Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 37
Kirkjugripir
og kirkjustaðir
í Arnesþingi
VORSÝNING Byggðasafns Árnes-
inga, Húsinu, Eyi-arbakka, er sýn-
ingin Kirkjugripir og kirkjustaðir í
Arnesþingi. Þjóðminjasafn íslands
leggur sýningunni til gripi eins og
róðukross frá Kaldaðarnesi, líkneski
þrjú úr Ögmundarbríkinni - altaris-
bríkinni stóru frá Skálholtsdóm-
kirkju. Einnig koma frá Þjóðminja-
safninu stólbrík úr Amarbæliskirkju
og líkan af síðustu útbrotakirkjunni
hér á landi, Stóra-Núpskirkju og
fleira.
Kastljósi sýningarinnar er einkum
beint að horfnum kirkjustöðum í
héraðinu. Meðal kirkjustaða má
nefna Arnarbæli og Reyki í Ölfusi,
Klausturhóla og Snæfoksstaði í
Grímsnesi, Úthlíð í Biskupstungum,
Reykjadal í Ytri-hrepp, Hróarsholt
og Kaldaðarnes í Flóa.
Sýningin er liður í Kristnihátíð
Ámesprófastsdæmis og er sam-
starfsverkefni Byggðasafns Árnes-
inga og Þjóðminjasafns Islands.
Sýningin er opin um helgar kl. 14-17
í apríl og maí, og eftir samkomulagi,
en henni lýkur sunnudaginn 4. júní.
Auk þess er opið á sama tíma á
skírdag, föstudaginn langa, annan í
páskum og 1. maí.
Róðukross frá Kaldaðarnesi.
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjórir voru verðlaunaðir í Höfða. Á myndinni eru Sigrún Magnúsdóttir,
Sigrún Elsa Smáradóttir, Ragnheiður Gestsdóttir, Gunnar Karlsson,
Áslaug Jónsdóttir og Guðni Kolbeinsson.
Grýlusaga
verðlaunuð
GUNNAR Karlsson hlaut bama-
bókaverðlaun Reykjavíkur fyrir bók
sína Grýlusögu, sem bókaútgáfan
Skrípó gefur út. Verðlaun fyrir þýð-
ingu hlaut Guðni Kolbeinsson fyrir
bókaflokkinn Ógnaröfl eftir Chris
Wooding sem Æskan gefur út.
Verðlaun fyrir sérstakt framlag til
bamabókmennta hlaut Ragnheiður
Gestsdóttir fyrir starf sitt í þágu
barnabóka, barnamenningar og
lestrarörvunar. Ragnheiður hefur
Tónlistarveisla
í Mývatnssveit
HÓTEL Reynihlíð ásamt tónlistar-
mönnum efnir í þriðja sinn til tónlist-
arveislu í Mývatnssveit undir heitinu
Músík í Mývatnssveit.
Að þessu sinni munu þau Sigrún
Hjálmtýsdóttir (söngur), Laufey
Sigurðardóttir (fiðla), Þorkell Jóels-
son (horn) og Selma Guðmundsdótt-
ir (píanó/orgel) flytja tvær mismun-
andi efnisskrár. Á föstudaginn langa
í Reykjahlíðarkirkju kl. 21 verður
flutt tónlist sem hæfir stað og stund
og í Skjólbrekku laugardaginn fyrir
páska kl. 15 verður flutt verk eftir
Brahms ásamt íslenskum sönglögum
og ópemaríum.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
endursagt og myndskreytt fjölda ís-
lenskra ævintýra svo sem Söguna af
Hlina kóngssyni.
Verðlaun fyrir framlag sitt til
myndskreytinga í bamabókum hlaut
Áslaug Jónsdóttir. Áslaug hefur
myndskreytt fjölda barnabóka, nú
síðast Söguna af bláa hnettinum eftir
Andra Snæ Magnason.
Þetta var í 28. sinn sem fræðsluyf-
irvöld Reykjavíkur veita höfundum
og þýðendum barnabóka verðlaun.
Vortónleikar
Þrasta
KARLAKÓRINN Þrestir
heldur ferna vortónleika í
Hafnarfirði þetta árið. Fyrstu
tónleikamir verða í Hásölum
25.apríl og hefjast þeir kl.
