Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 42

Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 42
42 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ '1 Úrval annars atvinnuhúsnæðis á skrá Til sölu eða leigu við höfnina í Kópavogi Vorum að fá í einkasölu glæsilegt atvinnuhúsn., samtals 2.500 fm. Þessi hús- eign hýsti áður fslandssíld hf. (Síldarútvegsnefnd ríkisins). Húsin skiptast m.a. í stóra vinnslusali, mötuneyti, skrifstofur, starfsmannaaðstöðu o.fl. Lofthæð 7-8 m. Nokkrar innkeyrslud. 4-5 m á hæð. Byggingaréttur, sjávarlóð. Hag- stæð lán áhvllandi. Húseignir sem bjóða upp á mikla möguleika, (þó sérstak- lega fyrir matvælaiðnað). Húsið selst eða leigist í einu eða tvennu lagi. Full- búin eign f sérflokki. 57039. Nánari upplýsingar gefur Helgi Jón Harðarson. Stapahraun Hf. . Nýkomið sérlega vandað og vel byggt ca 500 fm atvinnuhúsn. á sérlóð. Stór- ar innkeyrsludyr, hátt til lofts. Húsið er steypt og einangrað að utan og klætt með stáli. Hagstæð lán. Verð 32 millj. 61873 Skútahraun Hf. Nýkomið gott 180 atvinnuhúsnæði (trésmíðaverkstæði). Auðvelt að skipta í tvö bil. Ágæt lofthæð og innkeyrsludyr. Rúmgóð lóð. Góð staðs. Laust fljót- lega. (Ath. trésmíðavélar geta fylgt). Verð 12,5 millj. 70504. Hlíðasmári Kóp. Verslunar- og skrifstofuhúsn. Nýkomið glæsilegt nýtt húsn. á 4 hæðum, (lyfta). 500 fm hver hæð. Afh. fljótl. fullb. að utan, tilb. undir tréverk að inn- an. Frábær staðs. 59915. Til sölu stálbræðsla í Hf. Hvaleyrarbraut Hf. 250-1.000 fm bil. Glæsilegt ca 1.000 fm nýl. atvinnuhúsn. með nokkrum inn- keyrsludyrum. Góð lofthæð. Malbikuð lóð. Laust strax. Hagst. lán. Skipti jafn- vel möguleg. Verð frá 65 þús. fm. 46744 Hafnarfjörður atvinnuh. Glæsil. nýtt ca 800 fm atvinnuhúsn. 10 m lofthæð. Tvennar innkeyrsludyr 5-7 m háar. Byggingaréttur. Lóðin er ca 5.800 fm. Framtíðarstaðsetn. Laust fljótlega. Hagst. lán. Verðtilboð. 67934 Um er að ræða sölu á stálgrindar- skemmu til niðurrifs, 280 fm með tveimur hlaupaköttum, 50 og 80 tonna. Lofthæð 25-30 metrar. Verð 14,9 millj. (verðtilboð). 63865 kjötvinnsla í Hf. Um er að ræða glæsilega kjötvinnslu í eigin húsnæði, ca 150 fm, með inn- keyrsludyrum. Öll leyfi til staðar. Kælir og frystir. Öll tæki, viðskiptasambönd o.fl. fylgir. Verð 17,5 millj. Upplýsing- ar gefur Helgi Jón á skrifstofu. 66399 Til sölu Fangaóu athygli! HL Displeay götuskilci Margar gerÓir, tilboðsverð í maí Háteigsvegi 7 Sími 511 110O Súrefifiisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi Skólavörðustíg 21 • sími 551 4050 •Reykjavík www.mbl.is AFMÆLI GISLI GÍSLASON GÍSLI Gíslason óðals- bóndi á Hreggstöðum í Barðastrandarhreppi verður níræður þriðju- daginn 9. maí nk. Jafn- | framt eiga þau hjónin * demantsbrúðkaup á þessu ári. Marta Þórð- ardóttir, kona hans, er fædd 1. maí 1918. Gísli og Marta eru bræðra- börn og eru þau komin af merkum ættum. Gísli er fæddur á Siglunesi í Barða- strandarhreppi 9. maí 