Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 26

Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 26
26 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli Jónína Guðmundsdóttir, forstöðukona Æfingastöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, hefur unnið 42 ár lyá félaginu en er nú að láta af störfum. Mikið hefur áunnist ÞAÐ er líflegt innandyra í Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra við Háaleitisbraut þegar blaðamaður gengur þar um með for- stöðukonunni Jónínu Guðmunds- dóttur og skoðar þjálfunaraðstöð- una sem er óvíða jafn góð hér á landi. í æfingasalnum fer fram hóp- þjálfun Parkinsonsjúklinga og í ungbarnaherberginu er verið að meta hreyfigetu eins árs bams. I sundlauginni eru nokkrir strákar sem eru að læra að synda því það hentar þeim ekki að læra að synda á venjulegu sundnámskeiði. Jónína á farsælt starf að baki en hún hefur tekið virkan þátt í að móta þá fjölþættu starfsemi sem Styrktarfélagið hefur beitt sér fyrir á umliðnum árum. Hún byrjaði að vinna hjá félaginu árið 1956 þegar fyrsta æfingastöðin fyrir lamaða og fatlaða var opnuð að Sjaínargötu 14 í Reykjavík. Opnun stöðvarinnar var fyrsta stóra viðfangs- efni SLF sem var stofnað árið 1952. Þá var Jónína tiltölulega nýkom- inn heim frá námi í sjúkraþjálfun við Oslo Orthopediska Institut sem var virtur og góður skóli en hún var fyrsti íslendingurinn sem þar lærði. Síðan hafa margir sjúkraþjálfarar útskrifast frá skólanum. Jónína er fædd og uppalinn í Hafnarfirði og segir að á unga aldri hafi hún fengið brennandi áhuga á íþróttum og gekk hún fljótlega í íþróttafélagið Hauka. Síðar stofnaði hún ásamt nokkrum ungum stúlkum Fimleikafélagið Björk. Þær höfðu æft fimleika undir stjórn Þorgerðar Gísladóttur íþróttakennara um nokkurt skeið og upp úr því stofn- uðu þær félagið. Jónína lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskóla og fór 19 ára í íþróttaskólann á Laugarvatni. Hún lætur vel yfir náminu þar og segir meðal annars að hún hafi skrifað lokaritgerð sina um íþróttir fom- manna. Hvers vegna hún valdi þetta viðfangsefni sé henni ekki alveg ljóst nú. Henni hafi þó alltaf þótt skemmtilegt að að lesa góðar bækur og hafði á þessum árum lesið flestar í slendingasögurnar. Ætli mér hafí þótt nógu gaman að kenna? Áður en Jónína fór til Noregs starfaði hún sem íþróttakennari við Jónína Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari hefur starfað sem forstöðukona Æfínga- stöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í 42 ár en er nú að láta af störfum. Hún lítur yfír farinn veg með Hildi Einarsdóttur og rifjar upp atburði úr eigin lífí og sögu Styrktarfélagsins. Morgunblaðið/Ami Sæberg Drengur í jafnvægisþjálfun er hér að draga sig fram og til baka í rélu. Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og hjá íþróttafélagi kvenna í hálft ár ásamt sundkennslu úti á landi á sumrin. Hún segir að þegar hún hafi verið að velta því fyrir sér hvaða nám hún ætti að velja eftir gagn- fræðanóm hafi hjúkrunarfræðin einnig komið sterklega til greina en íþróttakennaranámið orðið ofan á. „Ætli mér hafi þótt nógu gaman af því að kenna?