Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 24

Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 24
24 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Samanburður á íslenskum bókamarkaði 1990 og 1999 Aukið úrval o g vandaðri bækur //ýsJL Samanburður á fjölda útgefinna | \ bóka eftir flokkum 1999 1990 Mism íslensk skáldverk 43 29 48% Þýdd skáldverk 54 (30) 50 (21) 8% Ljóðabækur 30 21 43% ísl. barna- og ungl.bækur 52 39 33% Þýddar barna- og ungl.b. 63 46 37% Ævisögur 25 28 -10% Fræði/bækur alm. efnis 131 90 45% Handbækur 57 20 185% Samtals: 455 323 41% Innan sviga eru afþreyingarskáldsögur ÚRVAL íslenskra bóka hefur stór- aukist og batnað undanfarinn ára- tug. Jafnframt hefur vönduðum bókum fjölgað á kostnað hinna snöggsoðnu. Þetta kom fram í er- indi Péturs Más Ólafssonar, út- gáfustjóra Vöku-Helgafells, á Rit- höfundaþingi um síðustu helgi, þar sem hann bar saman Bókatíðindi Félags íslenskra bókaútgefenda ár- in 1990 og 1999 og metsölulista DV hvort árið. „Þetta er í raun þvert á það sem spáð var þegar farið var að selja bækur í stórmörkuðum fyrir jólin 1994 en þá var talið að það myndi takmarka úrval útgefinna bóka og útvatna þær,“ segir Pétur Már og viðurkennir að niðurstöður saman- burðarins hafi komið honum sjálf- um á óvart. „Þegar stórmarkaðir fóru að selja bækur var viðkvæðið að það myndi leiða til einsleitara úrvals og minna framboðs á „góðum“ bókum. Ég komst að því að svo er aldeilis ekki - á tíu árum má segja að hið snöggsoðna hafi vikið fyrir hinu vandaða,“ segir hann. Þessa breyt- ingu sagði hann kristallast í Einari Benediktssyni. Árið 1990 hefði Gils Guðmundsson sent frá sér bókina Væringjann mikla, þar sem hann hefði tekið saman greinargott yfir- lit um ævi skáldsins sem staðfesti mynd lesenda af honum. í fyrra hefði annað bindi ævisögu Einars eftir Guðjón Friðriksson komið út, en hann hefði lagst í rannsóknir á lífi skáldsins og veitt lesendum nýja sýn á það. „Önnur breyting sem merkjanleg er milli áranna að mínu mati er að íslenskar ungl- ingabækur, sem voru mjög áber- andi árið 1990, hafa horfið af met- sölulista DV en í staðinn eru komnar barnabækur á borð við Söguna af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason," segir Pét- ur Már. Hann segir aukninguna hafa ver- ið mismunandi eftir flokkum. Þannig hafi fjöldi handbóka t.d. þrefaldast milli áranna 1990 og 1999. íslenskum skáldsögum hefur fjölgað um helming, ljóðabókum urn liðlega 40%, bókum fyrir börn og unglinga um rúman þriðjung og fræðibókum og bókum almenns efnis um 45%. Ævisögum og af- þreyingarskáldsögum hefur hins vegar fækkað. Mikil endurnýjun meðal útgefenda í erindi Péturs Más kom einnig fram að árið 1990 hefðu 37 út- gefendur gefið út þær 323 bækur sem kynntar voru í Bókatíðindum en 83 útgefendur sent frá sér 455 bækur í fyrra miðað við sömu heimild. Einungis 14 forleggjarar gáfu út bækur bæði árin sem sýnir að mati Péturs Más að útgáfa hér á landi er áhættusöm - en einnig hversu auðvelt er fyrir nýja aðila að hasla sér völl á þessum markaði. Söngskemmtun Selja ÁRLEG söngskemmtun Selja í Seljakirkju verður í dag, sunnu- dag, kl. 17. Fram koma einnig tveir gestakórar: MosfeUskórinn undir stjóm Páls Helgasonar og Karla- kór SVR, stjórnandi hans er Guð- mundur Ómar Óskarsson. Flutt verða lög úr ýmsum áttum. Undirleikarar eru Halldóra Ara- dóttir á píanó og Fróði Oddsson á gítar. Stjómandi er Tonje Fossnes. Einnig munu Seljur syngja á ísafirði og á Bolungarvík dagana 12. og 13. maí. Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson Sigrídur Helga Olgeirsdóttir listakona í Hruna með hluta verka sinna. Listsýning í Hruna Hrunamannahreppi. Morgunblaðið. Fagnað skagfírzku vori UM páskana var opnuð sýning þriggja listakvenna í safnaðar- heimilinu á hinu fomfræga prest- setri Hmna. Þetta era listakonurn- ar Sigr/ður Helga Olgeirsddttir leirlistakona, Sveinbjörg Hall- grímsdóttir myndlistarkona og Hrönn Vilhelmsdóttir textflhönnuð- ur. Allar sýna þær verk er byggjast á trúarlegum þemum. Listakonurn- ar, sem allar era af norðlensku bergi brotnar, hafa áður starfað og sýnt saman í listagallerfinu Lista- koti. Sú hefð hefur skapast að tilst- uðlan sóknarnefndar Hrunasóknar að halda eina sýningu á hverju ári í safnaðarheimilinUi Meðal þeirra sem áður hafa sýnt verk sín eru Helgi Gislason myndhöggvari, Brynhildur Þorgeirsdóttir mynd- höggvari og systumar Jóhanna Sveinsddttir graffldistakona og Þórdís Sveinsdóttir textflhönnuður. Sýningin stendur til mafloka. TONLIST Langholtskirkja KÓRTÓNLEIKAR Vortónleikar Skagfirzku söngsveit- arinnar f Reykjavík. Stjómandi: Björgvin Þ. Valdimarsson. Píanó- leikur: Sigurður Marteinsson. Fimmtudaginn 4. maí kl. 20:30. SKAGFIRZKU söngsveitina í Reylyavík mætti af aðskiljanlegum ástæðum uppnefna konung átt- hagakóra. Bæði er hann meðal hinna stærstu, og hljómur hans í senn voldugur og fágaður, þótt ekki hafi hann farið varhluta af landlæg- um karlaraddaskorti frekar en aðr- ir kórar á seinni áratugum. Óhjá- kvæmilegt er að misvægi S-A-T-B-hlutfalla á við 24-24-11-14 heyrist, sama hversu fítonsefldir tenórai- og bassar kunni að vera á hverjum stað. Það, og svo hinn ekki síður útbreiddi tónhnigsvandi, eink- um í veikum söng, er trúlega það tvennt sem stendur blönduðum áhugamannakórum hvað mest fyrir þrifum hér á landi. Að tónstöðuhnig SSR skyldi samt sem áður vera með því minnsta sem maður heyrir hjá átthagakórum má auk hæfileika söngfólksins sjálfs að líkindum þakka dugnaði stjórnanda og mik- illi vinnu, enda tvær æfingar á viku heilan starfsvetur sennilega með því mesta sem þekkist á þeim vett- vangi. Eftir þrjú lög eftir Sigfús Hall- dórsson kom að fyrsta hápunkti með Litla kvæðinu um litlu hjónin eftir Pál ísólfsson í laufléttri út- færslu. Hið snotra lag stjóm- andans, Vegferð, var næst frum- flutt og lék hin kornunga Helga Þóra Björgvinsdóttir dáfallega með á fiðlu við góðar undirtektir. í and- alúsíska þjóðlaginu Stúlkan frá Sevilla söng kórtenórinn Guðmund- ur Sigurðsson einsöng. Hann var stundum svolítið óstöðugur í fókus, en röddin engu að síður glæsileg og þétt þess í milli og auðheyrt að hvort sem þar hafi farið borinn og barnfæddur Skagfirðingur eður ei hlaut hann a.m.k. að vera hesta- maður. Kammerkór var í forsöngshlut- verki í Ég man það enn (betur þekkt sem Londonderry Air eða Oh Danny Boy), og augljóst að hér færi sönghópur sem ætti innan tíð- ar að geta blandað geði við hina betri kammerkóra landsins. Út- setning P. Knights var skemmtileg, nema hvað laglínan týndist í inn- rödd undir lokin sem hefði þurft að lyfta meira fram. Síðast í fyrri hálf- leik var svo Þakkarbæn, „hollenzka lagið“ vinsæla sem loks fékkst upp- lýst að væri eftir Adrian Valerius; bráðfallegur hymni, en sérlega við- kvæmur í tónhæð í einrödduðum veikum fyrrihlutanum, líkt og heyra mátti hér sem svo oft áður hjá öðrum kórum. Fyrsta lag Söngsveitarinnar eftir hlé var hið angurværa Ave Maria eftir Hans Nyberg, þar sem manni heyrðist altinn eiga í nokkurri inn- tónunarvök að verjast íyrir þyngd- araflinu. Annar frumflutningur kvöldsins, einnig eftir stjórandann, hét Bæn, sem mér fannst, þrátt fyrir afbragðs undirtektir, ekki ná alveg gæðum fyrra lags, enda full- mikið mótað af einsleitri fallandi skalahugmynd. Aftur á móti ber að skjóta því inn, að Fagra veröld, þriðja lag stjórnandans (flutt í upp- klöppun að leikslokum), bar að mínu viti af öllum þremur þótt létt- ara