Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 2

Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 2
2 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimildarþættir í Rikissjónvarpinu um kalda stríðið Nýjar upplýsingar um umfang njósna Sovét- manna á Islandi Framkvæmdir við ein- angrunarstöðina í Hrísey Öll tilboðin yfír kostnað- aráætlun ÞRJÚ tilboð bárust í stækkun Einangrunarstöðvar gæludýra í Hrísey og breytingar á eldra hús- næði stöðvarinnar og voru þau öll nokkuð yfir kostnaðaráætlun. Björk ehf. í Hrísey bauðst til að vinna verkið fyrir tæpar 14,9 millj- ónir króna, sem er rúmlega 128% af kostnaðaráætlun verkkaupa, sem er upp á 11,6 milljónir króna. Narfí Björgvinsson í Hrísey bauð rúmar 15,2 milljónir króna eða 131% og Sandur og stál ehf. á Húsavík bauð rúmar 19,8 milljónir króna eða um 171% af kostnaðar- áætlun. Eftir er að fara yfir og meta tilboðin sem bárust en þau voru opnuð hjá Ríkiskaupum í gær. Um er að ræða tæplega 100 fer- metra viðbyggingu við eldra hús- næði stöðvarinnar og tengingu við það. Einnig þarf að breyta skipu- lagi innanhúss í eldri byggingunni, ásamt ýmsu öðru en ráðgert er að verkinu verði að fullu lokið 31. ágúst nk. NYJAR upplýsingar um njósnir Sovétmanna á íslandi koma fram í heimildaþáttum um kalda stríðið sem þeir Árni Snævarr, Ingvar Þór- isson og Valur Ingimundarson standa að og verða sýndir í Sjón- varpinu næstu tvö mánudagskvöld. „Þessar upplýsingar hafa ekki áð- ur komið fram og snúast þær um umfang njósna Sovétmanna og með hvaða hætti Bandaríkjamenn, NATO og íslendingar brugðust við þeim,“ sagði Árni Snævarr í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að einnig sé fjallað mikið um hlutverk Islands í kjarn- orkuáætlun Bandaríkjastjórnar í kalda stríðinu. Pólitískur þráður kalda stríðsins rakinn Valur Ingimundarson segir að í þáttunum sé fjallað um helstu atriði kalda stríðsins og að pólitískur þráður þess sé rakinn. Til dæmis sé fjallað um herstöðvarbeiðni Banda- ríkjamanna, Keflavíkursamninginn, aðildina að NATO, gerð varnar- samningsins, samskipti íslenskra sósíalista við austantjaldsríkin og menningarstríðið hér á landi. Einn- ig sé reynt að tengja umfjöllunina öðrum alþjóðamálum, svo sem Kór- eustríðinu og Víetnamstríðinu. „Miðillinn er þannig að það er ekki annað hægt en að stikla á stóru, en þama er það helsta tekið saman og fulltrúar hinna ýmsu sjónarmiða koma fram og segja sínar skoðanir. Það eru viðtöl við hátt á þriðja tug manna, bæði þá sem voru þátttak- endur í kalda stríðinu og innlenda og erlenda fræðimenn," segir Valur. í fyrri þættinum er fjallað um ár- in 1945 til 1960 og í þeim seinni er sagan rakin áfram til endaloka kalda stríðsins. „Þegar þættirnir eru bornir sam- an kemur glögglega fram hversu ólíkur tíðarandinn var. Lítið hefur verið fjallað um það tímabil sem seinni þátturinn spannar en þar er meðal annars fjallað um áætlanir vinstri stjórnarinnar 1971 til 1974 um endurskoðun varnarsamnings- ins og brottför Bandaríkjahers frá íslandi,“ segir Valur. Mikil vinna lögð í að finna myndefni Árni segir að mikil vinna hafí verið lögð í að finna myndefni. I þáttunum sé að finna margar gaml- ar myndir, meðal