Morgunblaðið - 10.11.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.2000, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vaknaði við keldusvín undir rúmi „ÉG rumskaði við eitthvert þrusk í herberginu. Þegar ég leit upp sá ég keldusvín stinga sér undir rúmfletið og kötturinn á eftir,“ sagði Pétur Þorsteinsson, skólastjóri á Kópaskeri, sem vaknaði við það í fyrradag að keldusvín, einn sjaldgæfasti fugl landsins, flaug undir rúmið hans. Það var heimiliskötturinn sem hafði dregið keldusvinið inn í húsið. Hann hafði þurft að hafa mikið fyrir feng sínum. „Köttur- inn kom inn um bílskúrsglugg- ann, fór þaðan niður nokkrar tröppur niður í kjallarann og aftur upp á efri hæðina. Þetta var því mikið ferðalag með kvik- indið. Ég á ekki heimangengt vegna veikinda, en kunningi minn fór út og kannaði vettvang atburð- anna. Það er ljóst að fuglinn kom einhvers staðar fljúgandi að. Hann hefur aðeins vappað um en síðan hefur hann kúrt sig ofan í snjóinn. Það mátti einnig sjá slóð eftir köttinn í snjónum. Kisa hafði síðan stokkið eitthvað á þriðja metra til að klófesta keld- usvinið. Það má því segja að hér hafi orðið dramatískir atburðir í birtingunni,“ sagði Pétur. Pétur sagðist ekki hafa séð nein merki um að kötturinn hefði skaðað fuglinn. I samráði við Kristin Hauk Skarphéðins- son, líffræðing hjá Náttúrufræði- stofnun, ákvað Pétur að fóðra keldusvínið í einn sólarhring og sleppa því svo. Pétur sagði að tekist hefði að fá fuglinn til að borða svolítið áður en honum var sleppt. Hafði talsvert leitað að keldusvíni Keldusvín er einn fágætasti fugl á íslandi. Á válista, sem Náttúrufræðistofnun gaf út í haust, er hann flokkaður sem út- dauður varpfugl í íslenskri nátt- úru. Talið er að hann hafi hætt að verpa hér á landi um 1970. Ástæðan er einkum talin vera framræsla votlendis og innflutn- ingur minks. Keldusvín sem sjást hér á landi eru því flækingsfugl- ar. Pétur er áhugamaður um fugla og svo einkennilega vill til að á unglingsárum leitaði hann markvisst að keldusvíni. Hann lagði m.a. á sig að liggja úti í vornóttinni upp úr 1960 í von um að heyra hljóðin í keldusvíni. Þessi leit var árangurslaus á þeim tíma. Hvort kötturinn vissi um þennan áhuga Péturs á að sjá keldusvín skal ósagt látið, en víst er að kisa kom því til leiðar að hann fékk draum sinn upp- fylltan. Pétur sagði að það hefði vakið athygli sína að ljósbrúni liturinn á síðu keldusvínsins hefði verið meira áberandi en á myndum í þeim bókum sem hann hafði handbærar. Fuglinn hefði verið meira í ætt við Iýsingu á fslenska afbrigðinu af keldusvíni. „Það vekur aftur upp spurningar um það hvort það afbrigði geti hald- ist við án þess að tegundin verpi í einhverjum mæli hér á landi,“ sagði Pétur. Ólympíumótið í skák Tap gegn Argentínu og Kirg- isistan ÍSLENSKA karlaliðið tapaði 3-1 fyrir Argentínu í 12. umferð Ólymp- íumótsins í skák í gærkvöld. Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þór- hallsson gerðu jafntefli í sínum skák- um, en Jón Viktor Gunnarsson og Helgi Ólafsson töpuðu. Þetta var fyrsta tapskák Helga á mótinu en karlasveitin er nú með 2414 vinning. íslenska kvennasveitin tapaði 2-1 fyrir Kirgisistan. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Harpa Ingólfsdótt- ir töpuðu sínum skákum en Áslaug Kristinsdóttir gerði jafntefli og er kvennasveitin nú með 16 vinninga. ------------------ Arekstrar á Miklubraut TVEIR nokkuð harðir árekstrar urðu með stuttu millibili á Miklu- braut á móts við Fenjahverfi á sjötta tímanum í gær. Að sögn lögreglu varð að fjarlægja bifreiðir með kranabifreið og voru ökumenn og farþegar fluttir á slysa- deild, en ekki var talið að þeir væru alvarlega slasaðir. Talsvert umferð- aröngþveiti myndaðist vegna árekstranna. Siglingaleiðir olfuskipa eru um verðmæt fískimið Vilja að skipin sigli fjær landi til að draga úr hættu Lýst eftir manni LÖGREGLAN í Kópavogi lýsir eftir 27 ára gömlum manni, Einari Emi Birgissyni, en ekkert hefur spurst til hans síðan á miðvikudagsmorgun. í gær hófst leit að Einari Erni og tóku yfir 50 björgunarsveitar- og lögreglumenn þátt í leitinni. Um hádegi fannst bíll hans við Hótel Loftleiðir og var farið með sporhunda um Öskjuhlíð og svæðið vestan flugvallar. Einar Órn er um 190 sentimetrar á hæð, um 90 kíló að þyngd, stutt- klipptur með dökkt liðað hár. Síðast þegar sást til hans var hann klæddur dökkbláum gallabuxum, dökkblárri peysu með rennilás, millisíðum svörtum leðurjakka og svörtum leð- urskóm. SIGLINGALEIÐIR olíuskipa eru á mikilvægri hrygningaslóð fiski- stofna. Davíð Egilsson, forstöðumað- ur mengunarvarnarsviðs Hollustu- vemdar ríkisins, vill að olíuskipum verði gert að sigla fjær landi en þau gera nú. Þannig megi draga úr hættu á skipssköðum og um leið á alvarlegu mengunarslysi. Konráð Þórisson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, segir að tapist farmur olíuskips af einhverjum orsökum í sjó nálægt landi við suð- urströndina sé hætta á því að hrygn- ing mikilvægra fiskistofna misfarist. Konráð segir áhættuna mesta þegar skammt er liðið frá hrygningu, á vor- in og sumrin. Verði stórt mengunar- slys á þessum tíma sé hætt við því að þorskárgangurinn það árið yrði lítill. Mikil umferð á litlu svæði Davíð Egilsson sagði, í erindi sem hann flutti á ráðstefnu um bráða- mengun á sjó og landi í gær, að um- ferð skipa á siglingaleiðum olíuskipa væri gríðarmikil. Þar væru auðug fiskimið auk þess sem önnur flutn- ingaskip fæm þar um. Davíð sagði að miðað við tölfræðilegar upplýsingar um bilanir og slysatíðni væm líkur á einu stóm mengunarslysi á 25-150 ára fresti. Búast mætti við mengunaróhöppum vegna strand- flutninga á um 12-50 ára fresti. Stað- þekking skipstjóra og betri tækja- búnaður dragi þó vemlega úr slysahættu. Davíð sagði að þessir útreikningar byggðust á sögulegu máti og væm ekki að öllu leyti nákvæmir. Engu að síður þyrfti viðbúnaður og fjárfest- ingar í búnaði til mengunarvarna að miðast við þetta mat. Davíð sagði skipulag mengunar- vama ekki nægilega skýrt. Það gæti t.d. valdið töfum að ábyrgð á meng- unarslysum í höfnum og á rúmsjó væri ekki á sömu hendi. Brýnt væri að einfalda ferlið til muna. Einnig væri mikilvægt að íslensk stjórnvöld hefðu ótvíræðar heimildir til íhlutun- ar væri tahn hætta á mengunar- óhappi. Að hans mati er strand Vík- artinds gott dæmi um nauðsyn slíks íhlutunarrétts. Á ráðstefnunni ræddi Ævar Peter- sen, forstöðumaður Náttúrufræði- stofnunar, um hvað væri í húfi yrði alvarlegt mengunarslys. Hann benti á að einn helsti viðkomustaðir far- fugla væri á suður- og vesturströnd landsins. Þeir væra því í mikilli hættu yrði þar stórfellt mengunar- slys. Ævar minnti einnig á að vissir landshlutar væm viðkvæmari fynr mengunarslysum en aðrir. Þannig verpti um fjórðungur æðarfugla í Breiðafirði og um 80% varppara í álkustofninum á heimsvísu væri á norðvestanverðu landinu. Mengun- arslys þar hefði því alvarlegar afleið- ingar. Sérblöð í dag BÍÓBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.