Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 15

Morgunblaðið - 07.05.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 1 5 setningu Alþingis um framkvæmd varnarsamstarfsins stóla og sannfært dómara um að bandarísk utanríkisstefna sé röng.“ í lok bréfsins skoraði hann á dómsmálaráðuneytið að áfrýja dómnum. Til þess kom þó ekki því að Transatlantic Lines áfrýjaði sjálft málinu og hafði fullan sigur í áfrýjunarrétti. Áður en að rétturinn kvað upp sinn úrskurð sinn reyndi Torricelli að fá það skilyrði sett fyr- ir samþykkt fjárlagafrumvarps Bandaríkjanna að afstaða banda- rískra stjórnvalda héldist óbreytt til túlkunar, framkvæmdar og breyt- inga á sjóflutningasamningnum og samkomulaginu sem fylgir honum. Ekki reyndi á þetta því að áfrýjun- arrétturinn sneri niðurstöðu málsins við Transatlantic Lines í vil. Afskiptum Torricelli af málinu lauk ekki með niðurstöðu réttarins því að í mars. sl. skrifaði hann utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna bréf þar sem hann varar utanríkisráðu- neytið við að grípa til aðgerða í því skyni að breyta á nokkurn hátt sam- komulagi landanna um sjóflutninga fyrir varnarliðið. I bréfinu, sem Ernest F. Hollings, öldungadeildar- þingmaður frá Suður-Karolínu, skrifaði einnig undir, er minnt á að Bandaríkjamenn hafi gefið talsvert eftir í þessu máli þegar sjóflutninga- samningurinn var gerður 1986. Þeir skora á utanríkisráðuneytið að hafna öllum beiðnum um að samn- ingurinn verði túlkaður með öðrum hætti en lagður var í hann þegar öldungadeildin samþykkti hann á sínum tíma. Tilefni bréfsins er hins vegar greinilega frumvarpið sem utanrík- isráðherra íslands hafði stuttu áður lagt fram á Alþingi. „Þær breyting- ar, sem íslendingar leggja til, myndu koma á fyrirkomulagi, sem er í grundvallaratriðum ósanngjarnt gagnvart litlum fyrirtækjum og yrði kostnaðarsamt Bandaríkjunum, allt í því skyni að koma á einokun fyrir það fyrirtæki, sem íslensk stjórn- völd taka fram yfir.“ Talsmaður Torricelli segir að öld- ungadeildarþingmaðurinn sé mjög óánægður með íslenska frumvarpið og nefndi þá sérstaklega ákvæðið um að far'a skuli fram forval áður en útboð fer fram. Frá sjónarhóli bandarískra skattborgara sé óviðun- andi að íslensk stjórnvöld setji fram frumvarp sem beint og óbeint sé fallið til að draga úr líkum á að það takist að draga úr kostnaði við starf- semi hersins. Hann sagði Torricelli vera ánægðan með afstöðu banda- ríska utanríkisráðuneytisins til frumvarpsins. Ef frumvarpið yrði að lögum yrði Torricelli að endurmeta málið í heild. Hann sagðist ekkert geta sagt til um hugsanleg viðbrögð hans, en eitt væri víst; afskiptum Torricelli af málinu væri ekki lokið. Hann myndi áfram fylgja málinu eftir. Utanríkisráðuneyti íslands hefur bent á að frumvarpið breyti engu íyrir Transatlantic Lines og banda- ríska hlutann af flutningnum. Það varði eingöngu framkvæmd á ís- lenska hluta samningsins og því sé óeðlilegt að Torricelli sé að reyna að hafa áhrif á ákvarðanir íslenskra stjórnvalda í málinu. Þetta sýni að í reynd snúist málið í huga Torricelli ekki um hagsmuni Transatlantic Lines heldur um að tryggja að Atlantsskip haldi flutningunum. Hann sé því að berjast fyrir hags- munum „íslenska fyrirtækisins" Atlantsskips. í þessu sambandi verður auðvitað að hafa í huga að það skiptir öllu máli fyrir fyrirtækin tvö, sem eru í eigu sömu aðila og má þess vegna hugsanlega líta á sem eitt félag, að sjá um alla flutninga fyrir Varnarliðið. Það dregur að sjálfsögðu mjög úr líkum á að fyrir- tækin hafi arð af flutningnum ef hlutur þeirra minnkar niður í ein- vörðungu 65% eða jafnvel 35%. Morgunblaðið ræddi einnig við talsmann Hollings, sem sagði að hann hefði skrifað undir bréfið til utanríkisráðherrans að beiðni Torr- icelli. Hollings, sem hefur setið í öld- ungadeildinni síðan 1966, hefði verið óánægður með eftirgjöf Bandaríkja- manna í sjóflutningasamningnum frá 1986. Hann væri algerlega sam- þykkur afstöðu Torricelli í málinu. Hollings er demókrati eins og Torr- icelli og á sæti í þingnefnd sem fjall- ar um viðskipti, vísindi og sam- göngumál. Hann sagði að Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra hefði fyrr í vetur rætt við menn úr nefndinni um þetta mál og nokkur önnur sem vörðuðu ísland. Talsmað- urinn sagði að Hollings hefði skiln- ing á sjónarmiðum íslands, en hann gæti ekki stutt íslensk stjórnvöld í þessu máli. Það er hætt við að mörgum þyki Torricelli hafa gengið nokkuð langt í hagsmunagæslu fyrir Transatlantic Lines og Atlantsskip, en nauðsyn- legt er hins vegar að hafa í huga að svona hagsmunagæsla þykir næsta sjálfsagður hlutur í bandaríska stjórnkerfinu. Það þykir eðlilegt að þingmenn komi sjónarmiðum sínum að við embættismenn í ráðuneytum um framkvæmd stefnu Bandaríkj- anna í utanríkis- og varnarmálum. íslenskum embættismönnum, sem unnið hafa í þessu máli, finnst hins Ekki liggur fyrir hvað Bandaríkja- menn ætla að fara fram á í viðræð- unum sem framundan eru, en ís- lensk stjómvöld reikna með að stærsta málið í viðræðunum verði leiðir til að lækka kostnað við starf- semi Varnarliðsins. Bandarískir embættismenn sem Morgunblaðið ræddi við í Washington sögðu að ekki væri búið að móta stefnu Bandaríkjamanna í viðræðunum, en lækkun kostnaðar yrði eitt megin- atriðið í viðræðunum. Þeir sögðust vera þeirrar skoðunar að svigrúm væri til að lækka kostnað umtals- vert án þess að það þyrfti að leiða til þess að dregið yrði úr vörnum í Keflavík. í Bandaríkjunum eru uppi ýmis sjónarmið varðandi mikilvægi Varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli. Innan flughersins hefur það sjónarmið t.d. verið nokkuð sterkt að draga megi verulega úr starfsemi hans á Kefla- víkurflugvelli. Sjóherinn hefur aftur á móti haft meiri áhuga á að við- halda núverandi vörnum í Keflavík, en kafbátaeftirlitskerfið sem hann rekur er gífurlega umfangsmikið. Innan utanríkisráðuneytisins hefur það sjónarmið verið ríkjandi að leit- ast eigi við að koma til móts við sjónarmið Islendinga varðandi varn- ir á Keflavíkurflugvelli, en jafnframt verði að stefna að því að draga úr kostnaði við starfsemina. Þrýst á um lækkun kostnaðar í viðræðunum um endurskoðun á bókuninni verður fjallað um hversu mikil umsvif Varnarliðið kemur til með að hafa á Keflavíkurflugvelli á næstu árum. Fjallað verður m.a. um hvort herþoturnar verði áfram stað- settar á vellinum, hvort þyrlubjörg- unarsveitin verður þar áfram, hvort Varnarliðið heldur áfram að taka þátt í rekstri flugvallarins sem m.a. felur í sér að fjarlægja snjó og hálku af brautunum en sú þjónusta er mjög kostnaðarsöm. Allt þetta og margt fleira verður undir í þessum viðræðum. Hafa ber í huga að Varn- arliðið greiðir íslenskum verktökum og öðrum þeim sem vinna fyrir það árlega yfir 10 milljarða íslenskra króna . Sú upphæð gerir þær 180 milljónir sem sjóflutningasamning- urinn snýst um að næsta smárri upphæð. Síðan kalda stríðinu lauk hefur bandaríski herinn dregið saman starfsemi i herstöðvum í Bandaríkj- unum og nokkrum hefur verið lokað. Þetta hefur að sjálfsögðu komið nið- ur á fólki sem haft hefur atvinnu af þjónustu við herinn og einnig hefur þetta komið við verktaka og fyrir- tæki sem unnið hafa fyrir hann. Bandarískir þingmenn hafa verið undir þrýstingi vegna þessa frá fyr- irtækjum og kjósendum sem telja eðlilegra að skera meira niður í her- stöðvum Bandaríkjahersins í öðrum löndum áður en skorið er niður í Bandaríkjunum. Það er því stöðugt vaxandi þrýstingur í Bandaríkjunum á að sparnaður verði meira í rekstri Bandaríkjahers erlendis. þeirra yrði hafnað á þeirri forsendu að þau uppfylltu ekki útboðsskilmála og ákvæði sjóflutningasamningsins. Fullyrt er að þrýstingur Torricelli hafi komið í veg fyrir að þetta gerð- ist og tryggt þannig að samningar væru gerðir við Transatlantic Lines og Atlantsskip. Sömuleiðis mun þrýstingur Torricelli á varnarmálar- áðuneytið hafa skipt máli þegar það tók ákvörðun um að breyta ákvörð- un Ríkisendurskoðunar Bandaríkj- anna um að banna hernum að gera samninga við fyrirtækin meðan rannsókn færi fram á framkvæmd útboðsins. Bréfaskrif Torricellis Eftir að Transatlantic Lines og Atlantsskip töpuðu dómsmáli sínu fyrir undirrétti skrrifaði Torricelli bréf til Janet