20:30. Síðan verða þrennir tón-
leikar í Víðistaðakirkju; 27.
apríl kl. 20:30,29. apríl kl. 14:00
og þeir síðustu sunnudaginn 20.
apríl kl.l6:00.
Flutt verður innlend og er-
lend tónlist af ýmsum toga.
Þorgeir J. Andrésson tenór
verður sérstakur gestur Þrasta
á vortónleikunum. Tónleikar
verða einnig Glerárkirkju 6.
maí k!.17:00.
Kyrrðardagar í París
MYNDLIST
G a 11 e r i @ h 1 e m m u r. i s,
1» v e r h o 11 i 5
BLÖNDUÐ TÆKNI
BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR
& KRISTJÁN ELDJÁRN
Til 23. apríl. Opið þriðjudaga til
sunnudaga kl. 14-18.
Ein af litskyggnum Bjargeyjar
Ólafsdóttur úr myndröðinni
Ljúfar sælustundir í París.
BJARGEY Ólafsdóttir hefur lengi
fengist við ljósmyndun hversdags-
lífsins, einkum þess hversdagslífs
sem snýr að næturlífi, skemmtanalífi
og eftirhreytum slíkrar breytni.
Snemma á listferli sínum vakti
Bjargey athygli með leigubílaljós-
myndum sem hún tók sem bílstjóri
eftir lokun veitingastaða um helgar.
Þar kvað þegar við nýjan tón því
sárafáir listamenn, ef nokkrir, höfðu
gert sér mat úr þeim félagslega hval-
reka sem laugardagsfárið er í ís-
lensku samkvæmislífi.
Sem betur fer hvarflaði ekki að
Bjargeyju að dramatísera þessa al-
mennu upplifun. Öðru nær örlaði
þegar í öndverðu á vissri gamansemi
í verkum hennar, chaplínskum til-
burðum sem eru svo nærtækir okkur
norrænum mönnum af því við erum
svo sárafáir. Á endanum þekkja allir
alla þannig að smáuppreisnin sem
felst í ofdrykkjunni og hundakætinni
á það til að bakhlaupa og skilja okkur
eftir eins og sprungnar blöðnir þeg-
ar af tekur mesta fíflaganginn.
Það er þetta kauðska samneyti
Gpg og Gokke sem verður Bjargeyju
hugstætt og hún dvelur við birting-
armyndir okkar íslenska svalls og
eftirvæntingarinnar sem liggur í
loftinu en á svo auðvelt með að gufa
upp þegar öllu er á botninn hvolft.
Ljtífar sælustundir í París er nýj-
asta verk hennar í þessum dúr. Átta-
tíu litskyggnur rúlla gegnum hring-
elq'una ofan á vélinni undir seiðandi
og látlausri, en lítið eitt írónískri
tónlist Kristjáns Eldjárns. Þær
segja sögu tveggja stúlkna - greini-
lega norrænna - á hótelherbergi.
Stundum eru þær einar að gera ekki
neitt, en stundum njóta þær aðstoð-
ar pilts við að gera ekki neitt á hótel-
herberginu.
Vandinn við að vera til í birtingar-
heimi nútímans er mestmegnis fólg-
inn í því að við megum aldrei vera
beinlínis eins og við erum. Eitt er að
vera manneskja inn á við, trú sjálfri
sér, tilfinningum sínum og stundlegu
skapi. Annað er að vera manneskja í
auga linsunnar. Þar verður maður að
vera trúr mýtunni um að allt sé í
stakasta lagi, og ekki bara það held-
ur að allt sé í enn betra lagi hjá
manni sjálfum en öllum hinum, því
hvemig á maður annars að lenda í
því úrtaki sem prýðir síður glans-
tímaritanna? Lygar glansritanna
eru lygar okkar sjálfra þegar við
pósum fyrir linsuna. Það er að vísu
hægt að hugsa sér tímarit sem héti
Þreytt og þegar almælt, því ekkert í
glansritunum kemur á óvart, síst af
öllu hver var hvar, hver var með
hverjum, hver skildi við hvern og
hver er tekinn saman við hvern. En
rútína hinna ríku og frægu heldur
sem betur fer áfram að seljast,
margseljast og endurseljast eins og
heitar lummur því þeir eru svo bless-
unarlega margir sem aldrei þreytast
á að heyra sömu söguna, hversu oft
sem hún er spiluð. Skilgreindi
Rousseau ekki alþýðuna sem þá sem
eru svo saklausir og óspilltir að þeir
eru gjörsamlega varnarlausir gagn-
vart öllum lygum hversu oft sem þær
eru kveðnar? Ljúfa lífið í París er
með öðrum orðum þreytuleg bið á
hótelherbergi, sennilega eftir að frí-
inu ljúki og þremenningarnir - pilt-
urinn og stúlkumar tvær - geti snúið
heim og aftur orðið þau sjálf.
