Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 58
58 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Salatbai
LISTAMAÐUR aldarinnar, Elvis
Presley, skók á sér mjöðmina sem
mest hann mátti í takt við hlátur,
grát og lófaklapp aðdáenda sinna á
unglingsaldri fyrir tæpri hálfri öld.
Allar götur síðan hafa vissar tegund-
ir poppstjarna átt möguleika á að
i^omast í guðatölu ef markaðs-
fræðingarnir liggja nógu stíft yfir
teikniborðunum. Sú ýkta aðdáun
sem fylgir í kjölfarið á vel heppnuð-
um hernaðaraðgerðum popphag-
fræðinga á dauðlegum mönnum hef-
ur tekið sér skýrasta mynd í söng- og
dansglöðum strákasveitum sem hafa
átt miklu fylgi að fagna í gegnum tíð-
ina, oftar en ekki hjá ungum stúlkum
á aldursbilinu 11-14 ára.
Að búa til hljómsveit
Forfeður, eða kannski öllu heldur
forstrákar, strákaveitafyrirbærisins
eins og við þekkjum það í dag er
vafalaust hljómsveitin Monkees sem
Ægivinsældir strákasveita eins og Back-
street Boys, Take That og New Kids on the
Block hafa náð svo miklum hæðum að með
ólíkindum má heita. Arnar Eggert Thor-
oddsen setti sig í sagnfræðilegar stellingar
og kannaði þetta mál.
kom fyrst fram árið 1966 í sjónvarps;
þáttaröð samnefndri sveitinni. I
kjölfar gífurlegra vinsælda Bítlanna
sáu menn sér leik á borði og ákváðu
að búa til sveit sem gæti blóðmjólkað
þann markað sem Bítlarnir voru
búnir að skapa. Líkt og þekkt er í
dag í strákasveitabransanum var
auglýst eftir áhugasömum ungum
mönnum og þeim heppnu svo gert að
beygja sig undir reiknistuðla skapar-
Ég gerði bara það
sem Gaui litli sagði
mér að gera....
■iii
og a
16 uikum
missti ég
30 kg!
8. Maí heflast í
World Class 8-vikna
aðhaldsnámskeið
með Gauja, Bubbu
og Hrafni.
Ný námskeið
með breyttum
áherslum
Þetta allt er innifalið
Hjólaspuni 3 til 5 sinnum i viku.
Vaxiamótun með íþróttarkennara.
Ýtarleg kennslugögn.
Vigtun F i t u m a? I i n 9.
Matardagbækur.
Fræðsludagur.
Hvetjandi verðlaun.
Fjöldi mataruppskrifta.
Einka viðtal viö Gauja litla.
Slómó lae Bo með Hraíni Fribjörns.
Viðtal við næringarráðyjafa.
Æfingarbolur og vatnsbrúsi.
brír heppnir fa frítt a næsta námskeið.
Ótakmarkaður aðgangur að Worid flass.
Við bjóðum upp á:
Morguntíma, eftirmiðdagstíma
og kvöldtíma.
Margra ára reynsla okkar
tryggir þérfrábæran árangur
WorldClass
/œmm
REYKJAVÍK
Skráning stendur yfir núna
'”‘896 1298
WaGBU NEW BALANCE
VIO AUSTURVOLL FATNAÐUR OG SKÓR
anna. Önnur sveit sem vert er að
nefna í þessari sifjafræði er Jackson
5 en samhæfð dansspor þeirra
bræðra eru samtíma strákasveitum
greinileg andagift.
I kjölfar Monkees verður tyggjó-
tónlistin (e. bubblegum) að stað-
reynd, tónlist sem einkennist af inni-
haldsrýru fjaðurvigtarpoppi, fram-
leiddu með gelgjumarkhópinn í
huga. í flestum tilfellum voru lögin
samin af „mönnum úti í bæ“ sem síð-
an fengu ímyndarvæna flytjendur til
liðs við sig. A sjöunda áratugnum
voru t.d. The Partridge Family og
The Bay City Rollers á meðal þeirra
sem héldu jórturleðrinu hátt á lofti.
Strákarnir í götunni
Árið 1986 kemur fram sú sveit
sem má heita ábyrg fyrir þeirri
bylgju strákasveita sem hefur hald-
ist nokkuð stöðug síðan. Upptöku-
stjórinn Maurice Starr hafði náð
nokkuð góðum árangri með fram-
leiðslusveit sína New Edition, skip-
aða ungum blökkumönnum með
sjálfan Bobby Brown í broddi fylk-
ingar.