1910 foreldrar hans voru Gísli Marteinsson, bóndi á Siglunesi, og k.h. Guðný Gestsdóttir. Gísli ólst upp hjá foreldrum sínum og bjó hjá þeim til 27 ára aldurs. Þegar hann var rúmlega tvítugur lét hann smíða fyrir sig 18 feta bát sem hann nefndi Gylfa. Báturinn var smíðaður í Látrum á Breiðafirði af Valdimar Ólafssyni bátasmið og var Gísli með honum við smíðarnar. Eft- ir að báturinn kom að Siglunesi var Gísli formaður á honum og réri vor og haust frá Siglunesi og fórubræður hans, aðallega Marteinn og Gestur, með honum á sjónum, ásamt mönn- um innan úr sveitinni sem fóru þá í verið eins og það var kallað í þá daga. Það sögðu mér menn sem voru há- setar hjá Gísla að hann hefði verið gætinn, glöggur og góður stjórnandi. Gísh átti annan bát, sem Gestur bróðir hans smíðaði. Þann bát nefndi hann Glað. Sumarið 1940 flytur Gísli að Fit í sömu sveit og hóf þar búskap með konu sinni, Mörtu Þórðardóttur, og tengdamóður, Ólafiu Ingibjörgu Elíasdóttur f. 26. sept. 1885. Hún hafði þá verið ekkja í 11 ár. Faðir Mörtu, Þórður Valdimar Marteinsson, var fæddur 1. maí 1879 í Haga, dáinn 7. maí 1929 í Fit. Árin áður en Gísli kom að Fit hjálpuðu systkini Mörtu móður sinni við bú- skapinn. Sumarið, sem Gísli kom að Fit, fæddist annað barn þeirra, Guðrún Helga f. 17. júlí 1940. Þegar prestur- inn kom til að skíra stúlkuna var nærvera hans nýtt og þau giftu sig um leið og skírt var sunnudaginn 1. segtember 1940. í Fit búa þau til ársins 1968 að þau kaupa óðalsjörð sína, Hreggstaði. Þar hafa þau búið óslitið síðan, að undanskildum síðastliðnum þremur árum að þau hafa haft vetursetu á Opið hús í dag Furugrund 81 - 2ja Glæsileg og björt 60 fm íbúð á 4. hæð (efstu). Frábært útsýni og staðsetning í Fossvogsdalnum. Nýlegt parket og Ijósar flísar á gólfum, uppgert bað með tengi fyrir þvottavél, góðir skápar á holi og í svefnherbergi, furuinnrétting í eldhúsi. Stórar sv.-svalir. Góð sérgeymsla í kjallara. íbúð og hús í mjög góðu standi, skemmtileg lóð í kring. Verð 8,3 millj. Hrönn sýnir í dag á milli kl. 14.00 og 16.00. Upp- lýsingar í síma 895 5600 í dag og næstu daga. Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík Sími: 585 9999 Eiðistorg 17 Afar falleg 106 fm 3ja til 4ra herb. Ib. á 3. hæð I mjög góðu húsi með alla þjónustu í næsta nágrenni. Elsa og Valgerður sölumaður (gsm 866 8649) munu sýna íbúðina i dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16. TILBOÐ ÓSKASTl LQH Hringbraut 47 Stórkostleg og öll nýyfirfarin 94 fm íb. á 2. hæð í endurnýjuðu og virðulegu fjöl- býli. (b. er með um 12 fm aukáh. lrisi sem leiaia má út. Parket á gólfum og öll nýmáluð. Frábær eign f vesturbænum. Sveinn Óskar fasteignasali (gsm 862 9408) mun sýna eignina í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16. Allir velkomnir. TILBOÐ ÓSKAST! Vallarás 2 Stórglæsileg 83 fm 3ja herb. íb. á 4. hæð í fallegu lyftuhúsi. Húsið allt klætt að utan oo vel við haldið. Ib. er afar björt