Það er nefnilega svo óendanlega
leiðinlegt að þurfa að þykjast
skemmta sér, bara til að þykjast hafa
haft það æðislegra en náunginn. Það
er að vísu ok sem við á Norðurslóð-
um - flegmatískustu og vinnuglöð-
ustu menn í heimi - undirgöngumst
án þess að æmta, en mikið þurfum
við að hvolfa í okkur ef við eigum að
þola slíka pínu of lengi.
Halldór Björn Runólfsson
Söfn opin um hátíðarnar
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu
TVÆR sýningar eru í sölum
Hafnarhússins; Myndir á sýn-
ingu, úrval verka úr eigu Lista-
safns Reykjavíkur og innsetning
franska listamannsins Fabrice
Hubert sem nefnist Á eigin
ábyrgð. Á skírdag og annan í
páskum verður leiðsögn um sýn-
ingarnar kl. 15. Báðar sýning-
arnar hafa verið valdar á dag-
skrá menningarborgar.
Kjarvalsstaðir og
Ásmundarsafn
I vestursal Kjarvalsstaða
standa nú yfir þrjár sýningar;
Chihuly á Islandi - Form úr
eldi, bandaríski glerlistamaður-
inn Dale Chihuly, Veg(g)ir,
listamaðurinn Gunnar Örn hefur
unnið verk á vegg miðrýmis
Kjarvalsstaða sem er útfærsla
hans á hugmynd tengd undra-
purikti jógafræðanna. I austur-
sal er sýning á verkum Jóhann-
esar S. Kjarval.
Sýningin var valin á dagskrá
menningarborgar.
Ásmundarsafn
í safninu er sýning á nýjum
verkum Steinunnar Þórarins-
dóttur myndhöggvara og úrval
verka Ásmundar Sveinssonar,
en þau fjalla bæði um manninn
og þær aðstæður sem allir menn
finna sig í.
Sýningin var valin á dagskrá
menningarborgar.
Árbæjarsafn
Sýningin Saga Reykjavíkur -
frá býli til borgar, verður opin
á skírdag og annan í páskum
kl. 13-17. Leiðsögn um sýning-
una er kl. 14 og 16.
íslensk grafík,
Hafnarhúsinu
Ljósmyndasýning Kristínar
Hauksdóttur, Brot frá liðinni
öld, 1993-99, verður opin á
venjulegum opnunartíma um
páskahátíðina, fimmtudaga til
sunnudaga. kl. 14-18.
Listasafni ASI,
Freyjugötu 41
í Ásmundarsal er sýning á
verkum Kjartans Ólasonar sem
ber heitið Sjónrænar minningar.
Þar fjallar listamaðurinn um
forgengileika þeirrar tákn-
mynda sem sjálfsmynd íslend-
inga er að einhverju leyti byggð
á, nú undir aldarlok.
I Gryfjunni sýnir Þórarinn
Óskar Þórarinsson ljósmyndir
sem teknar voru á sl. ári, þar
sem ljósmyndarinn fylgdi stór-
hljómsveitinni Stuðmönnum á
reisu þeirra um landið. Síðasti
sýningardagur beggja sýning-
anna er páskadagur 23. apríl.
En safnið er opið alla páskavik-
una frá kl.14-18.
'KRftm
Jtústp
Innritun h
KRAMHÚSIÐ
sima
ginn!
r 5Ö1 51
03 • 551 7860