Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 37

Morgunblaðið - 07.05.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ________________________________________________________SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2000 3 7 MINNINGAR KRISTJANA KÁRADÓTTIR + Kristjana Kára- dóttir fæddist í Garði í Kelduhverfi hinn 16. ágúst 1915. Hún lést í Skjól- brekku í Kópavogi 1. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Sigrún Gríms- dóttir frá Garði, f. 12. september 1886, d. 5. apríl 1970 og Kári Stefánsson frá Grá- síðu í Kelduhverfi, f. 19. ágúst 1882, d. 21. september 1935. Bræður Kristjönu voru Ámi, f. 26. ágúst 1918, d. 10. maí 1984 og Stefán Örn, f. 17. apr- fl 1923, d. 1. maí 1998. Þeir störf- Kristjana ólst upp hjá foreldrum sínum í Garði í Kelduhverfi til tíu ára aldurs, en þar höfðu þau búið frá árinu 1913 þegar þau gengu í hjóna- band. Þau Kári og Sigrún urðu að bregða búi í Garði árið 1925 þegar Kári veiktist af berklum og varð að fara á Vífilstaðahælið. Sigrún fylgdi manni sínum suður með yngsta barnið, Stefán Örn, og réðst til starfa við eldhús sjúkrahússins en eldri börnin tvö fóru í fóstur um sinn til ættingja, Kristjana til móður- bróður síns séra Sveins Víkings sem þá gengdi starfi sóknarprests í Þór- oddsstaðarprestakalli í Köldukinn. Ári seinna fékk séra Sveinn Víking- ur veitingu fyrir Dvergasteini við Seyðisfjörð og fór Kristjana með prestshjónunum þangað austur og dvaldi hjá þeim fram á unglingsár. Sigrún starfaði á Vífilsstöðum í tvö ár en fór eftir það austur í Dvergastein með Stefán Örn og árið 1929 hafði Kári náð nægilegum bata til þess að geta komist austur á Seyðisfjörð, þar sem þau hjónin tóku við ráðsmennskustöðu á sjúkrahúsinu. Svo fór þó að lokum að veikindi Kára tóku sig upp og lést hann haustið 1935. Sveinn Víkingur lýsir Kára mági sínum í bókinni Myndir daganna III sem mætum at- orkumanni, greindum og vel hagorð- um. Kristjana átti heima á Seyðis- firði þar til hún var 28 ára gömul, vann þar í apotekinu og um tíma að- stoðaði hún móður sína við veitinga- rekstur. Á þessum árum breyttist Seyðisfjörður úr friðsælum útgerð- arbæ í herstöð og herskipalægi þar sem öflugur floti Breta leitaði skjóls á milli átaka á hafinu. Útgerð lagðist niður vegna þessa og fjöldi Seyðfirð- inga fékk vinnu við flotastöðina. Kristjana og móðir hennar fluttu til Reykjavíkur og bjuggu á höfuð- borgarsvæðinu eftir það, lengst af í Kópavogi. Kristjana vann á ýmsum stöðum í borginni áður en hún veikt- ist af berklum og þurfti að dvelja al- lengi sem vistmaður á Vífilsstöðum. Eftir að hún hafði fengið heilsuna aftur gengu þau Kristjana og frændi minn Haukur Davíðsson í hjónaband 31. mars 1962, en það hafði dregist vegna veikinda hennar. Hjónaband þeirra var hið besta. Kristjana var góðum kostum búin gáfuð og glað- lynd og hjónabandsár þeirra hafa ef- laust verið ánægjulegasti tíminn í ævi þeirra beggja. Sá tími varð þó ekki langur því Haukur veiktist árið 1972 og lést í febrúar ári seinna, þá tæpra 48 ára gamall. Þau áttu ekki börn, en lítið frændfólk Kristjönu heimsótti þau oft og fékk góðar mót- tökur hjá frænku og Hauki, sem gat þá farið út að ganga með litla fólkið að leita að búð sem seldi eitthvað bragðgott. Búðin fannst og þau héldu heim til frænku og skemmtu sér hjá barngóðu hjónunum, sem kunnu svo vel að meta heimsóknir barnanna. Á yngri árum hafði Hauk- ur starfað hjá sýslumannsembætt- um úti á landi og