með suðursvölum og frábæru útsýni. ALLT TIPP TOPP! Mjög góð lán. EKKERT GREIÐSLUMAT! Anna mun sýna Ibúðina milli kl. 14 og 16 [ dag, sunnudag. TILBOÐ ÓSKAST! (Bjalla 04-01) Víkurás 2 - Árbæ OPIÐ HÚS f DAG milli kl. 13 og 17 f Vfkurási 2, Árbæ. Góð 4ra herb. 87 fm íbúð í góðu fjölbýlishúsi auk stæðis f bdgeymslu. Mikið útsýni. Áhv. 3 millj. Verð 9,9 millj. Kristján Pálmason sýnir. Patreksfirði eftir að þau lögðu niður hefðbundinn búskap. Ég gat þess að þau hjónin, Marta og Gísli, væru komin af merkum ætt- um. Þar tel ég fyrstan Eggert Ólafs- son f. 1732, bónda í Hergilsey á Breiðafirði. Gísli Konráðsson, sagna- ritari í Flatey á Breiðafirði segir frá því er Eggert lét sækja sveltandi fólk upp á land og flutti það svo út í Oddbjarnarsker og kom því til lífs aftur. Nokkuð er á reiki með fjöld- ann en sögusagnir herma að það hafi verið um 100 manns. Þetta var um 1783-5 er móðuharð- indi fóru hvað verst með þjóðina. Sagan segir að Eggert hafi lagt und- ir sig allar sjóbúðir í skerinu og þar að auki látið draga stærsta bát sinn upp á skerið og hvolft honum til skjóls fyrir þá sem rúmuðust ekki í verbúðum. Einnig segir sagan að hann hafi skammtað hverjum manni smjörklípu og fisk dag hvern og smá aukið skammtinn fyrstu dagana á meðan fólk var að venjast magafylli af mat. Er hann hafði hresst fólkið við setti hann það til að afla fisks sem var hertur. Og þegar hver hafði aflað svo sem hann gat borið var hann fluttur í land svo hann gæti farið til heimilis síns með björg í bú. Ég tel Eggert Olafson einn mesta mannkostamann átjándu aldarinnar. Sagnir herma að hann hafi víða hjálpað þeim sem máttu sín minnst og skipti þá ekki máli hvort hann varði fólk fyrir yfirvaldi eða færði því björg í bú. Hjónin á Hreggstöðum eru í fimmta ættlið komin frá þessum merkismanni. Líti maður yfir farinn veg er hjálpsemi þeirra ekki ólík þeim sögum sem sagðar eru um for- föður þeirra í Hergilsey. Einnig má rekja ættir þeirra til annarra merkra manna og kvenna. Nefna má Runólf Erlendsson f. 1771, prest að Brjánslæk. Hann var langa- langaafi Gísla. Einnig má nefna Loft „ríka“ Guttormsson, (f.1375, 19 ætt- liðir), „Skarðs-Snorra“ Narfason (f.U75, 24 ættliðir) og að síðustu nefni ég Mýrkjartan írakonung sem uppi var um 860. Frá honum telst Gísli í 31. ættlið. Ég óska ykkur innilega til ham- ingju með þessi merku tímamót ykk- ar. Ennfremur þakka ég ykkur fyrir alla þá hlýju sem ég hef notið er ég hef heimsótt ykkur. Tel ég mig muna fyrstu heimsóknirnar fyrir um það bil 60 árum. Og margar eru þær orðnar síðan. Sigurður Magnússon. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda grein- arnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is). Nauðsynlegt er, að síma- númer höfundar/sendanda fyigí- Um hvern látinn einstakl- ing birtist formáli, ein uppi- stöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við með- allínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.