Morgunblaðið - 20.04.2000, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000 73
I DAG
Árnað heilla
O fT ÁRA afmæli. í dag,
O tj fimmtudaginn 20.
apríl, er áttatíu og fimm
ára Oddur Jónsson, Lyng-
brekku 15, áður bóndi,
Sandi í Kjós. Hann er að
heiman í dag en vill bjóða
ættingjum og vinum í
kaffi, laugardaginn 29.
apríl, á heimili dóttur sinn-
ar og tengdasonar, Hæð-
arbyggð 5, Garðabæ, eftir
kl. 15.
Af\ ÁRA afmæli. Mið-
ivi vikudaginn 26. apríl
nk. verður Grímur Gíslason,
Hrauntúni 1, Vestmanna-
eyjum, fertugur. Grímur
verður staddur erlendis á af-
mælisdaginn en í tilefni af-
mælisins taka hann og eigin-
kona hans, Bryndís
Guðmundsdóttir, á móti
gestum í Akógeshúsinu í
Vestmannaeyjum laugar-
daginn 22. apríl nk. kl. 20.
SKAK
(Jinsjón llelgi Áss
(irélarsson
Hvítur á leik
Einn glæsilegasti sigur ís-
lensks skákmanns á skák-
móti fyrr og síðar átti sér
stað á nýloknu Reykjavík-
urskákmóti. Meðfylgjandi
staða er einmitt frá einni
skák sigurvegarans, Hann-
esar Hlífars Stefánssonar
(2566) gegn hollenska al-
þjóðlega meistaranum Har-
men Jonkman (2446).
28.Rxc7! Rxc7 29.H5d6+
Kb7 30.axb6 Hvítur hefur
nú peði meira og betri stöðu
sem stórmeistarinn íslenski
nýtti sér til fulls. 30...Hac8
31.Hxc7+ Hxc7 32.bxc7
Kxc7 33.Bxc5 He8 34.Hxa6
Bxeð 35.b4 Bg3 36.BÍ2
Bxf2+ 37.Kxf2 He4
38.Ha7+ Kb6 39.HxH Hxc4
40.Hxg7 Hxb4 41.Hg5 h4
42.Hg4 Hb2+ 43.Kgl og
svartur gafst upp.
O /\ ÁRA afmæli. Hinn
ö V/ 24. apríi nk. verður
áttræð Sigrún Sumarrós
Jónsdóttir, matráðskona í
Sumarbúðum KFUM & K
í Kaldárseli til 50 ára. Á
afmælisdaginn dvelur
Sigrún með öllum afkom-
endum sínum á Flórdía.
A ÁRA afmæli. í
I V/ dag, fimmtudaginn
20. apríl, verður sjötugur
Víðir Finnbogason. Eig-
inkona hans er Karen
Magnúsdóttir. Á afmælis-
daginn verða þau stödd á
Maspalomas Esplendido
Bungalows á Kanaríeyj-
f7A ÁRA afmæli. í dag,
I U fimmtudaginn 20.
apríl, verður sjötugur
Gunnar Petersen. I tilefni
þess tekur hann og eigin-
kona hans, Dóra Sch. Pet-
ersen, á móti gestum í
Ými, hinu nýja húsi Karla-
kórs Reykjavíkm’, í dag
milli kl. 16 og 19.
n A ÁRA afmæli. í dag,
I \/fimmtudaginn 20.
apríl, verður sjötugur
Heimir Aðalsteinsson,
Smárahlíð 12a, Akureyri.
Hann verður að heiman á
afmælisdaginn en vinum
og vandamönnum er boðið
að þiggja veitingar að
Hlíðarbæ, laugardaginn
22. apríl, frá kl. 17.
/»/\ ÁRA afmæli. í dag,
Ö\J fimmtudaginn 20.
apríl, verður sextugur
Hreiðar Þórhallsson,
framkvæmdastjóri,
Fannafold 1, Reykjavík.
Eiginkona hans er Emilía
Emilsdóttir. Þau taka á
móti ættingjum og vinum í
Kiwanishúsinu, Engjateigi
11, frákl. 19ídag.
A A ÁRA afmæli.
O V/ Næstkomandi
sunnudag, 23. apríl, verður
sextugur Jónas Jónsson,
forstjóri Bifreiðaverk-
stæðis Jónasar. í tilefni af-
mælisins taka hann og eig-
inkona hans, Ólöf
Steingrímsdóttir, á móti
gestum í Víkingasal, Hótel
Loftleiðum, fóstudaginn
28. apríl, milli kl. 18-21.
LJOÐABROT
VISUR
(Úr skáldsögunni „Maöur og kona")
Sé eg í fjarska fjöllin blá,
sem fyrrum glaður sat eg hjá,
þar sem fasta tók eg tryggð
tinda við og sælubyggð.
Eg sé í fjarska fjöllin blá,
þau firrast mig, og vilja’ ei sjá
sveininn, sem að enn þeim ann
af öllu hjarta, bezt sem kann.