“ segir hún þegar hún er beðin um skýringu á því afhverju hún söðlaði um og fór í sjúkraþjálf- un. Það má því segja að í sjúkra- þjálfuninni hafi Jónína sameinað þær námsgreinar sem áhugi hennar stóð til f upphafi. Þegar Jónína var í íþróttaskólan- um kynntist hún Þorsteini Einars- syni íþróttafulltrúa rfldsins sem hvatti hana til Noregsfarar til að læra sjúkraþjálfun. Hann þekkti þar til og sagðist geta hjálpað henni að fá þar skólavist. Á annan í jólum árið 1952 hélt Jónína með Gullfossi til Kaup- mannahafnar. „Ég hafði aldrei farið til útlanda,“ segir hún, þegar hún ryfjar upp ferð sína til Noregs en þá var hún 21 árs gömul. „Þegar við lögðum af stað fannst mér mikið ferðalag framundan. Ferðin gekk vel_ en það var fátt fólk með skipinu. í Kaupmannahöfn ætlaði vinkona móður minnar að taka á móti mér. Ég hafði aldrei séð þá konu, ekki einu sinni á mynd en hún ætlaði að mæta með íslenska fánann sem hún og gerði. Ég var hjá henni í tvo daga. Svo hélt ég áfram ferðinni með skipi frá Kaupmannahöfn til Osló sem tók fjórtán tíma. Fór nemendavillt Þegar ég kom til Óslóar og til- kynnti komu mína í skólann varð ég fyrir vægu áfalli. Mér var sagt að Islendingurinn sem ætlaði að hefja þar nám 1 sjúkraþjálfun væri þegar kominn og búið væri að innrita hann í skólann. Ég reyndi að útskýra á minni ófullkomnu norsku að ég væri sá íslendingur en þeim hafði greini- lega láðst að spyrja hina stúlkuna að nafni. Það kom svo í ljós að hún hafði skráð sig í nám í snyrtifræði í skóla neðar í götunni en hafði farið dyravillt. Stúlkan ákvað að venda kvæði sínu í kross og hefja nám í sjúkraþjálfun því henni leist vel á námið en hætti eftir fyrstu önnina.“ Jónína segir að þessi uppákoma hafi tekið svolítið á taugarnar en mis- skilningurinn var leiðréttur eftir nokkra daga. „Þama var ég næstu tvö árin. Ég kunni mjög vel við mig í skól- anum og námið gekk ótrúlega vel þótt það væri erfitt á köflum,“ segir hún þegar hún er spurð út í náms- framvinduna. „I skólanum lærðum við meðal annars líffærafræði, lífeðl- isfræði og að þekkja sjúkdóma og einkenni þeirra. Einnig lærðum við nudd og sjúkraleikfimi. Við þurftum að fara í tveggja mánaða verklegt nám við sjúkrahús í Noregi og vorum við látnar draga um hvert á land við færum til starfa. Ég dró sjúkrahúsið í Tönsberg sem er staðsett sunnan við Osló. Annaðist norska hvalveiðimenn sem höfðu veitt við ísland Það var mjög skemmtilegt að vinna á sjúkrahúsinu í Tönsberg. Sjúkrahúsið var stórt og þar var deild fyrir þá sem höfðu orðið fyrir því að útlimir höfðu verið teknir af þeim. Nokkrir af þeim karlmönnum sem þarna voru höfðu verið við ís- land við hvalveiðar. Þeir áttu góðar minningar frá íslandi og fannst skemmtilegt að fá íslending til að þjálfa sig, Þegar Jónina kom heim frá námi árið 1955 var ekki um mörg störf að vejja. Henni var þá bent á að tala við Gísla Sigurbjörnsson forstjóra á Elliheimilinu Grund. Þar var starf- rækt lítil deild fyrir börn og ungl- inga sem höfðu fengið mænuveiki og heilalömun. Var Jónínu falið að stýra þessari deild og þróa hana enn frekar. „Þar kynntist ég aðstand- endum þeirra sem stofnuðu Styrkt- arfélag lamaðara og fatlaðra. Á Grund var fyrsti vísirinn að þeirri sjúkraþjálfun sem síðar var tekin upg á Sjafnargötu 14. Ég starfaði hálfan daginn á Grund en hinn hlutann á stofu sem ég opnaði að Vesturgötu 17 þar sem ég kenndi sjúkraleikfimi ætlaða fólki sem hafði