Morgunblaðið - 20.04.2000, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Ytra-Seljalandi,
Vestu r- Eyjafj öl I u m,
sem andaðist á líknardeild Landspítalans mið-
vikudaginn 12. apn'l, verður jarðsungin frá
Stóradalskirkju laugardaginn 22. apríl kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Krabbameinsfélagið.
Hálfdan Auðunsson,
Kristján Hálfdanarson, Sigurveig Jóna Þorbergsdóttir,
Auðunn Hlynur Hálfdanarson, Berta Sveinbjamardóttir,
Guðlaug Helga Hálfdanardóttir, Ásbjörn Þorvarðarson,
Hálfdan Ómar Hálfdanarson, Þuríður Þorbjarnardóttir,
Markús Hrafnkell Hálfdanarson, Inga Lára Pétursdóttir,
Arnlaug Björg Hálfdanardóttir,
Heimir Freyr Hálfdanarson,
Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir,
Sigríður Hmnd Hálfdanardóttir, Hafþór Jakobsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, systir og
mágkona,
SIGURLAUG BJÖRG PÉTURSDÓTTIR,
Obdams Allé 7,
Kaupmannahöfn,
lést á Amager hospitalet þriðjudaginn 18. apríl
síðastliðinn.
Gert Thomsen,
Nína Björg Thomsen,
Thomas Dan Thomsen,
Júlía Björg Thomsen,
Guðrún Pétursdóttir, Þorkell Þorsteinsson,
Anna G. Pétursdóttir, Harald Kristófersson,
Steinunn B. Pétursdóttir,
Kristín Pétursdóttir, Ólafur Stefánsson.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
ANNA VIGDÍS ÓLAFSDÓTTIR,
Miðleiti 7,
Reykjavík,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mið-
vikudaginn 12. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 25. apríl kl. 13.30.
Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir, Kristinn R. Gunnarsson,
Anna Vigdís Kristinsdóttir,
Baldvin J. Kristinsson,
Ragna S. Kristinsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar,
OLGA ELLEN LUDVIGSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn
9. apríl.
Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jóhanna Einarsdóttir,
Þorsteinn Einarsson.
£
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð vegna andláts sonar
okkar, bróður, barnabarns og föður,
KNÚTS STEINARS.
Guð geymi ykkur öll.
Steinunn Ólafsdóttir Eðvarð T. Jónsson
og fjölskylda, og fjölskylda
og aðrir ástvinir.
KARL KRISTINN
KRISTJÁNSSON
+ Karl Kristinn
Kristjánsson
fæddist á Akranesi
17. febrúar 1979.
Hann lést af slysför-
um 10. apríl síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Akra-
neskirkju 19. apríl.
Ganganerlétt
úr garði
tilglaðraendurfunda.
Þaðsemvar
er heilt
framundan
horfið
en ekki liðið.
I birtu morgunsins
mætirþúKristi
við hliðið.
(Þ.S.)
Genginn er ljúfur og góður dreng-
ur sem hefur verið hluti af okkar
stóra vinahóp frá því daginn sem
hann fæddist, í yfir tuttugu ár. Á
liðnu ári fögnuðum við áfanga í lífí
Kalla þegar hann lauk stúdentsprófi.
Hann hafði gengið mikla og góða
þroskabraut, greindur, rólegur og
yfirvegaður piltur, sem eftir að hafa
tekið sér vetrarfrí frá námi ætlaði að
hefja háskólanám í Bifröst á haust-
dögum. Á síðasta þjóðhátíðardegi
liðinnar aldar var þessi ungi gjörvi-
legi piltur valinn til að flytja ávarp í
samfélagi sínu á Skaganum, fullur
gleði og væntinga. í lok máls síns
minntist hann þess að framtíðin væri
björt og vísaði til væntinga og tæki-
færa sem bíða ungs fólks á þessum
brautarmótum. Brautargengi Kalla
á lífsins leið lauk fyrr en okkur grun-
aði. Eftir stendur minningin um góð-
an og heilsteyptan dreng. Dreng
sem naut alltaf samverustunda með
okkur vinunum, á fagnaðarstundum,
í ferðalögum og útilegum. Þegar
kom að því á ferðalögum að kveikja í
hlóðum eða varðeld, var Kalli þar
fremstur í efnisöflun, og að liggja við
eldinn langtímum saman, rýna í log-
ana, bæta við sprekum, á milli þess
sem tekið var þátt í
leikjum, það barn
geymdi hann alltaf í sér
og lýsir honum vel.
