Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 E 23 Þrjátíu þús- und munn- hörpur Ríkissjónvarpið sýndi nýverið þátt um Þingholtin, húsagerð og ýmsan fróðleik um íbúa hverfísins. Pétur Pétursson ritar um A. Obenhaupt, sem meðal annars reisti Esjuberg og stundaði kaupsýslu. RÍKISSJÓNVARPIÐ sýndi nýverið þátt um Þingholtin, húsagerð og ýms- an fróðleik um íbúa hverfísins. I þætt- inum var m.a. minnst á reisulegasta húsið, sem prýðir hvei-fið, Esjuberg. Það var reist af A. Obenhaupt, þýsk- um gyðingi, sem hér stundaði kaupsýslu um skeið. Hann var rang- lega nefndur Oberhaupt. Þótt sitt- hvað væri á huldu um feril Oben- haupts má þó lesa sér til um ýmislegt athyglisvert í frásögum samtíðar- manna hans og þeirra sem áttu við hann skipti. Vilhjálmur Finsen sendi- herra ritar fjörlega frásögn um Oben- haupt í bók sinni „Alltaf á heimleið". Obenhaupt reisti fleiri hús en Esju- berg. Má þar nefna húsið nr. 4 við Hverfisgötu, sem síðar var kennt við Garðar Gíslason. Það var reist af Obenhaupt. Einnig hús við Suður- Hannes Jónsson kaupmaður keypti 30 þúsund Hohner- munnhörpur af A. Obenhaupt stórkaupmanni. Morgunblaðið/Sverrir Esjuberg við Þingholtsstræti var reist af A. Obenhaupt stórkaupmanni en selt Ólafí Johnsyni er Obenhaupt fluttist af landi brott. götu, þar sem Raflampagerðin var síðar til húsa. Það var einnig reist af Obenhaupt. Elínmundur Ólafs, fram- taksmaður og fullhugi af Seltjamar- nesi, sá sem síðar keypti Keflavíkur- eignina, var um skeið skrifstofu- maður hjá Obenhaupt, fyllti út tollskýrslur og þessháttar pappíra og sinnti erindum stórkaupmannsins. Ábatasöm viðskipti Þá má geta þess að afi Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra, Hannes Jónsson kaupmaður, sem síð- ar var kenndur við Ásvallagötu og „Óðinshana", stundaði ábatasöm við- sldpti við Obenhaupt. Einna minnis- stæðust verður frásögn Hannesar af munnhörpukaupum hans. Kemur þá í hugann saga Halldórs Laxness um naglbítana tvöhundruðþúsund. Hannes segist hafa keypt afarmik- ið af vörum hjá Obenhaupt bæði af birgðum og af vörum sem kaupmað- urinn pantaði. „Þegar Disconto og Revisionsbankinn danski fór varð Obenhaupt hræddur og skipaði að selja allar birgðir hér. Þá keypti ég um 30 þúsund munnhörpur fyrir lágt verð,‘( segir Hannes Jónsson í endur- minningum sínum. Um þessar mund- ir sungu Reykvíkingar: „Hér er allt til reiðu, Gvendur spilar á greiðu." Nú voru munnhörpur bomar að músik- vörum á hverju heimili landsins að heita má, þökk sé Obenhaupt og Hannesi. Hannes segir Obenhaupt hafa ver- ið hálærðan verslunarmann, sem smákaupmenn hafi laðast að. Hann var af þýskum ættum gyðinga, reglu- samur og strangur í viðsldptum, en svo áreiðanlegui- að enginn efaðist um heiðarleika hans. „Hann bætti versl- unina mjög,“ segir Hannes. Eftirsóttar vörur Þá nefnir Hannes dæmi þess hve kaupmenn hafi sóst eftir vöram Obenhaupts. Jón í Vaðnesi lét sig ekki vanta við dyrnar hjá Obenhaupt þeg- ar sykurbirgðir vora seldar þar. Gagnstætt