Morgunblaðið - 20.04.2000, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Frönsk kórtonlist í Langholtskirkju á skírdag og föstudaginn langa
„Ætlaði alltaf
að verða óperu-
söngkona“
Kór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju
flytja franska kórtónlist á tónleikum í kirkjunni í dag
og á föstudaginn langa kl. 17. Margrét Sveinbjörns-
dóttir brá sér í Langholtskirkju og hitti þar að máli
þrjár ungar stúlkur sem syngja einsöng á tónleikunum
og hyggja allar á frekara söngnám í framtíðinni.
ALLAR hafa þær fengið sitt sönguppeldi í
Gradualekór Langholtskirkju og stunda nú
söngnám hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur í
Söngskólanum í Reykjavík. Dóra Steinunn Ár-
mannsdóttir er 16 ára og Regína Unnur Ólafs-
dóttir 18 ára. Þær syngja einsöng með Gradua-
lekórnum í Messe basse eftir Gabriel Fauré.
Guðríður Þóra Gísladóttir, sem er tvítug,
syngur einsöng með Kór Langholtskirkju í
Requiem eftir Fauré, ásamt Bergþóri Páls-
syni, sem vart þarf að kynna hér.
Tónleikarnir hefjast á því að Gradualekór-
inn flytur tvö verk eftir Fauré, Tantum ergo,
samið 1894, og Messe basse, 1881-82. Þá flytur
Kór Langholtskirkju Davíðssálm 150, Laudate
Dominum (Lofíð Guð í
helgidómi hans), eftir César Franck, frá ár-
inu 1888, og eftir Fauré Tu es Petrus (Þú ert
Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég
byggja kirkju mína), samið 1872, og Eitt er orð
Guðs (Cantique de Jean Racine), samið 1865.
Stærsta verk tónleikanna og lokaverkið er svo
Requiem eða Sálumessa, tvímælalaust þekkt-
asta verk Faurés. Orgelleikari á tónleikunum
er Claudio Rizzi, Gunnhildur Einarsdóttir leik-
ur á hörpu og stjórnandi er Jón Stefánsson.
„Ótrúlega miklar raddir og með af-
brigðum músíkalskar“
Messe basse þýðir Lágmessa og vísar til
þess að ekki eru allir fastir þættir hinnar sí-
gildu messu notaðir, heldur aðeins Kyrie,
Sanctus, Benedictus og Agnus Dei. Regína
Unnur syngur einsöng í Kyrie og Dóra Stein-
unn í Benedictus. Báðar segja þær sönginn
vera aðaláhugamálið. Kóræfingar eru tvisvar í
viku, námið í Söngskólanum tekur sinn tíma en
báðar hyggjast þær Ijúka 5. stigi í vor. Þá eru
ótaldar tónleikaferðir, aukaæfingar og æfinga-
búðir - eða þrælabúðir, eins og þær eru líka
kallaðar. Auk þess eru þær stöllur vitanlega í
skóla, Regína í Kvennaskólanum í Reykjavík
og Dóra Steinunn í Menntaskólanum við Sund.
Regína segist alltaf hafa lifað og hrærst í
tónlistinni, hún hefur lært á píanó_ og verið í
Gradualekórnum frá barnsaldri. „I föðurfjöl-
skyldunni minni er mikið af tónlistarfólki.
Systkini pabba eru öll í tónlist en reyndar ekki
pabbi,“ segir hún.
„Það hefur verið minn draumur að verða
söngkona alveg frá því ég var fimm ára,“ segir
Dóra Steinunn, ákveðin í að láta drauminn
rætast.
Báðar sungu þær Regína og Dóra Steinunn
einsöng með Gradualekórnum á tónleikum í
Salnum nýverið. Tónlistargagnrýnandi Morg-
unblaðsins, Bergþóra Jónsdóttir, skrifaði m.a.
um söng þeirra í dómi sínum um tónleikana:
„Söngur þessara frábæru stelpna með kómum
var sannarlega hápunktur tónleikanna. Báðar
hafa þær ótrúlega miklar raddir og eru með af-
brigðum músíkalskar. Þær geisluðu líka báðar
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá æfingu Kórs Langholtskirkju.
Morgunblaðið/Kristínn
Guðríður Þóra Gísladóttir, Dóra Steinunn
Ármannsdóttir og Regína Unnur Ólafs-
dóttir syngja allar einsöng á tónleikunum
í Langholtskirkju.
af sönggleði og gerðu þessa stund eftirminni-
lega.“
Alin upp í Operunni
Guðríður Þóra syngur eins og áður sagði
einsöng í Requiem. „Eg syng aríuna Pie Jesu -
og svo syng ég auðvitað líka með kómum,“
segir hún. Hún hefur verið í Kór Langholts-
kirkju frá því hún var 17 ára og þar áður í
mörg ár í Gradualekórnum. Aðspurð um helsta
muninn á því að syngja í þessum tveimur kór-
um segir hún að mesta breytingin fyrst um
sinn hafi verið að fara allt í einu að syngja með
karlaröddum. „Svo er náttúmlega heilmikill
munur á barna- og fullorðinskór. En í þessu til-
felli er hann samt ekki eins mikill og annars,
vegna þess að Jónsi stjómar báðum kóran-
um,“ segir Guðríður Þóra. Hún segir jafngam-
an að syngja í eldri kómum og þeim yngri en
vissulega séu viðfangsefnin stærri í Kór Lang-
holtskirkju.
