Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 40
40 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞOROLFUR ALVIN
GUNNARSSON
+ Þórólfur Alvin
Gunnarsson
fæddist á Hvamms-
tanga hinn 16. jan-
úar 1981. Hann lést á
heimili sínu á
Hvammstanga 20.
aprfl síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Hvammstanga-
kirkju 5. maí.
Við erum sem lömuð.
Hann Þórólfur okkar er
,-p dáinn. Hún gleymist
aldrei sú skelflng sem
greip okkur þegar lög-
reglan kom til okkar á skírdag með
þessa harmfregn. Við gátum tæpast
andað. Þú sem alltaf varst manna
kátastur og það var alveg sama
hversu leiðinleg verkin voru sem þú
áttir að vinna, alltaf vannstu þau með
bros á vör og sást alltaf spaugilegu
hliðamar á hlutunum.
Það er svo margs að minnast þegar
þú ert annars vegar. Allar fjallaferð-
irnar sem við fórum í, útilegurnar,
ballferðimar svo og allar stundimar
sem þú eyddir bara heima hjá okkur.
Skemmst er að minnast páskaferðar-
innar í fyrra sem við fóram í upp að
-» Amarvatni. Þú áttir það til að vera
svolítið seinheppinn á köílum eins og
t.d. þegar við voram á leiðinni upp
eftir þegar bensínbrúsinn þinn
sprakk á sleðanum og allur gallinn
þinn angaði af bensínfýlu, en það kom
ekki að sök, þú bara hlóst að öllu sam-
an. Nú svo var það Núpsstokk ’99.
Við gleymum því aldrei þegar þú birt-
ist á svæðinu. Það höfðu allir skiiað
sér inn í Núpsdal, flestir geymdu þó
fólksbílana sína á hlaðinu á Neðra-
Núpi og vora ferjaðir á þar til gerð-
um jeppum og annars konar trylli-
i tækjum á áfangastað. En þá birtist
þú, Marta og Gunnar Ægir á pínulitl-
um, handónýtum Colt sem þú hafðir
tekið í fóstur og annast ákailega vel.
Meira að segja gefið honum nafnið
Stalín Ræner og hafðir sprautað
nafnið á húddið á bílnum. Það gleym-
ist seint þegar Stalín Ræner renndi í
hlaðið.
Sveitina og víðáttuna elskaðir þú.
Það era ófá störfin sem þú hefur
sinnt með vinum þínum í gegnum tíð-
ina. Aldrei máttir þú vita af neinum
þeirra einum heima með búin. Alltaf
varstu mættur að morgni til að fara
með þeim í húsin að gefa eða hvað það
var sem til féll í það og það skiptið.
Nú svo ekki sé minnst á allar
stundimar sem fóru í bílaviðgerðir,
hjólaviðgerðir, sleðaviðgerðir nú eða
bara til að hitta vinina á Ytri-Reykj-
um. Þessar stundir verða varðveittar
Blómat>ú5in
v/ PossvogsUi^kjw^a^ð
Símii 554 0500
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
vel í hjarta okkar allra.
Svo er það lítil sál hér
á heimilinu okkar sem
kemur til með að sakna
þín mjög mikið. Þú
eignaðist stóran hlut í
hjarta hans þegar þið
kynntust. Það lýsir því
best hvemig hann brást
við þessum válegu tíð-
indum. Hann sagði ein-
faldlega: „En mamma,
hann var alltaf svo
skemmtilegur við mig
og hann var ekki einu
sinni gamall.“
Það er margt sem
gengur á inni í þessum litla fimm ára
kolli og spumingar margar en svörin
fá.
Það eina sem virðist vera á hreinu
er að stórt skarð hefur verið höggvið í
þennan samheldna vinahóp og verður
aldrei fyllt.
Við sitjum hér öll með fangið fullt
af spurningum en fáum engin svör.
Við vitum samt að hvar sem þú ert
niður kominn núna þá ert þú að
skemmta öðram eins og þér einum
var lagið.
Elsku Þórólfur, við þökkum þér
fyrir þann tíma sem okkur finnst allt-
of stuttur sem við fengum að eyða
með þér. Þú átt alltaf samastað í
hjarta okkar og ekkert getur breytt
þvú Við geymum myndina af þér í
hjarta okkar sem birtist af þér kvöld-
ið sem þú fórst frá okkur svo glaðleg-
ur og brosandi og kvaddir í hinsta
sinn. Það vora forréttindi að fá að
kynnast þér. Hvíl þú í fiiði.