Veit eg, að þið tryggða tröll,
þið traustu gömlu Islands fjöll,
hlýið minni Hlíðar-rós,
hún er minnar æfi ljós.
Jón Thoroddsen.
STJÖRIVUSPÁ
eftir Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hreinskiptinn og
leggur mikið upp úr því að
aðrir séu það líka. Þú átt fáa
en góða vini.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það er einhver sem er að
þrýsta á þig og vill fá þig til að
gera hlut sem þér er þvert
um geð. Ekki láta kúga þig til
þess sem þú vilt ekki.
Naut
(20. apríl - 20. maí) F*
Óvænt tækifæri mun bjóðast
þér og það ríður á miklu að þú
kunnir að bregðast rétt við.
Láttu hrakspár annarra lönd
og leið og treystu eðhsávísun
þinni.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) ÞA
Eitthvað vill ekki ganga upp
hjá þér og þú kynokar þér við
því að leita ástæðu þess. Líttu
nú samt í eigin barm því skýr-
ingin liggur nær þér en þú
heldur.
Krabbi
(21. júní -22. júlí)
Það er einhver iosarabragur
á þér og þú gætir þess ekki
nógu vel að hafa hlutina á
hreinu svo ekki komi til vand-
ræða þín vegna. Taktu þig á.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Það er í góðu lagi að gera sér
glaðan dag ef þú gætir þess
bara að það bitni hvorki á vin-
um þínum eða vinnu. Mundu
bara að hóf er best á hverjum
hlut.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það getur reynst nauðsynlegt
að halda fast utan um hlutina
til þess að maður missi ekki
frá sér ýmislegt sem manni er
kært. Vertu því á varðbergi.
(23. sept. - 22. október) m
Það gengur ekki að bianda
saman léttúð frístundarinnar
og alvarleika starfsins. Haltu
þessu aðskildu því allt hefur
sinn stað og stund.
Sþorðdreki
(23. okt. -21. nóv.)
Það standa á þér öll spjót
hvort heldur er heima fyrir
eða í vinnunni. Þér er því
nauðsynlegt að komast afsíð-
is svo þú getir velt málunum
fyrir þér í ró og næði.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) ifaCr
Það getur verið erfitt að eiga
við andstæðing sem er svo
líkur manni sjálfum að furðu
sætir. Vertu því á varðbergi
en varastu allt ofsóknaræði.
Steingeit „
(22. des. -19. janúar) 4V
Það væri gaman að hóa sam-
an gömlu vinunum og eiga
með þeim kvöldstund og rifja
upp gamlar minningar. Það
er alltaf eitthvað sem kemur
á óvart á svona kvöldum.
Vatnsberi ,
(20.jan.-18. febr.) QSL
Það er svo margt að gerast í
kringum þig að þér finnst erf-
itt að einbeita þér að þeim
hlutum sem skipta raunveru-
lega máli. Reyndu það samt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að gefa því meiri
gaum hvernig þú verð tíma
þínum og með hverjum. Það
getur reynst nauðsynlegt að
verja sig gegn ágangi ann-
arra.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindafegra staðreynda.
TILSOLU
hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík,
Malarhöfða 6
IWIAN 8.150 4x4,
árgerð 1990,
ekinn 105.000 km,
150 hö með sídrifi
og læsingum að
framan og aftan.
Er með 14 manna
farþegahúsi sem
þarfnast lagfæringa
að utan.
SOVI
Nuddnám
I Svæða- og viðbragðsmeðferðaskóla
íslands lærir þú:
• Rd þekkja líkamann á alveg nýjan hátt.
• Rð auka naemni þína og skynjun.
• Rð beita þessari þekkingu og naemni ödrum til heilsu-
bótar og þér til heilsubótar og gleði.
Námið er 415 kennslustunda verklegt nám og 30 eininga
bóklegt nám.
Námid hefst (september 2000. Öll kennslugögn eru á
fslensku.
Námskröfur eru fyllilega sambaerilegar þeim skólum er-
lendis, sem mestar námskröfur gera.
Kennt er á Rkureyri og í Reykjavík.
Rðfaranám verdur á Rkureyri og í Reykjavík föstudaginn
19. og laugardaginn 20. maí.
Vertu velkomin á heimsíduna okkar uuuuuu.nudd.is eða
leitaðu upplýsinga í símum skólans, sem eru 557 5000
og 462 4517.
SOVÍ Svæða- og viðbragðsmeðferðaskóli íslands.
ShJttar og síðar kápur
með eða án hettu,
mörg snið.
Fallegar úlpur.
Hattar og húfur.
BÆTT HEILSA - BETRI
LÍÐAN! BÆTT AFKÖST!
Vara sem allstaðar slær í gegn
300 kr. á dag! Uppl. í s. 698 3600.
VIÐSKIPTATÆKIFÆRI
ALDARINNAR!
www. earnfastnow. com
LÁTTU DRAUMA ÞÍNA RÆTAST!