Morgunblaðið - 07.05.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 29
LISTIR
TUPILAK
MYIVDLIST
M o kka
BEINSKÚLPTÚRAR
ÚTSKURÐAMEISTARAR
FRÁ AUSTUR-GRÆNLANDI
Opið á túna kaffistofunnar. Til 7. maí
Aðgangur ókeypis.
UNDANFARIÐ hefur staðið yfir sýning
á beinskúlptúrum frá Grænlandi á Mokka-
kaffi við Skólavörðustíg, og er hér gerandi
Haraldur Ingi Haraldsson, fyrrum for-
stöðumaður Listasafns Akureyrar. Pessa
örsmáu skúlptúra nefna þarlendir Tupilak
og munu þau Valtýr heitinn Pétursson list-
málari og listrýnir (1919-1988) og Herdís
Vigfúsdóttir kona hans, sem um árabil voru
fararstjórar í dagsferðum til Kulusuk, lík-
ast til átt stærsta safn slíkra skúlptúra á
landi hér.
Tupilak er annars samkvæmt bókinni,
vættur í trúarbrögðum Inúíta; brúða úr
beini, en einnig skinni og öðru tilfallandi
sem mögnuð er með göldrum til að drepa
tiltekið fórnarlamb og éta það. Hins vegar
snýst vætturin gegn þeim er sendir hana ef
ætlunarverkið mistekst. Einnig er Túpilak
dýradrottinn eða hjálparandi sjamana á
mið- og vesturhluta inúítasvæðisins. Á ein-
blöðungi er frammi hangir segir nokkurn
veginn að galdramaðurinn safni saman
dauðum hlutum, til að mynda hluta af sel,
hundi, og fugli ásamt því að hluti barnslíks
er ómissandi þáttur í ferlinu. Hann fer svo
með rammar særingar yfir þessa hrúgu og
loks er líf kveikt með túpilakanum á þann
veg að skapari hans hefur samfarir við
hrúguna. Það er þannig kraftur kynfæra
skaparans sem vekur lífið og eykur mátt
túpilaksins á þroskaskeiði hans. Tupilak er
einungis (?) skapaður í illum tilgangi, hann
á að vinna óvinum galdramannsins mein og
er sendur frá honum í þeim tilgangi. Búi
fórnarlambið yfir meiri galdraþekkingu en
sendandinn, getur hann snúið túpilakanum
við sem drepur þá skapara sinn umsvifa-
laust. Forvitnilegt er að grunnatriði túpil-
akasagna samsvara íslenzkum sögum um
uppvakninga.
Beinskúlptúrarnir á sýningunni eru gerð-
ir af nafnlausum útskurðarmeisturum frá
Asustur- Grænlandi á síðasta áratug.
Myndgerð af tupilak hófst ekki fyrr en
austur- grænlendingar voru orðnir kristnir
og fyrsti túpilakinn, sem vitað er um, var
skorinn í tré (!) árið 1905. Tilgangur stækk-
unar í ljósmyndaformi er að draga fram hið
ógnvekjandi og illa í útskurðarmyndunum.
Eitthvað er hér málum blandað í þessum
útskýringum, en þar sem ég hef ekki ítar-
legar heimildir á milli handanna í augna-
blikinu og verkin miðast einungis við Aust-
ur-Grænland skal ekki farið nánar út í þá
sálma hér. Hins vegar er hugmyndin góð
þótt tjákrafturinn í ljósmyndunum sé í
raun minni en í skúlptúrunum; ekki allt
fengið með stærðinni frekar en fyrri dag-
inn. Þá hefðu samlitar eða svarthvítar
myndir verið eðlilegri til að ná fram óhugn-
aðinum og að auk skapað meiri fjölbreytni.
Loks er upplýsingaflæðið með minnsta
móti á staðnum og nokkur afturför að ekki
sé sterkar að orði komist.
Bragi Ásgeirsson
Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar
1800 cc 112 já 2
• • •
Hnakkapuoar
5
Hatalarar
4
Lengd
4,60 m
Breidd
1,77 m
Verð frá
1.589.000 kr.
Peugeot 406 er aðlaðandi bifreið hvernig sem á hana er litið. Sumir heillast af
frábærum aksturseiginleikum, aðrir af fágaðri útlitshönnuninni og öryggi bílsins
er í margra augum það sem skiptir mestu máli. Peugeot 406 er stór bíll á verði
smábíls, - kjörgripur á hjólum.
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bilasala Akureyrar s. 461 2533,
Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavík: Bilavík ehf. s. 421 7800.
PEUGEOT