Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 8
8 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Það skilja það nú allir sem vilja skilja að það er ekki kvótakerfínu að kenna þegar allar
stofnanir hrynja svona niður, petta er bara hrein og klár flensa.
Kynning á nýjustu línunni í innréttingum frá HTH
auk 20% afsláttar af öllum raftækjum sem keypt eru
með innréttingunni*
HTH og Bræðurnir Ormsson eiga um þessar mundir sitt fyrsta sameiginlega
afmæli og ætlum víð af því tilefni að efna til sérstakra eldhúsdaga þar sem
nýja línan frá HTH verður í aðalhlutverki.
Spónlagður kirsuberjaviður og gegnheilt birki einkennir nýjustu straumana
sem liggja frá hinum danska framleiðanda sem getið hefur sér orð fyrir
glæsilega hönnun og vinalega verðlagningu.
A eldhúsdögum fást líka öll önnur raftæki í verslun okkar með 20% afslætti
(með innréttingunni) og því geta húseigendur sparað sér umtalsverðan tíma
og fjármuni á þessum dögum.
Veríð velkomin í glæsiiegan sýningarsal okkar á 3.hæð í Lágmúlanum
Opið í dag kl. 13-17
*Venjulega merkja svona stjömur einhverjar
leiöinlegar takmarkanir á þvf hvað fellur undir
skilmálana en í þessu tilfelli er það heldur betur á
hinn veginn. Viö erum ekki bara að tala um hin ýmsu
tæki í eldhúsið, stór sem smá, heldur sjónvörp,
hljómtæki, myndavélar og hvað eina sem fæst í
búðinni okkar í Lágmúlanum - og hana nú.
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
Ráðstefna um Evrópusamruna
Staða
minni ríkja
Baldur Þórhallsson
RÁÐSTEFNA um
stöðu minni ríkja í
Evrópu verður
haldin á Hótel Sögu í sal A
á þriðjudaginn nk. og hefst
hún klukkan 13. Það er
stjórnmálafræðiskor Há-
skóla íslands, Félag um
vestræna samvinnu, Varð-
berg og Félag stjómmála-
fræðinga sem standa að
þessari ráðstefnu. Dr.
Baldur Þórhallsson hefur
skipulagt ráðstefnuna í
samvinnu við fleiri, en
doktorsritgerð hans fjaUaði
um stöðu smærri ríkja inn-
an Evrópusambandsins.
Hann var spurður um
markmið ráðstefnunnar.
„Markmið hennar er að
fjalla um hvemig smærri
ríkjum í Evrópu gengur að
fóta sig í þeim miklu breytingum
sem nú eiga sér stað í álfunni. Það
má í rauninni segja að ráðstefnan
sé þrískipt. Fyrst verður svokall-
aður Schuman-fyrirlestur sem
haldinn er í tilefni Evrópudagsins,
í öðm lagi verður fjallað um stöðu
Noregs og Sviss og stöðu smærri
ríkja innan Evrópusambandsins
og í þriðja lagi verður fjallað um
öryggis- og vamarmál í Evrópu og
hvernig smærri ríkjum gengur að
aðlagast þeim breytingum sem em
að verða í þeim málaflokkum."
-Hver heldur þennan Schu-
man-fyrirlestur?
„Bertel Haarder sem er þing-
maður Dana á Evrópuþingi og var
menntamálaráðherra Dana frá
1982 til 1993. Schuman-fyrirlestur
er haldinn árlega í flestum ríkjum
Evrópu í tilefni þess að 9. maí 1950
setti Róbert Schuman, utanríkis-
ráðherra Frakklands, fram áætlun
um Kola- og stálbandalagið sem er
undanfari Evrópusambandsins.
Fastanefnd framkvæmdastjómar
Evrópusambandsins stendur að
þessum fyrirlestri og stefnt er að
því að slíkur fyrirlestur verði hald-
inn hér á landi árlega í samvinnu
við Háskóla íslands, en í ár era
fimmtíu ár frá því að þessar fyrstu
hugmyndir sem leiddu til stofnun-
ar Evrópusambandsins litu dags-
ins Ijós.“
- Hver er staða smæiri ríkjanna
innan Evrópusambandsins núna?