væri yfir því en hinum, enda langfrumlegast. Kristín R. Sigurð- ardóttir söng einsöng í Bæn og náði góðum glampa í hæðinni þrátt fyrir töluvert víbrató, þó að neðra sviðið væri fremur kraftlítið. Fangakórinn úr Nabucco Verdis var meðal seinni hápunkta kórsins og söngurinn vel mótaður þrátt fyr- ir smávegis sig framan af. Kristín söng aftur einsöng í hinni seiðandi Sicilíönu úr Sikileyskum aftansöng Verdis við millisöng kórsins og uppskar mikið klapp. Valsarnir þrír í syrpu úr Kátu ekkju Lehárs vöktu m.a. athygli fyrii- samtaka og velmótaðan staccato-söng, þó að áttundatilfærslur laglínunnar í 3. valsi til jöfnunar á söngsviði orkuðu tvímælis. Endað var á pílagrímakórnum úr Tannháuser eftir Wagner; upphaf- lega fyrir karlakór en hér fluttur í blandaðri útsetningu og sunginn af viðeigandi reisn, sem ekki einu sinni alræmd misnotkun verksins fyrr á árum í sjónvarpsauglýsingu fyrir salernishreinsilög hefur náð að hrófla við. Halelúja-staðurinn hefði kannski mátt vera hrynskar- pari, en annars varð m.a. þetta lag, og raunar ekki síður hin fjörugu aukalög, Fagi-a veröld og „Skag- firzk sveifla, til að undirstrika svo fallegan og samtaka heildarhljóm kórsins, að áðurnefnt tónsig, sem smæðar vegna hefði varla verið orð á gerandi hjá öðrum átthagakórum, hlaut að verða hlutfallslega áber- andi í ljósi almennra kosta. A cappella-lög kórsins voru til- tölulega fá og hefðu gjarnan mátt vera fleiri, en fremur hlédrægur píanómeðleikur Sigurðar Marteins- sonar var engu að síður nettur og öruggur. Ríkarður Ö. Pálsson Bókasafnssjóður höfunda 15,4 milljónir til um 400 höfunda ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Bókasafnssjóði höfunda í þriðja sinn, en úthlutunarfé sjóðsins er skipt í tvo jafna hluta. Annars vegar er úthlutað miðað við fjölda útlána bóka úr bókasöfnum og stofnunum og hins vegar eru veittir styrkir í viðurkenningar- skyni fyrir ritstörf og önnur framlög til bókmennta. Um 400 höfundum var úthlutað 7,7 millj. kr. vegna útlána á árinu 1999 og var úthlutað til 28 höfunda að upphæð 7,7 millj. kr. Áuk þess veitir sjóðurinn styrki til fagurbókmenntahöf- unda, fræðiritahöfunda og mynd- skreytara. Að þessu sinni hlutu 25 höfundar viðurkenningar að upphæð kr. 250.000 hver: Arn- gunnur Ýr Gylfadóttir, Berglind Gunnarsdóttir, Birgitta H. Hall- dórsdóttir, Bjarni Bjarnason, Búi Kristjánsson, Einar Kárason, Erlingur E. Halldórsson, Ey- steinn Björnsson, Gerður Kristný, Gestur Guðmundsson, Guðmundur Páll Ólafsson, Gunn- ar Karlsson, Hallgerður Gísla- dóttir, Haraldur Guðbergsson, Hörður Ágústsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Jón Karl Helga- son, Kristján Jóhann Jónsson, Nanna Rögnvaldardóttir, Paolo Maria Turchi, Páll Stefánsson, Rúnar Helgi Vignisson, Þorri Hringsson, Þóra Kristinsdóttir og Þórður Helgason. Heiðursviðurkenning Sérstaka heiðursviðurkenningu vegna framlags til íslenskra bók- mennta hlutu höfundarnir Ari Trausti Guðmundsson, Iðunn Steinsdóttir og Bjarni Jónsson myndlistarmaður. Heiðursviður- kenningarnar, að upphæð kr. 500.000, voru afhentar með við- höfn í Gunnarshúsi í Reykjavík hinn 4. maí sl. Áður hafa hlotið heiðursviður- kenningar úr sjóðnum höfundarn- ir Einar Bragi, Hannes Péturs- son, Árni Björnsson, Þorsteinn Gylfason og myndlistarmennirnir Kjartan Guðjónsson og Brian Pilkington. Stjórn Bókasafnssjóð höfunda skipa: Birgir Isleifur Gunnarsson, formaður Aðalsteinn Ásberg Sig- urðsson, Einar Ólafsson, Knútur Bruun og Magnús Guðmundsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bjarna Jónssyni, Ara Trausta Guðmundssyni og Iðunni Steinsdóttur voru veittar heiðursviðurkenningar úr Bókasafnssjóði höfunda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.