Elsku Gunnar, Grétar, Unnur,
Steini og litli Elvar Austri. Við biðj-
um algóðan Guð að styrkja ykkur í
gegnum þessa miklu sorg og Linda
Sóley megi góður Guð leiða þig í
gegnum þessa erfiðleika.
Minning um góðan dreng lifir.
Þórarinn, Guðfinna Kristín og
Heiðar Orn.
Margar góðar minningar eigum
við um þennan fríska og Ijúfa dreng
eins og þegar við fóram á sléttan ís-
inn hjá Hvoli við Vesturhópsvatn,
Þórólfur og Lilja frænka hans
renndu sér á skautum á rennisléttum
ísnum undan norðanáttinni og vora
dregin til baka af bílnum á snjóþotu,
ferð eftir ferð.
Þegar þeim var orðið kalt, þá fengu
þau sér kakó inni í bíl og renndu svo
sér áfram meðan þrekið entist.
Þessi minning verður ein af þeim
sem við geymum í huga okkar um
þennan fríska og ljúfa dreng. Engan
gat rennt í gran um þá ákvörðun sem
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem ijallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útfór hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
hann tók um líf sitt.
Þessar síðustu tvær vikur hafa
verið erfiðar, en sá samhugur sem
komið hefur fram í okkar litla samfé-
lagi og starf sóknarprestsins hefur
verið ómetanlegt, lyft þungum byrð-
um af aðstandendum og stutt ungl-
ingana í því uppnámi sem umhverfi
þeirra hefur verið í.
Fjölskyldan á Melavegi 10 vill
senda ykkur foreldranum, Gunnari
og Grétu, og fjölskyldunni innileg-
ustu samúðarkveðjur, með þeirri von
að hinar björtu minningar leiði ykkur
áfram.
Fjölskyldan Melavegi 10.
Með sínum dauða hann deyddi
dauðann og sigur vann,
makthansogaflieyddi,
ekkertmigskaðakann.
Þó leggist lík í jörðu,
lifirmínsálafrí;
hún mætir aldrei hörðu
himneskrisælui.
(HaUgr.Pét)
Þannig orti sálmaskáldið um sigur
Krists yfir dauðanum.
Við kveðjum Þórólf Alvin Gunn-
arsson með þessu erindi úr einum
sálmi Hallgríms Péturssonar og vott-
um foreldram hans og aðstandendum
okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd nemenda, kennara og
annars starfsfólks Iðnskólans í Hafn-
arfirði,
Jóhannes Einarsson skóla-
meistari.
Söknuður... það er það eina sem í
huga minn kemur núna. Þú sem varst
alltaf svo sætur, yndislegur og góður
og alltaf til í að hjálpa manni ert horf-
inn burt frá okkur.
Þegar mamma sagði mér þetta, þá
skildi ég þetta ekki strax og neitaði
þessu. Ég trúði ekki að Þórólfur,
þessi gleðipinni, hefði valið þessa leið.
Ég man þegar við voram 10-11 ára
og voram úti í Gröf að spila Svarta
Pétur kvöld eftir kvöld. Og alltaf vor-
uð þið Bangsi að bardúsa eitthvað hér
og þar og rakst maður oft á ykkur tvo
saman einhvers staðar.
Svo þegar ég var í 6. bekk og þú 7.
bekk þá voram við kærastupar og ég
var svo montin yfir því að hafa dansað
vangadans!
En því miður hittumst við ekki
nógu mikið í vetur, og ég minnist þess
að um daginn varst þú að skamma
ASLAUG
ÓLADÓTTIR
+ Áslaug Óladóttir
fæddist í Kefla-
vík 6. ágúst 1980.
Hún lést 15. aprfl síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Ytri-Njarðvíkur-
kirkju 29. aprfl.
Þegar ég fékk þessar
sorglegu fréttir, að
besta vinkona mín væri
dáin, neitaði ég að trúa
því. í blóma lífsins
varstu tekin frá okkur á
þennan hræðilega hátt.
Það helltust yfir mig
minningar frá því við voram litlar og
öllum skólaáranum okkar saman. Ég
man þegar ég sá þig síðast þegar ég
og Sigurrós komum til þín vikuna áð-
ur til að skoða nýju íbúðina þína. Þú
varst svo ánægð með lífið og geislað-
ir af hamingju. Þú hafðir lengi talað
um að flytja og hlakkaðir svo til að
stofna þitt eigið heimili með elskunni
þinni honum Alexander. Alltaf þegar
þú talaðir um hann lifnaði yfir þér og
ég sá að þú varst svo ástfangin og
loksins varstu búin að finna einhvem
sem kunni að meta þig og elskaði þig
út af lífinu og það gerði hann svo
sannarlega. Ég er samt þakklát fyrir
að hafa getað kvatt þig þama um
kvöldið þegar við hittumst. Ég kyssti
þig bless og tók utan um þig eins og
við gerðum alltaf þegar við kvödd-
umst, en aldrei datt mér í hug að
þetta væri seinasta skipti sem ég
kyssti þig bless. Að þurfa að kveðja
þig svona snöggt Aslaug mín er það
erfiðasta sem ég hef þurft að gera, þú
varst alltaf til staðar fyrir mig og
okkur vinkonumar og ég er svo
þakklát fyrir að hafa kynnst þér.
