Morgunblaðið - 30.04.2000, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ
“
44 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000
OPIÐ HÚS - VESTURGATA 33
í dag, sunnudag, er opið hús á
Vesturgötu 33 milli kl. 14-16. Um er
að ræða sérhæð og samtengdan
kjallari í þessu fallega húsl. Húsið er í
góðu ásigkomulagi á góðrí lóð og í því
eru meðal annars 4 svefnherbergi.
Góður stigi er á milli hæða sem tengir
báðar hæðirnar vel saman. Áhugaverð
eign í gamla bænum. Verð 16,3 millj.
r
Opið hús
Smárabarð 2d
1
Falleg 115 fm 4ra herb. Ibúð. Verð
11,2m. Laus strax. Viðhaldsfrí
klæðning. Tvær Ibúðir I sameign
sem er I góðu ástandi.
Sigurður og Ólöf
taka á móti gestum í dag
milli kl. 14 og 18.
Upplýsingar í síma 555 2508.
Hafnarfirði, Fjarðargötu 17. '
Sími 520 2600. Fax 520 2601.
Netfang as@as.is. Heimasíða http://www.as.is
Húsafell - sumarbústaðir
á einstöku verði
Höfum í einkasölu vandaða 43 fm sumarbústaði í þessari frábæru
sumarparadís. Um er að ræða 6 bústaði sem allir eru í mjög góðu
standi. Rafmagnskynding. Baðherb. með sturtu. 2 svefnherb.
Mögul. á hitaveitu og heitum potti. Verð 2,3-2,6 millj. Afh. í sept.
i „ 2000. Allar nánari upplýsingar á Valhöll. Hægt að sjá myndir á
Valholl.is
Valhöll fasteignasala, s. 588 4477. Opið í dag frá kl. 12-14.
Tvær hæöir samtals 520 m2 í nýuppgerðu húsi í
miðbæ Reykjavíkur með fallegu útsýni yfir Sundin.
Önnur hæðin er í útleigu, en þriðja hæðin er tilbúin
tii innréttingar, þar er mögulegt að gera 2 íbúðir.
Skipti á annarri eign koma til greina. Mjög falleg
eign. Hafðu samband og fáðu teikningar og allar
nánari upplýsingar. Verðið gæti komið á óvart!
Fasteignasalan
Skipholti 50b ■ 105 Reykjavlk
& 511-2900
FRÉTTIR
Kópavogsbær styrkir Skógræktarfélag Kópavogs
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Skógræktarfélags Kópavogs, og Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi,
undirrita samstarfssamning um skógrækt. Bragi Michaelsson bæjarfulltrúi fylgist með.
Landgræðsluskóga-
svæðið tvöfaldað
GERÐUR hefur verið samningur
um samstarf Skógræktarfélags
Kópavogs og Kópavogsbæjar í til-
efni af 30 ára afmæli Skógræktarfé-
lagsins 25. september síðastliðinn.
Felur hann meðal annars í sér fjár-
hagslegan stuðning bæjarins við
starf Skógræktarfélagsins. Samn-
ingurinn er til fimm ára. Kópavogs-
bær veitir Skógræktarfélaginu
einnar milljónar króna árlegan
rekstrarstyrk auk 400 þúsund króna
styrks til uppbyggingar útivistar-
svæðis og fræðsluseturs í Guðmun-
darlundi. Þá skuldbindur Kópavogs-
bær sig til að leggja til vinnuaíl til að
annast plöntur sem þegar hafa verið
gróðursettar í Kópavogi í land-
græðsluskógaverkefninu og halda
áfram gróðursetningu. Er áætlaður
kostnaður við laun vinnuskólans
1.100 þúsund á ári auk 300 þúsund
króna við flutninga og aðstöðu og
200 þúsunda við stíga- og vegagerð.
Nemur heildarstuðningur Kópa-
vogsbæjar því um 3 milljónum
króna á ári.
Sigríður Jóhannsdóttir, formaður
Skógræktarfélags Kópavogs, segir
að samningurinn gjörbreyti aðstöðu
félagsins til að vinna að aukinni
skógrækt í Kópavogi bæjarbúum til
hagsbóta. Rekstrarstyrkurinn geri
félaginu kleift að ráða starfsmann
yfir sumarið til að skipuleggja starf-
ið.
Skógræktarfélag Kópavogs er
með starfsemi á mörgum stöðum í
bæjarlandinu, meðal annars á
Rjúpnahæð og í Vatnsendalandi.
Félagið á jörðina Fossá í Kjós til
helminga á móti Skógræktarfélagi
Kjósarsýslu og þar er nú kominn
vöxtulegur skógur.