lofsyrðum HannesaJfc Jónssonar sem hrósar Obenhaupt og hælir á hvert reipi segir Vilhjálmur Finsen að hann hafi verið þýskur gyð- ingur og „það ekki af betri endanum“. „Obenhaupt fór vitanlega að versla; „kaufen und verkaufen" (kaupa og selja) er orðtak gyðinga, hvar sem þeir eru á hnettinum. Hann flutti með sér sýnishora af allskonar vamingi, leigði stóra íbúð í Thomsenshúsi, þar sem síðar var Hótel Hekla, og barst mikið á. Hann drakk nær ekkert sjálf- ur, en hann veitti meir en almennt gerðist í Reykjavík þá. Þegar kaup- menn komu að skoða sýnishomin, var þeim ævinlega boðið inn í stofu og flaskan þá dregin upp. Svo var farið að tala um „Businessinn". Obenhaupt var þá ókvæntur, en seinna kom hann heim með þýska konu af sama kynflokki og hann, vegnaði ágætlega, hann auðgaðist áreiðanlega þrátt fyrir íburðinn,“ seg- ir Finsen. Magnús Sigurðsson bankastjóri annaðist sölu húseigna fyrir Oben- haupt er hann ákvað mjög skyndilega að hverfa af landi brott. Seldi hann þá „í æðiskasti“ verslunarhús og „vill- una“, sem hann hafði látið reisa í Þingholtsstræti, „fegursta hús bæjar- ins, bæði innan og utan“, að sögn Vil- hjálms Finsens. v Obenhaupt auglýsti ævinlega í Vísi. Honum var illa við Morgunblaðið, segir Finsen. Höfundur er fyrrvenuidi þulur. Dagbók Háskóla íslands Dagbók Háskóla íslands 25. sept.-l. okt. 2000 Ailt áhugafólk ervelkomið á fyrirlestra í boði Háskóla íslands. ít- arlegri upplýsingar um viðburði er að finna á heimasíðu Háskólans á slóð- inni: http:/Avww.hi.is/stjom/sam/dag- bok.html Málstofa í þjúkrunarfræði Mánu- daginn 25. september 2000, kl. 12:30 í stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34. verður haldin málstofa á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunar- fræði. Hertha W. Jónsdóttir, hjúkr- unarkennari og fyrrverandi hjúkrun- arframkvæmdastjóri Bamaspítala Hringsins flytur fyrirlesturinn: Þró- un hjúkmnar á Bamaspítala Hrings- ins 1980 - 1998 Málstofan er ölium opin. Meistaraprófsfyrirlestur hjá um- hverfis- og byggingarverkfræði- skor: Þriðjudaginn 26. september nk., kl. 17:00 í stofu 157 í VR-II, Hjarðarhaga 2-6, flytur Pálína Gísla- dóttir M.S.-fyrirlestur sem ber heit- ið: Tímaháðar formbreytingar í for- spenntum einingum. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Efnisútdrátt er að finna á slóðinni: http://www.hi.is/ stjom/sam/meistaraprof.htm. Fyrirlestur um meistaraprófs- verkefni við Verkfræðideild Háskóla Islands. Þriðjudaginn 26. september kl. 13:15 mun Arnór Bergur Kristinsson halda fyrirlestur á vegurm Raf- magns- og tölvuverkfræðiskorar um rannsóknarverkefni sitt til meistara- prófs við skorina. Verkefnið ber heitið Local Area Augmentation System LAAS, sem nákvæmnisaðflugskerfi fyrir Akureyrarflugvöll. Fyrirlestur- inn fer fram í stofu V-248 í húsi Verk- fræði- og Raunvísindadeilda VR-II, Hjarðarhaga 2-6. Hann er öllum op- inn meðan húsrám leyfir. Er stærðfræðikennslan á villigöt- um? Miðvikudaginn 27. september í tilefni af alþjóðlega