Morgunblaðið - 20.04.2000, Page 70

Morgunblaðið - 20.04.2000, Page 70
70 PÍMMÍ ÍJD AGUR' 20. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ >----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Dýraglens Hundalíf Til hamingju, ísafjörður Frá Greipi Gíslasyni: í DAG, sumardaginn íyrsta, opnar ungt fólk kaffi- og menningarhús í miðbæ Isafjarðar. Húsið á að vera miðstöð fyrir fólk á framhaldsskóla- aldri. í húsinu er kaffisala auk marg- víslegarar annarr- ar starfsemi. Kaffi- húsið er að sjálf- sögðu opið öllum og ekki vanþörf á því kaffihús er eitt af því sem ísfirðinga hefur vantað fyrir sigog gesti sína. Á Isafirði hefur lengi vantað af- drep fyrir fólk á þessum aldri og er þetta því kærkomin nýjung í annars fjölbreytta flóru mannlífs í bænum. Húsið verður reyk- og vímulaust og á að vera opið eins og skemmtistaðir í bænum og því fullkomlega sam- keppnishæft við það sem er í boði í dag. Hugmyndin er að í húsinu verði alltaf mikið fjör og nóg um að vera. Þar er svið fyrir listamenn til að troða upp, þar eru tölvur tengdar við umheiminn og sjónvarpsherbergi, sem nú þegar hefur verið komið fyr- ir. í framtíðinni bætist svo fleira við. Tölvurnar gætu svo ferðamenn nýtt til að athuga tölvupóstinn sinn. Það var í febrúar sem Hollvættir Menntaskólans á ísafirði, Rauða- krossdeildirnar á norðanverðum Vestfjörðum og VáVest ásamt áhugasömum einstaklingum, könn- uðu grundvöll fyrir rekstri sem þessum. Fljótlega fannst húsnæði í gamla apótekinu við Hafnarstræti og var strax hafist handa við að koma því í rétt horf. Það var alltaf markmiðið að unga fólkið sem kæmi til með að sækja staðinn fengi að móta hann og síðasta mánuðinn hef- ur hópur sjálfboðaliða starfað við að mála og rífa veggi, byggja upp, breyta og bæta. í dag fáum við svo að sjá afraksturinn. Þrátt fyrir að í dag verði húsið opnað er ekki þar með sagt að húsið sé tilbúið, langt í frá. Starfsemin verður í stöðugri endurnýjun með fólkinu sem hana sækir. Það verður stöðug endurnýjun á fólki og með því koma nýjar hugmyndir og verð- ur leitast við að koma sem flestu í framkvæmd. Staðreyndin er sú að á svæðinu búa fjölmargir unglingar með góðar hugmyndir. Þessi starfsemi á að ýta undir og hjálpa þessu fólki við að koma þeim í framkvæmd. Hópar af ýmsu tagi geta fengið inni í húsinu, hvort sem það er í bókstaflegri merkingu eða á vefsvæði hússins. Fyrir hönd ísfirskra ungmenna þakka ég þeim sem hafa staðið á bak við verkefnið. Ennfremur þakka ég öllum sem lagt hafa fjármagn í verk- efnið og vinnu. Einnig óska ég starfsmönnum hússins, forstöðu- manninum Aldísi Sigurðardóttur þjóðfræðingi og Auðuni Gunnari Eiríkssyni, gæfu í nýjum störfum. Til hamingju með daginn. GREIPUR GÍSLASON, menntaskólanemi á Isafirði. Ljóska í dag ætla ég að Af hverju kallarðu Þetta er gamall brandari, Talandi um gamalt, Ég þoli kalla mig Ófelíu. þig bara ekki náðirðu því. ert þú ekki full- þetta leigubíl? gamall fyrir mig? ekki. Ferðumst til Austurríkis Frá Guðmundi Jónasi Kristjánssyni: SÚ AKVÖRÐUN Evrópusambands- ins (ESB) að setja Austurríki í póli- tiska einangrun eftir að ný ríkisstjóm mið- og hægriflokka tók við völdum hefur sætt mikilli gagnrýni bæði inn- an sambandsins sem utan. Einkum er þá hugsað til fordæmisins í framtíð- inni og þeirrar spumingar hvar mörkin eigi að vera, og hver geti orðið hlutlaus dómari í þeim efnum. Þessi afstaða ESB, sem stjómað er nær al- farið af sósíaldemókrötum, er einstæð gagnvart aðOdarríki, og þykir gróf íhlutun í innanríkismál. Þá benda margir réttOega á að þessi aðför sýni á hvaða vOligötur þetta Evrópusam- starf er komið í dag. Ogrun við samrunaferlið Sem betur fer era menn og þjóðir frekar dæmd eftir verkum sínum og framkomu fremur en fordómum. Hin nýja ríkisstjóm Austurríkis hefur frá því hún tók við völdum í einu og öllu virt lýðræði, mannréttindi og alþjóð- lega samninga, enda stóð heldur ekk- ert annað tíl. Það er hins vegar ekki hægt að segja um margar rOdsstjóm- ir sem ESB heíúr velþóknun á og hef- ur góð pólitísk samskipti við. Má þar nefna kommúnistastjómina í Kína og hryðjuverkastjómina í ísrael. En fyr- ir hvað er þá verið að refsa? Jú, annar stjómarflokkanna i Austurrfld, Frels- isflokkurinn, er Evrókrötunum í Bmssel ekki þóknanlegur, því hann hefur efasemdir um samrunaferlið innan ESB. Það að flokkur með slíkar þjóðlegar skoðanir komist tO vegs og virðingar innan ESB getur smitað út frá sér að mati Evrókrata, og koll- varpað dramnsýn þeirra um hið stóra Sambandsríki Evrópu. Þessi ögrun við samrunaferlið er því aðalástæðan fyrir öllu írafárinu í Brussel. Sælyum Austurrfld heim Austurríki er mikið ferðamanna- land enda gott heim að sækja. í aðfór- inni gegn austurrískum stjómvöldum hefur verið reynt að vinna skemmdar- verk á austurrískum ferðamannaiðn- aði með því að hvetja ferðamenn tO að sniðganga landið. Við Islendingar er- um sem betur fer alltof skynsöm þjóð tO að láta blekkjast af slíkum áróðri, og munum auðvitað ferðast til Aust- urrflds hér eftir sem hingað tO. Það er því ánægjulegt að íslensk stjómvöld hafi nú ákveðið að setja upp sendiráð í Austurrfld tO að styrkja vináttutengsl og samskipti þjóðanna enn frekar. Evrókratar á Alþingi íslendinga hafa mótmælt þessari ákvörðun, sem sýnir enn og aftur hræsnina í þeirra öfga- fulla málflutningi. Sem betur fer er ísland enn frjálst og fullvalda utan ESB, og lætur fordóma ekki ráða för í alþjóðlegum samskiptum. GUÐMUNDUR JÓNAS KRISTJÁNSSON, Funafold 36, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.