annars af heim- sókn íslenskrar sendinefndar MÍR til Sovétríkjanna. Fleiri myndir, sem hefðu líklega ekki komið áður fyrir almenningssjónir, hafi verið fengnar frá ýmsum aðilum, meðal annars starfsmönnum Keflavíkur- flugvallar. Morgunblaðið/Golli Unglingar í Indíánagili HÓPUR unglinga safnaðist saman í Indíánagili í Elliðaárdal á föstudags- Allt fór vel fram að mati lögreglu, enda unglingar að sjálfsögðu besta fólk, kvöldið til að fagna lokum samræmdu prófanna og eiga saman góða stund. þótt skemmtilegt geti verið að bregða á leik fyrir framan linsuna. 17-22 þús- und ferkfló- metrar gætu komið í hlut Islendinga RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum á föstudag að veita 16 milljóna króna viðbót- arfjármagn til undirbúnings landgrunnskrafna í Sfldar- smugunni, en áætla má að 17 til 22 þúsund ferkflómetrar á því svæði geti komið í hlut íslend- inga. Stærð svæðisins er hins vegar mjög óviss vegna skorts á gögnum, en auk Islendinga eiga Norðmenn og líklega einn- ig Færeyingar tilkall til veru- legra landgrunnssvæða þarna utan efnahagslögsögunnar. í upplýsingum frá iðnaðar- ráðuneytinu kemur fram að samráðsnefnd um landgrunns- og olíuleitarmál hafi nýverið fundað með norsku olíustofn- uninni um landgrunnsmál og þar hafi komið fram ósk stofn- unarinnar um samvinnu við Is- lendinga og hugsanlega Fær- eyinga um kortlagningu hafsbotnsins í suðurhluta Sfld- arsmugunnar, þar sem þessar þjóðir eigi tilkall til verulegra landgrunnssvæða utan efna- hagslögsögunnar. Mælingar í sumar Norðmenn hyggjast fram- kvæma setþykktarmælingar á þessu svæði í sumar og hafa boðið íslendingum að taka þátt í þeim. Fram kemur að forsenda þess að við getum haldið hlut okkar gagnvart Norðmönnum og Færeyingum í þessum efn- um sé að fyrirliggjandi séu full- nægjandi upplýsingar um þykkt setlaga á svæðinu, en áætla megi að 17-22 þúsund ferkílómetrar geti fallið Islend- ingum í skaut á svæðinu. Flat- armálstölur séu hins vegar ákaflega óvissar vegna skorts á gögnum. Jafnframt kemm- fram að samkvæmt hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna skuli strandríki leggja fram upplýs- ingar um mörk landgrunns síns utan 200 sjómflna fyrir landgrunnsnefnd SÞ, sem starfi á grundvelli samnings- ins. Beri íslenskum stjórnvöld- um skylda til að gera nefndinni grein fyrir ytri mörkum landgrunnsins fyrir 16. nóvem- ber árið 2004. k Samþykkt að taka upp aldurstengt réttindakerfi í Lífeyrissjóði lækna Á ÁRSFUNDI Lífeyrissjóðs lækna var samþykkt að breyta reglugerð sjóðsins og taka upp aldurstengt réttindakerfi samhliða því að áunnin réttindi sjóðfélaga voru hækkuð um 45%. Var breyt- ingin samþykkt einróma á árs- fundinum, sem er sá fjölmennasti frá upphafi. Aldurstengt réttindakerfi felur í sér að öflun réttinda er háð aldri sjóðfélaga og því hve lengi iðgjöld til sjóðsins eru til ávöxtunar. Rétt- indin minnka því í samræmi við hækkandi aldur, en áður byggðist Lífeyrissjóður lækna á jafnri rétt- indaávinnslu um starfsævina, eins og raunar flestir aðrir lífeyrissjóð- ir hér á landi. í upplýsingum til sjóðfélaganna vegna breytinganna segir að ný lög um lífeyrissjóði og auknar heimildir til að velja lífeyrissjóð geri