„A ráðstefnunni ætlum við eins
og fyrr kom fram að fjalla um
stöðu Noregs og Sviss í Evrópu-
samrunanum, en þessi tvö lönd era
í svipaðri stöðu og ísland. Þess
vegna held ég að það sé mjög fróð-
legt fyrir okkur að heyra álit
fræðimanna á því hvernig þeim
gengur að fóta sig í öllum þessum
breytingum. Einnig ætlum við að
fjalla um möguleika smærri ríkja
til áhrifa innan Evrópusambands-
ins.“
- Hvernig gengur þeim þar?
„í stuttu máli kemst ég að þeirri
niðurstöðu í minni ritgerð að
smærri ííkjunum gengur vel að ná
fram hagsmunamálum sínum inn-
an Evrópusambandsins. Þau verða
hins vegar að forgangsraða hvaða
málefnum þau beina
sjónum sínum að vegna
smæðai' stjómsýslu
sinnar. Þau verða þann-
ig að leggja ákveðin
málefni til hliðar og
beina öllum kröftum
sínum í að ná fram já-
kvæðri niðurstöðu í grundvallar-
hagsmunamálum sínum.“
- Hvað fínnst þér persónulega
um hugsanlega aðild ríkja einsog
Noregs, Sviss og íslands að
Evrópusambandinu í ljósi þinna
rannsókna?
„Þau smærri ríki sem þegar em
í Sambandinu telja að þau komi
► Baldur Þórhallsson fæddist á
Selfossi 1968. Hann lauk stú-
dentsprófi frá Menntaskólanum
á Laugarvatni 1988, BA-prófi í
stjórnmálafræði frá Háskóla Is-
lands 1991, mastersfræði í
stjómmálafræði frá háskólanum
í Essex 1994 og doktorsprófi frá
sama skóla í fyrra. Hann hefur
m.a. verið ritstjóri Suðurlands og
Stúdentablaðsins, hann kenndi
við háskólann í Essex og var
stundakennari við HI frá 1995
fram til þessa en er nú nýráðinn
lektor í stjómmálafræði með al-
þjóðastjórnmál að sérsviði. Bald-
ur er giftur Felix Bergssyni leik-
ara og eiga þeir tvö böm.
sjónarmiðum sínum þar á fram-
færi og það er kannski besti mæli-
kvarðinn á hvemig smáríkjum
gengur að vinna innan Évrópu-
sambandsins. Luxemburg hefur
t.d. tekist að tryggja sérstöðu
bankakerfis síns og Finnum og Ir-
um hefur gengið einkar vel að
vinna innan Sambandsins, svo ég
taki dæmi. Ég get ekki annað séð
en sama ætti að gilda um önnur
smærri ríki. Hins vegar hefur
hvert og eitt ríki sérstöðu, t.d.
varðandi ísland þá er stjómsýsla
okkar einkar smá, en hún virðist
hins vegar vera skilvirk og vinna
vel innan Evrópska efnahagssvæð-
isins. Síðan verður að taka inn í
stórpólitískar spumingar eins og
sjávarútvegsstefnu Evrópusam-
bandsins, aðild að myntbandalag-
inu og utanríkis- og öryggismála-
stefnu Sambandsins. Ráðstefn-
unni er m.a. ætlað að svara því
hvemig smáum ríkjum vegnar
innan þessara málaflokka."
- Hverjir tala aðrír en Bertel
Haarder?
„Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra mun setja ráðstefnuna,
prófessor Clive Archer mun fjalla
um stöðu Noregs í Evrópusamrun-
anum, Clive Church mun fjalla um
þverstæðu í Evrópuvæðingu Sviss,
Kristófer N. Donnelli talar um
smærri ríki og stækkun NATO,
Antti Turanen mun fjalla um
minni ríki og utanríkis- og öryggis-
stefnu Evrópusam-
bandsins, prófessor
Emil Kirchnir mim
ræða um hvað hefur
breyst fyrir smærri rík-
in í vamarmálum frá
1990 og ég mun fjalla
um stöðu smærri ríkja
innan Evrópusambandsins."
- Hvers vegna er þetta á dag-
skrá hjá ykkur núna?
„Ég held að það sé mjög mikil-
vægt fyrir okkur Islendinga að
átta okkur á því hvemig öðmm
minni ríkjum Evrópu gengur að
aðlagast þeim miklu breytingum
sem fylgja samruna Evrópu.“
Smærri ríkjum
gengurvel að
ná fram hags-
munamálum
sínum