stjómskipulag í skólunum með til-
komu þriggja deildarstjóra við hvern
skóla, sem starfa undir stjórn skóla-
stjóra við daglega stjórn deildanna
og faglega stefnumótun. Markmið
skólasamninganna er að skapa
grunnskólunum nútímalegt rekstr-
arumhverfi og hvetja skólastjórn-
endur og kennara til faglegra um-
bótastarfa.
I greinargerð með samningnum
kemur fram að hann er umræðu-
grundvöllur milli bæjaryfirvalda og
grunnskólanna um fjárhagslegan
rekstrargrundvöll og innra starf .
Áhersla er lögð á rammafjárveiting-
ar til skólanna og frelsi til að flytja fé
milli fjárhagsliða og ára. Ennfremur
er gerð krafa um faglegar umbætur
og krafa um formlega dreifingu
valds og ábyrgðar.
Greinilegri verkaskipting
Tekið er fram að breyttu stjórnun-
arfyrirkomulagi sé ætlað að flytja
þungamiðju allra ákvarðana vegna
daglegs skólastarfs nær vettvangi
kennslunnar, um leið og verkaskipt-
ing milli skólastjóra, aðstoðarskóla-
stjóra, deildarstjóra og kennara
verður greinilegri. Skólastjórar
munu framselja hluta af stjómunar-
og fagvaldi sínu til deildarstjóra,
sem ráðnir verða við þrjú stig skól-
anna en gert er ráð fyrir að skólarnir
skiptist í þrjár deildir í samræmi við
þrískiptingu skólans í aðalnámskrá.
Fram kemur að eitt meginmarkmið-
ið sé að auka áhrifavald kennara á
Morgunblaðið/Jim Smart
Kristinn Kristinsson fræðslustjóri Kópavogs, Sigurður Geirdal bæjar-
stjóri, Ólafur Guðmundsson skólastjóri Kópavogsskóla og Bragi Micha-
elsson formaður skólanefndar undirrita skólasamning milli Kópavogs-
bæjar og sjö grunnskóla bæjarins.
daglegt skólastarf og mun kennur-
um gefast aukið tækifæri til þátttöku
í ákvörðunum varðandi deildir. Enn-
fremur munu skapast auknir mögu-
leikar til samstarfs kennara.
Skólasamningurinn gerir ráð fyrir
að fjárframlög til skólans miðist við
fjölda nemenda og kennslustundir
og eru fjárveitingar vegna hans því
breytilegar milli skólanna en fram-
lög miðast að öðru leyti við rekstur
skólanna.
011 tilboð
undir
kostnaðar-
áætlun
ÞRJÚ tilboð bárust Vegagerðinni í
efnisvinnslu á Norðurlandi vestra
og átti Myllan ehf. á Egilsstöðum
lægsta boð, rúmar 44 milljónir
króna. Tilboðið er 64% af kostnað-
aráætlun, sem er 69,2 milljónir.
Þá hefur verið opnað tilboð í 60
km af Vestfjarðaleið um Gemlu-
fallsheiði og Bjarnadal. Tíu tilboð
bárust og átti Höttur sf. í Hrúta-
firði lægsta boð, bauð 31 milljón
króna, sem er 67% af kostnaðar-
áætlun.
Fimm tilboð bárust í klæðningar
á Norðurlandi vestra og átti Borg-
arverk ehf. í Borgarnesi lægsta
boð, tæpar 27 milljónir, sem er 84%
af kostnaðaráætlun.
Fjögur tilboð bárust í klæðningar
á Vesturlandi og átti Slitlag ehf. á
Hellu lægsta boð, um 20 milljónir
króna, sem er 71% af kostnaðar-
áætlun.
Illi ■
V
iiJjjM
HHÍilÍ
Ertu í lausu lofti?
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Það eru 4 loftpúðar í öllum Renault Mégane
Þegar þú velur bíl skaltu gæta þess að öryggið standist ströngustu kröfur. Renault Mégane
fékk hæstu einkunn allra bíla í sínum flokki í NCAP árekstrarprófinu enda eru 4 loftpúðar
staðalbúnaður í öllum útgáfum Renault Mégane; öryggisbúnaður sem varla finnst nema í
mun dýrari bílum. Hliðarloftpúðarnir vernda þig sérstaklega vel í hliðarárekstrum sem ella
gætu valdið meiðslum. Hafðu öryggið í lagi. Veldu Renault Mégane.
RENAULT