það að verkum að forsendur séu breyttar, þannig að stjórn Líf- eyrissjóðs lækna telji óhjákvæmi- legt að leggja til að tekið verði upp aldurstengt réttindakerfi. Meðal kosta við aldurstengt réttindakerfi er bent á að afkoma Áunnin réttindi sjóð- félaga aukin um 45% lífeyrissjóðsins verði óháð aldurs- samsetningu hópsins. Hver sjóðfé- lagi fái réttindi í hlutfalli við sparnaðartíma og tryggingarlega áhættu og enginn sjóðfélagi hagn- ist á kostnað annars. Þá geti sjóð- félagar greitt viðbótariðgjald til sjóðsins og þannig aukið lífeyris- réttindi sín í samtryggingarsjóði og hægt verði að úthluta eignum umfram skuldbindingar árlega til sjóðfélaga. Auðveldara verði að samræma eignir og skuldbinding- ar, þar sem ekki sé lengur þörf á að eiga varasjóð vegna hlutfalls- legrar breytingar á aldurssam- setningu hópsins. Fram kemur einnig að elstu sjóðfélagarnir hagnast á breyting- unni af því að hægt sé að auka áunnin réttindi þeirra og sama gildi um sjóðfélaga á miðjum aldri. A móti komi að þeir síðarnefndu tapa á breytingunni vegna þess að þeir hafa á fyrri hluta starfsævinn- ar greitt í lífeyrissjóð sem byggist á jöfnum réttindum en munu fram- vegis greiða í aldurstengdan líf- eyrissjóð sem úthluti minni rétt- indum eftir því sem sjóðfélagar eru eldri. Þá hagnast yngstu sjóð- félagarnir vegna þess að þeir fá meiri réttindi fyrir iðgjöld sín. 1.100 sjóðfélagar Raunávöxtun Lífeyrissjóðs lækna var 16,3% á síðasta ári og námu eignir í árslok tæpum 11,4 milljörðum króna. Verðbréfamark- aður Islandsbanka sér um rekstur sjóðsins og var fjöldi virkra sjóðfé- laga á síðasta ári tæplega 1.100. Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt, sem gerð var í árslok 1999, átti sjóðurinn verulegar eignir um- fram skuldbindingar. Eignir sjóðs- ins miðað við 3,5% raunávöxtun voru 3,9 milljarðar umfram áfalln- ar skuldbindingar eða 48%. Staðan versnaði hins vegar um 2,2 millj- arða við það að reikna framtíðar- skuldbindingu vegna virkra sjóðfé- laga en þá lækkuðu eignir umfram skuldbindingar niður í 1,7 millj- arða eða 8% af heildarskuldbind- ingum. „Af þessum sökum var tal- ið brýnt að taka upp aldurstengt réttindakerfi þannig að framtíðar- iðgjöld standi undir þeim skuld- bindingum sem verða til vegna þeirra,“ segir í frétt frá lífeyris- sjóðnum af þessu tilefni. Ennfremur segir að um leið og tekið sé upp aldurstengt réttinda- kerfi séu áunnin réttindi sjóðfé- laga leiðrétt þar sem lífeyrisrétt- indi munu ávinnast í framtíðinni með öðrum hætti en áður. „Til að jafna áhrifin af kerfisbreytingunni verða réttindi allra sjóðfélaga reiknuð aftur eins og þeir hefðu greitt í aldurstengdan lífeyrissjóð frá upphafi. Síðan verða réttindi aukin hjá þeim sem hefðu áunnið sér meiri réttindi með þessu móti en réttindi annarra eru óbreytt. Þessi leiðrétting nemur 475 millj- ónum en eftir hana verða síðan áunnin réttindi allra sjóðfélaga aukin um 45% þar sem iðgjöld og framtíðarskuldbindingar verða í jafnvægi. Aukning réttinda kostar 3,8 milljarða og verða eignir sjóðs- ins eftir það 227 milljónir umfram heildarskuldbindingar sjóðsins eða 1% af skuldbindingum.“ l

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.