Ég man þegar Ölli dó, þá hugsaði
ég með mér hvað ég myndi gera ef
einhver af mínum vinkonum myndi
deyja, það var vissulega hræðileg til-
finning og nú er hún orðin að veru-
leika. Þú varst svo sannarlega með
gott hjarta og alltaf svo hreinskilin,
þú varst svo falleg persóna og ein-
stök. Það eru svo margar minningar
sem ég á um þig og sérstaklega frá
því við voram litlar. Þá fórum við
þegar það var vont veður niður á
bryggju og sátum bakvið steinana á
meðan öldumar skullu yfir okkur.
Þetta var felustaðurinn okkar og
enginn vissi af honum nema við. Síð-
an fórum við alltaf og fengum kandís
hjá bryggjuverðinum. í sumar ætl-
aðir þú að halda upp á tvítugsafmæl-
ið þitt í Eyjum um verslunarmanna-
helgina og sagðir við okkur að ef við
vildum koma í afmælið þitt yrðum við
að fara þangað! Við stelpurnar ætl-
um að standa við þetta loforð. Þú
hafðir svo gaman af því að vinna á
Garðvangi og varst alltaf að segja
okkur sögur af fólkinu þar og Kristín
hlakkaði svo til að vinna
með þér þar í sumar,
hún talaði ekki um ann-
að.
Ég sakna þín svo
mikið Aslaug mín, ég
get bara ekki lýst því,
ég veit að þú varst ekki
tilbúin að fara en við
getum engu breytt. Ég
vona bara að þér líði vel
og ég veit að þú vakir
yfir okkur. Þú ert efst í
huga mínum í öllu sem
ég geri. Alexander,
Ella, Óli, böm og aðrir
fjölskyldumeðlimir, ég
samhryggist ykkur innilega á þess-
um erfiðu tímum. Guð veri með þér
elsku Áslaug mín.
Þín vinkona,
Eva Stefánsdóttir.
Það er sárt að horfa á eftir ungri
frænku í blóma lífsins. Allt sem hún
var og hefði orðið er horfið á einu
augnabliki. Að gjalda með lífi sínu
fyrir það að standa með því sem rétt
er, fyrir að taka afstöðu gegn ofbeldi
og hrottaskap, er ekki eitthvað sem
við á Islandi eigum að venjast. Engu
að síður er það raunveraleikinn sem
við stöndum frammi fyrir nú. Áslaug
var viljasterk, lífsglöð stúlka, elskuð
af okkur sem hana þekktum. Okkur
er sérstaklega minnisstætt hvað öll
böm löðuðust að henni og hversu
glatt var á hjalla í hennar návist. Við
söknum hennar. Við vildum bara
kveðja.
Elsku Ella, Óli, Alexander, Ásta,
Valgeir og Elín María, við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð. Megi
Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímamótum.
Cissie, Kristinn, Guðjón,
Guðbjörg, Erling og Desirée.
Þegar fyrstu dagar vorsins gengu
í garð var þungbært að taka á móti
þeim skelfilegu fréttum að Áslaugu
frænkaværi dáin.
Áslaug, sem var nýbúin að stofna
heimili með Alexander unnusta sín-
um, hefur nú verið hrifin frá okkur.
Hún fær því ekki að takast á við alla
þá spennandi hluti sem lífið hefur
upp á að bjóða þegar ungt fólk er að
taka sín fyrstu spor upp á eigin spýt-
ur.
Allir þeir sem þekktu Áslaugu vita
að hún var glaðvær og kát stúlka og
okkur reyndist hún ávallt elskuleg og
hlý. Það verður því Ijúfsárt að segja
ungum frændum hennar frá því
hvemig hún lék við þá 1 gervi jóla-
sveins á árlegum fjölskyldufundum
okkar um jól. Við fullorðna fólkið er-
um þakklát fyrir ánægjulegt innlegg
hennar og yngsta kynslóðin alsæl
mig fyrir að koma aldrei í heimsókn,
og nú sé ég eftir því að hafa ekki kíkt
til þín.
