Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 49
BRÉF
Skorað á
Mál og
menningu
Frá Rúnari Kristjánssyni:
Nýlega las ég bókina „Börn Arbats"
eftir Anatoli Rybakov í ágætri þýð-
ungu Ingibjargar Haraldsdóttur.
Bókin er afar fróðleg og vel skrifuð
og lýsir ástandi mála í Ráðstjórnar-
ríkjunum á þeim árum þegar Stalín
var að festa sig í sessi. Hygg ég að
hún eigi fullt erindi til þeirra sem
vilja kynna sér þá tíma sem hún
fjallar um. Ingibjörg Haraldsdóttir
hefur getið sér gott orð fyrir þýð-
ingar sínar, ekki síst á rússneskum
bókmenntaperlum, svo sem ýmsum
verkum Dostójevskís. Eigum við Is-
lendingar henni mikið að þakka fyr-
ir að opna okkur svo stórkostleg
verk og leyfa okkur að njóta þeirra
á okkar eigin ástkæra, ylhýra máli.
Nú veit ég að „Börn Arbats" eru
fyrsti hluti stærra verks og rúmur
áratugur er liðinn síðan bókin var
gefin út. Ekki bólar á framhaldinu!
Mál og menning gaf bók þessa út
og verkið hlaut styrk úr Þýðingar-
sjóði. Augljóst er að í þetta verk
hefur verið ráðist af metnaði með
það að markmiði að auðga okkur að
enn einu þýddu bókmenntaverki
sem hefur vissa sérstöðu. Því þykir
mér einkennilegt að ekki skuli hafa
verið horft til þess að klára verkið.
Ég er viss um að Ingibjörg Har-
aldsdóttir er til í slaginn og fús til að
þýða verkið allt. Það hlýtur að vera
stífla í þessu máli hjá öðrum aðilum.
Það er spurning hvers virði það er
að eiga slíkt verk á íslensku, þegar
aðeins fyrri hluti verksins er þýdd-
ur og gefinn inn í okkar hugarheim.
Mér finnst það koma til álita að
Þýðingarsjóður setji það sem skil-
yrði þegar óskað er styrks vegna
útgáfu ritverks, ekki síst af þessu
tagi, að verkið sé klárað. Mér varð
svo hlýtt til Sasha Pankratovs í
þessari sögu að ég vil eindregið fá
að vita hvernig honum reiðir af í
framhaldinu. Eg vona því að þetta
verk verði þýtt í heild og fslending-
ar geti innan tíðar lesið það allt á
eigin máli.
Ég vona a.m.k. að ég þurfi ekki að
tileinka mér rússnesku til að kom-
ast aftur í kynni við Sasha minn, því
tungumál Kremlverja kvað vera
skolli snúið og flókið viðureignar.
Ég skora því á Mál og menningu að
sýna þá einurð að ljúka þessu verki
og gefa Ingibjörgu færi á að þýða
það allt af sinni alkunnu snilld.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
' Bogabraut21, Skagaströnd.
Skrifstofuhúsnæði til leiqu
í miðbænum á Hverfisgötu, 120 fm. Fjögur skrifstherb. Móttaka,
fundarherb. og kaffiaðstaða. Lagnastokkar, tilbúið til notkunar.
Fasteignasalan Hreiðrið
Símar 551 7270 - 893 3985
I Sérhæfð fast- ÉT Amar Söhrason,
eignasala fyrir 3 atvinnu- og skrif- stofuhúsnæði STDREIGN FASTEI GNASALA sölumaður Jón G. Sandholt, sölumaður Gunnar Jóh. Birgisson hri. löggiltur fasteignasali Sigurbjöm Magnússon hri. loggiltur fasteignasali
Austurstræti 18 sími 55 - 1 2345
Borgartún Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði til leigu,
frábær staðsetning
Til leigu, á þessum eftirsótta stað, tvær skrifstofu-
hæðir við Borgartún. Um er að ræða 2. og 3ju hæð
sem eru samtals að flatarmáli 1.015 fm. Hægt er að
skipta hæðunum í 250 fm einingar en hæðirnar eru
u.þ.b. 507 fm hvor um sig. Leigusali er reiðubúinn að
innrétta hæðirnar eftir þörfum hvers og eins leigu-
taka. í húsinu eru traust fyrirtæki og eru fyrirhugaðar
miklar endurbætur á eigninni, m.a. á sameign sem
verður einstaklega glæsileg. Möguleiki á samnýtingu
á mötuneyti sem verður í eigninni. Allar nánari upp-
lýsingar veittar í síma eða á skrifstofu okkar.
