Morgunblaðið - 07.05.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
104. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tillaga Aherns og Blairs til lausnar deilunni á Norður-írlandi
IRA samþykkir að
hefja afvopnun
Trimble fer
fram á frekari
skýringar
AP
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, forsætisráðherra írlands, kynntu sáttatillöguna á
fréttamannafundi í Belfast á föstudagskvöid.
Hefur inntak
flutningasamnings-
ins verið hunsað?
10
indamál og hvernig staðið verði að
brottflutningi bresks herliðs frá N-
írlandi.
„Ég yrði iyrir miklum vonbrigðum
ef viðbrögð hópanna yrðu ekki mjög
jákvæð,“ er haft eftir Ahem, forsæt-
isráðherra írlands. Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði að það
væri nú undir viðbrögðum deiluaðila
komið hvort tillögurnar næðu fram
að ganga.
Gerry Adams, formaður Sinn
Fein, hins pólitíska arms IRA, fagn-
aði í gær tillögunni og hvatti alla þá
sem studdu friðarsamkomulagið frá
1998 að fylkja sér að baki henni. Pet-
er Mandelson, ráðherra N-írlands-
mála í bresku stjórninni, sagði að
mikilægt væri að sambandssinnar
fengju skýr skilaboð frá lýðveldis-
sinnum. „Við verðum að vita ná-
kvæmlega hvað lýðveldissinnar ætl-
ast fyrir,“ sagði Mandelson.
Mikið hefur áunnist
Belfast. AP, AFP. Reuters.
ÍRSKI lýðveldisherinn, IRA, lýsti á
laugardag yfir stuðningi við nýja til-
lögu sem sett hefur verið fram til
lausnar deilunni á
Norður-írlandi. í
yfirlýsingu frá
IRA segir að
samtökin séu
reiðubúin að fall-
ast á endanlega
afvopnun og að
eftirlit verði
framkvæmt með
David því að afvopnun
Trimble farj fram
Yfirlýsing IRA kemur í kjölfar
sáttatillögu sem forsætisráðherra
Bretlands, Tony Blair, og forsætis-
ráðherra írlands, Bertie Ahem,
lögðu fram á föstudag. Hún gerir
m.a. ráð fyrir því að héraðsstjórn N-
írlands verði endurreist 22. maí
næstkomandi. Tillagan er afrakstur
af tveggja daga viðræðum ráðherr-
anna í Belfast, höfuðborg N-írlands.
Gert er ráð fyrir að frestur lýðveldis-
hersins til að afvopnast, sem upp-
mnalega átti að renna út 22. maí,
verði framlengdur um rámt ár, eða
fram í júní árið 2001.
Fagnar yfírlýsingnnni
David Trimble, formaður Sam-
bandsflokks Ulsters (UUP) og leið-
togi héraðsstjórnarinnar, sagði á
laugardag að ýmislegt jákvætt væri
að finna í yfirlýsingu IRA en fór
fram á frekari skýringar af hálfu
samtakanna. Hann sagði að tryggja
þyrfti að ekki stafaði hætta af vopn-
um samtakanna þar til afvopnun
færi fram. Einnig þyrfti að ræða
önnur málefni sem deiluaðila hefur
greint á um og boðaði Trimble um-
ræður innan Sambandsflokksins um
málið.
Ríkisstjómir Irlands og Bretlands
hafa sent sameiginlegt bréf til deilu-
aðila á N-írlandi þar sem lýst er
hvernig og hvenær eigi að hrinda
hugsanlegu samkomulagi í fram-
kvæmd. Búist er við því að sam-
komulag muni m.a. fjalla um umbæt-
ur innan lögreglunnar, mannrétt-
Leitað að
höfundi
veirunnar
Manila, Washingfton. AP, AFP.
LÖGREGLA á Filippseyjum
sagðist á laugardag vera ná-
lægt því að handtaka mann sem
grunaður væri um að vera höf-
undur „ástarveirunnar“. Um er
að ræða tölvuveiru sem valdið
hefur skaða á tölvubúnaði víða
um heim síðustu daga. Að sögn
lögregluyfirvalda á Filippseyj-
um er hinn grunaði 23 ára karl-
maður sem búsettur er í einu af
millistéttarhverfum Manila,
höfuðborgar Filippseyja.