í samvinnu við Kópavogsbæ hefur
verið unnið að plöntun samkvæmt
landgræðsluskógaverkefninu. Eru
landgræðsluskógasvæði í Kópavogi
nú orðin 100 hektarar að stærð. Sig-
ríður getur þess að nú sé verið að
stækka landgræðsluskógasvæðið í
Lækjarbotnum um 100 hektara og
er nýja landið jafn stórt og þau land-
græðsluskógasvæði sem fyrir eru.
Mikill raunur á
útvarpsnotkun
ólikra aldurshópa
Mest hlust-
un á Rás 2
MEÐALTAL hlustunar á útvarp á
landinu öllu á virkum dögum, skv.
fjölmiðlakönnun Gallup, var mest
41,6% á Rás 2, 30,6% á Rás 1, 24,2%
á Bylgjuna, 12,8% á FM 95,7, 9,8% á
Radio, 8,1% á Mono, 6,6% á Gull
90,9, 6,4% á Létt 96,7, 5,8% á X-ið.
Aðrar útvarpsstöðvar mældust með
minni hlustun.
Skv. könnuninni hefur hlustun á
útvarp á virkum dögum aukist á Rás
2 frá seinustu könnun sem gerð var í
apríl 1999, hlustun á Rás 1 stendur
nánast í stað en hlustun á Bylgjuna
hefur minnkað á þessu tímabili.
Um helgar hefur hlustun á Bylgj-
una aftur á móti aukist frá seinustu
könnun og mælist hún nú 27% að
meðaltali. Mest hlustun er á Rás 2
um helgar líkt og virka daga eða
33,2%, sem er nokkur aukning frá
seinustu könnun. Meðaltal hlustunar
á Rás 1 um helgar hefur einnig auk-
ist lítillega og mælist nú 28,4%.
Mikill munur er á útvarpshlustun
einstakra aldurshópa. Þannig er
meðalhlustun á Rás 2 hlutfallslega
mest í aldurshópnum 50-67 ára eða
66,4% á öllu landinu. Meðalhlustun á
Rás 1 er 87,3% meðal 68-80 ára,
meðalhlustun á Bylgjuna er hlut-
fallslega mest í aldurshópnum 35-39
ára eða 40,9%.
Á höfuðborgarsvæðinu og Reykja-
nesi nýtur Radio hlustunar 34,6% í
aldurshópnum 20-24 ára, 33,7% á al-
drinum 25-29 ára hlusta á FM,
26,7% í aldurshópnum 12-19 ára
hlusta á Mono og 23,9% í sama al-
durshópi hlusta á X-ið á Reykjavík-
ur- og Reykjanessvæðinu. Meðal-
hlustun á aðrar útvarpsstöðvar,
skipt eftir aldurshópum, er minni
skv. könnun Gallup.
Opid hús í dag
milli kl. 14 og 16
Álfheimar 21
5 herb. íbúð á 2. hæð + bílskúr
Falleg og björt 5 herb. íbúð ásamt ca 28 fm bílskúr í fjórbýlishúsi og auka-
herbergi í kjallara með sérsnyrtingu. 3 svefnherb., stofa og borðstofa.
Parket á gólfum, stórar svalir, gott útsýni yfir Laugardalinn.
Magnús og Hildur á dyrabjöllu.
BORGARFASTEIGNIR, Vitastfg 12, sími 561 4270
Norðurfell 11 - m. aukaíbúð
Opið hús í dag frá kl. 15-17
Fallegt 214 fm endaraðh., 2
h. með 33 fm innb. bílskúr
ásamt aukaíb. í kj. Húsinu
hefur verið vel viðhaldið, m.a
klætt að utan. Falleg nýl.
gólfefni og innr. Arinn f stofu,
gott útsýni. Ný glæsileg 36
fm sólstofa. Áhv. 7,0 m. V. 21,5 millj. Þorgeir og Jóna taka á móti
þér og þínum í dag frá kl. 15-17. 4008
Valhöll fasteignasala, sími 588 4477. Opið í dag frá kl 12-14.
Atvinnuhúsnæði
Bíldshöfði. Til sölu 450 fm. Margir nýtingarmögul.
Eyrartröð Hafnarfirði. 1.000 fm. Selst í hlutum eða heilu lagi. Hag-
kvæmnisverð og ástandsmat á skrifstofu.
Óðinsgata. Til sölu 60 fm götuhæð + 40 fm kjallari.
Skúlagata. Til sölu eða leigu 2.700 fm.
í miðbænum. Til leigu 120 fm skrifstofuhúsnæði.
Vesturvör. Til leigu 232 fm. Mikil lofthæð.
Suðurhraun. Til sölu eða leigu 4.700 fm.
Suðurhraun. Til leigu 100 fm, fyrir t.d. bílaviðgerðir.
Upplýsingar á skrifstofu.
Fasteignasalan Hreiðrið,
Hverfisgötu 103,101 Reykjavík, símar 551 7270 — 893 3985.
Fasteignav: www.hreidrid.is