Kalli hafði ávallt mikið
að gera, var kappsam-
ur íþróttamaður og
vann fjölmarga sigra í
sundi með félögum sín-
um, enda alinn upp á
heimili þar sem
íþróttaandi og áhugi
réð ríkjum. Kalli hafði
metnað og þor, enda ná
fæstir miklum árangri í
einstaklingíþróttum
nema með góðan aga
og atgervi. Kalla er einnig vel lýst í
nokkrum orðum dóttur okkar, er
hún sagði fyrir nokkrum dögum:
„Það var alltaf svo skemmtilegt að
koma til Kalla, hann tók alltaf fram
það nýjasta og besta sem hann átti
til að sýna eða gera.“ Þannig var
hann vinur okkar, einlægur og ljúfur
og þroskaðist enn betur með fjöl-
skyldu sinni við fráfall náinna ætt-
menna síðustu árin. Kalli átti stóran
vinahóp sem nú situr hljóður eftir,
unnusta hans, komin langt að frá
öðru heimshorni, syrgir ástvin sinn
sárt og brostna drauma, systkinin
ástkæran bróður sem var svo stór
hluti af þeim sjálfum. Við sem stærri
erum verðum öll að styðja við þessi
ungu hjörtu. Það er einmitt á þess-
um stundum sem reynir á okkur
eldri og það skjól sem við getum
veitt, ekki bara 1 dag, heldur á morg-
un. En minningin lifir! Að lokum er
það sá sólargeisli sem vermir og fær
þerrað tárin. Kalli á sannarlega skil-
ið að við brosum til hans í minning-
unni, það munum við gera. Lífshlaup
vinar okkar uppskar birtu og bros
ofnum bautasteinum ljúfra minn-
inga. Við fjölskyldan sendum Kalla
vini okkar hinstu kveðju og biðjum
Krist fyrir góðan dreng.
Pálmi Pálmason.
Elsku Kalli okkar. Á þessari
stundu þegar við loksins áttum okk-
ur á því að það verður ekki aftur
snúið viljum við fyrst og fremst
þakka þér fyrir að hafa fengið að
þekkja þig, því þó að við séum nú svo
+
Elskuleg móðir okkar og amma,
JÓHANNA PETRA BJÖRGVINSDÓTTIR
frá Hlíðarenda,
verður jarðsungin frá Heydalakirkju laugar-
daginn 22. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
hjúkrunarheimilið Skjólgarð, Hornafirði.
Börn, barnabörn og fjölskyldur þeírra.
+
Ástkær tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Suðurgötu 8,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mið
vikudaginn 26. apríl kl. 13.30.
Jón A. Snæland,
barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega alla þá samúð, virðingu,
hlýju og vináttu sem okkur hefur verið sýnd
við andlát systur okkar,
systur MARÍU HILDEGARD.
Minningarathöfn fer fram í Kristskirkju, Landa-
koti, þriðjudaginn 25. apríl kl. 18.00.
St. Jósefssystur.
miklu fátækari eftir að hafa misst
þig, þá erum við svo óendanlega rík-
ari vegna þess tíma sem við áttum
með þér.
Fyrstu samverustundir okkar
krakkanna ná lengra aftur en minn-
ingarnar. Ekki óraði okkur fyrir því
að þær yrðu ekki fleiri.
I þau fjölmörgu skipti sem fjöl-
skyldur okkar hittust og vináttan óx
horfðum við til þess tíma þegar lítil
kríli myndu bætast í hópinn og við
gætum sagt þeim frá öllum búðar-
leikjunum, He-man, AD&D, tölvu-
leikjunum og öllum þeim leikjum
sem við lékum.