Guðríður Þóra er búin með menntaskólann
og einbeitir sér nú að söngnáminu, hyggst
ljúka 7. stigi nú í vor. Hún hefur líka lært á pía-
nó og er meira að segja aðeins farin að vinna
fyrir sér með söngnum, með því að syngja með
Kammerkór Langholtskirkju. Seinna meir er
draumurinn að gera sönginn að aðalstarfi. „Ég
ætlaði alltaf að verða óperusöngkona þegar ég
var lítil,“ segir hún, enda að stóram hluta til al-
in upp í Islensku óperunni. „Mamma syngur í
Óperakórnum og ég var með henni á öllum
sýningum. Annars var eiginlega togast á um
mig þegar ég var yngri, mamma er öll í tónlist-
inni og pabbi í íþróttunum," segir hún.
Þekki eng-a
tónlist jafn
hreina
*
I tilefni af flutningi
Sálumessu Gabriels
F auré fjallar Jón
Stefánsson stjórnandi
Kórs Langholtskirkju
um tónskáldið.
,Ég þekki enga tónlist jafn hreina og ein-
staka, nema, ef til vill, tónlist Mozarts eða
Schuberts." (Arthur Honegger (1892-1955)
um tónlist Gabriels Fauré.)
Gabriel Fauré (1845-1924) fæddist
í Pamiers í Suður-Frakklandi í ná-
grenni Pyreneafjallanna. Hann
stundaði nám við Niedermeier-
kirkjutónlistarskólann í París og
meðal kennara hans var Saint-Saéns.
Síðasta árið sitt við skólann vann
hann fyrstu verðlaun í tónsmíðasam-
keppni (þá tvítugur) fyrir verkið
Cantique de Jean Racine. Verkið var
tileinkað César Frank.
Fauré átti fyrir höndum langt starf
sem kirkjuorganleikari og kórstjóri.
Gabriel Fauré
Á æviferli sínum kynntist hann list
ólíkra tónskálda s.s. Chopin, Wagn-
er, Debussy, Schönberg og Stravins-
ky. Þetta er e.t.v. tími mestu umbrota
tónlistarsögunnar en stíll Faurés er
afar persónulegur og einstakur.
Hann var tvímælalaust mesta tón-
skáld Frakka á sínum tíma og hafði
gífurlega mótandi áhrif á tónskáld
20. aldarinnar, sem lærðu undir
handleiðslu hans eftir að hann varð
prófessor við Tónlistarháskólann í
Morgunblaðið/Jim Smart
Jdn Stefánsson
París og síðar rektor sama skóla.
Meðal nemenda hans vora Ravel,
Enesco og Boulanger.
Hann stofnaði með sínum góða vini
Camille Saint-Saéns félagið Société
nationale de musique sem átti stóran
þátt í að uppgötva og koma á fram-
færi tónskáldum s.s. Duparc, Franck,
Lalo, Debussy, d’Indy og fleiram.
Sagt hefur verið um tónlist hans að
hún sameini hreinleika, jafnvægi og
nákvæmni klassísku tónlistarinnar
og hjartahlýju rómantíkurinnar. Það
tók þó langan tíma fyrir umheiminn
að kynnast tónlist hans en nú á tím-
um nýtur hann mikillar virðingar
sem meistari ljóðaflokkanna, skáld
hljómborðs og mikilfenglegt tón-
skáld kammertónlistar. Ópera hans,
Pénélope, er af mörgum talin til
meistaraverka en þekktasta og vin-
sælasta verk hans er tvímælalaust
Sálumessan sem frumflutt var 1877 í
styttri mynd en við þekkjum í dag.
Hann var sífellt að endurbæta verkið
og það var ekki fyrr en árið 1900 sem
það var fullbúið í þeirri mynd sem
það er flutt nú á tímum.
Á efri árum þjáðist hann af heyrn-
arleysi sem varð til þess að hann dró
sig í hlé frá Tónlistarháskólanum í
París 1920 en hann helgaði sig algjör-
lega tónsmíðum og mörg meistara-
verka hans eru frá þessum síðustu
árum hans, s.s. önnur sellósónatan,
annar píanókvintettinn og ljóðaflokk-
urinn L’horizon chimérique. Eitt af
síðustu verkum hans var píanótríóið
op. 120 samið 1922-3 og framflutt á
afmælisdegi hans 12. maí 1923 af þre-
menningunum Pablo Casals, Alfred
Cortot og Jaques Tibaut.
Síðustu ár sín naut Fauré mikillar
virðingar og var m.a. sæmdur heið-
ursmerkinu Grand Croix de Legion
d’honnor.
Hann lést í París 4. nóvember
1924,79 ára að aldri.
Feðgin
leika á
páskatón-
leikum í
Eyjum
FEÐGININ Védís Guðmunds-
dóttir þverflautuleikari og Guð-
mundur H. Guðjónsson, orgel-
leikari Landakirkju og
skólastjóri Tónlistarskóla Vest-
mannaeyja, halda tónleika í
Landakirkju í Vestmannaeyj-
um mánudaginn 24. apríl kl. 17.
Flutt verða verk eftir Bach,
Claude Debussy, Anton B. Fiir-
stenau, G.F. Hándel, Mariu
Theresiu v. Paradis, Felix
Mendelssohn-Bartholdy, César
Franck og Luigi Boccherini.
Húnavöku-
stemmning
SIGURRÓS Stefánsdóttir opn-
ar myndlistarsýningu í kaffi-
húsinu Við árbakkann á
Blönduósi í dag, skírdag, kl. 14.
Yfirskrift sýningarinnar er
Húnavökustemmning Sigur-
rósar. Flest verkin era unnin á
þessu og síðasta ári. Um er að
ræða olíumálverk á striga og
blandaða tækni (pastel og dag-
blöð). Verkin era öll til sölu.