Maurice ákvað að venda kvæði
sínu í kross og leitaði til út-
hverfa Boston og fann þar
hressa og hvíta úthverfis-
stráka sem gátu raulað lag-
línur og tekið nokkur spor
svona nokkuð vandkvæða-
laust. New Kids on The
Block varð að stað-
reynd og náði hún
heljarmiklum
vinsældum á árun-
um 1988-1990.
Tyggjóblaðran
sprakk þó stuttu
eftir þetta tímabil
en um það leyti var
önnur sveit, handan
við hafið, að bollaleggja
heimsyfirráð.
Take That og tíundi
áratugurinn
Breska sveitin Take That
átti heiminn á fyrri helm-
ingi síðasta áratugar. Ólíkt
flestum fyrirrennurum sínum
samdi einn af meðlimum sveit-
arinnar flest lögin og var þetta
líka lunkni smellasmiðurinn.
Fyrsta smáskífan kom út árið
1991 og eftir það lá leiðin á hæstu
tinda popplands. Sjö lög komust á
toppinn í Bretlandi og engin bresk
sveit síðan Bítlarnir voru og hétu
náði að selja jafn marga bílfarma af
plötum. Helstu keppinautar þeirra
voru götustrákarnir í East 17 sem
höfðu öllu harðari ímynd en Take
That sem gerðu meira út á hið fág-
aða. Pað var því tilvalið fyrir dag-
blöðin að setja upp ríg á milli sveit-
anna í Bítlarnir/Stones-stíl.
Einn af lykilþáttunum í velgengni
Take That lá í því að markhópurinn
var ekki einungis unglingsstúlkur
heldur var einnig leynt og ljóst gert
út á samkynhneigða og síðar á ferlin-
um áttu angurværar ballöðurnar
ekki síður erindi við fólk í eldri kant-
inum en það yngra. I þessu hofi
Mammons sem strákasveitabrans-
inn er, er öllum meðulum beitt.
Þegar Take That lagði upp laup-
ana árið 1996 þurfti að sjálfsögðu að
opna viðeigandi hjálparstöðvar þar
sem fjöldinn allur af angistarfullum
Guð minn almáttugur!
Feta í fótspor meistaranna í Take That.
Full mikið af hmu góða/
vonda.
Monkees:
Fyrsta „stráka-
sveitin"?
aðda-
end-
um
hót-
aði
sjálfs-
vig- um
kjölfar- ið. Ný bylgja
strákabanda komst svo ekki al-
mennilega á skrið fyrr en að tæpum
þremur árum liðnum. Boyzone var
helsta sveitin í millitíðinni að
ógleymdum hinum gríðarvinsælu
Spice Girls sem poppfræðilega séð
er tilbrigði við strákasveitastefið.
Þær gripu tækifærið í öllu stráka-
leysinu og tröllriðu heimsmarkaðin-
um svo um munaði á árunum 1996-
1998 en að undanförnu hefur þó ver-
ið heldur hljótt um þær.
Hvað er á seyði í dag?
í dag eru nokkrar sveitir þónokk-
uð stórar. Helsta er að telja Back-
street Boys en einnig eru Westlife,
Five og N’Sync í baráttunni. Tón-
listarlega séð ber Westlife höfuð og
herðar yfir keppinautana. Sam-
nefndur frumburður sveitarinnar
sem út kom á síðasta ári er stútfullur
af melódískum og grípandi lögum og
slaga þau hátt í snilld Take That í
þeim efnum. Síðan eru það dauða-
dæmdir undanvillingar eins og hið
vafasama gengi Youngstown
ur upp á allt það
versta í þessum við-
kvæma þransa. Þar
er öllum brögðum
beitt á óforskammað-
an hátt. í einu laginu
eru þeir harðir rapparar
en í því næsta syngja þeir grátklökk-
ir um mömmur sínar!
Það mætti líta á strákasveitir sem
helber markaðstæki þar sem tón-
listin skiptir hvað minnstu. Hvað
tónlistinni viðkemur hafa sveitir
eins og Westlife og Take That sýnt
fram á að ofangreind fullyrðing á
ekki alltaf rétt á sér. Eitt eiga þær
þó allar sameiginlegt en það er
áherslan á ímyndina. Oftast er reynt
að passa upp á að það sé eitthvað til
handa öllum innan sveitanna. Einn
strákurinn er voða sætur, einn er
töffari, einn er með hökutopp
o.s.frv.
Poppið er harður húsbóndi og sér-
staklega er lífið innan strákasveita-
geirans stutt. Helsta ástæðan er sú
að þegar markhópurinn vex úr grasi
er áhuginn og blindur átrúnaðurinn
afar fljótur að dofna. Njótið þvi á
meðan þið getið.