stærðfræðidegin- um á alþjóðlega stærðfræðiárinu 2000 verður haldinn opinn umræðu- fundur í Hátíðarsal Háskóla Islands. Fundurinn hefst klukkan 17:00 og ber yfirskriftina: Er stærðfræði- kennslan á villigötum? Málstofa sálfræðiskorar Miðviku- daginn 27. september verður fyrsta málstofa vetrarins í sálfræðiskor haldin í Odda, stofu 202, kl. 12.00- 13.00. Dr. Patrik ÓBrian Holt, senior lecturer við rafmagns- og tölvunar- verkfræðideild Heriot-Watt Háskól- ans í Edinborg, flytur fyrirlesturinn: Hvemig má bæta skynjunarkenn- ingu Biederman’s með reiknilíkönum. Málstofan verður haldin alla miðviku- daga í vetur og er öllum opin. Fyrirlestur um lífupplýsinga- tækni Miðvikudaginn 27. september, kl. 16:00, í kennslustofu 3. hæð Læknagarði mun Dr. Jotun Hein, dósent í lífupplýsingatækni við Há- skólann í Ái-ósum, www.bioinf.au.dk. flytja fyrirlestur sem hann nefnir: Statistical alignment. Fyrirlesturinn er í boði Urðar, Verðandi, Skuldar í samstarfi við Rannsóknanámsnefnd læknadeildar H.í. og Rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði, Krabbameinsfélagi Islands. Meistaraprófsfyrirlestur við _ líf- fræðiskor raunvísindadeildar H.I. Miðvikudaginn 27. september kl. 16:00 mun Guðlaug Þóra Kristjáns- dóttir flytja meistaraprófsfyrirlestur sinn sem hún nefnir: Fjölbreytileiki veira í hveravatni. Greining á tveimur hitakærum bakteríuveh-um. Fyrir- lesturinn verður haldinn í húsnæði Is- lenskrar erfðagreiningar Lynghálsi l,salA. íslensk fræði í Skólabæ Miðviku- daginn 27. september kl. 20:30 í Skólabæ mun Svanhildur Óskars- dóttir flytja fyrirlestur sem hún nefn- ir: Fyrirgefðu, en geturðu sagt mér hvar helvíti er? Um handanheima í ís- lenskum miðaldaritum. Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan hús- rám leyfir. Hagvöxtur um heiminn Fimmtu- daginn 28. september kl. 17:00 í stofu 101 í Odda mun prófessor Þorvaldur Gylfason halda opinberan fyrirlestur á vegum Viðskipta- og hagfræði- deildar Þorvaldur gegnir nú starfi rannsóknaprófessors og mun kynna rannsóknir sínai’ Tækifæri gefst til fyrirspurna að loknum fyrirlestri. Málstofa læknadeildar Fimmtu- daginn 28. september kl. 16:15 í sal Krabbameinsfélags íslands efstu hæð mun málstofa læknadeildar fara fram. Læknanemarnir Bjarni Þór Eyvindsson, Hannes Jón Lárusson, Ólafur Ámi Sveinsson og Rúnar G. Stefánsson kynna 4. árs verkefnin sín. Málstofan er öllum opin. Fyrirlestur um lífupplýsinga- tækni Fimmtudaginn 28. september, kl. 14:30 í fyrirlestrasal Krabba- meinsfélags íslands mun Dr. John Masters, pófessor við University College London flytja fyrirlestur sem hann nefnir: Cell line authentication - development of an intemational ref- erence standard for authentication of cell lines using DNA profiling. Fyrir- lesturinn er í boði Urðar, Verðandi, Skuldar í samstarfi við Rannsókna- námsnefnd læknadeildar H.