Á sama tíma segir sænskur
tölvusérfræðingur, Fredrik
Björck, sem áður hefur átt þátt
i að rekja uppruna illkynja
tölvusendinga, að ástarveiran
sé sköpunarverk þýsks skipti-
nema í Ástralíu. Björck sagðist
í gær vera nokkuð viss um að
honum hefði tekist að rekja
slóð mannsins. Hann sagði
einnig að þótt ýmislegt hefði
bent til þess að veiran ætti upp-
runa sinn á Filippseyjum þyrfti
ekki að vera að þrjóturinn væri
staddur þar.
Olli usla í Pentagon
Bandaríska vamarmálaráðu-
neytið tilkynnti í gær að tölvu-
kerfi ráðuneytisins hefði smit-
ast af ástarveirunni en að
enginn alvarlegur skaði hefði
orðið. Innra tölvukerfi ráðu-
neytisins, sem ekki á að vera
aðgengilegt utanaðkomandi, er
sagt hafa orðið fyrir barðinu á
veirunni en veiran hafði að sögn
ekki áhrif á hernaðarlegan við-
búnað.
Seinni umferð þingkosninganna f fran
Umbótaöflin sigra á ný
Teheran. AP, AFP.
UMBÓTASINNAR unnu meira en
tvo þriðju hluta þingsæta í síðari um-
ferð kosninganna í íran sem fram
fóru á föstudag. Kosið var um 46
þingsæti og unnu umbótasinnar 35
þeirra, íhaldsmenn 11 og óháðir
frambjóðendur hrepptu 10 sæti. Til
að úrslit kosninganna teljist gild þarf
byltingarráðið, þar sem íhaldsmenn
eru í meirihluta, að samþykkja nið-
urstöðuna en alls óvíst er að ráðið
geri það.
Frá því fyrri umferðin fór fram 18.
febráar hafa harðlínumenn bannað
útgáfu sextán umbótasinnaðra dag-
blaða í Teheran, handtekið atkvæða-
mikla umbótasinna og ógilt kosning-
ar í nokkrum kjördæmum þar sem
umbótasinnar fóru með sigur af
hólmi í kosningunum í febráar. Þá
hafa yfirvöld ekki enn staðfest úrslit
þingkosninganna í Teheran þar sem
umbótasinnar fengu 29 af 30 þing-
sætum, þótt rámir tveir mánuðir séu
liðnir frá kosningunum. Ef úrslitin í
Teheran og niðurstaðan frá því í gær
verður staðfest, munu umbótasinnar
hafa meirihluta á þinginu.
FEKKAÐ VELJA SER
SAMSTARFSAÐILA
SUNNUDAGUR
Kúnstin að eiga
í síðari umferðinni var kosið í
kjördæmum þar sem enginn fram-
bjóðendanna fékk fjórðung atkvæða
eða meira. Rúmlega 120 frambjóð-
endur börðust um 66 þingsæti af 290
í gær, þar af sex konur. Yfirvöld hafa
staðfest kjör 185 þingmanna í fyrri
umferðinni og 120 þeirra eru um-
bótasinnaðir stuðningsmenn Mo-
hammads Khatamis forseta.
Komi þingið saman í lok mánaðar-
ins án þess að umbótasinnarnir í
Teheran fái þar sæti gæti það veikt
stuðningsmenn Khatamis. Á meðal
sigurvegara þingkosninganna í höf-
uðborginni er bróðir forsetans,
Mohammad-Reza. Án svo atkvæða-
mikilla stjómmálamanna yrðu nýju
þingmennirnir úr röðum umbóta-
sinna „ekki nógu öflugir til að veita
afturhaldsöflunum mikla mót-
spymu“, að sögn dagblaðsins Iran
News.
■ íhaldsmenn snúa/6
MORGUNBLAÐIÐ 7. MAÍ 2000
5 690900 090000