Aðalfundur
Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga verður
haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38,
Reykjavík, mánudaginn 22. maí 2000 kl. 17.15.
Fundarefni
1. Skýrsla stjómar
2. Reikningsskil
3. Fjárfestingarstefna kynnt
4. Lífeyrisuppgjör pr. 31.12.1999
- skýrsla tryggingafræðings sjóðsins
5. Breytingar á samþykktum
6. Kosning tveggja manna í stjóm og eins til vara
7. Kosning endurskoðanda
og tveggja skoðunarmanna
8. Önnur mál
Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar sjóðsins
ásamt skýrslu tryggingafræðings munu liggja frammi
á skrifstofu sjóðsins viku fyrir aðalfund, sjóðfélögum
til sýnis.
Reykjavík, 4. maí 2000.
Stjómin.
Sölusýning
á nýjum og gömlum handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel, Sigtúni
í dag sunnudaginn 7. maí i Jh.
frá kl. 13 ■ 19
Glæsilegt úrval - gott verð
HÓTEIy
REYKJAVIK
10% staðgreiðslu-
afsláttur
53 CE
RABBREIÐSLUR
Sími 861 4883
Sumarbústaður í Skaqafirði
Hús 56 fm og 1,5 ha eignarland. Hitaveita. Myndir og teikningar á
skrifstofu. Er meö mikið úrval af leigulandi undir sumarhús.
Fasteignasalan Hreiðrið
Símar 551 7270 - 893 3985
Bergstaðastræti 48
- opið hús
Afburðaglæsileg 3ja herbergja, 86 fm íbúð á 1. hæð í
steinhúsi með suðursvölum. íbúðin skiptist í 2 stór svefn-
herbergi, rúmgóða stofu, flísalagt baðherbergi með
baðkari og eldhús. íbúðin er öll nýinnréttuð með vön-
duðum innréttingum og parketi og er til afhendingar nú
þegar. Verð 11,6 millj.
íbúðin er til sýnis í dag hjá eiganda milli ki. 14 og 17.
Séreign fasteignasala,
Skólavörðustíg 41, sími 552 9077.
Opið í dag, sunnudag, frá kl. 12-15.
Eldri borgarar - Skúlagata
Til sölu er mjög falleg 3ja herbergja fbúð á 4.
hæð á Skúlagötu 20 í Reykjavík. Húsið er ætlað
eldri borgurum, 60 ára og eldri, og í næsta húsi
er ýmiss þjónusta og félagsstarf á vegum Reykja-
víkurborgar. íbúðin snýr í norð-vestur og er með
tvennum svölum. Stæði í bílgeymslu fylgir. íbúðin
er laus til afhendingar með stuttum fyrirvara.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Gústafsson, hrl.,
Kringlunni 7, Reykjavík,
sími 588 8666, 568 7218.
Markviss
tölvunámskeið
NTA/ skólrtmir i IlrtfVirtrfirði og Kóprtvogi
bjóðrt upp ó tvö Virtgnýf og mrtrkviss
tölvumimskeið fyj ir byi-jendur.
60 klst. eða 90 kcnnslustundir:
► Grumiatriði í upplýsingatæknt
- Wtndows 98 siýrikorf'ið
► Word ritvinnsla
- Exœl töflureiknir
*- Access gagnagrunnur
► PoworPoint (gorð kynningarefnis)
- Intemetið (vefurinn og tölvupóstur)
48 klst eða 72 kemislustumtir:
*■ Almennt umtölvurogWindows98
- Word ritvinnsia
- Excel töflureiknir
" Intemetið (vefurinn og tölvupóstur)
Síóustu kvöldnámskeiöin á vorönn hefjast 8. og 15. maf
Við hefjum aftur kennslu í september.
Gleðfiegt sumar!
Upplýsingai’ og inni itun í simum
544 4500 og 555 4980
ntv
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Simi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hlíðasmára 9- 200 Kópavogi - Sfmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimaslða: www.ntv.is
1