Í. og Rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði, Krabbameinsfélagi ís- lands. Fræðslufundur á Keldum Fimmtudaginn 28. september kl. 12:30 á bókasafni Keldna mun Einar Jörundsson, dýralæknir Keldum, flytja erindi sem hann nefnir: Griplu- frumur (dendritic cells) í húð; hlut- verk í húðofnæmi. Málstofa efiiafræðiskorar Föstu- daginn 29. september 2000 k!.12:20 í stofu 158, VR-II, Hjarðarhaga 4-6 verður málstofa efnafræðiskorar haldin. Ólafur Friðjónsson, sam- eindalíffræðingur, Prokaria ehf, Keldnaholti 112, Reykjavík, flytur er- indið: Hitaaðlögun alfa-galaktosidasa með hjálp hitakærra baktería. Allir velkomnir. Líffræðistoftjun kynnir meistara- prófsfyrirlestra Föstudaginn 29. september kl. 16:15 í stofu G-6, Grensásvegi 12 mun Katrín Guð- mundsdóttir, Rannsóknastofu í sam- einda- og frámulíffræði, Krabba- meinsfélagi íslands, flytja fyiirlesturinn: Erfðabreytileiki sem áhættuþáttur fyrir brjóstakrabba- mein. Leit að breytingum í eftirlist- genum mítósu í brjóstakrabba- meinsæxlum. Föstudaginn 29. september mun Anna Guðný Hermannsdóttir halda erindið Hitaþolinn amylasi úr fom- bakteríunni Thermococcus stetteri Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Hann verður haldinn á Lífíræðistofn- un, Grensásvegi 12, í stofu G-6 kl.l3:15.Öllum er heimill aðgangur. Doktorsvörn í læknadeild Laugar- daginn 30. september 2000 fer fram doktorsvöm við læknadeild Háskóla íslands. Gunnar Guðmundsson lækn- ir, ver doktorsritgerð sína „Cytokines in Hypersensitivity Pneumonitis“, sem læknadeild hefur metið hæfa til doktorsprófs. Andmælendur af hálfu læknadeildar verða, prófessor Helgi Valdimarsson við Háskóla íslands og Mark Schuyler M.D. frá University of New Mexico í Albuquerque í Bandaríkjunum. Forseti læknadeild- ar, Reynir Tómas Geirsson, prófessor stjómar athöfninni. Doktorsvörnin fer fram í Hátíðar- sal Háskóla íslands og hefst klukkan 14:00. Öllum er heimill aðgangur. Námskeið Endurmenntunarstofn- unar HÍ 20. og 27. sept. og 4. okt. kl. 17:00-19:30. Að skrifa vandaða íslensku - Hvernig auka má fæmi við að rita gott, íslenskt mál Kennari: Bjami Ól- afsson íslenskufræðingur og mennta- skólakennari. 25. og 26. sept. kl. 16:00-19:00. Hugverkaréttindi og auðkenni - Almennt yfirlit Kennarar: Ásta Valdi- marsdóttir lögfræðingur, Erla S. Ámadóttir hrl. og Gunnar Öm Harð- arson sérfræðingur hjá A.P. Ámasyni. 25. og 26. sept. og 3. okt. kl. 16:30- 20:30. Árangursrík samskipti Kennarar: Jóhann Ingi Gunnarsson og/ eða Sæ- mundur Hafsteinsson sálfræðingar. 25. sept., 28. sept. og 2. okt. kl. 13:30-17:30. Vefsmíðar I - Fyrir bókasafns- fræðinga Kennarar: Gunnar Gríms- son viðmótshönnuður og vefsmiður hjá Engu ehf. og Sveinn Ólafsson bókasafns- og upplýsingafræðingur, Landsbókasafni. 26. -28. septkl. 9:00-12:00. Hönnun vöruhúsa gagna Kennari: Sigþór Öm Guðmundsson, íslensku ráðgjafastofunni. 26. sept. kl. 17:10-21:00, 3. okt. kl. 18:10-22:00 og 5. okt. kl. 17:10-21:00. Vefsmíðar I, fyrir kennara - Grunnatriði vefsmíða og mynd- vinnslu fyrir vefinn Kennari: Gunnar Grímsson viðmótshönnuður og vefsmiður hjá Engu ehf. 27. -28.sept. kl. 8:30-17:00. Verkefnastjómun I - Undirbún- ingur og áætlanagerð - Grandvall- aratriði í verkefnastjómun Kennarar: Tryggvi Sigurbjarnarson ráðgjafar- verkfræðingur og Helgi Þór Ingason PhD, véla- og iðnaðarverkfræðingur. 