Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 10

Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 10
I rúm tvö ár hefur verið tekist á um flutninga fyrir Hefur inntak flutn- ingasamningsins verið hunsað? eftir Egil Olafsson Harðar deilur hafa staðið um flutninga fyrir Varnarliðið frá því að flutningadeild bandaríka hersins gerði samninga við skipafélögin Transatlantic Lines og Atlantsskip. Að mati utan- ríkisráðuneytis Islands fela samningamir í sér að inntak milliríkjasamnings þjóðanna frá 1986 hefur verið hunsað, en áfrýjunarréttur í Banda- ríkjunum hefur hafnað því. TIL margra ára hafa staðið deilur um flutninga fyrir Vamarliðið á Keflavfkurflugvelii. Flutningum var lengst af sinnt af ís- lenskum skipafé- lögum, aðallega Eimskip, en einnig Bifröst og Hafskip um tíma. Árið 1984 gerðist það að bandarískt skipafélag, Rainbow Navigation, krafðist þess að flutningamir yrðu eingöngu boðnir út í Bandaríkjunum. Krafa félagsins byggðist á bandarískum lögum frá ár- inu 1904 sem kveða á um að þarlend yf- irvöld hafi greiðan aðgang að banda- rískum skipum til flutninga á hættutímum. Til að uppfylla þessar kvaðir varð að samkomulagi að banda- rísk skipafélög skyldu fá forgang að öllum flutningum fyrir bandaríska her- inn. Með vísan til þessara laga gerði Rainbow Navigation tilboð í flutninga Vamarliðsins á íslandi og annaðist þá alfarið á ámnum 1985-1987. Átök um gerð sjóflutninga- samningsins árið 1986 íslensk stjómvöld mótmæltu þess- ari niðurstöðu og lýstu megnri óánægju við bandarísk stjómvöld. Pau gerðu kröfu um jafnan aðgang ís- lenskra flutningafyrirtækja að flutn- ingunum og bentu m.a. á að vegna ör- yggishagsmuna Islands væri ekki síður þörf á að hér væru ávallt til stað- ar tryggir sjóflutningar frá Islandi til Evrópu og Bandaríkjanna. Reglubundnar siglingar íslenskra skipafé- laga yfir Atlantshafið ættu þátt í að tryggja örugga sjóflutninga á þessari mikilvægu siglingaleið. Oflug starf- semi íslenskra skipafélaga væri því ekki aðeins í þágu íslenskra öryggis- hagsmuna, heldur einnig í þágu heild- aröryggishagsmuna Atlantshafs- bandalagsins. Segja má að íslensk stjómvöld hafi í þessu máli að hluta til beitt sömu röksemdum og lágu að baki bandarísku einokunarlögunum frá ár- inu 1904. Málið varð að harðri milli- ríkjadeilu sem um tíma spillti sam- skiptum þjóðanna. Deilan leystist í september 1986 þegar gerður var milliríkjasamningur milli landanna. Aður en samningar náðust höfðu farið fram ítarlegar viðræður milli stjóm- valda í löndunum. Utanríkisráðherra og vamarmálaráðherra Bandaríkj- anna höfðu til að mynda bein afskipti af deilunni. Samningar náðust stuttu áð- ur en leiðtogafundur Reagans og Gorbatjovs var haldinn í Reykjavík og þykir enginn vafi leika á að fundurinn átti sinn þátt í að lögð var ofuráhersla af hálfu Bandaríkjamanna á að leysa deiluna. Samninginn undirrituðu George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Matthías A. Math- iesen, utanríkisráðherra Islands. Samningurinn felur í sér að sjóflutn- ingum fyrir Varnarliðið á Keflavíkur- flugvelli skuli úthlutað á grund- velli samkeppn- isútboðs meðal fyrirtækja frá íslandi og Bandaríkjunum. Skipafélagið sem á lægsta tilboðið fær allt að 65% flutn- inganna, en sá flutningsaðili frá hinu landinu sem á næstlægsta tilboðið fær a.m.k. 35%. Þessi samningur er ein- stæður að þvi leyti að hann felur í sér einu undanþáguna frá bandarísku ein- okunarlögunum, en flutningum fyrir Bandaríkjaher er alls staðar í heimin- um sinnt af bandarískum flutningafyi'- irtækjum. Samningurinn var á sínum tíma borinn upp í báðum deildum Bandaríkjaþings og samþykktur þar. Allar breytingar á honum eru af þess- um sökum erfiðar og þungar í vöfum vegna þess að málið þarf að fara fyrir þingið. Frá 1987 hafa sjóflutningarnir verið boðnir út og niðurstaða útboðsins hef- ur ávallt orðið sú að íslenskt skipafé- lag, oftast nær Eimskip, hefur átt lægsta tilboð og þess vegna fengið 65% flutninganna. Þar með er ekki sagt að 65% tekna af flutningunum hafí fallið íslenskum skipafélögum í skaut því til- boð bandarískra fyrirtækja hafa alltaf verið umtalsvert hærri en tilboð ís- lensku félaganna. Ný skipafélög bjóða í flutningana í janúar 1998 bauð flutningsdeild bandaríska hersins út flutningana og rann frestur til að skila inn tilboðum út 5. mars. Sex tilboð bárust í flutning- ana. Tvö þeirra voru frá bandarískum fyrirtækjum, þrjú frá íslenskum fyrir- tækjum og eitt tflboð barst þar sem um var að ræða samstarf íslensks og bandarísks fyrirtækis. Bandarísku tfl- boðin voru frá Van Ommeren, sem hafði sinnt þessum flutningum ásamt Eimskip, og Transatlantic Lines. Is- lensku tilboðin komu frá Eimskip, Samskip og Atlantsskip. Sjötta tflboðið gerði ráð fyrir að Atlantsskip og Transatlantic Lines önnuðust flutning- ana sameiginlega, en flutningadefld hersins taldi að tflboðið uppfyllti ekki reglur sem giltu um útboðið. Tilboðin sem bárust voru almennt hærri en þeir samningar sem flutningadeild hersins gerði við Eimskip og Van Ommeren 1993. Þeir samningar sem síðar voru gerðir á grundvelli tilboð- anna þýða að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.