slasast, var bakveikt, eða þjáðist af vöðvabólgu. Ætli þessi stofa hafi ekki verið fyrsta sjálf- stæða stofan sem rekin var af sjúkraþjálfara hér á landi. Einn meinbugur var á þessari starfsemi og hann var sá að sjúklingarnir þurftu sjálfir að greiða fyrir þjón- ustuna. Ef þeir sóttu svipaða þjón- ustu sem nuddlæknar ráku fengu sjúklingarnir fyrirgreiðslu hjá Sjúkrasamlaginu í Reykjavík en þetta fyrirkomulag var auðvitað af- ar óréttlátt." Vildi ekki kalla sig nuddkonu Um þessar mundir halda sjúkra- þjálfarar upp á 60 ára afmæli félags síns. Lengi framan af gengdu aðeins konur þessu starfi og gengu þær undir starfsheitinu nuddkonur. Fyrsti formlegi félagsskapur þeirra hét Félag íslenskra nuddkvenna eða F. í. N. Jónína segist hafa vanist því í Noregi að greinin væri kölluð sykegymnastik eða sjúkraleikfimi upp á íslensku og því hafi henni fundist ankannalegt að kalla sig nuddkonu. Þótt nudd væri upphaf- lega afar stór þáttur í starfi sjúkra- þjálfara fór hlutur sjúkraleikfimi vaxandi.Vildi hún helst ekki ganga í félagsskap undir þessu nafni en lét tilleiðast þar eða lagt var hart að henni að ganga í félagið og vinna að hagsmunamálum stéttarinnar. „Þær konur sem stóðu að stofnun félags- ins voru allar hörkuduglegar og sýndi félagsstofnunin framsýni þeirra," segir Jónína. „Það kom fljótlega að því að nafni félagsins var breytt í Félag íslenskra sjúkra- þjálfara." Mænuveikifaraldurinn olli miklum skaða Jónína heldur áfram frásögn sinni og segir að haustið 1955 hafi stungið sér hér niður mænuveikifaraldur sem stóð yfir fram á árið 1956 og er einn stærsti faraldur sinnar tegund- ar hér á landi. „Á þessum árum var verið að byggja Heilsuverndarstöð- ina í Reykjavík og var önnur hæð hennar lögð undir það fólk sem lam- aðist. Einnig voru sjúklingarnir lagðir inn á Farsóttarhúsið. Meðan ég starfaði á Grund kynnt- ist ég mönnum eins og Svavari Páls- syni, Sveinbirni Finnssyni, og Frið- finni Ólafssyni sem eru meðal upp- hafsmanna að Styrktarfélagi lam- aðra og fatlaðra. Á þessum tíma kom Svavar, sem var fyrsti formað- ur SLF, að máli við mig og spurði hvort ég væri fáanleg til að þjálfa mænuveikissjúklinga sem voru lagðir inn á Heilsuvemdarstöðina. Ég hætti þá á Grund og með stof- una sem ég hafði rekið í hálft ár. Þeir sjúklingar sem ég stundaði á Heilsuvemdarstöðinni vom misjafn- lega mikið veikir því mænuveikin lagðist ekki jafn þungt á alla. Fyrstu einkenni vom höfuðverkur og verkir í beinum. Síðan fóm að koma fram lamanir sem vom mis- munandi miklar. Erfiðust var lömun í öndunarfæmm og þurfti fólkið þá að fara í öndunarvél. Sjúkraþjálfun mænusjúkra fólst einkum í því að styrkja útlimi. Einn- ig vom heitir bakstrar mikið notaðir til að minnka stífleika í liðum, örva blóðrásina og til að minnka verki og óþægindi. Heilsuvemdarstöðin fékk á þess- um ámm meðal annars erlent hjúkmnarfólk frá Danmörku til starfa sem var sérhæft í meðferð þessara sjúklinga." Jónina segir að um haustið 1955 hafi verið ákveðið að Styrktarfélag- ið keypti húseignina að Sjafnargötu 14 og var henni breytt í æfingastöð. Nokkmm mánuðum síðar róðist hún þangað til starfa. „í upphafi voru sjúklingamir sem komu til meðferðar fólk sem lamaðist af völdum mænuveiki, flest börn, en

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.