Það var ekki sjaldan sem maður sá
þig á fleygiferð á Lödunni út um allan
bæ og á leiðinni í Miðfjörðinn. Og
þegar þú komst í sjoppuna til mín
varstu drallugur upp fyrir haus eftir
að hafa verið að laga einhverjar bíl-
draslur hér og þar.
Á böllum vantaði ekki taktana hjá
ykkur Tomma og held ég að fáir hafi
haft jafn flottan dansmáta og þið vin-
irnir. En þetta er aðeins brot af þeim
yndislegu minningum sem ég á um
þig og þær hefðu sannarlega átt að
verða fleiri.
Ég skil ekki af hverju þetta gerð-
ist, en ég virði þessa ákvörðun þína ef
þér h'ður betur.
Stórt skarð hefur myndast í vina-
hóp minn, en þú átt alltaf stað í hjarta
mínu.
Gunnar, Gréta, Unnur og Steini,
ég samhryggist ykkur innilega og
einnig ykkur, Tommi, Jói og Linda og
allir aðrir vinir hans.
Þetta er mín kveðja til þín, Þórólf-
ur, þótt ég vildi að ég hefði getað
kvatt þig almennilega.
Ég mun alltaf sakna þín.
Eydís Ósk.
með heimsókn ,jólasveinsins“. Með
þessum fátæklegu orðum langar
okkur til að kveðja þig, kæra frænka,
og þakka stutta en gleðiríka sam-
fylgd. Megi góður guð geyma þig.
Sá sem eftir lifir
deyrþeimsemdeyr
en hinn dáni lifir
íhjartaogminni
mannaerhanssakna.
Þeireruhimnamir
honumyfir.
(Hannes Pét.)
Elsku Ella, Óh, Alexander, Ásta,
Valgeir og Elín María. Okkar inni-
legustu samúðarkveðjur til ykkar og
allra þeirra sem eiga um sárt að
binda vegna fráfalls góðrar stúlku.
Þín frændsystkmi,
Anna Margrét, Tryggvi
Daníel, Kristín og íjölskyldur.
Elsku Áslaug mín. Ég trúi því ekki
að þú sért farin frá okkur. Það er svo
sárt að hugsa til þess að eiga aldrei
eftir að fá að sjá þitt fallega bros,
heyra hlátur þinn og njóta þess að
vera með þér. En sem betur fer á ég
svo margar góðar minningar um þig,
og ég trúi því að á meðan við munum
eftir þér, og geymum þessar góðu
minningar í hjörtum okkar, þá munir
þú aldrei deyja.
Ég kynntist þér fyrir nokkram ár-
um í gegnum Flóra vinkonu, og
aldrei hef ég kynnst jafn hressari og
skemmtilegri stelpu og þér. Það var
alltaf hlátur og stuð í kringum þig, og
það má sko segja að þú lifðir lífinu lif-
andi.
Ég man vel eftir ferðunum okkar
til Vestmannaeyja síðastliðnar tvær
verslunarmannahelgar.
Þegar ég hugsa um sumarið 1999
koma svo margar minningar upp í
huga mér. Við voram saman dag og
nótt, ég, þú og Flóra. Þetta er
skemmtilegasta sumarið sem ég hef
nokkurn tíma upplifað.
Þó að við hittumst sjaldan, af því
að ég bý í Noregi, þá voram við þrjár
alltaf góðar vinkonur. Það verður
rosalega tómlegt án þín, engin Ás-
laug sem kemur og tekur á móti mér
uppi á flugstöð næst þegar ég kem.
Þú varst svo góð og full af kærleika.
Það er svo gott að vita að þú varst
hamingjusöm, búin að finna stóru
ástina, og að þú fékkst mikið út úr líf-
inu áður en þú þurftir að kveðja.
Við sem eftir lifum verðum að
halda áfram þó að það reynist okkur
erfitt, án þín, en ég veit að þú myndir
vfija að við yrðum hamingjusöm, og
þú átt eftir að vera með okkur.
Ég kveð þig að sinni, elsku vin-
kona, og þakka Guði fyrir að hafa
fengið að kynnast þér. Við sjáumst
aftur þegar sá tími kemur!
Ég elska þig, Áslaug mín, og mun
aldrei gleyma þér!
Alexander, EUa, ÓU, systkini, ætt-
ingjar, Flóra og vinkonur/vinir -
megi góður Guð gefa ykkur, og okk-
ur öllum styrk í þessari miklu sorg.
Hildur Björg Guðmundsddttir.