27. sept. kl. 8:30-12:30. Bein markaðssókn - grundvallar- atriðin Kennari: Sverrir V. Hauksson aðalráðgjafi og framkvæmdastjóri Markhússins ehf. 29. og 30. sept og 2. okt. kl. 8:30- 12.30. Böm, uppeldisaðferðir og náms- árangur - Uppeldi ungra barna Kennari: Dr. Sigurlína Davíðsdóttir lektor við HÍ. Mánudagar 25. sept. - 20. nóv. kl. 17:00-19:00 (9x). Stjómun starfsmannamála (Mannauðsstjórnun) Kennari: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, MAIR, virm- umarkaðsfræðingur og stundakenn- arivið HÍ. Mán. og mið. 25. sept. - 25. okt. kl. 18:00-19:30 (lOx). Japanska I - Byrjendanámskeið Kennari: Tomoko Gamo BA, en hún hefur sl. fimm ár kennt japönsku á íslandi. 28. sept. - 24. nóv. Stýrt sjálfsnám í dönsku, þýsku, frönsku og spænsku - danska - Um- sjón: Eyjólfur Már Sigurðsson D.E.A. forstöðumaður Tungumála- miðstöðvar HÍ. 28. sept. - 24. nóv. Stýrt sjálfsnám í dönsku, þýsku, frönsku og spænsku - þýska - Um- sjón: Eyjólfur Már Sigurðsson D.E.A. forstöðumaður Tungumála- miðstöðvar HÍ. 28. sept. - 24. nóv. Stýrt sjálfsnám í dönsku, þýsku, frönsku og spænsku - franska - Um- sjón: Eyjólfur Már Sigurðsson D.E.A. forstöðumaður Tungumála- miðstöðvar HÍ. 28.sept.-24. nóv. Stýrt sjálfsnám í dönsku, þýsku, frönsku og spænsku - spænska - Umsjón: Eyjólfur Már Sigurðsson D.E.A. forstöðumaður Tungumála- miðstöðvar HÍ. <• Vísindavefurinn Hvers vegna? - Vegna þess! Vísindavefurinn býður gestum að spyrja um hvaðeina sem ætla má að vísinda- og fræðimenn Háskólans og stofnana hans geti svarað eða fundið svör við. Leita má svara við spumingum um öll vísindi, hveiju nafni sém þau nefn- ast. Kennarar, sérfræðingar og nem- endur í framhaldsnámi sjá um að leysa gátumar í máli og myndum. Slóðin er: www.visindavefur.hi.is Sýningar Árnastofnun Stoínun Áma Magnússonar, Amagarði við Suður- götu. Handritasýning er opin kl. 14-16 þriðjudaga til fóstudaga, 1. sept. tiÞ»- 15. maí og kl. 13-17 daglega, 1. júm' til 31. ágúst. Unnt er að panta sýningu utan reglulegs sýningartíma sé það gert með dags fyrirvara. Þjóðarbókhlaða í tilefni af alþjóð- legri ráðstefnu félags kortasafnara, IMCoS, sem stendur yfir dagana 15- 18. september í Landsbókasafni ís- lands - Háskólabókasafni opnar safnið laugardaginn 16. september, tvær kortasýningan Fom ís- landskort og Kortagerðarmaðurinn Samúel Eggei-tsson. Sýningarnai' munu standa út árið 2000. Sýningim Forn íslandskort er á annarri hæcm' safnsins og er gott úrval af ís- landskortum eftir alla helstu korta- gerðarmenn fyrri alda. Sýningin Kortagerðarmaðurinn Samúel Egg- ertsson er í forsal þjóðdeildar á fyrstu hæð. Ævistarf Samúels (1864-1949) var kennsla, en kortagerð, skraut- skrift og annað því tengt var har»x. helsta áhugamál..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.