var síðar oft feng- inn til að leysa sýslumenn af þegar þeir fóru í sumarleyfi. Kristjana var gjarnan með í þessum ferðum og minntist þeirra með mikilli ánægju. I erfiðum veikindum Hauks annað- ist hún hann af mikilli kostgæfni, en að honum látnum bjó hún með Árna bróður sínum á meðan hann lifði. uðu báðir hjá Pósti og síma í Reykjavík. Kristjana giftist 31. mars 1962 Hauki Davíðssyni lögfræð- ingi, f. 10. aprfl 1925, d. 12. febrúar 1973. Foreldrar hans voru Ingibjörg Árnadótt- ir f. í Höfðahólum 25. aprfl 1901, d. 12. ágúst 1927 og Davíð Jóhannesson, f. 18. september 1896, d. 8. mars 1960. Utför Kristjönu fer fram frá Foss- vogskirkju á morgun, mánudag- inn 8. maí, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Eftir að hún var orðin ein naut hún vináttu og ræktarsemi nánustu ætt- ingja sinna. Eflaust hefa langvar- andi veikindi hennar verið henni þungur kross, þó svo að hún léti ekki á því bera. Heilbrigð viðhorf og kær- leiksríkt hugarþel urðu til þess að fólki leið vel í návist hennar og sótt- ist eftir félagsskap við hana. Allra síðustu árin dvaldi Kristjana á Skjólbrekku, sambýli aldraðra í Kópavogi og lést hún þar í svefni að- faranótt 1. maí sl. Við Ragnheiður sendum ættingjum Kristjönu inni- legar samúðarkveðjur. Páll Halldórsson. Fátt er erfiðara en að kveðja þá sem manni þykir vænt um og hefur þekkt alla sína ævi. Kristjana afa- systir mín var fædd í miðju fyrra stríðinu og því skildi okkur að hátt í sjöunda tug ára, þegar ég leit dags- ins ljós. Hún bjó á hæðinni fyrir neð- an afa minn og ömmu og heimsótti ég hana því oft sem lítill strákur. Alltaf var hálfundarlegt að fá að fara niður stigann og kíkja til Kristjönu og Árna, bróður hennar, sem lést er ég var fimm ára gamall. íbúðin fannst mér alltaf frekar skrýtin, dimmari en ég þekkti og svolítið þunga lykt lagði um hana. Minning- amar um Araa eru ekki margar en ákaflega skýrar þó. Hjá Kristjönu var líka sitthvað um undarlega hluti fyrir lítinn strák. Eg man eftir ein- hvers lags pullu sem öðlaðist líf ás- amt barkanum úr sturtunni og urðu að hesti og beisli. Orgelið gamla bar einnig yfir sér einhvern ljóma. Ósjaldan laumaðist maður niður stigann til að fá að spila á orgelið. Kristjana sat þá undir mér og steig það áfram með ég hamaðist sem mest ég mátti á nótnaborðinu. Vænst þótti mér þó um lítinn sel sem gerður var úr selskinni og var kall- aður Kobbi. Tímunum saman gat ég setið og klappað Kobba. Kristjana var óþreytandi að eyða tíma með barnabörnum bróður síns, og ávallt var einhver ró sem fylgdi því að heimsækja hana. Hún spilaði mikið við mig og kenndi mér að tefla, sem ekki hefur verið lítið verk, því þolin- mæði fylgdi mér ekki í æsku. Marg- oft tókum við skákir og hún passaði sig á að vinna passlega oft. Það kann að þykja undarlegt en eftir því sem ég eltist fannst mér Kristjana yngjast og hafði ég það oft á tilfinningunni að ég væri að ræða við jafnaldra þegar við spjölluðum um það sem efst var á baugi hverju sinni. Hún gat rökrætt við mann um íþróttir og önnur málefni sem frem- ur þykja tilheyra unglingum en eldri konum. Kristjana eignaðist engin börn og taldi hún sig því eiga talsvert í okkur og tel ég okkur bamaböm afa hafa skipað jafnstóran sess hjá henni og hún vissulega gerði hjá okkur. Síðustu misserin voru Kristjönu erfið. Hún fluttist á sambýli þar sem hún sagði að fólkið væri of gamalt og vitlaust til að hægt væri að ræða við það, sem lýsir vel kímnigáfu hennar og skýrleika. Á sambýlinu kunni hún vel við sig og var vel að henni hlúð. Þótt erfitt sé að bera sorg sem þessa skerpir hún minningar um góða konu og Ijúfar stundir með henni. Ernir Kárason. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, systur, mágkonu og ömmu GUÐRÚNAR PÉTURSDÓTTUR, Naustahlein, 30, Garðabæ. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deildar 11-E og líknardeildar Landspítalans fyrir umönnun, skilning og kærleika. Guðmundur Rafn Guðmundsson, Ásdís Guðmundsdóttir, Jón Bjarnarson, Pétur Guðmundsson, Hólmfríður Ómarsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Svanlaug Sigurðardóttir, Magnús Karl Pétursson, Ingibjörg Pétursdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir sendum við þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR SIGURÐARDÓTTUR frá Teygingarlæk. Sérstakar þakkir til starfsfólks og vina á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlið í Kópavogi. Guð veri með ykkur. Margrét Runólfsdóttir, Þuríður Runólfsdóttir, Bjarni Ó. Runólfsson, Sigurður B. Runólfsson, Dagbjartur Sigursteinsson, Jón Steinþórsson, Erla Stefánsdóttir, María Emma Suarez, Bjargey Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær móðir mln, tengdamóðir og amma, ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR frá Sauðanesi, Norður-Þingeyjarsýslu, lést á Vífilsstaðaspítala sunnudaginn 23. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir stuðning og hlýjan hug. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaðaspítala fyrir frábæra umönnun. Hrafhildur Óskarsdóttir Voll, Jone Voll, Daníel Jonesson Voli, Anný Jonesdatter Voll. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET WAAGE, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 9. maí nk. kl. 13.30. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Kristín Waage, Hákon Jens Waage, Margrét S. Guðnadóttir, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Magnús Ragnarsson, Gunnar Emil Ragnarsson, Indriði og Inga Þórunn Waage. t Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, sonur, bróðir og mágur, GUNNLAUGUR KRISTJÁNSSON kerfisfræðingur, Laufengi 136, Reykjavík, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 30. apríl sl., verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðju- daginn 9. maí kl. 13.30. Sigríður Kristjánsdóttir, Sveinn Þórir, Pétur Þór, Brynjar Ingi Helga Þórðardóttir, Anna Kristjánsdóttir, Jón H. Jónasson, Unnur Dóra Kristjánsdóttir, Þórður Kristjánsson, Tina Kristjánsson, Kristófer Kristjánsson, Kolbrún D. Jónsdóttir, Kristján Þór Finnsson, Ásrún Óladóttir. t Mágkona mín, föðursystir okkar og frænka, KRISTJANA KÁRADÓTTIR, Skjólbraut 1a, áður til heimilis að Melgerði 26, Kópavogi, verður jarðsungin í Kópavogskirkju mánu- daginn 8. maí kl. 13.30. Sigríður Magnúsdóttir, Kári Stefánsson, Bjarnheiður Elísdóttir, Björg Stefánsdóttir, Þorsteinn Steinþórsson, Ernir Kárason, Elísa Káradóttir, Sunna Þorsteinsdóttir, Sigríður Björg Þorsteinsdóttir, Steinþór Örn Þorsteinsson. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, SIGRÍÐUR BIRNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Skeljatanga 21, Mosfellsbæ, sem lést sunnudaginn 30. apríl sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. maí kl. 15.00. Guðbjartur Vilhelmsson, Vilhelm Guðbjartsson, Guðmundur Örn Guðbjartsson, Eydís Erna Guðbjartsdóttir, Sigurður Guðmundsson, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.