Þú varst okkur svo yndislegur
vinur og félagi, svo góður og einlæg-
ur vinur er vandfundinn.
Ég (Björg) man sérstaklega eftir
því þegar við vorum 5-6 ára og þú
ákvaðst upp á þitt eindæmi að safna
öllum vasapeningunum þínum, sem
voru nú ekki miklir í þá daga, svo þú
gætir keypt fyrir mig hlunkasúper-
bolta sem þú vissir að mig langaði
mikið í. Minningin um þetta sem svo
margar aðrar mun alltaf ylja mér
um hjartaræturnar, þetta sýnir svo
vel hvernig hjartalag þú hafðir,
ávallt reiðubúinn að hjálpa hverjum
sem var.
Við vitum að Jón Þór hefði viljað
minnast á og segja svo margt að
skilnaði í þessari grein og að þið eig-
ið minningar um ýmis strákapör, en
við vitum að þó að það sé ekki skrif-
að hér mun það komast til skila.
Elsku Kalli, hversu gaman það
var að sjá hve vel þú þroskaðist og
varðst að ungum og fallegum manni,
hversu ánægður og hamingjusamur
þú varst, brostir svo mikið og fal-
lega, enda full ástæða til; búinn að
finna ástina þína, ákveða hvað þú
vildir læra og sumarið framundan.
Og hversu sorglegt og óréttlátt
sem okkur kann að finnast að þú
skulir þurfa að fara þegar lífið lék
við þig, þá erum við samt sem áður
þakklát fyrir að síðustu stundirnar
þínar voru hamingjuríkar.
Við getum ekki lokið þessari grein
án þess að minnast á hversu yndis-
legan og smitandi hlátur þú hafðir,
og ómar hann enn í huga okkar.
Elsku Rúna, Stjáni, Álfhildur og
Sveinn, ömmur og afi og Guðrún, við
biðjum góðan guð að styrkja og
styðja ykkur í þessari miklu sorg,
svo og alla aðra nákomna.
Elsku Kalli, við biðjum góðan guð
að blessa þig og gangi þér ávallt vel.
Fjölskyldan Neðstabergi 18.
Orð mega sín lítils á slíkri sorgar-
stund er nú ríkir. Ungur drengur í
blóma lífsins er horfinn á braut og
eftir situr minningin ein. Við kynnt-
umst Kalla í gegnum Álfhildi en á
uppvaxtarárunum vorum við vin-
konurnar heimalningar hver heima
hjá annarri. Eftir að við fluttumst
allar til Reykjavíkur hefur samgang-
urinn minnkað. Við hittumst samt
alltaf reglulega og spjöllum og þann-
ig fengum við að vita hvað Kalli var
að gera og hvert hann stefndi.
Elsku Stjáni, Sigrún, Álfhildur og
Sveinn, hugur okkar er hjá ykkur og
sendum við okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Guð veri með ykkur.
Áhendurfelþúhonum,
semhimnastýrirborg,
þaðallt, eráttu’ívonum,
ogallt,erveldursorg.
Hann bylgjur getur bundið
ogbugaðstormaher,
hann fótstig getur fundið,
semfærséhandaþér.
(Bjöm Halldórsson)
Amheiður og Sandra.
Undanfarna daga hef ég oft hugs-
að: Ég hlýt að vakna upp við vondan
draum. Énginn er viðbúinn þegar
sorgin ber að dyrum.
„Til góðs vinar liggja gagnvegir,
þótt hann sé fyrr farinn." (Háva-
mál.)
Ég man eftir fallegum dreng sem
brosti með augunum. Blíður og
hvers manns hugljúfi. Ég man fal-
legar sögur um góðan dreng.
Ég veit að amma Guðrún og afi
Sveinn eiga eftir að taka honum opn-
um örmum.
Ég þakka þér fyrir samfylgdina.
Elsku Álfliildur, Sveinn, Sigrún
og Stjáni, megi Guð vera með ykkur.
Helena og fjölskyldan.