Reno, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna. í bréfinu lýsir Torricelli áhyggjum sínum af afleið- ingum dómsins. „Ég hef miklar áhyggjur af því að verði úrskurður dómsins látinn standa geti hann haft umtalsverð áhrif á stefnu Banda- ríkjanna í utanríkis- og hernaðar- málum,“ segir Torricelli. „I fyrsta lagi er í áliti réttarins vitnað ræki- lega í diplómatíska nótu, sem ís- lenska utanríkisráðuneytið sendi bandaríska utanríkisráðuneytinu, þar sem kemur fram sú afstaða ís- lenskra stjórnvalda að samningurinn og minnisblaðið meini Bandaríkja- mönnum að veita íslensku skipafé- lagi og félagi undir bandarískum fána samningana séu þau tengd hvort öðru. Bandaríkin hafa túlkað samninginn og minnisblaðið á annan veg bæði í málaferlunum og í svari við hinni diplómatísku nótu frá ís- landi.“ Torricelli segir að í þessu máli sé ekki um það að ræða að einkaaðilar séu í málaferlum vegna túlkunar á alþjóðasáttmála, sem sérstaklega varði réttindi og skyldur einkaaðila. „Þetta mál varðar beina deilu milli tveggja fullvalda ríkja um þýðingu sáttmála, sem varðar það hvernig Bandaríkjastjórn tryggi flutninga. Þetta er einmitt alþjóðaágreiningur af því tagi, sem stjórnarskráin kveð- ur á um að eigi alfarið að vera á valdi framkvæmdavalds stjórnkerfis okkar. Sem meira er kveður minnis- blaðið sérstaklega á um leið fyrir Island og Bandaríkin til að endur- skoða og breyta minnisblaðinu. For- seti og utanríkisráðherra geta ekki mótað og fylgt utanríkisstefnu þessa lands með skilvirkum hætti ef stjórnir annarra ríkja eða borgarar þeirra geta leitað til alríkisdóm- vegar afskipti Torricelli í þessu máli óeðlileg. „Það er óneitanlega sér- stakt að upplifa það að ísland, sem hefur verið í varnarsamstarfi við Bandaríkin í yfir 50 ár, hafi minni áhrif á stefnu Bandaríkjanna í þessu máli en kjördæmapotari frá New Jersey,“ sagði einn af heimildar- mönnum Morgunblaðsins. Embættismenn í bandaríska utan- ríkisráðuneytinu hafna því algerlega að afstaða bandarískra stjórnvalda ráðist af vilja Torricelli í þessu máli. Málið sé miklu flóknara en svo. Hann hafi vissulega komið sjónar- miðum sínum að í þessu máli, en fleiri bandarískir þingmenn hafi einnig gert það. Það komi margir að því að móta utanríkisstefnu Banda- ríkjanna, en það sem mestu skipti í þessu máli séu þó efnisatriði máls- ins. Þess má geta að meðan Morgun- blaðið var að afla upplýsinga í Washington um þetta mál fór ekkert á milli mála að skrifstofa Torricellis fékk upplýsingar um gang viðræð- anna við sendinefnd íslands. Greini- legt var að öldungadeildaþingmað- urinn eða starfsmenn hans voru í sambandi við bandaríska embættis- menn sem sátu fundi með Islending- unum. Ljóst má vera að þetta auð- veldaði ekki verkefni íslensku sendinefndarinnar. Framundan eru viðræður um framtíð varnarsamstarfsins ísland og Bandaríkin hafa tvívegis gert með sér bókun um framkvæmd vamarsamstarfsins. Ástæðan fyrir því að slík bókun var upphaflega gerð var sú að íslenskum stjórnvöld- um bárust misvísandi skilaboð um framtíð Varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. Þetta varð til þess að við- ræður hófust milli landanna árið 1993 og gengið var frá bókun í árs- byrjun 1994 þar sem samið var um umtalsverðan samdrátt í starfsemi flughersins á vellinum og jafnframt að gerðar yrðu ráðstafanir til að lækka kostnað verktaka sem unnu fyrir herinn. íslendingar lögðu áherslu á að Varnarliðið héldi áfram uppi trúverðugum loftvömum og féllust Bandaríkjamenn á það, en það þýddi jafnframt að þyrlubjörg- unarsveitin var áfram staðsett í Keflavík. Þessi bókun var gerð til tveggja ára, en hún var endumýjuð 1996 þar sem samið var um óbreytt umsvif Varnarliðsins til næstu fimm ára. Jafnframt varð að samkomulagi að halda áfram að lækka kostnað m.a. með því að auka samkeppni í verktöku. Frá og með 9. apríl sl. hafa þjóð- irnar getað óskað eftir endurskoðun á bókuninni og þó að hvomg þjóðin hafi enn formlega óskað eftir endur- skoðun er gengið út frá því að við- ræður hefjist síðar á þessu ári og að ný bókun verði und- irrituð á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.